Fleiri fréttir

Litlar líkur á sátt um fyrirvara vegna Icesave

Alls óvíst er að nokkur niðurstaða verði um Icesave málið á fundi fjárlaganefndar Alþingis sem nú stendur yfir. Fram hefur komið að nefndin vinni að gerð fyrirvara við ríkisábyrgð á Icesave reikningum Landsbankans.

Sjö gjaldþrotamál á Akureyri

Sjö gjaldþrotamál eru tekin fyrir í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag. Flest fyrirtækjanna sem krafist er gjaldþrots yfir eru tengd byggingariðnaði. Þá er eitt fyrirtæki sem heldur úti smábátaútgerð á Akureyri sem krafist er gjaldþrots yfir.

Rússneskir Birnir létu sjá sig í síðustu viku

Tvær rússneskar TU-95 sprengjuflugvélar, eða svonefndir Birnir, flugu um íslenska loftrýmiseftirlitssvæðið í síðustu viku, aðeins sólarhirng áður en bandaríski flugherinn hóf loftrýmisgæslu hér. Ferðum þessara véla fer aftur fjölgandi á norðurslóðum.

Icesave ekki afgreitt úr nefnd í dag

Ekki stendur til að afgreiða Icesave málið úr fjárlaganefnd í dag. Nefndin situr nú á fundi og ræðir hvers konar fyrirvara er hægt að setja við frumvarp um ríkisábyrgð á Icesave reikningum Landsbankans.

Sex túristar teknir fyrir of hraðan akstur

Lögregla stöðvaði sex ökumenn á veginum á milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs í gær, eftir að þeir höfðu mælst á of miklum hraða. Þetta voru allt erlendir ferðamenn á bílaleigubílum.

Ljósanótt í Hafnarfirði og á Patró

Neyðarblysum var skotið á loft í Hafnarfirði um miðnættið og svifu til jarðar í fallhlífum. Kona sem varð vitni að þessu sá hvar fallhlífarnar lentu og fann þær. Þeim var komið í hendur Landhelgisgæslunnar, en þar á bæ kannast menn ekki við þessa gerð af neyðarblysum og verður málið kannað nánar í dag.

Vill ákæra forsprakka mótmælanna í Íran

Háttsettur yfirmaður í Íranska Byltingarverðinum, sérsveitum írönsku klerkastjórnarinnar, sagði í viðtali við írönsku ríkisstöðina í morgun að forsprakka mótmælanna síðustu vikurnar í Íran eigi að draga fyrir rétt og ákæra fyrir landráð.

Málningu skvett hjá Hjörleifi Kvaran

Málningu var í nótt skvett á hús og bíla Hjörleifs Kvaran, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, en Hjörleifur býr við Granaskjól í Reykjavík. Öryggisvörður frá Securitas tilkynnti lögreglunni um málið, en hann sá ekki til gerendanna.

Féll milli báts og bryggju

Maður sem var að vinna við bát, sem liggur við bryggju skammt frá Kaffivagninum í Reykjavíkurhöfn, féll milli bátsins og bryggjunnar um klukkan þrjú í nótt.

Togarinn Sólbakur færður til hafnar

Varðskip færði togarann Sólbak EA til hafnar á Akureyri á sjötta tímanum í morgun, eftir að skipstjórinn var staðinn að meintum ólöglegum veiðum noðrvestur af landinu í gær. Eftir því sem Fréttastofan kemst næst snýst málið um möskvastærð í trollinu og útbúnað á smáfiskaskilju, sem á að hleypa smáfiski lifandi út úr trollinu.

Lögreglumenn íhuga að grípa til aðgerða

Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa rætt það sín á milli að grípa til aðgerða gegn yfirstjórn embættisins ef ekki verður hætt við fyrirhugaðar skipulagsbreytingar sem taka eiga gildi 1. september. Mögulegar aðgerðir gætu til dæmis falist í því að neita að taka aukavaktir nema þeir verði beinlínis skyldaðir til þess og svara ekki í síma þegar þeir eru á frívöktum.

