Óttast að Ísland einangrist á nýjan leik 11. ágúst 2009 05:30 Svein Harald Øygard seðlabankastjóri (fyrir miðju) og Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri (til vinstri) komu á fund fjárlaganefndar í gær. Mynd/Valli
Formaður fjárlaganefndar Alþingis segir að reynt verði til þrautar í dag og á morgun að ná samkomulagi um fyrirvara við samþykki Alþingis á ríkisábyrgð vegna Icesave-samningsins. Hann segist óttast að Ísland einangrist verði málinu ekki lokið fljótlega. „Við erum sum mjög hrædd um það að við séum að lenda hér í sömu stöðu og í fyrra, að menn loki á okkur meðan óvissan er,“ segir Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar. Hann segir að endurnýja þurfi lán og lánalínur á næstu vikum og mánuðum, og óvíst sé að það gangi nema óvissu um Icesave verði eytt. Það verður að skýrast á næstu tveimur sólarhringum hvort samkomulag næst um að fara þá leið að setja fyrirvara við ríkisábyrgðina, segir Guðbjartur. Stjórnarandstaðan verði að ákveða hvort hún hyggist styðja þá leið eða ekki. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær hafa fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í fjárlaganefnd talað fyrir því að skipuð verði ný samninganefnd og samningaviðræður við Hollendinga og Breta teknar upp að nýju. „Þá er bara verið að hafna samningnum, ég styð það ekki,“ segir Guðbjartur. Hann segir engan sem tali fyrir því að semja upp á nýtt hafa útskýrt hvað það er sem eigi að ná fram með því sem ekki megi ná fram með fyrirvörum. Hann segir að þrátt fyrir þetta verði reynt til þrautar að ná sátt milli stjórnar og stjórnarandstöðu. Ósamstaða um fyrirvara myndi veikja stöðuna gagnvart Bretlandi og Hollandi. „Við höfum ekki lokað á þann möguleika að gera einhverja fyrirvara,“ segir Kristján Þór Júlíusson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd. „Við höfum hins vegar talið eðlilegra að áður en við göngum lengra með málið þá taki ríkisstjórn Íslands upp viðræður við Breta og Hollendinga um mögulegar leiðir,“ segir Kristján. Sífellt fleiri hafa efasemdir um þá leið að setja fyrirvara við ríkisábyrgðina, segir Höskuldur Þórhallsson, fulltrúi Framsóknarflokks í fjárlaganefnd. „Kannski væri hreinlegast að stíga fram og segja við Breta og Hollendinga að það þurfi að semja upp á nýtt, og þá með nýrri samninganefnd,“ segir Höskuldur. Hann segir þá hugmynd hafa verið rædda á fundi fjárlaganefndar í gær. Líklega verði fyrirvaraleiðin þó reynd til þrautar. Með því að setja fyrirvara við ríkisábyrgð væri Alþingi ekki að ónýta Icesave-samninginn, segir Árni Þór Sigurðsson, fulltrúi Vinstri grænna í fjárlaganefnd. Það sé hagur beggja aðila að Ísland geti staðið við sínar skuldbindingar, og að því snúi fyrirvararnir meðal annars. Árni hafnar því að samið verði að nýju, og segir mikilvægt að ná samstöðu um fyrirvara við ríkisábyrgðina.
Mest lesið Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Erlent Artemis II er á heimleið Erlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Sjá meira