Fleiri fréttir

Hæstiréttur efast um hjónavígslu Fischers

Hæstiréttur hefur fellt úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að ekki þurfi að taka dánarbú Bobby Fisher til opinberra skipta. Það voru systursynir Fischers sem lögðu kröfuna fram.

Flugfreyjur kjósa um verkfallsheimild

Flugfreyjur í Flugfreyjufélagi Íslands ákváðu í gær að efna til kosningar um verkfallsheimild. Kjörfundur stendur yfir til morguns. Ef verkfallsheimild verður samþykkt er gert ráð fyrir að verkfallið hefjist 2. janúar næstkomandi. Að sögn Sigrúnar Jónsdóttur, formanns Flugfreyjufélagsins, snýst kjaradeila flugfreyja um forgangsréttarákvæði í leiguflugi erlendis og starfsaldursákvæði.

Ákveðið að fjölga í Barnavernd Reykjavíkur

Velferðarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í dag samhljóða tillögu um að fjölga stöðugildum hjá Barnavernd Reykjavíkur. Í tillögunni felst að fjölgað verði í Barnavernd um eitt stöðugildi lögfræðings og tvö stöðugildi félagsráðgjafa. Þorleifur Gunnlaugsson lagði tillöguna fram í borgarráði en henni var siðan vísað til Velferðarráðs og var samþykkt þar í dag.

Bjarni: Langsótt tilraun til að koma höggi á mig

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að frétt DV um að hann hafi verið þátttakandi í misheppnuðum fjárfestingum Sjóvár í Makaó sé langsótt tilraun til að koma höggi á hann fyrir að stunda brask.

Vonbrigði að Ögmundur og Lilja fylgi ekki meirihlutanum

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir það vera vonbrigði að Ögmundur Jónasson og Lilja Mósesdóttir hafi greitt atkvæði gegn Icesave frumvarpi ríkisstjórnarinnar á Alþingi í gær. Stjórnarþingmenn þurfi stundum að taka óvinsælar ákvarðanir.

Yfir 19 þúsund manns skora á þingmenn vegna SÁÁ

Yfir 19000 manns hafa skrifað undir áskorun til þingmanna um að hafna ráðagerðum um skerðingu á framlögum til áfengis- og fíkniefnameðferðar á vegum SÁÁ. Þetta kemur fram á vef SÁÁ, en þar fer söfnunin fram.

Ómar Valdimarsson til Eþíópíu á vegum Rauða krossins

Ómar Valdimarsson sendifulltrúi Rauða kross Íslands hélt í gærkvöldi til Eþíópíu þar sem hann mun starfa að upplýsingamálum vegna mikilla þurrka sem geisað hafa í landinu og valdið miklum matvælaskorti.

Lögreglumenn á æfingu á Keflavíkurflugvelli

Lögreglumenn frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu taka nú þátt í reglubundinni æfingu á Keflavíkurflugvelli. Lögreglubílar á vegum embættisins hafa því verið áberandi á Reykjanesbrautinni í morgun af þessari ástæðu.

Innbrot í dekkjaverkstæði - róleg nótt að öðru leyti

Brotist var inn í dekkjaverkstæði í Breiðholti rétt fyrir miðnætti í gær. Að sögn lögreglu liggur ekki fyrir hvort þjófarnir hafi haft eitthvað upp úr krafsinu. Um svipað leyti var ökumaður stöðvaður og handtekinn annarsstaðar í borginni, grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.

Gætu verið útrásarvíkingar sem óttast frystingu eigna

„Það eru óþolinmóðir Íslendingar og óþolinmóðir útlendingar, sem voru lokaðir inni með gjaldeyrishöftunum sem hafa farið þarna út,“ segir Þórólfur Matthíasson prófessor, spurður hvað hann lesi út úr upplýsingum sem fram hafa komið á Alþingi um að fjárhæðir meintra gjaldeyrissvika, sem Seðlabankinn rannsakar nemi 57,5 milljörðum króna á 10 mánaða tímabili. Hann segir að erlendu aðilarnir geti verið jöklabréfaeigendur. „En að því marki sem þetta eru óþolinmóðir Íslendingar, gætu það verið útrásarvíkingar sem óttast frystingu eigna sinna.“

Sársaukafull hagræðing í velferðarmálum

Algerlega óásættanlegt er að borgarstjórnarmeirihlutinn fari í sársaukafulla hagræðingu í velferðarmálum, þvert á það sem talað hafi verið um, segir borgarfulltrúi Vinstri grænna.

