Fleiri fréttir

Sjálfstæðisflokkurinn sparar fjörtíu milljónir

Sjálfstæðisflokkurinn sparar sér fjörtíu milljónir með því að reikna ekki vexti og verðbætur ofan á endurgreiðslur á risastyrkjum sem flokkurinn þáði af FL Group og Landsbankanum.

Íslenskir bændur verða olíuframleiðendur

Íslenskir bændur ætla að verða olíubændur og eru byrjaðir að rækta lífrænt eldsneyti. Vél sem gengur fyrir jurtaeldsneyti, framleiddu á Íslandi, var ræst í fyrsta sinn í dag.

Aukning á kynlífsathöfnum fyrir tóbak og áfengi

Aukning hefur orðið á því að unglingsstúlkur gangist inn á kynlífsathafnir í skiptum fyrir tóbak og áfengi, ef marka má fjölgun á kærum til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Dæmi eru um að brotin hafi átt sér stað á salernum verslunarmiðstöðva og skóla og jafnvel leitt til nauðgunar.

Bolli aftur ráðuneytisstjóri

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, skipaði í dag Bolla Þór Bollason, hagfræðing, ráðuneytisstjóra í félags- og tryggingamálaráðuneytinu. Þetta kemur fram á heimasíðu ráðuneytisins í dag.

Rændi söðlasmið á níræðisaldri

Bíræfinn þjófur rændi söðlasmið á níræðisaldri um miðjan maí. Söðlasmiðurinn er með verkstæði í Mosfellsbæ. Ræninginn virðist hafa gengið inn á verkstæði söðlasmiðsins í kringum tíunda maí síðastliðinn. Hann var með hnakk sem hann vildi að söðlasmiðurinn gerði við.

Tillaga um lægri hámarkshraða svæfð í nefnd

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans og óháðra, segir að vegna hræðslu við að taka taka af skarið hafi meirihluti borgarfulltrúa sameinast um að svæfa tillögu sína um lækkun hámarkshraða um tilteknar götur í borginni í nefnd.

Ríkisstjórnin þorir ekki

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ríkisstjórnin þori ekki að taka af skarið þegar komi að aðstoða fjölskyldur og fyrirtæki í landinu. Hann segir ríkisstjórnina hafa vanrækt að upplýsa Alþingi um stöðu mála. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir skuldavanda heimilanna minni en talið hefur verið.

Steingrímur: Össur er frjáls ferða sinna

„Hæstvirtur utanríkisráðherra er frjáls ferða sinn og stjórnar sínum ferðaplönum. Ég geri ráð fyrir að hann hafi talið sig eiga erindi á þennan vettvang. Kannski var hann þarna fyrst og fremst í fræðsluskyni,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, í umræðum á Alþingi í dag um ferð Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, til Möltu.

Lík rjúpnaskyttu fannst í Selgilsbökkum

Í gær barst lögreglunni á Selfossi tilkynning um líkfund í Selgilsbökkum sem eru við Þverá, rúman einn og hálfan kílómetra norðnorðaustur af bænum Fossnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Húsleit hjá Hannesi Smárasyni

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra gerði húsleit að Fjölnisvegi 9 og 11 í morgun en þau hús eru skráð á eiginkonu Hannesar Smárasonar annarsvegar og hinsvegar á eignarhaldsfélag sem er í eigu Hannesar. Einnig var gerð húsleit hjá lögfræðistofunni Logos í tengslum við málið.

Gylfi: Þjóðverjar þrýstu ekki á okkur

Viðskiptaráðherra sagði í umræðum á Alþingi í dag að það væri rangt að Þjóðverjar hefðu hótað Íslendingum með einhverjum hætti. Verið væri að gera Þjóðverjum upp ansi miklar sakir.

Viðræðum um Icesave haldið áfram

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði í umræðum á Alþingi í dag að ekki stæði til á næstu dögum að skrifa undir samkomulag við bresk stjórnvöld um Icesave-reikninga Landsbankans.

Lalli Johns í tíu mánaða fangelsi

Lárus Björn Svavarsson, betur þekktur sem Lalli Johns, var í dag dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir tilraun til þjófnaðar og húsbrot. Lalli var dæmdur fyrir að brjótast inn í hús við Grænumörk í Hveragerði.

Húsleit gerð hjá Logos í morgun

Menn á vegum Ólafs Þórs Haukssonar sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins gerðu í morgun húsleit á lögfræðistofunni Logos í Efstaleiti samkvæmt heimildum fréttastofu. Logos er einnig með starfsstöðvar í Kaupmannahöfn og London. Ólafur vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu þegar fréttastofa náði sambandi við hann en staðfesti að húsleit hefði verið framkvæmd í morgun.

