Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Útiveran víkkar sjóndeildarhringinn „Nú sem aldrei fyrr er nauðsynlegt að hlúa að heilbrigði og virkni allra barna og fjölskyldna og með stofnun þessa nýja félags leggur Ferðafélag Íslands sitt lóð á vogarskálarnar,“ segir í tilkynningu frá Ferðafélagi Íslands sem stofnar Ferðafélag barnanna við rætur Esju í dag. 22.6.2009 02:00
Kræklingarækt verði græn stóriðja Kræklingarækt á eftir að verða græn stóriðja við Ísland og gæti skapað mörghundruð störf. Þetta staðhæfir einn þeirra sem eru byrjaðir og segir aðstæður hérlendis afar góðar. 21.6.2009 19:22
Prjónum úti dagurinn haldinn hátíðlegur Prjónandi fólk hélt í litla skrúðgöngu í dag frá Nálinni á Laugavegi í tilefni af Prjónum úti deginum sem ku haldinn hátíðlegur víða á byggðu bóli. Heldur bættist í hópinn við Norræna húsið þar sem hópur kvenna og karls sat við prjónaskap, hló og fagnaði lífsstíl prjónara. 21.6.2009 19:14
David Lynch gaf íhugunarfélaginu 13 milljónir Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn og framleiðandinn David Lynch hefur gefið Íslenska íhugunarfélaginu 13 milljónir íslenskra króna. Um 600 manns hafa skráð sig hjá félaginu á rúmum mánuði og nýjar höfuðstöðvar hafa verið teknar í notkun. 21.6.2009 19:10
Getum grætt á lifandi humri Niðurstöður rannsókna Háskóla Íslands og Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum benda til að hægt sé að stórauka verðmætasköpun í humarvinnslu með því að flytja meira út af lifandi humri. 21.6.2009 19:01
Fluttu í leit að betra lífi Ung fjögurra manna fjölskylda flutti úr landi í morgun í von um betra líf í Noregi eftir að hafa gefist upp á samskiptum við banka sinn. Fjölskyldan réði ekki við greiðslubyrði sína og segir bankann hafa hafnað eina kaupandanum sem vildi taka yfir lánin. 21.6.2009 18:52
Bílvelta innanbæjar á Akranesi Bíll valt innanbæjar í grennd við bensínstöð N1 á Akranesi fyrir um 30 mínútum. Að sögn lögreglu reyndi bíllinn að sveigja hjá öðrum bíl, lenti á ljósastaur og valt af þeim sökum. Ökumaðurinn reyndist ekki slasaður og er ekki grunaður um ölvun. Bíllinn er mikið skemmdur 21.6.2009 18:20
Ísland ódýrast í heimi Ísland er ódýrasta land heims fyrir Breta, að því er kemur fram í nýrri skýrslu bresku póstþjónustunnar um ódýra áfangastaði. Það er að sögn fyrirtækisins vegna þess að Ísland er eini ferðamannastaður heims, auk Jamaíka, Ungverjalands og Póllands, þar sem breska pundið hefur styrskt, en ekki veikst. 21.6.2009 18:00
Framkvæmdastjóri SI: Verktökum blæðir út Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Jón Steindór Valdimarsson, gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega í pistli sem birtist á heimasíðu samtakanna í dag undir yfirskriftinni Kjaftshögg. 21.6.2009 17:07
Bangsi kominn heim „Hann er kominn heim og kominn á sinn stað í veröldinni,“ segir Sigurður Guðmundsson, verslunareigandi, sem varð fyrir því að ísbjarnarlíki í hans eigu var stolið. Bangsinn er nú fundinn og kominn aftur fyrir utan verslunina The Viking á Laugarvegi. 21.6.2009 16:46
Stálu silungi fyrir hundruðir þúsunda Þjófar brutust inn í veiðihúsið við Reynisvatn í nótt og stálu þaðan fimmtíu kílóum af reyktri bleikju og regnbogasilungi sem tilbúin voru til sölu, að andvirði um 200 þúsund króna. Auk þess voru teknar tólf veiðistangir í eigu veiðivarðarins á staðnum. 21.6.2009 15:16
Bankasýsla ríkisins stofnuð Bankasýsla ríkisins verður að veruleika samþykki alþingi nýtt frumvarp Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra. 21.6.2009 14:04
