Innlent

Brotist inn í iðnaðarsafnið á Akureyri

Brotist var inn í iðnaðarsafnið vi Krókeyri á Akureyri í gærkvöldi og þaðan stolið nokkrum tugum þúsunda króna. Þjófurinn komst undan, en brátt féll grunur á ungan mann, sem lögreglan heimsótti skömmu síðar og upplýstist málið þar.

Það var líka brotist inn í skóla og fyrirtæki í austurborg Reykjavíkur í nótt. Flatskjá og skjávarpa var stolið úr skólanum og einhverjum fjármunum úr fyrirtækinu, en þjófarnir komust undan með þýfið og er þeirra leitað






Fleiri fréttir

Sjá meira


×