Fleiri fréttir

Hjúkrunarfræðingar ráðnir í störf sjúkraliða

Sjúkraliðafélagi Íslands hafa borist kvartanir yfir að verið sé að ráða hjúkrunarfræðinga í störf sjúkraliða. Einnig er kvartað yfir að hjúkrunarnemar séu ráðnir í störf sjúkraliða. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu félagsins. Með þessu telur félagið að mjög sé brotið á sjúkraliðum og eru gerðar alvarlegar athugasemdir við fyrirkomulagið.

ASÍ hefur áhyggjur af umfangi skattahækkana

Alþýðusamband Íslands hefur þungar áhyggjur af umfangi skattahækkana sem sé mun meira en boðað var við gerð stöðugleikasáttmálans. Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar ASÍ.

Ruglaðist á Reykjavík og Reyðarfirði

Landhelgisgæslan varð heldur hissa í morgun þegar flutningaskipið Nordana Teresa, sem er 6500 tonn að þyngd og 115 metrar að lengd, virtist stefna á Þorlákshöfn. Samkvæmt tilkynningu sem stjórnstöð hafði borist frá skipinu sagðist skipstjórinn vera á leiðinni til Reyðarfjarðar.

Fylgist ekki með afdrifum hælisleitanda

Dómsmálaráðuneytið fylgist ekki sérstaklega með afdrifum þeirra hælisleitenda sem sendir eru héðan. Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, segir í svari við fyrirspurn á Alþingi, að að því er varði flutning þeirra sem sendir hafa verið frá Íslandi til Grikklands hafi ráðuneytið upplýsingar um að grísk stjórnvöld hafi tekið við þeim á flugvellinum í Aþenu, en fátt um framhaldið, meðal annars hvort þeir hafi verið sendir áfram til hættulegra svæða.

Hugsanlegt að Íslendingar verði ákærðir í mansalsmálinu

Ekki er loku fyrir það skotið að þeir Íslendingar sem sátu í gæsluvarðhaldi vegna mansalsmálsins svokallaða verði að lokum ákærðir af ríkissaksóknara en fulltrúi embættisins fer yfir málið eftir að lögreglan á Suðurnesjum lauk rannsókn sinni og afhenti þeim öll gögn viðvíkjandi málið. Samkvæmt yfirlögregluþjóninum Gunnari Schram þá voru öll gögn send til ríkissaksóknara sem þarf svo að taka ákvörðun hverjir verða ákærðir í málinu.

Vilja gögnin um stuðning við Íraksstríðið fram í dagsljósið

Fjórir þingmenn vinstri grænna krefjast þess að öll gögn um ákvörðun um stuðning Íslands við innrás í Írak 2003 verði lögð á borðið. Þeir hafa lagt fram tillögu um að Alþingi ályki að fela forsætisráðherra og utanríkisráðherra að sjá til þess að birt verði öll skjöl og allar aðrar upplýsingar sem fyrir liggja frá ársbyrjun 2002 til desember 2003 sem varpa ljósi á ákvörðun þáverandi ríkisstjórnar um stuðning Íslands við innrás Bandaríkjamanna og Breta og annarra þjóða í Írak árið 2003.

Bátsverji á Dettifossi ákærður fyrir tollalagabrot

Tæplega fimmtugur bátsverji á Dettifossi hefur verið ákærður fyrir tollalagabrot með því að hafa smyglað hingað til lands tugum lítra af viskíi, vodka, Bokma sénever, gini og fleiri víntegundum. Þá á hann einnig að hafa smyglað 172 vindlingalengjum til Íslands og tæplega eitt og hálft kíló af neftóbaki.

Andri Snær fær Kairos verðlaunin

Alfred Toepfer stofnunin í Hamborg hefur tilkynnt að Andri Snær Magnason fá Kairos verðlaunin árið 2010 en þau eru talin ein mikilvægustu menningarverðlaun Evrópu samkvæmt tilkynningu.