„Varpar nýju ljósi á stöðu mála" „Þetta varpar nýju ljósi á stöðu mála þar,“ segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknar í Kópavogi, þegar blaðamaður ræddi við hann um áhrif yfirlýsingar Flosa Eiríkssonar á meirihlutasamstarfið í bænum. 21.6.2009 13:15
16 létust í slysi í Kína Sextán manns létust og 43 slösuðust þegar sprenging varð í verksmiðju í austurhluta Kína í morgun, samkvæmt ríkisfjölmiðlum landsins. 21.6.2009 12:15
Ölvaður ók á hús verkalýðsfélagsins Skrifstofa Verkalýðsfélags Snæfellinga að Ólafsbraut 19 í Ólafsvík varð fyrir miklum skemmdum í fyrrinótt þegar ölvaður ökumaður ók á inngang hússins. Maðurinn stakk af eftir ákeyrsluna en náðist skömmu síðar og var samstundis sviptur ökuréttindum. Skrifstofan er til húsa í gömlu sjóbúðinni þar sem á neðri hæð eru hin ýmsu fyrirtæki en á efri hæð er hluti af 21.6.2009 12:10
Flosi Eiríksson: FME var blekkt Afborganir og útborganir á lánum Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar til bæjarins virðast hafa verið tímasettar sérstaklega til að villa um fyrir eða blekkja Fjármálaeftirlitið, án vitneskju almennra stjórnarmanna, að því er kemur fram í yfirlýsingu frá Flosa Eiríkssyni, bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar. 21.6.2009 11:01
Steingrímur leiðrétti Hörð Torfa Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hringdi í Hörð Torfason, fundarstjóra mótmælanna í gær, til að leiðrétta nokkur atriði sem komu fram í máli Harðar á fundinum. Þetta kemur fram á heimasíðu Láru Hönnu Einarsdóttur sem fór ásamt Herði á fund Steingríms og Indriða H. Þorlákssonar, ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins. 21.6.2009 10:45
Skáli OR brann til kaldra kola Skáli Orkuveitu Reykjavíkur í Reykjadal á Hengilsvæðinu brann til kaldra kola í nótt en níu ungmenni sem þar voru stafaði engin hætta af eldinum. Það var upp úr klukkan ellefu í gærkvöldi sem tilkynning barst um eld í skála. Fór þá lið lögreglu, sex slökkviliðsmenn úr Hveragerði auk tveggja bíla og sexhjóla Hjálparsveitar skáta í Hveragerði til að aðstoða við að flytja ungmennin til byggða. 21.6.2009 10:16
Lengsti dagur ársins í dag Lengsti dagur ársins er runninn upp á Íslandi. Í Reykjavík reis sólin klukkan sex mínútur í þrjú í nótt og sólarlag verður ekki fyrr en klukkan fimm mínútur yfir miðnætti. Þá tekur daginn að stytta aftur á morgun. 21.6.2009 09:58
Fangageymslur fullar aðra nótt í röð Aftur var nóg að gera hjá lögreglunni á Akureyri í nótt, en þar fara fram Bíladagar um helgina. Fangageymslur fylltust aðra nóttina í röð. Að sögn lögreglu var þó ekki um nein alvarleg atvik að ræða, heldur einkum minniháttar pústra, slagsmál og drykkjulæti. Engar kærur hafa verið lagðar fram eftir nóttina. 21.6.2009 09:46
Annasöm nótt hjá lögreglu Annasamt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Talsvert var um pústra og óspektir. Þó voru að sögn engar alvarlegar uppákomur. 7 til 8 manns gistu fangageymslur fyrir drykkjulæti og óspektir. Þrír voru teknir fyrir ölvunarakstur. 21.6.2009 09:34
22 með þroskahömlun útskrifuðust úr HÍ Í dag brautskráðust 22 nemendur úr diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands að því er kemur fram í tilkynningu. Námið hófst haustið 2007, en þá var í fyrsta sinn boðið upp á háskólanám fyrir fólk með þroskahömlun hér á landi. 20.6.2009 23:00