Ríkið borgar málskostnaðinn

Íslenska ríkið var sýknað af kröfum landeigenda í tveimur þjóðlendumálum í Vopnafirði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Í báðum tilvikum höfðu sækjendur fengið gjafsókn. Greiðist sá kostnaður, samtals 2,1 milljón króna, úr ríkissjóði.

Hafnfirðingar skoða framhald

Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir nú skoðað hvort leitað verði eftir því að fá hnekkt ákvörðun Einkaleyfastofunnar um að bærinn fá ekki umbeðinn einkarétt á vörumerkinu Jólaþorpi.

Engar skepnur sakaði í bruna

Tvær geymslur á bænum Neðritungu í Örlygshöfn við Patreks­höfn gereyðilögðust í eldi í gærkvöldi. Eldurinn kom upp klukkan hálf sjö og hafði verið slökktur á tíunda tímanum. Hátt á fimmta tug lögreglu-, slökkviliðs- og björgunarsveitarmanna hjálpaði til við slökkvistarfið.

Brutust inn með klaufjárni

Piltarnir þrír sem kveiktu í skólastofu í Waldorf­skóla brutust inn í hann með klaufjárni. Missagt var í Fréttablaðinu í gær að þeir hefðu verið nemendur í Waldorfskóla. Hið rétta er að þeir hafa verið nemendur í Fellaskóla. Í þeim skóla gerðu þeir ráðstafanir til þess að komast inn eftir að allir voru farnir heim, með því að troða bréfi í dyralæsingu. Þeim tókst ekki að kveikja í skólahúsnæðinu, þrátt fyrir nokkrar tilraunir, þar sem öryggisvörður varð eldsins var áður en hann náði að breiðast út.

Fríhöfnin í Keflavík í klóm spillingarafla

„Lengi vel var það alþekkt að allir sem fengu vinnu í Fríhöfninni voru tengdir ákveðnum pólitískum flokkum, annaðhvort beint eða í gegnum fjölskyldumeðlimi,“ segir í fimmtíu ára afmælisriti Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli.

Kanna sparnað með opnum hugbúnaði

Heildarkostnaður ríkisins vegna hugbúnaðar nam 7,5 milljörðum króna á þriggja ára tímabili, 2006 til 2008. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Birgittu Jónsdóttur, þingmanns Hreyfingarinnar.

Flest liggur fyrir og margt á island.is

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á ekki von á að neitt komi fram í nýrri meðferð fjárlaganefndar á Icesave-málinu sem breyti því að ráði eða bæti. Flestallt, ef ekki allt, liggi þegar fyrir.

Vilhjálmur fær gögn um lán

Skilanefnd Glitnis á að afhenda Vilhjálmi Bjarnasyni, lektor og fjárfesti, upplýsingar um 24 milljarða króna veðlaust lán Glitnis til fjárfestingarfélagsins Fons. Þrotabú Fons þarf hins vegar ekki að afhenda Vilhjálmi sambærileg gögn.

Heimila á innflutning sæðis

Heimild til innflutnings á djúpfrystu svínasæði verður til þess að efla, styrkja og auka svínarækt í landinu. Þetta kemur fram í áliti sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis vegna frumvarps um breytingu á lögum um innflutning dýra.

Samningar samþykktir

Samningar Blaðamanna­félags Íslands og Samtaka atvinnu­lífsins voru samþykktir á kjörfundi á mánudag. Kjörsókn var lítil, tæplega ellefu prósent.

Níu mánuðir fyrir dópakstur

Kona á þrítugsaldri hefur verið dæmd í níu mánaða fangelsi og til ævilangrar sviptingar ökuréttar fyrir fíkniefnaakstur, auk skilorðsrofs. Konan var í tvígang á stuttu tímabili staðin að því að aka bifreið, þótt hún væri ófær um að stjórna henni vegna fíkniefnaneyslu.