Sjö handteknir með fíkniefni á Akureyri

Lögreglan á Akureyri handtók í gærkvöldi alls sjö aðila á aldrinum 18-40 ára í þremur aðskildum málum og framkvæmdi húsleit í þremur íbúðum í bænum. Í þessum málum var lagt hald á um 112 grömm af kannabisefnum auk tækja og tóla til fíkniefnaneyslu. Allir voru látnir lausir að yfirheyrslum loknum og teljast málin upplýst.

Staða heimilanna rædd

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, verður til andsvara í utandagskrár umræðu um stöðu heimilanna á Alþingi í dag. Málshefjandi er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks.

Hefur ekki séð hótunarbréfið

Viðskiptanefnd situr nú á fundi, en Álfheiður Ingadóttir, formaður nefndarinnar, hafði óskað eftir afriti af bréfi þýskra stjórnvalda til skilanefndar Kaupþings. Í bréfinu var ýjað að því að ef þýskir Edge innistæðueigendur fengju ekki greitt hið snarasta myndu þýsk stjórnvöld beita sér í viðræðum Íslendinga við Evrópusambandið og Alþjóða gjaldeyrissjóðinn.

Stál í stál í Karphúsinu

Fulltrúar fimm landssambanda ASÍ sitja nú á fundi í Karphúsinu og fara yfir stöðu mála í viðræðum Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins. Mikil óvissu ríkir um framgang þeirra viðræðna en fulltrúar ASÍ og SA hafa ekki hist formlega síðan fyrir helgi.

Vísar á kínversk stjórnvöld

„Þetta er mál Kínverja og við vitum ekkert meira um það og staðfestum ekkert til eða frá," segir Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar, aðspurður hvort að utanríkisráðuneytinu eða utanríkisráðherra hafi borist tilkynning um að Kínverjar hafi eða ætli að kalla sendiherra sinn hér á landi heim.

Barðastrandarræningjum líklegast sleppt úr haldi

Ólíklegt er að farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðald yfir Barðarstrandarræningjunum svokölluðu. Gæsluvarðhald yfir mönnunum rennur út í dag en þeir hafa verið í gæsluvarðhaldi frá 27. maí.

Fé finnst í landi Kaupþingsmanna

Síðastliðinn mánudag heimtust kindur frá bænum Álftártungu á Mýrum sem ekki hafa komið á hús síðan vorið 2005 þegar fær voru lömb. Það þykir teljast til undantekninga að kindur komi ekki í hús svo lengi. Fréttamiðillinn Skessuhorn segir frá málinu í dag en þar segir að líta beri á að kindurnar héldu sig til á jörð sem eignamenn úr Reykjavík eiga og þar sé sjaldan smalað og nánast enginn umgangur.

Svínaflensan rædd á fundum um allt land

Fulltrúar sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra hitta sóttvarnalækna, lögreglustjóra, forystumenn sveitarfélaga og heilbrigðisstarfsmenn á alls fimmtán fundum víðs vegar um landið núna í júní til að ræða svæðisáætlanir um viðbrögð vegna inflúensufaraldurs.

Ákærður fyrir fíkniefnabrot í Mosfellsdal

Mál gegn 31 árs karlmanni verður þingfest fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Maðurinn er ákærður fyrir fíkniefnalagabrot sem áttu sér stað í júlí 2008.

Mótmæla skelfilegri þróun í öryggismálum sjómanna

Félag skipstjórnarmanna mótmælir harðlega þeirri skelfilegu þróun sem átt hefur sér stað í öryggismálum sjómanna og skorar á stjórnvöld að sjá til þess öryggi sjófarenda verði tryggt. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar félagsins.

Formleg tilkynning hefur ekki borist frá Kínverjum

Utanríkisráðuneytinu hefur ekki borist tilkynning frá kínverska sendiráðinu um að Kínverjar hafi eða ætli að kalla sendiherra sinn hér á landi heim. Þetta segir Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins.

Tilnefndur hættir í valnefnd Grímunnar

Rúnar Guðbrandsson, leikstjóri sýningarinnar Steinar í djúpinu, sem hlaut tilnefningar til Íslensku leiklistarverðlaunanna, Grímunnar, í ár skipaður af Félagi leikstjóra á Íslandi til setu í valnefnd Grímunnar, hefur óskað þess að vera alfarið leystur frá störfum í nefndinni og komi ekki að kjöri á verðlaunahöfum Grímunnar.

Harkaleg viðbrögð

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir enn óljóst hvað felst í því að Kínverjar hafi ákveðið að kalla sendiherra sinn heim frá Íslandi vegna komu Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbeta. Hann segist lítið hafa frétt af málinu þótt hann hafi heyrt það í gærkvöldi að sendiherrann hafi sjálfur upplýst að hann væri á heimleið. Sendiherrann neitaði því í samtali við fréttastofu í gærkvöldi í framhaldi af því að Ríkisútvarpið greindi frá því að hann væri á heimleið.

Þyrla sótti færeyskan sjómann

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF var kölluð út rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi eftir að grænlenski togarinn Polar Nanoq hafði samband við Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óskaði eftir aðstoð þyrlunnar.

Stolin Mazda eftirlýst

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir bifreið sem var stolið í bænum í nótt. Maður sem var í heimsókn í heimahúsi tók lyklana ófrjálsri hendi og ók á brott á bílnum sem er af gerðinni Mazda 323, árgerð 1998.

Veifaði sveðju og kveikti í teppi

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í nótt í fjölbýlishúsi í Breiðholti. Maðurinn var vopnaður sveðju og ógnaði fólki í stigagangi fjölbýlishúss. Hann er einnig grunaður um að hafa lagt eld að gólfteppi í stigaganginum.

Vaxtalækkun forsendan

„Við hjökkum í sama flaginu,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um gang mála í stöðugleikaviðræðum samtakanna við Alþýðusamband Íslands og opinbera aðila.

Upplifun að hitta Dalai Lama

„Það er alltaf upplifun að hitta jafn merka menn og Dalai Lama er. Ég hef ekki kafað djúpt ofan í málefni Tíbets en þessi fundur vakti áhuga minn enn frekar á þeim málum,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, sem í gær átti stuttan fund með Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbeta.

Söfnuðu fyrir sjúk börn

Jólatrjáasalan Landakot hefur fært Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna (SKB) hluta ágóðans af jólatrjáasölu fyrir síðustu jól, eða 200.000 krónur. Landakot hefur haft sama háttinn á undanfarin ár.

Sendiherrann kallaður heim

Sendiherra Kína á Íslandi, Zhang Keyuan, hefur verið kallaður heim. Ekki fengust skýringar á því athæfi kínverskra stjórnvalda í gærkvöldi en sendiherrann hefur starfað hér í tæp tvö ár.

Samkeppni um styttu Tómasar

Skipuð hefur verið forvalsnefnd og dómnefnd fyrir samkeppni um styttu af skáldinu Tómasi Guðmundssyni.

Norðmenn komnir til æfinga

Norska varðskipið Harstad kom til Reykjavíkur í gær en skipið er hér á landi í boði Landhelgisgæslunnar. Skipið er systurskip íslenska varðskipsins Þórs, sem er í smíðum í Chile og kemur til landsins innan tíðar.

Mikil aðsókn í sumarlán LÍN

Um 850 manns hafa sótt um sumarlán hjá LÍN, saman­borið við 550 manns í heild í fyrra. Frestur til að skila inn umsókn um sumarlán rennur út 15. ágúst og gerir framkvæmdastjóri LÍN, Guðrún Ragnars­dóttir, ráð fyrir að umsóknum muni fjölga talsvert. Um tvö þúsund manns hafa skráð sig í sumar­nám í háskólum landsins.

Helstu ráðamenn fjarri Dalai Lama

Sendiherra Kína á Íslandi lýsti í gær óánægju ríkis­stjórnar sinnar með fundi íslenskra ráðamanna með Dalai Lama, leiðtoga Tíbeta. Fjórir ráðherrar og rúmlega tíu alþingismenn hittu Dalai Lama í gær og fyrradag.

Hallinn hjá borginni 71,5 miljarðar

„Breytt vinnubrögð við fjármálastjórnina skiptu öllu máli,“ segir Hanna Birna Kristjánssdóttir borgarstjóri í tilkynningu vegna ársreiknings borgarinnar fyrir árið 2008.

Glitnir eignast ráðandi hlut

„Boðað verður til hluthafafundar og það er ráðgert að hann verði núna á fimmtudag kl. 16,“ segir Benedikt Árnason, forstjóri Aska Capital. Hann segir þó að þurft gæti að fresta honum til mánudags.

Fjallað sameiginlega um tillögurnar

ESB-tillögurnar tvær, ríkisstjórnarinnar annars vegar og Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hins vegar, verða til sameiginlegrar meðferðar í utanríkismálanefnd Alþingis.

Fáir nýta sér lán til viðhaldsverkefna

Viðhaldsvinna hefur tekið kipp eftir að stjórnvöld réðust í átak í febrúar til að auðvelda viðhald á húsnæði og skapa þannig störf fyrir iðnaðarmenn. Þetta er mat starfsmanna Samtaka iðnaðarins. Lítið er hins vegar um að menn nýti sér lán til verkanna sem þeim standa til boða frá Íbúðalánasjóði.

Sjá næstu 50 fréttir