Eldur á tjaldstæði - stórslysi afstýrt Brunavarðliðið á Blönduósi var kallað til á tjaldsvæði þar sem kviknað hafði eldur í gasleiðslu prímuss. Eigandi prímussins, sem hafði verið að hita sér kaffi, var fljótur að bregðast við, dreif eldmatinn út úr tjaldi sínu og lagði nýlagðar þökur yfir eldinn til að kæfa hann. 20.6.2009 19:45
1900 tonn af makríl í Eyjum Þessa stundina er verið að landa nítján hundruð tonnum af makríl í Vestmananeyjum. Það eru fjölveiðiskip Vinnslustöðvarinnar Sighvatur Bjarnason VE81 og Kap VE4 sem fengu þennan afla suðaustur af landinu á sömu slóðum og nótaskipin eru nú á veiðum. 20.6.2009 19:26
Finnst að dæma eigi kynferðisafbrot eins og morðtilraun "Þetta eru glæpir gegn sál fólks og einstaklingar sem lenda í svona málum bera varanleg merki alla ævi," segir Særós Guðnadóttir, ein þeirra kvenna sem sakar fyrrverandi biskup um að brjóta gegn sér. Stefaníu Þorgrímsdóttir finnst að dæma eigi kynferðisafbrot eins og morðtilraun. 20.6.2009 19:06
Gunnar: FME á að sinna brýnni verkefnum Það er ekki mikið að gera hjá Fjármálaeftirlitinu ef þeir eru að vegast í hlutum sem þessum segir Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi formaður stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. Stjórnmálafræðingur telur að bæjarfulltrúarnir sem sátu í stjórn fari í tímabundið leyfi. 20.6.2009 18:46
400 manns mótmæltu Icesave Um 400 manns mótmæltu Icesavesamningnum á Austurvelli í dag. Öryrki sem segist ekki hafa efni á því að kaupa sér mat efnir til áframhaldandi mótmæla næstu daga. 20.6.2009 18:36
Hundruðir skáta í Viðey Í Viðey er nú samankominn fjöldi skáta frá öllum landshornum en þar stendur nú yfir skátamót. Mótið hófst í gær föstudag og hefur það farið afar vel fram. 20.6.2009 17:12
16.000 konur hlupu í dag Góð þátttaka var í Kvennahlaupi ÍSÍ að sögn aðstandenda hlaupsins. Alls tóku um 16.000 konur þátt á 90 stöðum út um allt land og á um 18 stöðum erlendis. Um 5.500 konur hlupu í Garðabænum, 1400 í Mosfellsbæ, 700 á Akureyri og um 400 konur erlendis. 20.6.2009 16:56
Heitir fundarlaunum fyrir ísbjörn „Ég reyni alltaf að gera eitthvað gott fyrir fólk og gleðja það og þess vegna þoli ég þetta ekki,“ segir Sigurður Guðmundsson, verslunarmaður, sem varð fyrir því óláni að ísbjarnarlíki í hans eigu var stolið fyrir utan verslun hans, The Viking, við Laugarveg 1. „Skítt með hvað þetta kostar,“ bætir hann við. 20.6.2009 17:31
SA gætu sagt upp kjarasamningum Svartsýni gætir hjá aðilum vinnumarkaðarins um það takist að koma á þeirri stöðugleikasátt sem stefnt er að í viðræðum þeirra við ríkisvaldið. Heimildir fréttastofunnar úr viðræðuhópi Alþýðusambandins og Samtaka atvinnulífsins herma að töluverðar líkur séu á að Samtök atvinnulífsins segi upp núgildandi kjarasamingi fyrir mánaðamót, en þá rennur út frestur til að segja samningunum upp. 20.6.2009 15:17
20 konur á kvennapókermóti „Þetta er bara góðmennt, það eru hérna tvö borð í gangi og fleiri á leiðinni,“ segir Davíð Rúnarsson, knattspyrnumaður. Davíð skipulagði kvennapókermót á Gullöldinni í Grafarvogi og er staddur þar núna. 20.6.2009 14:50
Rektor: HÍ nái öllum markmiðum sínum „Horfur eru á að skólinn muni ná öllum þeim markmiðum sem sett voru og felld inn í afkastatengdan samning við ríkisvaldið,“ sagði Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, við brautskráningu háskólans í dag. 20.6.2009 14:25
Fékk kærar kveðjur frá 1946 Hávarði Bernharðssyni, húsasmiði sem vinnur að framkvæmdum við gagnfræðaskólann á Ísafirði, varð undrandi í gær þegar hann fann flöskuskeyti undir gólffjölum hússins. Skeytið er dagsett 2. febrúar árið 1946 og er undirritað af smiðum sem greinilega unnu að gólfinu á þeim tíma. 20.6.2009 13:51