Nýjar útfærslur breyta ekki afstöðu stjórnarandstöðu

Ekki tókst að ná þverpólitískri samstöðu um lausn á deilum vegna Icesave-samkomulagsins á fundi fulltrúa allra flokka í gær, eins og vonir höfðu staðið til. Til stóð að ljúka umræðum um málið í fjárlaganefnd í dag og hefja aðra umræðu á Alþingi á morgun, en fullljóst er talið að af því verði ekki.

Þvo í þágu góðs málstaðar

„Þetta er fínt, maður má bara ekki horfa of mikið niður,“ segir Hildur Arnardóttir, meðlimur í Hjálparsveit skáta í Reykjavík, sem varði gærdeginum hangandi í sjötíu metra hæð yfir jörðu utan í háhýsinu við Höfðatorg.

Fimmtán þúsund manns á handverkshátíð

„Það má segja að við séum búin að slá öll aðsóknarmet, en í gær höfðu yfir fimmtán þúsund manns sótt hátíðina heim,“ segir Dóróthea Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Handverkshátíðarinnar við Hrafnagilsskóla. Hátíðin var haldin í sautjánda sinn í ár, en hún hófst á föstudag og lýkur í dag. „Það er varla auður blettur á tjaldstæðinu hérna og stemningin er svakalega góð, 20 stiga hiti og sól,“ útskýrir Dóróthea og segir öll störf í kringum hátíðina unnin í sjálfboðavinnu.

Opnar á marga möguleika

Embætti sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins mun taka vel í boð bresku efnahagsbrotadeildarinnar, Serious Fraud Office (SFO), um aðstoð við rannsókn á íslenskum fyrirtækjum í Bretlandi, segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.

Berjasprettan seinni í ár en í fyrra

„Ég hef grun um að sprettan í ár sé seinni en í fyrra út af kuldakasti,“ segir Ásthildur Cecil Þórðardóttir, garðyrkjustjóri á Ísafirði. Hún spáir því að berjasprettan verði góð í ár og segir rigninguna skipta sköpum. „Það rignir vel núna, en þetta er óvenjulegur tími fyrir rigningar. Kuldinn gerir ekki mikinn skurk, en það skiptir máli hvort það rigni eða hvort það er þurrt. Svo þarf bara hita og sól eftir þessar rigningar og það mun gerast. Núna sýnist mér að það hafi verið svipað veður um allt land svo ég á alveg eins von á að þetta verði gjöfult berjaár. Fólk sem ég hef talað við hefur kíkt og séð mikið af sætukoppum og grænjöxlum, svo ef það nær að þroskast verður mikið af berjum,“ útskýrir Ásthildur.

Vill stuðla að lægra verði á námsbókum

Opnaður verður í dag nýr vefur, skiptibokamarkadur.is, þar sem nemendur á framhalds- og háskólastigi geta keypt og selt bækur milliliða- og kostnaðarlaust. Þar geta þeir sem vilja selja eða óska eftir bók skráð sig inn á síðuna og skráð viðkomandi bók í framhaldinu. Notkun á vefnum er algjörlega gjaldfrjáls en hann er fjármagnaður með auglýsingatekjum.

Hundrað þúsund matarskammtar gefnir á Dalvík

„Við höfum ekki tölu á hve margir mættu, það var svo gríðarlegt mannhaf. Aðsóknin hefur aldrei verið meiri,“ segir Júlíus Júlíusson, framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla á Dalvík. Dagskráin hófst síðastliðinn miðvikudag og segir Júlíus veðrið hafa leikið við hátíðargesti, en það var nítján stiga hiti og sól á Dalvík þegar blaðamaður náði tali af honum. Markmið hátíðarinnar er að fólk komi saman, skemmti sér og borði fjölbreytta fiskrétti sér að kostnaðarlausu, en Júlíus telur að rúmlega 100.000 matarskammtar hafi verið gefnir að þessu sinni. Matseðillinn breytist ár frá ári en ávallt er boðið upp á vinsæla rétti svo sem fiskborgara sem eru grillaðir á átta metra löngu grilli, lengsta grilli Íslands.

Þórður tjáir sig ekki um brottreksturinn

Þórður Þorgeirsson knapi sem rekinn var úr landsliði íslenskra hestamanna vegna agabrota segir að gróflega hafi verið brotið á sér og hann leiti nú réttar síns vegna málsins.

