Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dapurt á gulldepluveiðum „Það má sennilega best orða þetta með því að segja að það er ákaflega rólegt yfir þessum veiðum. Við drögum trollið allan daginn og megum þakka fyrir að ná 100 tonna afla. Í gær fengum við reyndar ekki nema 60 tonn og það er ekki viðunandi árangur,“ sagði Arnþór Hjörleifsson, skipstjóri á Lundey NS, í viðtali á heimasíðu HB Granda. 13.2.2010 01:30
Bíleigandi sýknaður af kröfum Lýsingar Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing tapaði í dag máli í héraðsdómi sem það höfðaði gegn viðskiptavini sem gert hafði kaupleigusamning við fyrirtækið. Samningurinn að hluta til í erlendri mynt með gengistryggingu og krafðist Lýsing þess að maðurinn greiddi fyrirtækinu rúmar 466 þúsund krónur auk dráttarvaxta en stefndi taldi að samningurinn sem gerður var í upphafi hafi verið ólögmætur. 12.2.2010 23:52
Fjölmenni á stofnfundi Sjálfstæðra Íslendinga Fjölmenni var á stofnfundi Sjálfstæðra Evrópumanna í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Á heimasíðu hinna nýstofnuðu samtaka segir að færri hafi komist að en vildu og eru stofnfélagar um 200. 12.2.2010 22:21
Stúlka féll sex metra og lenti á bíl Lítil telpa, þriggja til fjögurra ára gömul, féll eina sex metra út um glugga á húsi í Þingholtunum á sjötta tímanum í kvöld. Að sögn lögreglu lenti hún á bifreið sem stóð fyrir neðan gluggan og hefur sennilega tekið af henni mesta fallið. Hún mun vera í rannsókn á slysadeild en að sögn lögreglu virtist hún hafa sloppið ótrúlega vel miðað við hve hátt fall var um að ræða. 12.2.2010 19:53
Jóhanna: Óþolandi að útrásarvíkingar fái sérstaka meðferð Forsætisráðherra segir að stóreignamenn sem stóðu að útrásinni og sæti rannsókn, ættu að sýna sóma sinn í að halda sig til hlés þar til rannsókn á orsökum efnahagshrunsins sé lokið. Það sé óþolandi ef þeir fái sérstaka meðhöndlun í bankakerfinu með stórfelldum afskriftum en haldi samt fyrirtækjum sínum. 12.2.2010 19:40
Kreppa áfram spýti ríkisstjórnin ekki í lófana Mikið atvinnuleysi, léleg lífskjör og versnandi velferðarkerfi verða hlutskipti Íslendinga um langa framtíð nema ríkisstjórnin spýti í lófana, segja Samtök atvinnulífsins. Þau gagnrýna stjórnvöld harðlega fyrir dugleysi og rangar ákvarðanir og segja að fimm prósenta árlegan hagvöxt þurfi til að vinna þjóðina út úr kreppunni. 12.2.2010 19:16
Kísilver í Þorlákshöfn komið á fleygiferð Samningsdrög við erlent fyrirtæki um kísilver í Þorlákshöfn voru lögð fyrir stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í dag og er stefnt að undirritun á mánudag. 12.2.2010 19:03
Icesave-viðræður hefjast eftir helgi Samningaviðræður við Breta og Hollendinga vegna Icesave hefjast í næstu viku. Leiðtogar stjórnarflokkanna vonast til að þær geti tekið skamman tíma. Forsætisráðherra segir ólíðandi að endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum dragist á langinn vegna Icesave og þeim skilaboðum hafi verið vandlega komið áleiðis til Breta, Hollendinga og Evrópusambandsins. 12.2.2010 19:01
Yfirdrifnar aðgerðir hjá lögreglunni í Tækniskólanum Menntamálaráðherra segir aðgerðir lögreglunnar í Tækniskólanum í gær, þar sem leitað var að fíkniefnum með aðstoð hunda, yfirdrifnar og ekki eigi að ala á ótta í forvarnarstarfi. Hún ætlar að taka málið upp við stjórnendur framhaldsskólanna en aðfarir sem þessar hafa viðgengist í framhaldsskólakerfinu. 12.2.2010 18:54
Móðir drengs: Óskiljanlegt að lögreglumaðurinn hafi verið sýknaður Móðir drengs sem lögreglumenn handtóku og skildu eftir glænepjulega klæddan í Örfirisey seint um nótt um miðjan vetur í fyrra segir óskiljanlegt að héraðsdómur hafi sýknað í málinu. Hún segir að lögregla verði að endurskoða vinnubrögð sín. 12.2.2010 18:44
Tugmilljónagreiðslur án útboðs Stuðningsmaður Gunnars I. Birgissonar fyrrverandi bæjarstjóra Kópavogs, sem gegnir starfi skoðunarmanns reikninga bæjarins fyrir hönd Sjálfstæðismanna, fékk rúmlega sjötíu milljónir króna frá bænum fyrir ýmis hönnunar-og eftirlitsstörf á árunum 2003 til 2008. Ekkert þessara verka var boðið út. 12.2.2010 18:39
Ja.is besti íslenski vefurinn Ja.is var valinn besti íslenski vefurinn á Íslensku vefverðlaunum sem Samtök vefiðnaðarins stóðu fyrir í dag. Katrín Júlísdóttir, Iðnaðarráðherra afhenti verðlaunin við athöfn sem haldin var í Hugmyndahúsi háskólanna og voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi vefi í 10 flokkum. Í tilkynningu frá samtökunum segir að alls hafi borist yfir 100 tilnefningar til verðlaunanna að þessu sinni, en þetta er í níunda skipti sem Íslensku Vefverðlaunin eru haldin. 12.2.2010 18:18
Skorað á Birnu bankastjóra að mæta á Austurvöll Samtökin Nýtt Ísland skora á Birnu Einarsdóttir bankastjóra að mæta og taka til máls á tíunda kröfufundi vetrarins Austurvelli á morgun. Í tilkynningu frá samtökunum segir að þau hafi sótt Birnu heim í Íslandsbanka í vikulegum bílalána mótmælum síðastliðinn þriðjudag. 12.2.2010 17:47
Handtekin fyrir að stelast í þvottavél Karl og kona voru í gær handtekin fyrir að þvo þvott. Ástæða afskipta lögreglu af þvottafólkinu var sú að þau voru við iðju sína í ókunnugu húsi og án heimildar húsráðanda. 12.2.2010 17:31
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hafin í Höllinni Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars 2010 er nú hafin í Laugardalshöll og er opið alla daga frá kl. 10:00 - 22:00. 12.2.2010 17:21
Þjóðfundur á Sauðárkróki Þjóðfundur verður haldinn á morgun, laugardaginn 13. febrúar, í Fjölbrautaskóla Norð-Vesturlands á Sauðárkróki. 12.2.2010 16:43
Húsleitir í Lúxemborg - enn verið að yfirheyra starfsmenn Um fjörtíu lögregluþjónar í Lúxemborg leituðu í bankanum Banque Havilland sem áður var Kaupþing í Lúxemborg. Húsleitirnar, sem hafa staðið í nokkra daga, voru gríðarlega umfangsmiklar en sérstakur saksóknari auk fjögurra fulltrúa embættisins tóku einnig þátt í leitinni. 12.2.2010 16:27
Rauði krossinn sendir fleiri hjálparstarfsmenn til Haítí Sex íslenskir hjálparstarfsmenn eru á leið til Haíti nú um helgina að beiðni Alþjóða Rauða krossins. Mánuður er nú liðinn frá því jarðskjálftinn mikli reið þar yfir, og hefur Alþjóða Rauði krossinn hækkað neyðarbeiðni sína úr 12 milljörðum íslenskra króna í 25 milljarða. 12.2.2010 16:19
Utanríkisráðherra hittir nýjan stækkunarstjóra ESB Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund með Stefan Füle, sem tók í vikunni við stöðu framkvæmdastjóra stækkunarmála í nýrri framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Þetta kom fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. 12.2.2010 16:17
Húsleitir standa yfir í Banque Havilland í Lúxemborg Húsleitir standa nú yfir í Banque Havilland í Lúxemborg, sem áður var dótturfélag Kaupþings í Lúxemborg, vegna rannsóknar á málefnum tengdum Kaupþingi. 12.2.2010 15:59
Ekki sektaðir fyrir að rjúfa trúnað í mansalsmálinu Dómari Héraðsdóms Reykjaness féllst ekki á að sekta Fréttamenn Stöðvar 2, Breka Logason og Andra Ólafsson, fyrir að greina frá því sem gerðist í lokuðum réttarhöldum í mansalsmálinu svokallaða. 12.2.2010 15:24
Ungir vinstri grænir mótmæla niðurskurði geðlyfja Stjórn Ungra vinstri grænna hefur sent frá sér ályktun þar sem fyrirhugaðri skerðingu á niðurgreiðslu geðlyfja er mótmælt og lýsir félagið jafnframt yfir þungum áhyggjum vegna þeirra afleiðinga sem það kann að hafa í för með sér. 12.2.2010 15:18
Stefnir í harðann prófkjörsslag í Kópavogi Bæjarstjóri Kópavogs, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og bæjarfulltrúi flokksins hafa sent frá sér stuðningsyfirlýsingu þar sem þau segjast styðja Ármann Kr. Ólafsson til forystu í prófkjöri Sjálfstæðismanna sem verður haldið 20. febrúar. 12.2.2010 14:59
Staða Icesave-viðræðna skýr í lok næstu viku Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að það sé óeðlilegt að þeir sem sæti rannsókn sérstaks saksóknara fái fyrirgreiðslur og afskriftir áður en niðurstaða fæst í rannsókn viðkomandi mála. Þá sagði hún einnig á fundinum að Icesave-málið ætti að vera orðið skýrt í lok næstu viku. 12.2.2010 14:27
Prófessor strunsaði út úr viðtali á Útvarpi Sögu „Ég var sko ekkert dónaleg við hann,“ segir Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu, en hagfræðiprófessorinn Þórólfur Matthíasson gekk út úr viðtali hjá henni í morgun eftir að hún krafði hann svara varðandi Icesave. 12.2.2010 12:51
Byggðastofnun fær 3,6 milljarða - hálfur milljarður í ferðamannastaði Ríkisstjórnin tilkynnti í hádeginu að eigið fé Byggðastofnunnar yrði aukið um 3,6 milljarða í þeim tilgangi að styðja við atvinnuuppbyggingu. Ríkisstjórnin fundaði í morgun en situr nú á blaðmannafundi í Stjórnaráðinu. 12.2.2010 12:37
Frítt inn á öll söfn í kvöld Frítt er inn á öll söfn höfuðborgarsvæðisins í kvöld, en Safnanóttin svokallaða verður formlega sett klukkan sjö á túninu við tjarnarbrúna. Að setningu lokinni tekur við ljósagjörningur bandaríska listamannsins Bill Fitzgibbons. Hann mun lýsa upp öndvegissúlur Ráðhússins og tónlistarmaðurinn Sverrir Guðjónsson skapar tónmynd við verkið. 12.2.2010 12:14
Finnur á fundi viðskiptanefndar Fundur viðskiptanefndar Alþingis þar sem fjallað er um verklagsreglur bankanna stendur nú yfir. Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka er meðal gesta á fundinum en viðskiptanefnd krefst svara um hvaða reglur gildi um skuldameðferð og aðkomu eigenda að fjárhagslegri endurskipulagninu fyrirtækja sinna. Málefni Haga og Samskipa, félags Ólafs Ólafssonar, hafa verið mikið í umræðunni og eru væntanlega á meðal þeirra mála sem tekin verða fyrir á fundinum. 12.2.2010 12:05
Byko blekkti neytendur - sektað um 10 milljónir Neytendastofa hefur sektað Byko um 10 milljónir króna fyrir að brjóta gegn þeim lagaákvæðum og reglum sem gilda um útsölur. Það er hæsta stjórnvaldssekt sem Neytendastofa getur beitt. 12.2.2010 11:32
Flugmenn Icelandair samþykkja kjarasamning Flugmenn Icelandair samþykktu nýgerðan kjarasamning við flugfélagið í atkvæðagreiðslu sem lauk á miðnætti á miðvikudag. Áður höfðu þeir boðað til verkfalls í byrjun febrúar en ekkert varð af því eftir að samningaviðræður hófust á nýjan leik. 12.2.2010 11:09
Sophia Hansen dæmd í skilorðsbundið fangelsi Sophia Hansen var dæmd í 6 mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára fyrir að bera rangar sakir á Sigurð Pétur Harðarson. Dómurinn féll fyrir stundu í Héraðsdómi Reykjavíkur en hún mætti ekki sjálf. 12.2.2010 10:29
Þorleifur: Ég hefði getað valið orð mín betur Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, segir að hann hafi getað val orð sín betur í atburðarásinni sem hófst í kjölfar forvals flokksins um síðustu helgi. Við hafi tekið tilfinningaþrungið ferli og ásakanir gengið á víxl. 12.2.2010 10:09
Leik- og grunnskóli undir sama þaki í Úlfarsárdal Borgarráð samþykkti einróma á fundi sínum í gær að stofna skóla í Úlfarsárdal sem sameinar undir einu þaki leikskóla og grunnskóla ásamt frístundastarfi fyrir börn frá eins árs aldri til tólf ára. Áherslur í starfseminni verða listir og lýðheilsa, umhverfismennt og læsi. 12.2.2010 09:37
Steingrímur: Stefnt að viðræðum í næstu viku Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, vonast til þess að nýjar viðræður við Breta og Hollendinga í Icesavedeilunni hefjist í næstu viku. Það sé þó ekki frágengið. Staðan í málinu sé ákaflega viðkvæm og aðstæðurnar brothættar. Þetta kom fram í viðtali á Rás 2 í morgun. 12.2.2010 08:54
Strákagöng lokuð í dag Vegurinn um Strákagöng á Siglufjarðarvegi verður lokaður í dag milli klukkan tíu og eitt vegna viðgerða, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 12.2.2010 08:41
Man ekki eftir jafn ömurlegu máli á 30 ára starfsferli Barnaverndastofa er að undirbúa sérstaka meðferð fyrir börn sem hafa sætt líkamlegu ofbeldi á heimilum og börn sem hafa orðið vitni að heimilisofbeldi. 12.2.2010 07:00
Brot á umgengnisrétti verði refsiverð Úrræði skortir fyrir foreldra sem fá ekki að umgangast börnin sín eins og umgengnisréttur kveður á um. Þetta er mat Maríu Júlíu Rúnarsdóttur lögfræðings sem kynnti meistararitgerð sína um foreldrafirringu á ráðstefnu um umgengnistálmanir og innrætingu eftir skilnað sem haldin var í vikunni. 12.2.2010 06:45
Klám er til sölu í vefgátt Vodafone Upplýsingatækni Í farsímavefgáttinni Vodafone Live er að finna klám til sölu. Af stóru farsímafélögunum er Vodafone enn sem komið er eitt um að bjóða slíkt efni. Öll bjóða félögin hins vegar upp á tengingu við internetið og hvaðeina sem þar er að finna. 12.2.2010 06:00
Óvíst með fjármagn og orku fyrir kísilinn Fjármögnun er ekki að fullu lokið og orkusölusamningar liggja ekki fyrir vegna kísilmálmverksmiðju í Helguvík. Áformað er að hefja framkvæmdir við byggingu verksmiðjunnar í sumar. 12.2.2010 05:00
Samningurinn nær óbreyttur Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Jacob Vestergaard, starfsbróðir hans í Færeyjum, hafa gengið frá fiskveiðisamningi Íslendinga og Færeyinga fyrir árið 2010. Samningurinn er nær óbreyttur milli ára. 12.2.2010 04:00
Barnaverndarmálum fjölgar milli ára Tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgaði um 16,3 prósent fyrstu níu mánuði síðasta árs, miðað við sama tíma í fyrra. 12.2.2010 04:00
Verðum að líta til Japans Mikilvægt er að stjórnvöld marki leiðina úr kreppunni og móti framtíðarsýn fyrir landið, að sögn Kolbeins Björnssonar, kennara í japanskri hagsögu við Háskóla Íslands. 12.2.2010 03:30
Sjálfstæðisflokkurinn og VG mælast stærstir Sjálfstæðisflokkurinn mældist stærstur í könnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið Heimur dagana 5. - 10. febrúar. Sjálfstæðisflokkurinn mældist með um 35% fylgi, 11.2.2010 22:19
Kjörstjórn VGR segir af sér Kjörstjórn Vinstri grænna í Reykjavík hefur ákveðið að víkja sæti eftir prófkjörið sem fór fram um helgina. 11.2.2010 21:50
Svavar segir dóminn áfall fyrir íslenskt samfélag Dómur Hæstaréttar Íslands þar sem lögbann yfir Ístorrent var staðfest er áfall fyrir frjáls skráarskipti á Íslandi og íslenskt samfélag, segir Svavar Lúthersson, eigandi Istorrent, í tilkynningu sem hann sendi fjölmiðlum. 11.2.2010 19:30