Atvinnulaus fíkill í gæsluvarðhald

Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni sem er grunaður um fjölda innbrota á Suðurnesjum en hann var handtekinn í lok nóvember og þá úrskurðaður í varðhald til 18. desember. Maðurinn hefur margsinnis komist í kast við lögin, meðal annars vegna þjófnaðarbrota og alvarlegrar líkamsárásar.

Segja Icesave-frumvarp stangast á við stjórnarskrá

Þeir Lárus H. Blöndal hæstaréttalögmaður, lagaprófessorarnir Sigurður Líndal og Stefán Már Stefánsson rita grein í Morgunblaðið í dag um stjórnarskrána og Icesave-samningana. Í greininni segja þeir óvíst að frumvarpið um Icesave skuldbindingarnar sem Alþingi fjallar nú um standist stjórnarskrána.

Hæstiréttur staðfestir vanhæfi dómara

Hæstiréttur Íslands staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í gær um að Sigríður Ingvarsdóttir, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, viki sæti í máli Guðmundar Kristjánssonar gegn Árna Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra og íslenska ríkinu. Það voru Verjendur Árna og ríkisins sem kröfðust þess að Sigríður viki.

Meintir mansalsmenn í gæsluvarðhaldi út desember

Héraðsdómur Reykjaness hefur úrskurðað fimm karlmenn af erlendu bergi brotnu í gæsluvarðhald til 30. desember. Mennirnir eru meðal annars grunaðir um að hafa ætlað að þvinga unga konu í vændi sem kom hingað til lands frá Litháen í október.

Uppsagnir KNH-verktaka háðar veðurfari

Kristján L. Möller samgönguráðherra greindi frá því á Alþingi í morgun að forstjóri KNH-verktaka á Ísafirði hefði fullvissað hann um það í gær, að fjöldauppsagnir sem fyrirtækið tilkynnti um í fyrradag, væru einungis varúðarráðstöfun að hálfu fyrirtækisins.

Segir frumvarp um Rannsóknarnefnd Alþingis meingallað

Fyrirliggjandi frumvarp um Rannsóknarnefnd Alþingis er meingallað að mati Þórs Saari, þingmanns Hreyfingarinnar. Hann segir að frumvarpið geri ráð fyrir að þingið rannsaki sig sjálft og að upplýsingum sé leynt fyrir almenningi.

Fimm ár að dómtaka mál gegn síbrotamanni

Karlmaður játaði alvarlega líkamsárás í Héraðsdómi Reykjaness í dag en hann var ákærður af ríkissaksóknara fyrir að slá mann í andlitið með glasi í Reykjanesbæ. Athygli vekur að árásin átti sér stað fyrir um fimm árum síðan, eða í lok árs 2004.

24 ökukennarar útskrifast

Þann 5. desember verða 24 ökukennarar brautskráðir frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Nám ökukennara hefur verið á háskólastigi frá árinu 1993 við Kennaraháskóla Íslands.

Meint fyrirsagnafiff gagnrýnt harðlega

Minnihluti A-listans bókaði harða bókun á bæjarstjórnarfundi Reykjanesbæjar sem var haldinn í gær. Þar gagnrýndu þeir harðlega fyrirsögn sem birtist á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins en hún hljóðaði svo: “Viðsnúningur í rekstri Reykjanesbæjar”.

Opnunartímar veitinga- og skemmtistaða um jólin

Nú þegar jólin eru að ganga í garð er rétt að minna á reglur um skemmtanahald. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill undirstrika að áfengisveitingar eru háðar tímamörkum í leyfum borgarstjórnar eða bæjarstjórna eftir því sem við á.

Lögreglan á námskeiði um útlendinga og mansal

Þessa viku stendur yfir í framhaldsdeild Lögregluskóla ríkisins sérnámskeið um málefni útlendinga og fleira. Meðal kennsluefnis er skipulögð glæpastarfsemi og varnir gegn henni, ekki síst mansali en þetta kemur fram á vef lögreglunnar.

Versnandi veður víða um land

Veður fer versnandi á Vestfjörðum og eru vegagerðarmenn hættir mokstri á Klettshálsi og á Þröskuldum, vegna stórhríðar. Það er líka hríð á Ennishálsi og vart ferðaveður vestra, að sögn Vegagerðarinnar.

Neyðarástand hjá útgerðum með leigukvóta

Útgerðarmenn sem eiga það sameiginlegt að byggja rekstur sinn að verulegu leiti á leigu veiðiheimilda segja að neyðarástand ríki í greininni. Hópur þessara útgerðarmanna hittist á fundi í Hafnarfirði föstudaginn 27. Nóvember. Fundarmenn eru flestir aðilar í LÍÚ og þegar boðað var til fundarins var miðað við að boða fulltrúa útgerða sem hefðu leigt til sín 100 tonn eða meira.

Jólaþjófar skiluðu skrauti

Nokkuð bar á þjófnaði á jólaskrauti úr görðum bæjarbúa í síðustu viku samkvæmt lögreglunni á Akranesi.

Sigrún Elsa í annað sætið

Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hyggst gefa kost á sér í 2. sæti framboðslistans í prófkjöri flokksins sem fram fer þann 30. janúar næstkomandi.

Innflytjendur eru níu prósent mannfjöldans

Hinn 1. janúar 2009 voru innflytjendur á Íslandi 28.644 eða níu prósent mannfjöldans. Þetta er mikil aukning frá árinu 1996 þegar innflytjendur voru einungis 2,0 prósent landsmanna eða 5.357 alls, að því er fram kemur á heimasíðu Hagstofunnar. Á sama tímabili hefur þeim sem hafa engan erlendan bakgrunn fækkað hlutfallslega úr 93,7 prósentum í 84,6 prósent.

Brotist inn í tvö fyrirtæki

Brotist var inn í fyrirtæki í Teigahverfi og við Laugaveg í Reykjavík í nótt. Ekki liggur enn fyrir hverju var stolið, en þjófarnir komust undan í báðum tilvikum.

Velti bíl í Bláskógabyggð

Ökumaður, sem var einn í bíl sínum, slapp nær ómeiddur þegar bíll hans valt út af Auðsholtsvegi í Bláskógabyggð seint í gærkvöldi og hafnaði úti í skurði.

Braust inn og reyndi að kveikja á sjónvarpi

Fjölskylda á Selfossi vaknaði við það í nótt að torkennilegar mannaferðir voru í húsinu. Þegar að var gáð var ókunnugur maður sestur fyrir framan sjónvarpið inni í stofu og var að reyna að kveikja á því.

Vetrarfærð og ófært um allt land

Vetrarfærð er um allt land og sumir vegir eru ófærir. Eftir að vind fór að hreyfa í gærkvöldi dró víða í skafla og þurfti lögreglan í Keflavík til dæmis að aðstoða fólk í nokkrum bílum á gamla varnarsvæðinu, þar sem fólkið sat fast í bílum sínum.

Segja ráðningu Davíðs ískyggilega

Blaðamannafélög Noregs, Finnlands, Svíþjóðar og Danmerkur segjast hafa þungar áhyggjur af þróun íslenskra fjölmiðla í kjölfar bankahrunsins hér á landi og gagnrýna ráðningu Davíðs Oddssonar í ritstjórastól Morgunblaðsins.

Dráttarvextir næsta árs yfir 400 milljónir

Allt útlit er fyrir að Landspítalinn hefji næsta starfsár sitt með neikvæðan höfuðstól sem nemur 2,8 milljörðum króna. Þetta þýðir mikinn fórnarkostnað. Bara dráttarvextir af ógreiddum skuldum gæti numið nokkur hundruð milljónum.

Strandar á ríki og borg

Lífeyrissjóðirnir eru í startholum með fjármagn fyrir samgöngumiðstöð í Vatnsmýrinni og tvöföldun Suðurlandsvegar. Óleyst mál innan stjórnar og á milli stjórnar og borgar standa í vegi fyrir framkvæmdum.

Vaktir sagðar alltof fámennar

Vaktir á Landspítala – háskólasjúkrahúsi eru sagðar allt of fámennar, vinnu­álagið hafi aukist mikið og millistjórnendum hafi á ákveðnum sviðum fjölgað meðan starfsmönnum á gólfinu hafi fækkað.

Hektarinn á 20.000 krónur

Einstaklingar eða fyrirtæki ættu að geta endurheimt einn hektara af framræstu votlendi í náttúru Íslands með því að leggja fram eitthvað á milli tuttugu til fjörutíu þúsund krónur í náttúrusjóðinn Auðlind. Sjóðurinn var stofnaður fyrir ári og hélt upp á afmælið í gær. Lengi hafði staðið til að stofna sjóðinn og þegar loks var slegið til skall á kreppa, segir Salvör Jónsdóttir, formaður Auðlindar.

Nýjung í höfundarrétti

Lagadeild Háskólans í Reykjavík, Félag um stafrænt frelsi á Íslandi (FSFÍ) og Creative Commons-samtökin hafa gert með sér samstarfssamning um þýðingu og aðlögun „almenns hugverkaréttar“ á Íslandi. Tryggvi Björgvinsson, formaður FSFÍ, kynnti samstarfið á ráðstefnu sem félagið hélt í gær í Háskólanum í Reykjavík.

Skaðleg efni í rafsígarettum

Lyfjastofnun hefur sent frá sér viðvörun þar sem varað er við kaupum á rafsígarettum á netinu. Jafnframt að innflutningur og dreifing þeirra hér á landi sé brot á lyfjalögum.

Óvíst hvenær fólk verður kært

Hjá Ríkisendurskoðun hefur ekki verið ákveðið hvenær þeir frambjóðendur til síðustu alþingiskosninga, sem trassa að skila inn lögbundnum fjárhagsupplýsingum vegna framboðsins, verða kærðir til lögreglu.

Segir helstu fyrirheit leikskólaráðs svikin

Formaður leikskólaráðs sagði í bréfi í maí að hann hefði, í samræmi við aðgerðaáætlun borgarinnar, lagt megináherslu á að standa vörð um grunnþjónustu, störf og gjaldskrár, í áætlunum um niðurskurð hjá leikskólum.

Framsóknarmenn í Kópavogi halda prófkjör

Fulltrúaráð framsóknarfélaganna í Kópavogi hefur ákveðið að efna til prófkjörs 27. febrúar næstkomandi um val á frambjóðendum Framsóknarflokksins til setu á framboðslista flokksins fyrir sveitastjórnarkosningar í vor.

Stjórn UVG mótmælir niðurskurði Árna Páls

Stjórn Ungra vinstri grænna leggst alfarið gegn tillögum Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra um frekari niðurskurð á fæðingarorlofi. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórnin sendi frá sér undir kvöld. Ungliðarnir minna á að kjör nýbakaðra foreldra hafi þegar verið skert umtalsvert á síðasta ári og hámarksgreiðslur lækkaðar.

Engin orka til Helguvíkur nema háspennulína fáist í Þorlákshöfn

Það verður ekkert framkvæmdaleyfi veitt fyrir Suðvesturlínum nema háspennulína komi einnig til Þorlákshafnar. Þetta er einróma afstaða sveitarstjórnar Ölfuss, sem ræðir nú við erlenda aðila um bæði sólarflöguverksmiðju og járnblendiverksmiðju og vill að stjórnvöld stuðli að orkufrekum iðnaði í Þorlákshöfn.

Hleypa Íslendingum að makrílborðinu

Íslendingum var í dag boðið að setjast að samningaborði um makrílkvóta í Norðaustur-Atlantshafi en Evrópusambandið, Færeyjar og Noregur hafa í nokkur ár neitað að hleypa Íslandi að. Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra segir þetta stóran áfanga og mikið fagnaðarefni.

Sjá næstu 50 fréttir