Ótti meðal Íslendinga á Mallorca í lágmarki

Sprengingin sem varð á strandbar á Mallorca í dag er stutt frá dvalarstað nokkurra Íslendinga, þó nógu langt frá til að hætta stafi ekki af sprengingunni. Að sögn fararstjóra Heimsferða á Mallorca eru íslenskir ferðamenn frekar rólegir yfir atburðum undanfarinna vikna en þetta er önnur sprengjan sem springur á Mallorca á stuttum tíma.

Segir Davíð ekki hafa búið yfir nægri reynslu og þekkingu

Anne Sibert, sem situr í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands, segir að Davíð Oddsson hafi ekki búið yfir nægilegri þekkingu í hlutverki sínu sem Seðlabankastjóri til að koma í veg fyrir bankahrunið. Þá hafi hvorki forsætisráðherra, fjármálaráðherra né fjármálaeftirlitið gert neina tilraun til að hægja á vexti íslensku bankanna.

Þráinn segir fyrr frjósa í helvíti en hann gangi í Samfylkinguna

Þráinn Bertelsson þingmaður Borgarahreyfingarinnar segir að fyrr frjósi í Víti heldur en að hann yfirgefi flokkinn og gangi til liðs við Samfylkinguna. Hann segist vona að ósætti innan flokksins leysist svo hann geti starfað áfram. Helga Arnardóttir.

Kveikt í borðum í miðbænum

Fimm gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, tveir voru teknir grunaðir um fíkniefnaakstur. Hinir þrír voru teknir fyrir ölvun og óspektir. Erilsamt var þó hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt þar sem töluverður mannfjöldi var í miðborginni. Kveikt var í borðum á torgi sem er milli Laugavegar og Hverfisgötu. Slökkvilið var kallað til og slökkti það eldinn.

Zhang Keyuan fer frá Íslandi til Möltu

Zhang Keyuan, sem hefur verið sendiherra Kína á Íslandi síðan í ágúst í fyrra, verður nýr sendiherra Kínverja á Möltu. Frá þessu er greint á vefsíðu maltneska blaðsins The Malta Independent í morgun.

Brotist inn í verslun Grétars líkmanns

Brotist var inn í verslunina 1body í fyrrinótt en verslunin er í eigu Grétars Sigurðarsonar, fyrrum lífvarðar Tiger Woods og sakbornings í líkfundarmálinu svokallaða. Hann segir kreppuna slæma ef menn haldi að þeir geti rænt hann og komist upp með það. Hann telur menn með þekkingu á fæðubótarefnum standa að baki þjófnaðnum.

Of mikið gert úr mikilvægi gjaldeyrisvarasjóðs

Gjaldeyrisvarasjóður sem vitað er að má ekki eyða hefur engan tilgang. Þetta segir Jón Daníelsson, hagfræðiprófessor. Hann tekur undir sjónarmið Jóns Steinssonar hagfræðings sem segir of mikið gert úr mikilvægi þess að byggður sé upp stór íslenskur gjaldeyrisvarasjóður við núverandi aðstæður.

Ófært inn í Þórsmörk

Ófært er inn í Þórsmörk að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Staðarhaldarar höfðu samband við lögreglu þar sem læna sem liggur út úr Steinholtsá hefur grafið sig og er nú um einn og hálfur til tveir metrar á dýpt. Vanalega er þessi sama læna greiðfær.

Koma á fund utanríkismálanefndar á mánudag

Utanríkisráðherra og fjármálaráðherra koma á fund utanríkismálanefndar Alþingis á mánudag og fjalla um samskipti íslenskra stjórnvalda við stjórnvöld í nágrannalöndum Íslands í tengslum við Icesave.

Segir skilanefndarmenn þurfa að fara varlega

Viðskiptaráðherra segir að skilanefndarmenn þurfi að fara varlega í að taka ákvarðanir sem koma þeim eða skyldum aðilum vel. Hann segir að skilanefndirnar hafi mikil áhrif og völd tímabundið en ekki alveg frítt spil.

