Fleiri fréttir

Búast við mikilli umferð við kirkjugarða í dag

Búast má við talsverðri umferð við kirkjugarða á höfuðborgarsvæðinu í dag, aðfangadag. Lögreglan mun fylgjast sérstaklega með umferð við Fossvogskirkjugarð og Gufuneskirkjugarð og greiða fyrir umferð eins og hægt er.

Gekk berserksgang á heimili foreldra

Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði afskipti af manni um tvítugt í nótt sem gekk berserksgang á heimili foreldra sinna. Maðurinn er í haldi lögreglunnar og er búist við því að skýrsla verði tekin af honum í dag.

Folöldin hafa unnið hjörtu heimamanna

„Folöldin eru komin og unnu hjörtu Mexíkóanna um leið og þau birtust.“ Þetta stendur í tölvupósti sem hin þýska hestakona, Regína Hof, skrifaði Huldu Gústafsdóttur á Árbakka í Rangárvallasýslu, útflytjanda sjö folalda, sem flutt voru frá Íslandi til Mexíkó.

Fjörugur og góður dagur

Níu börn komu í heiminn á fimm tímum á Landspítalanum í gærmorgun sem er vel yfir meðaltali. Eins og venja er voru sex ljósmæður á vakt, fjórar á fæðingargangi og tvær í Hreiðrinu.

Jól á framandi slóðum

„Þetta var allt öðruvísi upplifun,“ segir Eydís Rún Jónsdóttir. Hún eyddi síðustu jólum í borginni Feira de Santana í Brasilíu, þar sem hún var skiptinemi. „Við settum upp jólatré í byrjun desember en eftir það var eiginlega enginn jólaundirbúningur hjá fjölskyldunni fyrr en á aðfangadag.

Niðurskurðarkrafan hreint ótrúlega há

„Sparnaðarkrafan á spítalann er ótrúlega há. Við höfum ekkert val, við verðum að ná okkar markmiðum, ná að fylgja fjárlögum og einbeita okkur að öryggi sjúklinga,“ segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans.

Mestu annir þingsögunnar

„Ég held að þetta sé annasamasta árið í sögu Alþingis, að minnsta kosti frá því að ég hóf hér störf og það er langt síðan,“ segir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis.

Borgin byggði piparkökubæinn að nýju

Piparkökubærinn í Bergen, sem er sá stærsti í heimi, var eyðilagður af ölvuðum manni sem ekki gat gefið neina skýringu á framferði sínu. Í bænum voru 1.960 mannvirki sem þöktu þúsundir fermetra, hann var byggður af tólf þúsund íbúum borgarinnar; fjölskyldum, leikskólabörnum og starfsmönnum fyrirtækja.

Á von á viðræðum eftir jól

Formlegar viðræður milli bæjarstjórna Álftaness og Garðabæjar um sameiningu sveitarfélaganna eru ekki hafnar en bæjarstjóri Álftaness hefur þó haft samband við bæjarstjóra Garðabæjar.

Fara heim af sjúkradeildum fyrir hátíðina

Töluvert annríki hefur verið hjá slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum á höfuðborgarsvæðinu í dag. Sem betur fer hefur þó ástæðan ekki verið sú að um stórbruna eða slys hafi verið að ræða.

Tugir ferðamanna í sveitagistingu á Síðu um jólin

Ferðaþjónustubóndi við Kirkjubæjarklaustur verður með uppundir fjörutíu erlenda ferðamenn í gistingu um jólin. Þeir vilja sjá Skaftafell og Jökulsárlón en einnig snjó, Norðurljós og stjörnuhimin.

Dæmi um að verð hækki þegar fólk er á leið á kassann

Verðbreytingar eru tíðar í verslunum fyrir jólin og dæmi um að verslanir breyti vöruverði nokkur þúsund sinnum í desembermánuði. Talsmaður neytenda óttast að stöðugar verðbreytingar rugli verðskyn neytenda en dæmi séu um að verð hækki jafnvel þegar fólk er á leið á kassann til að borga.

Aldrei fleiri umsóknir um jólaaðstoð

Úthlutun í sameiginlegri Jólaaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar, Mæðrastyrksnefndar og Reykjavíkurdeildar RKÍ, ásamt deildunum í Kópavogi og Hafnarfirði, er lokið. Formlegri úthlutun lauk síðdegis í gær og alls bárust um 3.900 umsóknir sem er veruleg aukning frá liðnum árum.

