Fleiri fréttir

Spyr hvort Össur fjármagni flokk Browns

„Nú verður spennandi að sjá hvaða silkihanskameðferð breski sendiherrann hér á landi fær vegna rangra og meiðandi ummæla Browns um Ísland í breska þinginu í vikunni," segir Sigríður Ásthildur Andersen, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins á vefsíðu sinni.

Ráðherrarnir fljúga með áætlunarflugi norður

Fyrsti ríkisstjórnarfundur nýrrar ríkisstjórnar verður á Akureyri á morgun. Í ljósi þess að ekki mega fleiri en fjórir ráðherrar fljúga saman í flugvél af öryggisástæðum, mætti ætla að erfitt gæti orðið að koma hópnum norður. Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, segir svo þó ekki vera.

Umferðarljósum stolið í annað sinn

Bíræfnir þjófar stálu um miðja síðustu viku tveimur umferðarljósum af gatnamótum Sæbrautar og Holtavegar. Ljósahausarnir sem stolið var eru nokkru minni en hefðbundin ljós og voru þeir festir á miðja staura vestanmegin gatnamóta fyrir umferð frá Holtavegi. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að búið sé að kæra þjófnaðinn til lögreglu og eru þeir sem hafa ábendingar beðnir um að láta lögreglu vita.

Brotist inn í fjóra bústaði í Grímsnesi

Brotist var inn í fjóra sumarbústaði í Grímsnesi í síðustu viku. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að þeir sem þarna hafi verið að verki hafi brotið sér leið inn í húsin með því að brjóta rúður eða spenna upp glugga.

Þrír sækjast eftir þingflokksformennsku

Þrír þingmenn munu sækjast eftir að gegna þingflokksformennsku Samfylkingarinnar samkvæmt heimildum Vísis. Fundurinn hefst klukkan hálf tvö í dag og verður niður á þingi.

Stjórnlagaþing getur aðeins verið ráðgefandi

Stjórnlagaþing mun verða ráðgefandi samkvæmt nýjum samstarfssáttmála ríkisstjórnarflokkanna. Alþingi mun því þurfa að samþykkja tillögur þess til þess að breytingar geti orðið á stjórnarskrá. Þetta er ekki í samræmi við tillögur sem stjórnarflokkarnir lögðu fram fyrir kosningar.

ESB tillaga ætti að ná í gegn

Miklar líkur eru á að fyrirhuguð þingsályktunartillaga ríkisstjórnar um aðildarviðræður að Evrópusambandinu nái meirihluta atkvæða, standi Framsóknarflokkur og Borgarahreyfingin við fyrri yfirlýsingar. Þetta segir Einar Mar Þórðarsson stjórnmálafræðingur sem telur þó aðferð ríkisstjórnarinnar í málinu heldur óvenjulega.

Tvítug stúlka nefbraut strák

Tvítug stúlka nefbraut jafnaldra sinn fyrir utan heimahús á Ólafsfirði í lok desember á síðasta ári. Stúlkan, sem hefur meðal annars keppt í Fittness, játaði brotin skýlaust á sig.

Lögreglan leitar vitna að kynferðisbroti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú meint kynferðisbrot gagnvart konu að morgni laugardagsins 2. maí síðastliðinn á tímabilinu frá klukkan korter í fimm til korter yfir fimm. Meint brot er talið hafa átt sér stað í fólksbifreið í bifreiðastæði við Tollhúsið í Tryggvagötu í Reykjavík.

Fimm þúsund staðfest inflúensutilfelli

Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 5.132 í morgun í 30 ríkjum í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB. Þar á meðal eru tvö staðfest tilfelli í Noregi, tvö í Svíþjóð og eitt í Danmörku, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sóttvarnalækni og Almannavarnadeild. „Staðfest dauðsföll vegna flensunnar eru 53 talsins, flest í Mexíkó eða 48, þrjú dauðsföll eru staðfest í Bandaríkjunum, eitt í Kanada og eitt í Kosta Ríka,“ segir ennfremur.

Býst við að menn vilji lækka laun hjá Lífeyrissjóðunum

Verði laun æðstu stjórnenda ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja lækkuð má búast við því að upp komi krafa um að laun stjórnenda Lífeyrissjóðanna verði endurskoðuð líka, að mati Árna Stefáns Jónssonar, formanns Starfsmannafélags ríkisins.

Hælisleitandi í hungurverkfalli: Mótmælt í Reykjanesbæ

Boðað hefur verið til mótmæla fyrir utan gistiheimilið Fit í Reykjanesbæ í dag til þess að vekja athygli á málum Mansri Hichem, hælisleitanda, sem er á 19. degi hungurverkfalls. Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir að ástæða mótmælanna sé viðbragðsleysi stjórnvalda við aðgerðum mannsins auk þess sem stjórnvöld eru sökuð um að hafa sýnt almennt skeytingarleysi um mannréttindi og velferð flóttamanna sem hingað hafa leitað.

Opnir borgarafundir hefjast á ný

Opnir borgarafundir um þjóðmálin eru að hefjast á ný og verður fyrsti fundurinn haldinn að Borgartúni 3 klukkan átta í kvöld.

Fundu gen sem hefur áhrif á háþrýsting

Vísindamenn Hjartaverndar hafa í samvinnu við alþjóðlegt teymi vísindamanna fundið gen, sem stjórnar blóðþrýstingi og hefur áhrif á háþrýsting, að því er fram kemur í vísindatímaritinu Nature Genetics.

Fimm innbrot á höfuðborgarsvæðinu í nótt

Fimm innbrot voru framin á höfuðborgarsvæðinu í nótt og komust þjófarnir undan í öllum tilvikum. Brotist var inn i Sæmundarskóla í Grafarvogi og einhverjum verðmætum stolið.

Fimm þingmenn VG ætla að vera á móti

Fimm landsbyggðarþingmenn VG lýstu því yfir á þingflokksfundi á laugardag að þeir muni greiða atkvæði gegn þings­ályktunartillögu um aðildarumsókn við Evrópusambandið.

Gott að hafa Gylfa og Rögnu

„Mér líst vel á að hafa þau Gylfa og Rögnu áfram," segir Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar. Meiri friður geti verið um ópólitíska ráðherra.

Fagnar viðhorfsbreytingu

Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, fagnar því að LÍÚ skuli vera tilbúið til að ræða um að takmarka leiguframsal á kvóta. Hann segist hins vegar vilja sjá frekari útfærslu á fyrningarleiðinni áður en hann tekur afstöðu til hennar.

Vill þjóna sínu kjördæmi betur

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tilkynnti í gær að Ásta R. Jóhannesdóttir yrði forseti Alþingis. Fráfarandi forseti, Guðbjartur Hannesson, segir tvær ástæður helstar fyrir því að hann hætti.

Kátir að vera kallaðir til leiks

„Það er víða sem rætt er um samráð og samstarf við okkur og verkalýðshreyfinguna og það er fagnaðarefni,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA).

ESB-tillaga líklega samþykkt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar býst við að ESB-tillagan verði samþykkt á Alþingi. Samfylkingu einni verði þó aldrei falið að semja fyrir Íslands hönd.

Vernda vistkerfið með banni

Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndin (NEAFC) samþykkti nýverið að loka stórum svæðum á Atlantshafshryggnum til að vernda viðkvæm vistkerfi fyrir áhrifum botnveiðarfæra. Lokunin nær til fimm svæða og er viðbót við þau svæði sem þegar hefur verið lokað í sama tilgangi. Samanlagt eru hin nýju svæði 330.000 ferkílómetrar eða sem nemur ríflegri þrefaldri stærð Íslands.

Fyrning kvótans er nöturleg

„Mér líst vel á fólkið og óska því velfarnaðar því mikið liggur við,“ segir Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, vara­formaður Sjálfstæðis­flokksins. „Mér þykir nöturlegt að heyra að það eigi að ríkis­væða einu atvinnugreinina sem er nokkurn veginn í lagi þó hún eigi í erfiðleikum. Eins þykir mér ljóst að þau hafa ekki komið sér saman í Evrópumálinu, í raun teldi ég eðlilegt að við hefðum fengið að heyra hvernig þessi þingsályktunartillaga á að hljóma en það er eflaust enn verið að deila um það.“ - jse

Víðtækt samráð um samningsmarkmið

Þáttaskil eru í utanríkisstefnu Íslands við ákvörðun ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og VG um að leggja fram tillögu á Alþingi um að sækja um aðild að Evrópusambandinu.

Væri skárra að þjóðnýta strax

„Það væri betra hjá þeim að þjóðnýta fyrirtækin strax í stað þess að fara þessa leið og eyðileggja þau þannig,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Hann er afar ósáttur við það að ríkisstjórnin skuli ætla að innkalla veiðiheimildir á 20 árum og segir útgerðarfyrirtækin ekki þola það.

Sátt við verk sín

Fráfarandi ráðherra og fyrrverandi þingmaður, Kolbrún Halldórsdóttir, segist sátt við sín verk í umhverfisráðuneytinu. Hún líti svo á að með þingmennskunni hafi hún klárað tíu ára strembið meistaranám, og nú ætli hún að taka sér sinn tíma til að ákveða doktorsverkefnið.

Ný starfsstöð verður opnuð í Sóltúni

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að stórefla Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna í samstarfi við bankana, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg og Íbúðalánasjóð. Aðsókn eftir ráðgjöf hefur þrefaldast frá því í apríl. Elstu umsóknirnar eru frá því í byrjun apríl en vonir standa til að Ráðgjafarstofan nái að vinna á biðlistanum á fjórum vikum.

Samningsferlið við ESB krufið

Ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna boðar að umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði send til Brussel í sumar.

Skulu aka sjúkraliða til vinnu

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja var óheimilt að hætta akstri sjúkraliða frá Reykjanesbæ til vinnu í Grindavík. Þetta er niðurstaða Félagsdóms.

Viðmótið gott eftir okrið 2007

Verslunarmenn í Vík í Mýrdal segja erlenda ferðamenn vera fjölmenna þar frá því í febrúar og kaupgleðin mun meiri en áður hefur þekkst. Segja þeir lágt gengi krónunnar ráða mestu um þessa þróun.

Skapa á norrænt velferðarsamfélag

Ný ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur ætlar að leiða til öndvegis ný gildi jöfnuðar, félagslegs réttlætis, samhjálpar, sjálfbærrar þróunar, kvenfrelsis, siðbótar og lýðræðis. Hún ætlar að skapa norrænt velferðarsamfélag þar sem almannahagsmunir eru teknir fram yfir sérhagsmuni.

Ný ríkisstjórn - samantekt

Ný ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna tók við völdum í landinu á ríkisráðsfundi á Bessastöðum sem hófst rétt eftir klukkan sex í kvöld. í Þetta er fyrsta meirihlutastjórn tveggja vinstriflokka á Íslandi. Samanlagt hefur ríkisstjórnin 34 þingmenn af 63.

Höfuðpaur í stóra fíkniefnamálinu talinn skipuleggja dópsmygl

Einn af höfuðpaurunum í stóra fíkniefnamálinu svokallaða frá árinu 1999 var búsettur í Brasilíu í mörg ár og er grunaður um að eiga aðild að skipulögðu dópsmygli frá Brasilíu til Íslands. Mörg íslensk burðardýr hafa verið tekin í landinu undanfarin ár.

Sigmundur og Bjarni lítt hrifnir

Formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokkssin eru lítt hrifnir af stjórnarsáttmálan ríkisstjórnar Samfylkingar og VG. Þeir segja að að skýrar tillögur skorti í efnahagsmálum og það sé sorglegt að ríkisstjórnin reiði sig á stjórnarandstöðuna í stærsta málinu.

Árni kominn með lykla að draumaráðuneyti jafnaðarmanna

„Ég held að allir sem vilja vinna fyrir jafnaðarmannaflokk Íslands dreymi um að fá tækifæri til að vinna í félagsmálaráðuneytinu,“ segir Árni Páll Árnason, nýr félags- og tryggingarmálaráðherra. Hann tók í kvöld við lyklum af ráðuneytinu úr hendi flokkssystur sinnar, Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur.

Þjóðin standi saman og efli íslenska atvinnuvegi

Jón Bjarnason, nýr sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, vill að þjóðin standi saman og efli íslenska atvinnuvegi. „Sóknarfæri þjóðarinnar liggja ekki hvað síst í íslenskum landbúnaði og sjávarútvegi. Þar eru tækifærin.“

Svandís: Tek við góðu búi af Kolbrúnu

„Umhverfisráðuneytið er gríðarlega mikilvægt flaggskip fyrir grænan flokk. Ég vona að ég valdi því með góðra manna hjálp,“ segir Svandís Svavarsdóttir, nýr umhverfisráðherra. „Ég tek við afar góðu búi af Kolbrúnu Halldórsdóttur.“

Finnar vilja ekki verja loftrými Íslands

Finnar hafa engan áhuga á að taka þátt í loftrýmiseftirliti yfir Íslandi. Varnarmálaráðherra Finna segir það of dýrt og einni pólitískt mál.

Ný ríkisstjórn Samfylkingar og VG á Bessastöðum

Ný ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs kom saman í fyrsta sinn á ríkisráðsfundi með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, á Bessastöðum í rétt eftir klukkan 18 í kvöld.

Björgvin vildi ekki verða ráðherra

Björgvin G. Sigurðsson, oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi og fyrrum viðskiptaráðherra, gaf ekki kost á sér í ráðherraembætti nýrrar ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Hann sendi Jóhönnu formlegt bréf þess efnis fyrir viku síðan. Þetta kemur fram á fréttavefnum Pressan.is

Sjá næstu 50 fréttir