Saving Iceland gagnrýna fréttaflutning af mótmælum

Umhverfishreyfingin Saving Iceland stóð fyrir mótmælum við Iðnaðarráðuneytið í gær. Á sama tíma átti sér stað undirritun fjárfestingarsamnings ríkisstjórnarinnar og Norðuráls vegna álvers í Helguvík. Mótmælendur skvettu grænu skyri á ráðuneytið og bifreið Iðnaðarráðherra sem hafði verið lagt fyrir utan.

Grýttu eggjum og börðu rúður á lögreglustöðinni

Um tuttugu til þrjátíu manns úr Saving Iceland hópnum mótmæltu fyrir utan lögreglustöðina í nótt. Þeir mótmæltu handtöku á félögum sínum frá því fyrr um daginn fyrir utan iðnaðarráðuneytið. Tveir voru handteknir og færðir á lögreglustöðina í nótt þar sem þeir fóru ekki að fyrirmælum lögreglu.

Huldís og Aðalsteina komnar í leitirnar

Stúlkurnar sem lögregla lýsti eftir í gær eru komnar í leitirnar. Stúlkurnar höfðu verið týndar frá því á miðvikudag en talið var að þær væru í samfloti ásamt einni annarri stúlku.

Ók fullur á ljósastaur á Vallarheiði

Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í ölvunar- og hávaðaútköllum. Sex fengu að gista fangageymslur vegna ölvunar. Þá voru sex teknir fyrir ölvun við akstur.

Efnahagsbrotadeild Breta býður sérstökum saksóknara aðstoð

Efnahagsbrotadeild breska ríkisins hefur boðið Ólafi Þór Haukssyni, sérstökum saksóknara bankahrunsins, aðstoð sína við rannsókn þess. Þetta kom fram á vef Lundúnablaðsins Telegraph í gærkvöldi. Blaðið segir að sú ákvörðun tengist því að íslensk rannsóknaryfirvölkd hafi beint sjónum sínum að viðskiptum Kaupþing við breska fjárfesta á borð við Kevin Stanford og Moises bræðurnar vegna gruns um sýndarviðskipti með bréf í bankanum.

Verkefni Jónasar og Tinds notað í frumkvöðlakeppni

Efnafræðineminn Tindur Jónsson, annar þeirra sem ákærður er í amfetamínverksmiðjumálinu í Hafnarfirði, fór upphaflega að vinna fyrir hinn sakborninginn, Jónas Inga Ragnarsson, með það í huga að aðstoða hann við að framleiða eldvarnarefni. Honum þótti verkefnið svo vænlegt til árangurs að hann tók þátt í frumkvöðlakeppni hjá fyrirtækinu Innovit út á það. Þetta er meðal þess sem fram kemur í greinargerð verjanda Tinds, sem lögð var fram í Héraðsdómi Reykjaness í vikunni.

Upplýsa um samskipti við grannþjóðir

Utanríkisráðherra og fjármálaráðherra koma á fund utanríkismálanefndar Alþingis á mánudag og fjalla um samskipti íslenskra stjórnvalda við stjórnvöld í nágrannalöndunum vegna Icesave.

Ráð að byggja upp stóriðju á næstunni

Flest bendir til að þjóðhagslega hagkvæmt sé að ráðast í stóriðjuframkvæmdir á næstu árum og frekari uppbygging álframleiðslu leiðir til meiri stöðugleika en ella. Þetta kemur fram í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskólans sem unnin var fyrir iðnaðarráðuneytið og birt í gær.

Langflestir á unglingsaldri

Langflestir þeirra sem smitast hafa af svínaflensu á Íslandi eru á aldrinum 15 til 19 ára. Alls hafa nú 72 smitast af flensunni hérlendis.

Fer í hart við bankastjórann

Skilanefnd Hróarskeldubanka hefur tilkynnt að hún muni fara fram á ákæru á hendur fyrrverandi bankastjóra bankans, Niels Valentin Hansen. Þá hefur hún ákveðið að höfða skaðabótamál á hendur honum. Þetta kom fram í dönskum fjölmiðlum í gær. Danska fjármálaeftirlitið hefur þegar hafið vinnu við gerð ákæru.

Sjá næstu 50 fréttir