Mikill niðurskurður hjá utanríkisráðuneytinu Varnamálastofnun Íslands verður lögð niður á þessu ári og framlög til þróunarsamvinnu og friðargæslu dregin verulega saman. Þá á að selja embættisbústaði og loka sjö sendiskrifstofum. Þetta er hluti af niðurskurði í utanríkismálum. 20.6.2009 13:00
Borgarstjóralaxinn kominn á bakkann Borgarstjóri Reykjavíkur, Hanna Birna Kristjánsdóttir, var ekki lengi að landa fyrsta laxi ársins úr Elliðaánum. Fimm punda hrygna var komin á bakka ánna laust fyrir klukkan hálf átta. 20.6.2009 12:45
Kvennahlaup á 90 stöðum Kvennahlaup Íþróttasambands Íslands fer fram í tuttugasta sinn á 90 stöðum hér á landi í dag. Einnig er hlaupið á 18 stöðum erlendis. Hlaupið hefst klukkan ellefu á Akureyri, Egilsstöðum og í Mosfellsbæ. Í Garðabæ verður ræst klukkan tvö, en þar hefur verið fjölmennast undanfarin ár. 20.6.2009 12:08
Northern Travel Holding stefnir í gjaldþrotaskipti Líklegt er að óskað verði eftir gjaldþrotaskiptum Northern Travel Holding á næstu dögum. Engar eignir og aðeins skuldir eru eftir í félaginu. 20.6.2009 12:03
Raddir fólksins á Austurvelli í dag Samtökin Raddir fólksins undir yfirskriftinni Breiðfylking gegn ástandinu standa fyrir útifundi á Austurvelli í dag klukkan þrjú. Þetta er þrítugasti fundurinn sem samtökin standa fyrir. 20.6.2009 11:57
Yfir 1500 manns að útskrifast úr HÍ Vel yfir fimmtán hundruð manns útskrifast úr Háskóla Íslands í dag og hafa þeir aldrei verið fleiri í sögu háskólans. Útskriftin fer fram í Laugardalshöll og er fjöldinn slíkur að brautskráningin verður í tvennu lagi, klukkan 11 og síðan aftur klukkan 14. 20.6.2009 09:51
Ökumaður gripinn með dóp Lögreglan í Borgarnesi hafði afskipti af tveimur ökumönnum sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum fíkniefna í gærkvöldi. Annar ökumannanna var með 30 grömm af kannabisefnum á sér sem lögregla gerði upptæk. Einn var stöðvaður grunaður um ölvunarakstur. 20.6.2009 09:44
Nóg að gera hjá lögreglu á Bíladögum Það var nóg að gera hjá lögreglunni á Akureyri í nótt vegna Bíladaga sem þar fara fram um helgina. Að sögn vakthafandi varðstjóra eru allir fangaklefar bæjarins fullsetnir. Mikil ölvun var í bænum og nokkuð um pústra, auk þess sem lögregla þurfti að hafa afskipti af nokkrum vegna ofurölvunar. Þó var lítið um meiðsl á fólki og engar kærur hafa verið lagðar fram. 20.6.2009 09:35
Allir spá í það hvað gæti gerst í Kópavogi „Ég hef sjálfur heyrt þennan orðróm,“ segir Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi vinstri grænna, spurður hvort sjálfstæðismenn hafi boðið honum sæti bæjarstjóra hefji hann meirihlutasamstarf með þeim. 20.6.2009 09:00
Kona á sextugsaldri skar sambýlismann með hníf Ríkissaksóknari hefur ákært konu fyrir stórfellda líkamsárás. Konan, sem er á sextugsaldri, særði sambýlismann inn að beini með hnífi. 20.6.2009 08:30
Segir Íslendinga sjálfa hafa skert fullveldið Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur segir að umræðan um Icesave-samninginn ætti fyrst og fremst að snúast um það hvort þörf væri á því að gera þennan samning eða ekki. Umræðan um að Íslendingar afsali sér að einhverju leyti fullveldi með samningnum sé á misskilningi byggð því afsal á fullveldisrétti sé ekki afleiðing af samningnum heldur afleiðing hegðunar stjórnvalda, bankamanna og þeirra sem ofurskuldsettu sig. 20.6.2009 07:00
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent