Fleiri fréttir

Bankaráð Seðlabankans kosið á Alþingi

Sjö manna bankaráð Seðlabanka Íslands var kjörið á Alþingi í dag. Þrír koma nýir inn í bankaráðið en það eru þau Hildur Traustadóttir, Magnús Árni Skúlason og Katrín Olga Jóhannesdóttir

Líf í höfnum landsins

Ólína Þorvarðadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir reynslu af lögum um strandveiðar sem tóku gildi í vor vera góða. Mun meiri umsvif væri í höfnum landsins og að landanir væru fleiri en áður.

Þyrla sækir slasaðan ferðamann

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austurlandi og Norðurlandi voru kallaðar út eftir hádegi í dag vegna erlends ferðamanns sem slasaðist í ánni Kreppu, sem er norðan Vatnajökuls.

Stjórnin stendur og fellur með Icesave

Ríkisstjórnin stendur og fellur með Icesave málinu, samkvæmt heimildum fréttastofu. Allt íslenskt efnahagslíf sé í gíslingu málsins. Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra segir svo ekki vera, en væntir lausnar.

„Mjög gott samband á milli okkar Steingríms“

Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, segir samband sitt og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra og formanns Vinstri grænna, vera afar gott. Ögmundur kveðst ekki hafa líf ríkisstjórnarinnar í höndum sér. Hann segist einungis vera einn af 63 fulltrúum þjóðarinnar á Alþingi.

Björguðu kisa úr sjálfheldu

Kisi litli lenti í sjálfheldu þegar að hann var að leika sér í rafmagnsstaur á Seltjarnarnesi í gær. Staurinn er nokkuð hár og þegar kisi var kominn upp á topp þorði hann ekki niður. Seltirningar sem áttu leið um kenndu í brjósti um kisa og ákváðu að kalla á aðstoð lögreglunnar. Sökum anna komst lögreglan ekki á staðinn. Það kom ekki að sök því að bæjarstarfsmenn hjá Seltjarnarnesbæ sýndu af sér mikið snarræði og björguðu kisa.

Færeyingar mættir í síldarævintýrið

Þrjú færeysk skip hafa nú blandað sér í síldarævintýrið norðaustur af landinu, en afli íslensku síldveiðiskipanna í síðasta mánuði er meiri í júlímánuði en nokkru sinni, síðan að Norsk- íslenski síldarstofninn hrundi seint á sjöunda áratug síðustu aldar.

Brotist inn í iðnaðarsafnið á Akureyri

Brotist var inn í iðnaðarsafnið vi Krókeyri á Akureyri í gærkvöldi og þaðan stolið nokkrum tugum þúsunda króna. Þjófurinn komst undan, en brátt féll grunur á ungan mann, sem lögreglan heimsótti skömmu síðar og upplýstist málið þar.

Brenndist í álverinu á Grundartanga

Starfsmaður í álveri Noðruráls á Grundartanga brenndist á fótum við störf sín í gærkvöldi. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Ekki lliggur fyrir hvernig slysið atvikaðist, eða hversu alvarlega maðurinn brenndist.

Með röng veiðarfæri fyrir misgáning

Skipstjórinn á togarnum Sólbak EA, sem varðskip færði til hafnar á Akureyri í gærmorgun eftir að hann var staðinn að meintu landhelgisbroti á Vestfjarðamiðum í fyrradag, játar að hafa fyrir misgáning verið með röng veiðarfæri á svæðinu.

Líf ríkisstjórnarinnar í höndum Ögmundar

Haldi Ögmundur Jónas­son heilbrigðisráðherra fast við andstöðu sína við Icesave-málið er ríkisstjórnarsamstarfi VG og Samfylkingarinnar úr sögunni. Um það eru þingmenn í báðum flokkum sammála.

Svínaflensulyf sögð slæm fyrir börn

Alls hefur 101 greinst með svína­flensu, A(H1N1)v, á Íslandi frá því í maí 2009 og komu 29 ný tilfelli upp um helgina. Þar af eru 55 karlar og 46 konur. Þriðjungur er á aldrinum 15 til 19 ára en aðeins níu hafa greinst sem eru eldri en 40 ára. Hafa 46 fengið flensuna erlendis en 52 hér á landi. Óvíst er um þrjú tilvik. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir flensuna byrjaða að smitast innanlands.

Eiginfjárframlag ríkisins: Aðgerða sparisjóðanna beðið

Sex sparisjóðir sem sóttu um eiginfjárframlag á grundvelli neyðarlaganna í vor hafa enn ekki fengið slíkt framlag. Fjármálaráðuneytið bíður enn eftir aðgerðum sumra þeirra áður en unnt er að afgreiða beiðnirnar.

Óttast að Ísland einangrist á nýjan leik

Formaður fjárlaganefndar Alþingis segir að reynt verði til þrautar í dag og á morgun að ná samkomulagi um fyrirvara við samþykki Alþingis á ríkisábyrgð vegna Icesave-samningsins. Hann segist óttast að Ísland einangrist verði málinu ekki lokið fljótlega.

Hvalveiðigróðinn kæmi í útflutningi

„Það kemur í ljós hvort þetta fer til Japans, Noregs eða Færeyja. Við erum bara að skoða það,“ segir Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri Hrefnuveiðimanna ehf. Þegar hafa Hrefnuveiðimenn veitt 46 hrefnur og stefnt er að því að fara yfir eitt hundrað dýr áður en vertíðinni lýkur.

Hlaupa hundrað kílómetra til styrktar Mæðrastyrksnefnd

Þrettán félagar úr CrossFit Iceland munu hlaupa 100 kílómetra á fimmtudaginn til styrktar Mæðrastyrksnefnd. Leggja þeir af stað frá Skipaskaga klukkan fimm um morguninn, hlaupa meðfram Akrafjalli, hringinn í Hvalfirði og enda í Reykjavík.

Ný rennibraut Laugardalslaugar kostar um 17 milljónir

Endurbætt rennibraut í Laugardals­lauginni verður opnuð á næstunni og í síðasta lagi á þriðjudaginn eftir viku, á afmæli Reykjavíkurborgar, að sögn Loga Sigurfinnssonar, forstöðumanns Laugardalslaugar.

Stefnir í metfjölda fæðinga á þessu ári

Samtals 2.101 barn hafði fæðst á fæðingardeildum Landspítalans í gær. Það er 72 börnum fleiri en fæðst höfðu á sama tíma í fyrra. Að sögn Guðrúnar G. Eggertsdóttur, yfirljósmóður á Landspítalanum, stefnir því í metár í fæðingum, þar sem áætlaðar fæðingar í september og október eru mjög margar.

Færri Bretar og Hollendingar

Umtalsvert færri Bretar og Hollendingar ferðuðust hingað til lands í nýliðnum júlí en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt samantekt Ferðamálastofu yfir fjölda ferðamanna sem fóru um Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Staðin að meintum ólöglegum veiðum

Landhelgis­gæslan (LHG) hafði afskipti af tveimur skipum vegna meintra brota á löggjöf um veiðar innan landhelginnar á síðasta sólarhring. Varðskip stóð togarann Sólbak EA að meintum ólöglegum togveiðum á Vestfjarðamiðum og færði skipið til hafnar á Akureyri.

Heyrnarskert börn greind við fæðingu

Öll börn sem fæðast á Akureyri verða heyrnar­mæld frá og með næstu mánaðamótum. Þau bætast í hóp barna sem fæðast á Landspítalanum sem undanfarin tvö ár hafa verið heyrnarmæld nýfædd.

Raforkuverð sligar bændur að óbreyttu

Fjöldi garðyrkjubænda horfir fram á alvarlega rekstrarerfiðleika vegna hækkunar á raforkuverði. Gjaldþrot vofir yfir stórum fyrirtækjum ef ákvörðun stjórnvalda um skerðingu á niðurgreiðslum verður látin standa óbreytt. Skerðingin skilar ríkissjóði litlum ávinningi en veldur gríðarlegu tjóni, segir Bjarni Jónsson,framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda.

Mikið af stórri síld og makríl

Uppsjávarveiðar ganga vel fyrir norðaustan land og nóg virðist vera af stórri síld og makríl á stóru svæði. Á vef HB Granda segir Guðlaugur Jónsson, skipstjóri á Ingunni AK, að stór síld sé á svæðinu, en hún sé stygg og ekki auðveidd.

Viðskiptanefnd telur áfram þörf á Bankasýslu

Meirihluti viðskiptanefndar telur áfram þörf á að starfrækja Bankasýslu ríkisins, þrátt fyrir samkomulag sem náðst hefur við skilanefndir bankanna um að erlendir kröfuhafar eignist hugsanlega mikinn meirihluta í Íslandsbanka og Nýja Kaupþingi.

Vill sjá glæsisundlaug við Lækjargötu

„Er þörf á fleiri minjagripabúðum eða kaffihúsum eins og líklegast koma þarna í staðinn? Við erum gjörn á að missa tækifærin til að gera skemmtilega hluti frá okkur," segir sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason í samtali við fréttastofu.

Söguleg sumarútskrift hjá Keili

Síðasta laugardag var haldin hátíðleg sumarútskrift Keilis, en alls útskrifuðust 53 nemendur. Bættist þar í hóp þeirra 167 sem brautskráðust úr skólanum í maí.

Öryrkjar ósáttir við útvarpsgjald

Öryrkjar eru ósáttir við að þurfa að greiða fullt útvarpsgjald á meðan aldraðir horfa frítt á Ríkissjónvarpið. Formaður öryrkjabandalagsins hefur óskað eftir fundi með menntamálaráðherra vegna málsins.

Leigukvótaviðskipti með allra minnsta móti

Viðskipti með leigukvóta eru með allra minnsta móti, jafnvel miðað við árstíma, segir kvótamiðlari. Hann telur meðal annars að frysting lána hjá útgerðum skýri lítil viðskipti. Landssamband íslenskra útvegsmanna telur að einnig verði erfitt að fá leigukvóta á nýju fiskveiðiári.

Forstjóri FME sannfærður um markaðsmisnotkun

Forstjóri Fjármálaeftirlitsins er sannfærður um að um markaðsmisnotkun sé að ræða í nokkrum málum sem send hafa verið til sérstaks saksóknara. Fleiri stór og alvarleg mál séu á leið þangað.

Fyrirvarar ræddir í þingflokkum

Viðbúið er að stjórnvöld taki upp viðræður við Hollendinga og Breta um leið og Alþingi hefur afgreitt fyrirvara við ríkisábyrgð á Icesave reikningum Landsbankans. Þetta segir fulltrúi Vinstri-grænna í fjárlaganefnd.

Segir sumar hugmyndir um fyrirvara ógilda samninginn

Málamyndafyrirvarar duga ekki í Icesave málinu, segir formaður Sjálfstæðisflokksins. Forsætisráðherra segir að hugmyndir sumra þingmanna um fyrirvara yrðu til þess að ógilda samninginn.

Skilanefnd í málaferlum við stjórnarformann Icelandair

Skilanefnd Glitnis stendur í málaferlum við félag í eigu Sigurðar Helgasonar, nýkjörins stjórnarformanns Icelandair, vegna gjaldfallinnar skuldar. Sigurður og félag hans Skildingur skulda Glitni einn og hálfan milljarð. Skilanefndin hefur meðal annars kyrrsett tugmilljóna króna innistæðu félagsins.

Hannaði gistiheimili í gamalli rafstöð

„Ég nota gamla húsið, held grindinni og klæðningunni og bæti inn hosteli í litlum einingum sem eiga að líkja eftir vélunum," segir Sólveig Ragna Guðmundsdóttir, nýútskrifaður arkitekt úr Arkitektaskólanum í Árósum.

Stefna á Íslandsmet í hópsundi í sjó

ÍTR Siglunes stefnir að því að slá Íslandsmet í hópsjósundi í dag í samstarfi við apótekið Lyfju. Til stendur að halda hópskemmtisund frá Nauthólsvík og yfir til Kópavogs, og fyrir þá allra hörðustu til baka aftur.

Ökumenn sektaðir um eina og hálfa milljón

Alls voru 27 ökumenn sektaðir fyrir að aka of hratt í Árborg í síðustu viku. Lögreglan á Selfossi sektaði þessa einstaklinga en samanlögð fjárútlát þeirra voru tæp ein og hálf milljón króna vegna lögbrotanna.

Dæmd til að láta syni sína af hendi

Íslensk tveggja barna móðir er dæmd til að afhenda fyrrverandi eiginmanni sínum í Bandaríkjunum syni sína tvo samkvæmt nýlegum dómi Hæstaréttar. Konan er hvorki með fjármagn til upphalds né landvistar-og atvinnuleyfi þar í landi. Allls staðar segist hún koma að lokuðum dyrum í íslensku stjórnkerfi.

Vill samþykkja Icesave samning í þágu umhverfismála

Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands skorar á Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, formann þingflokks VG, að styðja ríkisstjórnina í Icesave málinu. Hann segist óttast að ríkisstjórnin muni að öðrum kosti falla og öll þau góðu mál sem hún gæti komið fram.

Icesave rýrir ekki rétt íslenska tryggingarsjóðsins

Ákvæði Icesave samninganna um jafnræði milli tryggingarsjóða Íslands, Bretlands og Hollands rýra ekki að neinu leyti rétt íslenska tryggingarsjóðsins þegar kemur að úthlutun úr búi Landsbankans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu vegna nýs lögfræðiálits sem unnið var fyrir ráðuneytið.

Sjá næstu 50 fréttir