Fær greiddar milljóna bætur

Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt Stykkishólmsbæ til að greiða fyrrverandi forstöðumanni Dvalarheimilis aldraðra 5,8 milljónir króna í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar, að því er fram kemur á vef Skessuhorns.

Laun verkafólks hækka mest

Laun voru að meðaltali 0,7 prósentum hærri á þriðja fjórðungi ársins, en hjá verkafólki hækkuðu þau um 1,6 prósent og hækkar sú starfsstétt mest. Á sama tímabili hækkuðu laun stjórnenda um 0,1 prósent.

Stálu skammbyssu og flatskjáum

Sex ungmenni hafa verið ákærð fyrir fjölmörg innbrot og þjófnaði í umdæmi lögreglustjórans á Selfossi. Um er að ræða fimm unga menn og eina stúlku á aldrinum 18 til 22 ára.

Rannsókn RLS verði rannsökuð

Ríkislögreglustjóri hefur farið fram á að embætti Ríkis­saksóknara rannsaki hvort lög hafi verið brotin þegar meint peningaþvætti í Landsbankanum árið 2006 var ekki rannsakað.

Búast við 1.200 fram að jólum

Fjölskylduhjálp Íslands gerir ráð fyrir að á bilinu 1.000 til 1.200 fjölskyldur muni sækja jólaaðstoð félagsins í desember.

Hlustað á börn í forsjármálum

Íslensk stjórnvöld ættu að endurskoða verklagsreglur í forsjármálum, leggja meiri áherslu á að hlusta á það sem börnin vilja sjálf en nú er gert og virða mannréttindi barnanna, segir í yfirlýsingu frá stjórn Kvenréttindafélags Íslands.

Lögmaður spyr hvort Davíð hafi brotið lög

Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður, spyr hvort að Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóri, hafi með stórfelldum lánveitingum til gjaldþrota bankakerfis gerst sekur um umboðssvik.

Starfslokasamningar og kaupaukar takmarkaðir

Heimildir fjármálafyrirtækja til að gera starfslokasamninga og svokallaða kaupaukasamninga við starfsmenn og stjórnendur sína verða takmarkaðar, nái frumvarp um breytingar á lögum um starfsemi fjármálafyrirtækja fram að ganga. Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, kynnti frumvarpið á ríkisstjórnarfundi í morgun. Frumvarpið felur í sér hertar reglur um starfsemi fjármálafyrirtækja.

Sjóðurinn mun ekki spila með lífeyri framtíðarinnar

„Ég er ekki í neinum vafa um það að þessi sjóður eins og hann er uppbyggður og hverjir hafa valist í forystu hans að ítrustu varkárni verði gætt þegar fjarfest er í slíkum fyrirtækjum," segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, aðspurður hvort að með stofnun Framtakssjóðs Íslands sé ekki verið að spila með lífeyri framtíðarinnar.

Góðærisbörnin vansælli og veikari

Góðærið keyrði fjármál landsins í klessu en það var ekki það eina slæma því heilsu íslenskra barna hrakaði mjög á sama tíma. Tannskemmdir jukust, offita varð algengari, sýklalyf voru ofnotuð og geðheilsa þeirra versnaði. Þetta segir Vilhjálmur Ari Arason, læknir hafa komið fram í nýlegum rannsóknum.

Einn á gjörgæslu vegna svínaflensu

Einn sjúklingur hefur verið lagður á legudeild Landspítalans síðastliðna viku með grun um svínainflúensu en tveir eru enn inniliggjandi. Það eru því þrír einstaklingar á spítalanum, einn á gjörgæsludeild en tveir á legudeildum.

Framtíð stjórnarinnar gæti ráðist af atkvæði Þráins

Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar var samþykkt með naumum meirihluta eftir aðra umræðu á Alþingi í dag en tveir stjórnarþingmenn greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. Framtíð frumvarpsins og jafnvel ríkisstjórnarinnar gæti ráðist af atkvæði Þráins Bertelssonar, því einn stjórnarþingmaður til viðbótar gæti lagst gegn frumvarpinu við lokaafgreiðslu þess.

Eitt núll fyrir Ísland

Það er eitt núll fyrir Ísland segir sérfræðingur í Evrópumálum um niðurstöðu eftirlitsstofnunar EFTA um að neyðarlögin haldi. Hinsvegar geti málið farið til EFTA dómstólsins sem gæti komist að annarri niðurstöðu.

Helmingur hyggst draga úr neyslu vegna skattabreytinga

Fimmtíu prósent neytenda ætla að draga úr neyslu á dagvörum í ljósi breytinga ríkisstjórnarinnar á skattkerfinu, ef marka má niðurstöður nýlegrar könnunar. Fólk vill frekar skera niður í stjórnsýslunni, heldur en í menntakerfinu.

Lést við köfun

Maður lést við köfun í Hvammsvík í Hvalfirði í dag. Lögregla fékk tilkynningu um mann í vanda í sjónum um þrjú leytið og sendi á vettvang nokkuð fjölmennt lið. Kafarar og menn á slöngubát voru þar á meðal, auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang.

Gæsluvarðhaldsúrskurður Catalinu staðfestur

Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þar sem Catalinu Ncogo og starfskonu hennar er gert að sitja í gæsluvarðhaldi til föstudags. Konurnar eru grunaðar um aðild að mansali og að hafa haft milligöngu um vændi. Þetta er í annað sinn sem Catalina er handtekin vegna slíkra mála. Konurnar hafa setið í varðhaldi síðan á föstudag.

Alvarlegt slys í Hvammsvík

Alvarlegt slys varð í Hvammsvík fyrr í dag þegar maður missti þar meðvitund. Lögreglumenn og sjúkraflutningamenn voru kallaðir á staðinn ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar. Maðurinn var færður í þyrluna sem lenti í Reykjavík á fimmta tímanum.

Maður hafnaði í sjónum í Hvammsvík

Lögreglumenn úr Reykjavík og frá Akranesi og sjúkraflutningamenn komu meðvitundarlausum manni til hjálpar í Hvammsvík við Kjalarnes fyrir stundu. Björgunarmenn voru með töluverðan viðbúnað en greiðlega gekk að komast að manninum samkvæmt upplýsingum frá sjúkraflutningamanni. Ekki hafa fengist nákvæmar upplýsingar um líðan mannsins að svo stöddu og ekki er hægt að greina frá tildrögum þess að maðurinn hafnaði í sjónum.

Icesave vísað aftur til fjárlaganefndar

Icesave frumvarpinu var vísað til fjárlaganefndar með atkvæðagreiðslu á Alþingi í dag eftir umfangsmiklar umræður við aðra lotu. 32 þingmenn meirihlutans samþykktu grein um ríkisábyrgð á Icesave, en 29 greiddu atkvæði á móti.

Umferðarljós óvirk á morgun

Á morgun verður lokið við að tengja og uppfæra stýribúnað umferðarljósa á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Borgartúns. Vegna þessarar vinnu verða ljósin gerð óvirk frá klukkan 9:30 til 16:00. Á þeim tíma verða allar vinstribeygjur á gatnamótunum bannaðar. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða hraðatakmarkanir, sem eru 30 kílómetrar á meðan umferðarljós eru óvirk.

Ögmundur og Lilja leggjast gegn ríkisábyrgð á Icesave láninu

Bæði Ögmundur Jónasson og Lilja Mósesdóttir, þingmenn Vinstri grænna, greiddu atkvæði gegn ríkisábyrgð á lánum Tryggingasjóðs innistæðueigenda frá Bretum og Hollendingum vegna Icesave lánanna. Verið er að greiða atkvæði um það hvort vísa eigi Icesave málinu til fjárlaganefndar eftir aðra umræðu um málið í þinginu.

Mögulegt að lækka höfuðstól Icesave um 20%

Skilanefnd Landsbankans á lausa 180 milljarða króna um áramótin og aðrir 120 milljarðar munu innheimtast úr þrotabúinu á næsta ári, sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á Alþingi fyrr í dag. Hann segir þetta verða til þess að Tryggingasjóður innstæðueigenda geti lækkað höfuðstól Icesave skuldarinnar um 160 milljarða króna á næsta ári eða um 20%.

Sjá næstu 50 fréttir