Fleiri fréttir

Ráðamenn hissa kalli Kínverjar sendiherrann heim

„Ég er hissa á því ef Kínverjar slíti eða dragi úr stjórnmálaasmskiptum vegna heimsóknar Dalai Lama," segir Steingrímur J. Sigfússon í viðtali við RÚV vegna fréttar Ríkisútvarpsins af því að Kínverjar hafi kallað kínverska sendiherrann heim vegna málsins.

Fyrirtæki uggandi - fundað um stöðugleika í kvöld

Mörg fyrirtæki eru uggandi yfir óvissu á vinnumarkaði og sjá ekki fyrir hvernig unnt verður að greiða út launahækkanir. Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins útiloka ekki að til átaka geti komið ef ekki næst saman um stöðugleikasáttmála.

Sendiherra Kína ekki á förum

Sendiherra Kína, Zhang Keyuan, segir að það sé algerlega fráleitt að hann hafi verið kallaður heim til Kína vegna heimsóknar Dalai Lama til Íslands.

Hraðakstur á Seltjarnanesi

Sautján voru staðnir að hraðakstri á Nesvegi á Seltjarnarnesi í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Papeyjarsmyglið: Skútumenn áfram í gæsluvarðhaldi

Jónas Árni Lúðvíksson og Pétur Kúld Pétursson hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 12. júní en þeir eru grunaðir um að hafa siglt á gúmmíbát út í Papey til móts við skútuna Sirtaki til þess að sækja rúm hundrað kíló af fíkniefnum um miðjan apríl.

Kínversk stjórnvöld óánægð með fundi Dalai Lama

Sendiherra Kína gekk á fund ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins í morgun og kom á framfæri óánægju kínverskra stjórnvalda og sendiráðsins vegna þeirra funda sem Dalai Lama hefur átt eða kann að eiga með íslenskum ráðamönnum.

Hanna Birna: Ársreikningur sýnir styrka fjármálastjórn

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, sagði á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í dag að rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar sýna styrka fjármálastjórn borgarinnar en ársreikningur 2008 var lagður fram á fundinum. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, sagði aftur á móti í umræðunum í dag að núverandi meirihluti hefði sett Íslandsmet í hallarekstri.

Sökuð um þriggja milljóna króna fjárdrátt

Fyrrum gjaldkeri Íþróttabandalags Suðurnesja hefur verið ákærður fyrir að hafa dregið að sér samtals 3.064.323 krónur sem hún flutti í heimildarleysi með 11 færslum af bankareikningum Íþróttabandalagsins yfir á bankareikning sinn hjá Glitni. Það er lögreglustjórinn á suðurnesjum sem höfðar málið sem var þingfest í héraðsdómi Reykjaness í morgun.

Grunur um kynferðisbrot á Ísafirði

Að morgni sunnudagsins 31. maí sl. barst lögreglunni á Vestfjörðum kæra vegna meints kynferðisbrots sem talið er að hafi átt sér stað þá um nóttina á Ísafirði. Málið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Vestfjörðum.

Vilhjálmur endurkjörinn forseti

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, var í dag endurkjörinn forseti borgarstjórnar til loka yfirstandandi kjörtímabils. Vilhjálmur tók við sem forseti þegar Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur mynduðu meirihluta á nýjan leik í ágúst í fyrra.

Dalai Lama í þinghúsinu

Dalai Lama hitti í dag Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttir, forseta Alþingis, í þinghúsinu en hann mun funda með þingmönnum utanríkismálanefndar.

Rannsókn á andláti Sirreyjar miðar hægt

Rannsókn lögreglu á andláti Sirreyjar Maríu Axelsdóttur sem fannst látin í dúfnakofa í Hafnarfirði í byrjun febrúar, gengur hægt en krufningsskýrslur leiddu ekki í ljós með óyggjandi hætti að henni hefði verið ráðinn bani.

Flugbrautahlaupararnir ákærðir fyrir almannahættubrot

Mótmælendurnir Haukur Hilmarsson og Jason Thomas Slade hafa verið ákærðir fyrir að hafa hlaupið inn á flugbraut við Flugstöð Leifs Eiríkssonar í júlí á síðasta ári. Ríkissaksóknari höfðar málið sem var þingfest í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þess er krafist að þeir verði dæmdir til refsingar fyrir athæfið.

Ráðherrar funda með Dalai Lama

Fundur tveggja ráðherra og tveggja þingflokksformanna með Dalai Lama hófst á Hilton Reykjavík Nordica klukkan 13 en forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa sætt gagnrýni fyrir að eiga ekki fund með trúarleiðtoganum á meðan að hann dvelur hér á landi.

Papeyjarsmygl: Vilja skútumenn áfram í gæsluvarðhald

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, gerir fastlega ráð fyrir því að krafist verði áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir tveimur mönnum úr Papeyjarsmyglinu svokallaða.