Féll í sjóinn við Faxagarð

Maður féll í sjóinn við Faxagarð í Reykjavíkurhöfn fyrr í dag. Lögregla var fyrst á vettvang og náði manninum upp úr sjónum. Hann var síðan fluttur með sjúkrabíl á spítala þar sem hlúð er að honum enda mun hann hafa ofkælst. Ekki er ljóst á þessari hvað olli því að maðurinn féll í sjóinn.

Eiður Smári stefnir ritstjórum og blaðamanni DV

Fótboltakappinn Eiður Smári Guðjohnsen er búinn að stefna ritstjórum DV og blaðamanni fyrir að skýra opinberlega frá einkamálefnum hans. Samkvæmt frétt sem birtist á DV fyrir stundu segir að Eiður krefjist fimm milljóna í miskabætur og eina milljón til viðbótar til að kynna dóminn opinberlega.

Setur spurningamerki við laumuhækkun Hagkaups

„Ég set spurningamerki við það að verslanir séu mikið að lauma hækkunum inn á vörum sem eru mjög sölulegar þá stundina,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytandasamtakanna, um skyndilega hækkun Hagkaups á vörum fyrir jól og DV greindi frá fyrr í dag.

Leiðréttingar eru sjónhverfingar

Leiðréttingarleiðir bankanna eru sjónhverfingar að mati Hagsmunasamtaka heimilanna sem hafa skoðað þær ítarlega. Þau kalla því áfram eftir tafarlausum almennum aðgerðum stjórnvalda.

Stefnir í hvít jól fyrir austan fjall

Þrátt fyrir að veðurspár geri ráð fyrir rauðum jólum á Suður- og Suðvesturlandi byrjaði að snjóa í dag fyrir austan fjall. Spáin gerir ráð fyrir að áfram verði kalt og því allar líkur á því að snjórinn sem fallið hefur í dag hverfi ekki á næstunni. Íbúar í Hveragerði og á Selfossi og í nágrenni geta því búist við hvítum jólum þrátt fyrir allt.

Aftansöngur í Grafarvogskirkju frá Ástralíu til Skotlands

Íslenskir læknar í Skotlandi og íslenskur organisti í Sidney í Ástralíu virðast í fljótu bragði eiga fátt sameiginlegt. Að sögn séra Vigfúsar Þórs Árnasonar eiga þeir eitt sameiginlegt; að horfa á aftansöng í Grafavogskirkju á aðfangadag.

Jólapakkar frá Bandaríkjunum ná ekki til landsins í tæka tíð

Tafir eru á sendingum frá Bandaríkjunum, bréfum og pökkum, og ljóst að þær munu ekki allar ná til Íslands í tæka tíð fyrir jólin. Greint var frá málinu á Vísi í gær og þá var málið í skoðun hjá póstinum. Nú er hins vegar endanlega útséð um að pakkarnir berist í tæka tíð.

Rafmagnsleysi kostar Mjólkursamsöluna rúma hálfa milljón

Nokkurt tjón varð hjá Mjólkursamsölunni á Selfossi í morgun þegar 6000 lítrar af mjólk fóru forgörðum vegna rafmagnsleysis, en rafmagnslaust varð í fimm mínútur þegar grafa í nágrenninu rakst í háspennustreng við Ljósafossvirkjun.

Hrollkalt í Mývatnssveit - húsfreyja kippir sér ekki upp við kuldann

„Þegar ég leit á mælinn minn sýndi hann 17 til 18 stiga frost," segir Guðrún Þórarinsdóttir, húsfreyja á gistiheimilinu Eldá í Mývatnssýslu en frost í Mývatnssveit fór niður í 22,8 stig í Svartárkoti í Bárðardal. Því var hrollkalt í sveitinni í nótt en RÚV greindi frá því að heimskautaloft væri yfir landinu og að Veðurstofan spái því að áfram verði kalt víðast hvar á landinu.

