Innlent

Menntaskólinn á Egilsstöðum sigraði í Gettu betur

Fyrsta umferð í átta liða úrslitum Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, lauk í kvöld með sigri Menntaskólans á Egilsstöðum. Austanmenn leiddu nær alla keppnina og fóru leikar á þann veg að ME náði 24 stigum en Garðbæingar náðu 22 stigum.

Nokkur spenna skapaðist í lokin þar sem Garðbæingar unnu á en það dugði ekki til og sigruðu fulltrúar ME að lokum.

Í liði FG voru Arnar Gunnarsson, Hans Marteinn Helgason og Sæþór Pétur Kjartansson.

Fyrir Menntaskólann á Egilsstöðum kepptu Arnar Jón Guðmundsson, Hrólfur Eyjólfsson og Jóhann Atli Hafliðason.

Spyrjandi í keppninni er Eva María Jónsdóttir, spurningahöfundur og dómari Örn Úlfar Sævarsson og stigavörður Ásgeir Erlendsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×