Svínaflensulyf sögð slæm fyrir börn 11. ágúst 2009 06:00 Haraldur Briem
Alls hefur 101 greinst með svínaflensu, A(H1N1)v, á Íslandi frá því í maí 2009 og komu 29 ný tilfelli upp um helgina. Þar af eru 55 karlar og 46 konur. Þriðjungur er á aldrinum 15 til 19 ára en aðeins níu hafa greinst sem eru eldri en 40 ára. Hafa 46 fengið flensuna erlendis en 52 hér á landi. Óvíst er um þrjú tilvik. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir flensuna byrjaða að smitast innanlands. Haraldur segir stóran hluta af aldurshópnum sem er eldri en fjörtíu ára hafa marga fjöruna sopið og líklegt sé talið að þetta fólk hafi þróað með sér vörn gegn flensunni. Þó sé það ekki ljóst. „Við erum enn að bíða eftir að sjá hvort þeir sem eru 15 til 30 ára smitist mest þar sem þetta er ungt fólk sem ferðast mest til útlanda og fer á mannamót og er því fyrst til að smitast og hvort þeir sem eldri eru fái flensuna síðar." Tugir sýna koma til skoðunar á hverjum degi, að sögn Haraldar, en nú sé þeim tilmælum beint til lækna að að taka færri sýni. Fara eigi eftir einkennum og meðhöndla ef á þarf að halda. Enginn er enn alvarlega veikur af þeim sem hafa smitast, að sögn Haralds, en nú þegar flensan er farin að breiðast hraðar út aukist líkurnar á að þeir sem eru veikir fyrir fái flensuna. „Dauðsföll eru sjaldgæf sem betur fer," segir Haraldur sem býst við að einn af hverjum 1000 sem smitist á Íslandi gæti látist. Lyfin sem gefin eru við svínaflensu, Tamiflu og Relenza, hafa fleiri galla en kosti fyrir börn allt að tólf ára segir í grein í British Medical Journal. Hjálp lyfjanna sé lítil en á móti komi alvarlegar aukaverkanir. Frekar eigi foreldrar að láta börni sín hvílast og drekka nóg af vökva. Yfir þúsund af þeim 1.154 sem hafa dáið úr svínaflensu í heiminum hafa komið frá Norður- og Suður-Ameríku og hefur viðbragðsstigi verið komið á í skólum í Bandaríkjunum. Rúmlega fjórðungur þeirra sem látist hafa eru frá Argentínu. Dauðsföll á Bretlandseyjum eru 41 í það minnsta. Flensan hefur greinst í 168 löndum og er fjöldi smitaðra að minnsta kosti 162.380, samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni WHO. Talið er að talan sé þó margföld sú tala þar sem lönd þurfa ekki lengur að taka sýni úr öllum sem hafa flensueinkenni.
Mest lesið Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Fleiri fréttir Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Sjá meira