Nemendur á Bifröst þurftu að gista á sófum í nótt

Eldur kom upp í frystigeymslu á Hamragörðum á Bifröst um klukkan 21:00 í gærkvöldi. Í byggingunni eru kennslustofur, bókasafn auk 50 íbúða en nokkur reykur barst um húsið vegna eldsins sem var minniháttar. Kristín Ólafsdóttir markaðsstjóri Bifrastar segir að þeir nemendur sem búa í íbúðunum hafi ekki getað gist þar í nótt vegna reyksins, og gistu á sófum hjá samnemendum sínum.

Dalai Lama trekkti að í Háskólanum

Dalai Lama, friðarverðlaunahafi Nóbels, heimsótti Háskóla Íslands í morgun og flutti erindi í Hátíðasalnum í boði rektors Háskólans og Hugvísindasviðs HÍ. Mjög létt var yfir samkomunni og hlógu áheyrendur margsinnis dátt og innilega með Dalai Lama að því er fram kemur í tilkynningu frá skólanum Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, bauð Dalai Lama velkominn og sagði í máli sínu að það væri skólanum afar mikill heiður að fá hann í heimsókn. Kristín sagði að heimsóknin væri á hárréttum tíma fyrir Íslendinga þar sem hér væri verið að endurhugsa siðferðileg gildi samfélagsins.

Kreppan bítur á hvolpum

Töluvert hefur verið fjallað um fjölda katta sem eru án eigenda í kjölfar kreppunnar. Hundarnir fara ekki heldur varhluta af áhrifum kreppunnar.

Sérsveitin fór í húsleit og fann skotvopn

Lögreglan í Borgarnesi óskaði eftir aðstoð sérsveitar Ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á Akranesi í fyrrakvöld eftir að í ljós kom að skotvopnum hefði verið stolið úr bifreið í fjöru við Höfn í Melasveit. Að sögn Theodórs Guðmundssonar yfirlögregluþjóns í Borgarnesi beindist grunur fljótlega að manni sem býr í grenndinni og hefur áður komist í kast við lögin. Í kjölfarið var ákveðið að gera húsleit hjá manninum.

Úttekt á máli Gunnars Birgissonar væntanleg

Úttekt endurskoðendafyrirtækisins Deloitte á viðskiptum Kópavogsbæjar við dóttur Gunnars Birgissonar, bæjarstjóra, er væntanleg. Framsóknarmenn í bæjarfélaginu hafa ekki fundað nýlega um málið en bíða eftir að yfirferð endurskoðendafyrirtækisins liggi fyrir.

Vilja 50 þúsund kall fyrir öryggismyndavélina

Tuttugu og þriggja ára gamall Reykvíkingur hefur verið ákærður fyrir að hafa slegið öryggismyndavél Alþingis er hékk á norðvesturenda hússins, utan í steinvegg, með þeim afleiðingum að myndavélin eyðilagðist. Þá gerir Helgi Bernódusson skrifstofustjóri Alþingis fyrir hönd Alþingis kröfu um að maðurinn verður dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 49.396 króna.

Ákærður fyrir að stinga og lemja systur sína

Mál ríkissaksóknara gegn 25 ára karlmanni verður þingfest í héraðsdómi Reykjaness í dag. Maðurinn er ákærður fyrir líkamsárás, eignaspjöll og hótanir gagnvart systur sinni. Brotin áttu sér stað þann 21. júní 2008 að heimili systur mannsins.

Íslendingurinn í vélinni var búsettur í Brasilíu

Íslendingurinn sem var um borð í Airbus farþegaflugvél Air France sem saknað er heitir Helge Gustafsson. Hann bjó lengst af í Noregi en flutti til Brasilíu fyrir fimm árum síðan. Þar starfaði hann hjá norska fyrirtækinu FMC Technologies og á þar konu og barn. Fyrir á hann tvö börn í Noregi. Helge er fæddur þann 15.desember árið 1964.

Um sjö prósent 16 ára ungmenna ekki í skóla

Skólasókn 16 ára ungmenna á Íslandi haustið 2008 var 93% sé miðað við öll kennsluform. Skólasókn 16 ára ungmenna á landsvísu hefur haldist óbreytt frá haustinu 2006. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar yfir skólasókn.

Dalai Lama heimsækir Háskóla Íslands

Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta sem verið hefur í útlegð í hálfa öld, heimsækir Háskóla Íslands í dag í boði rektors og Hugvísindasviðs skólans þar sem hann mun eiga samverustund með stúdentum og starfsfólki skólans.

Stálu flatskjá en skildu hann svo eftir

Eitt innbrot var tilkynnt til lögreglu í nótt á höfuðborgarsvæðinu en þjófar brutu sér leið inn í raftækjaverslun í austurborginni. Þeir höfðu meðal annars á brott með sér stóran flatskjá sem lögregla fann skammt frá versluninni.

Fara fram á að sjá könnun stjórnarinnar

Sigurður Sveinn Sverrisson, upplýsinga- og kynningarmálastjóri LÍÚ, segist undrast það að ríkisstjórnin sé ekki tilbúin að kynna könnun sem hún lét gera á áhrifum fyrningarleiðar.

Öguð hagstjórn forsenda fastgengis

„Að taka upp fastgengi er ekki eitthvað sem við getum ákveðið að gera á morgun,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann segir að í tengslum við stöðugleikasáttmálann hafi verið rætt um möguleikann á því að taka upp fastgengisstefnu, enda sé núverandi peningamálastefna komin í þrot.

Fólk hugi að réttindamissi

Fólk á ekki að vera hrætt við að skrifa undir skuldbreytingar hjá nýju bönkunum, segir Guðjón Rúnarson, formaður Samtaka fjármálafyrirtækja. Nær útilokað sé að bankarnir fari að nýta sér þær undirskriftir gegn hugsanlegum málshöfðunum í framtíðinni.

Sársaukafullar aðgerðir fram undan

Á næsta hálfa ári á að draga úr fjárlagahallanum um tuttugu milljarða króna. Það er aðeins byrjunin, því rætt er um að alls þurfi að stoppa í 170 milljarða króna gat. Umræða síðustu mánaða hefur gert flesta ónæma fyrir háum upphæðum og er því ekki úr vegi að setja tuttugu milljarða í samhengi við útgjöld ríkisins. Heildarfjárlög ársins 2009 nema 556 milljörðum króna.

Enn óljóst með endurgreiðslur

Ekki liggur fyrir hvort Sjálfstæðisflokkurinn hefur endurgreitt 30 milljóna króna styrk frá Fl-Group og 25 milljóna styrk frá Landsbankanum sem flokkurinn fékk árið 2006. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði fyrir kosningar að þessir styrkir yrðu endurgreiddir fyrir 1. júní.

Sonur minn er hetja

„Sumir hefðu líklega lyppast niður og ekki getað gert neitt, en Viktor sýndi að hann kann að bregðast rétt við í hættuástandi. Ég er mjög stolt af honum og finnst hann vera hetja,“ segir Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir, sem býr ásamt manni sínum, Leifi Birni Björnssyni, og börnum við Lækjarhvamm í Hafnarfirði.

Hitti Dalai Lama fyrir nær hálfri öld

Sigurður A. Magnússon rithöfundur vonast til þess að endurfundir verði með honum og Dalai Lama en þeir hittust árið 1960 í Efra Dharamsala á Indlandi. Þá var Dalai Lama 25 ára og hafði verið eitt ár í útlegðinni sem hófst þegar Kínverjar brutu á bak aftur uppreisn Tíbeta. Sú uppreisn hafði staðið yfir í níu ár, eða frá því að Kínverjar hernámu landið árið 1950.

Fyrningarleiðin sögð glapræði

Bæjarstjórn Vesturbyggðar segist hafa þungar áhyggjur af óvissu sem komin sé upp í sjávarútvegsmálum með hugmyndum um fyrningarleið og um að fella niður byggðakvóta.

Segir ráðuneyti hafa lokaorðið

Kristján Sveinbjörnsson, sem sagði af sér sem forseti bæjarstjórnar Álftaness í desember og dró sig í hlé sem bæjarfulltrúi, segir málinu um endurkomu sína í bæjarstjórn ekki lokið þótt bæjarstjórnin líti þannig á að hann geti ekki tekið sæti sitt aftur á þessu kjörtímabili.

Mínuslausn segir ASÍ

Viðræður fulltrúa Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands um kjaramál halda áfram í dag eftir hlé um hvítasunnuhelgina. Mikið bar í milli um lausn málsins fyrir helgi.

Hvetja fólk til að velja íslenskt

„Okkur líður bara mjög vel með þetta. Það má segja í dag, eftir allt sem er búið að ganga, að þau eru ekki mörg fyrirtækin sem ná fimmtíu ára aldri,“ sagði Helgi Kristófersson, framkvæmdastjóri Múlalundar, ánægður með fimmtíu ára afmælið.

Gæslan nær ekki að fullmanna bakvaktir

Ekki er hægt að tryggja að Landhelgisgæslan geti sent tvær þyrlur í loftið á sama tíma ef þörf krefur, segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. Gæslan hefur þurft að segja upp starfsfólki vegna niðurskurðar. Einn flugmaður lét af störfum á miðnætti í gær og ef fer sem horfir láta tveir af störfum í haust.

Hestur steig á höfuð á barni

Lögreglan í Borgarnesi fékk tilkynningu klukkan þrjú í dag um að hross hefði stigið á höfuð á litlu barni. Slysið átti sér stað í Lerá- og Melasveit en barnið var flutt með sjúkrabíl í hvelli til Reykjavíkur.

Sjá næstu 50 fréttir