Uppbygging á Siglufirði

Á sama tíma og iðnaðarmenn á höfuðborgarsvæðinu kljást við verkefnaskort þá virðist bjart framundan á Siglufirði. Þar hyggst byggingaverktakinn Reisum.is að byggja tvö fjögurra íbúða raðhús, og þrjár einingar af parhúsum. Áætlað er að byggja húsin á gamla fótboltavellinum eða á Eyrarflöt.

Magma styrkir ÍSÍ í Vancouver

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Magma Energy Corp. hafa undirritað samkomulag um samstarf í tengslum við Ólympíulið Íslands á Vetrarólympíuleikunum í Vancouver 2010. Magma, sem á hlut í HS Orku og er með höfuðstöðvar í Vancouver, mun greiða götu Ólympíuliðs Íslands á ýmsa vegu í Vancouver fram yfir leikana.

Hélt að bílaþvottur væri eldsvoði

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um klukkan tíu í morgun þar sem tilkynnt var um eldsvoða á skemmtistaðnum Players í Kópavogi.

Gjafakort í Borgarleikhúsið slá í gegn

Aldrei hafa fleiri gjafakort í Borgarleikhúsið selst en nú í desember og því ljóst að um vinsæla jólagjöf er að ræða. Fimmtán þúsund kort hafa selst í þessum mánuði en fyrra met var frá því í fyrra. „Þá hafa aldrei selst fleiri kort á einum degi en í gær en þá seldust nær 2500 gjafakort í leikhúsið," segir í tilkynningu frá leikhúsinu.

Aflaverðmæti eykst um 15 milljarða

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 85 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2009 samanborið við rúma 70 milljarða á sama tímabili í fyrra. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 21 prósent á milli ára. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar en aflaverðmæti í septembermánuði var 9,5 milljarðar miðað við sjö milljarða í fyrra.

Sjálfstæðiskonur safna þremur milljónum

Sjálfstæðiskonur, sem stóðu að söfnuninni, Tökum höndum saman, söfnuðu alls tæplega 3 milljónir. Átakinu er ætlað að styðja barnafjölskyldur í vanda.

Helstu þjóðvegir greiðfærir en hált víða

Allir helstu þjóðvegir eru greiðfærir, en víða er hálka á Vestfjörðum og á Norður- og Norðausturlandi. Þar gengur líka á með éljum og er þar hálka víðast hvar.

Segja lánaaðgerðir sjónhverfingu

Hagsmunasamtök heimilanna kalla áfram eftir tafarlausum og frekari aðgerðum stjórnvalda og fjármálafyrirtækja, til að koma til móts við skuldsett heimili.

Eldur í vinnuvél í Kópavogi

Eldur kviknaði í stórri vinnuvél sem stóð við byggingu í Ögurhvarfi í Kópavogi í nótt. Logaði glatt þegar slökkviliðið kom á vettvang, en skamma stund tók að slökkva eldinn.

Vatnsleki í iðnaðarhúsnæði

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að stóru iðnaðarhúsi við Klettagarða í nótt vegna vatnsleka.

Rólegt hjá lögreglu í borginni

Þrátt fyrir mikla umferð á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi var óvenju rólegt hjá lögreglu og ekkert bar á ölvun, eins og stundum hefur verið.

Harður árekstur á Akureyri

Einn var fluttur á sjúkrahús eftir harðan árekstur tveggja bíla á Akureyri í gærkvöldi. Hann mun ekki vera alvarlega meiddur og aðrir sluppu ómeiddir.

Milljóna biðlaun frá fjárvana bæjarfélagi

„Þetta er alveg borðleggjandi,“ segir Sigurður Magnús­son, fyrrverandi bæjarstjóri á Álftanesi, sem krefst þess að fá greidd átta mánaða biðlaun. Sigurður tók við sem bæjarstjóri í júní 2006 eftir kosningar þá um vorið en lét af störfum í september síðastliðinn eftir meirihlutaskipti í bæjarstjórn.

Ákvörðun tekin um Icesave fyrir áramót

Frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave var tekið út úr fjárlaganefnd í gær. Guðbjartur Hannesson, formaður nefndarinnar, segir stefnt að því að ljúka málinu á milli jóla og nýárs. Hann segir nýtt lögfræðiálit stofunnar Mishcon de Reya ekki breyta neinu um skoðun sína á málinu.

Sjá næstu 50 fréttir