Fleiri fréttir

Aðildarumsókn fyrir þingið í vor - nýr stjórnarsáttmáli

Utanríkisráðherra mun leggja fram á vorþingi tillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Þetta kemur fram í nýjum stjórnarsáttmála Samfylkingarinnar og Vinstri-grænna. Stuðningur stjórnvalda við samninginn er háður ýmsum fyrirvörum. Kynning á nýjum stjórnarsáttmála er að hefjast og er hægt að fylgjast með henni í beinni útsendingu á Stöð 2.

Katrín og Árni Páll nýir ráðherrar Samfylkingarinnar

Þingmennirnir Katrín Júlíusdóttir og Árna Páll Árnason verða ráðherrar í nýrri ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir lætur af störfum sem félagsmálaráðherra. Flokksstjórn Samfylkingarinnar samþykkti þetta á fundi sínum í dag.

Blaðamannafundur í beinni útsendingu

Forystumenn Samfylkingar og Vinstri grænna kynna stjórnarsáttmála og ráðherralista nýrrar ríkisstjórnar á blaðamannafundi í Norræna húsinu í dag sem ráðgert er að hefjist klukkan 16. Stöð 2, Bylgjan og Vísir munu senda beint út frá fundinum.

Flokksráð VG samþykkti sáttmálann

Flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs er nýlokið. Fundurinn samþykkti stjórnarsáttmála VG og Samfylkingarinnar með þorra atkvæða. Þeim tilmælum var jafnframt beint til Steingríms J. Sigfússonar, formanns flokksins, að tryggja jöfn kynjahlutföll í nýrri ríkisstjórn.

Kjarvalsmálsverkið 5 til 7 milljóna króna virði

Tryggvi Páll Friðriksson, uppboðshaldari hjá Gallerí Fold, áætlar að verk eftir Jóhannes Kjarval sem stolið var á Kjarvalsstöðum í gær sé 5-7 milljóna króna virði. Hann telur að virði þess hafi verið ennþá meira þegar góðærið var hvað mest.

Stefnt að því að hefja aðildarviðræður í júlí

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna mun óska eftir að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið í júlí nái þingsályktunartillaga flokkanna fram að ganga. Þetta kom fram á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar á Hótel Sögu í dag, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Stjórnarsáttmálinn borinn undir Samfylkingarfólk

Flokksstjórn Samfylkingar kom saman á Hótel sögu klukkan 13 dag. Þar mun Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður flokksins, kynna stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. Á fundinum verður borin upp tillaga um stjórnarsáttmála milli flokkanna og skipan ráðherra Samfylkingarinnar.

Fyrsta meirihlutastjórn vinstriflokka hér á landi

Ný ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna verður mynduð í dag og verður þetta í fyrsta meirihlutastjórn tveggja vinstri flokka á Íslandi. Ríkisráðsfundir hafa verið boðaðir á Bessastöðum síðdegis þar sem stjórnarskiptin fara fram. Síðasti fundur fráfarandi ríkisstjórnar hefst klukkan 17 og fyrsti fundur nýrrar stjórnar hefst klukkan 18:15.

Segir lögreglu geta sent sér reikninginn

Verslunarmaður á Akureyri sem laug að fréttavef Morgunblaðsins í gær að ísbjörn væri við Hofsós segir um meinlausan hrekk hafa verið að ræða sem flestir hafi tekið vel. Hann segir lögreglu geta sent sér reikninginn ef einhver kostnaður hlaust af athæfinu.

Ný ríkisstjórn kynnt klukkan fjögur - bein útsending

Stefnt er að því að formenn stjórnarflokkanna, þau Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, kynni stjórnarsáttmála og ráðherralista nýrrar ríkisstjórnar á blaðamannafundi í Norræna húsinu klukkan 16. Stöð 2 mun senda beint út frá þeim fundi, og einnig beint frá Bessastöðum í fréttatímanum klukkan 18:30 þar sem stjórnarskiptin fara fram.

Rignir á golfara á Þingeyri

Vormót Golfklúbbsins Glámu á Þingeyri hófstklukkan 10 á Meðaldalsvelli í Dýrafirði en hann er fyrsti golfvöllurinn sem opnaður er á Vestfjörðum nú í vor. Dýrfirðingar byrjuðu reyndar að spila á vellinum þegar í mars og dæmi eru um að þeir hafi haldið golfmót í kringum áramót enda veðursæld með besta móti í Dýrafirði.

Vetrarfærð á fjallvegum

Vegagerðin varar ökumenn við að enn er vetrarfærð á fjallvegum, einkum á norður- og austurhelmingi landsins, og tvær fjölfarnar heiðar eru ófærar, Eyrarfjall í Djúpi og Öxi ofan Berufjarðar. Á Vestfjörðum er hálka á Steingrímsfjarðarheiði og hálkublettir á Dynjandisheiði og Klettshálsi.

Kjarvalsmálverkið var ekki fest við vegg

Málverkið eftir Jóhannes Kjarval sem stolið var á Kjarvalsstöðum í gærdag var ekki fest við vegg, segir safnstjóri. Skömmu eftir ránið voru tveir einstaklingar handteknir og síðar um daginn fannst málverkið.

Ný ríkisstjórn líklega mynduð í dag

Nú stendur yfir flokksráðsfundur Vinstri grænna á Grand Hótel í Reykjavík en fundurinn mun taka afstöðu til þátttöku flokksins í ríkisstjórn með Samfylkingunni. Flokksstjórn Samfylkingarinnar fundar á Hótel Sögu klukkan eitt.

Kjarvalsmálverki stolið á Kjarvalsstöðum

Málverki eftir Kjarval var stolið um hábjartan dag á Kjarvalsstöðum í gær þegar karlmaður gekk inn á safnið laust eftir klukkan tvö og tók eitt af verkum listamannsins sem var í sýningarsal og hafði á brott með sér ásamt öðrum manni.

Staðnir að verki - erilsöm nótt hjá lögreglu

Erilsamt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt, að sögn varðstjóra. Tveir menn voru handteknir í annarlegu ástandi þegar þeir reyndu að brjóta sér leið inn á veitingastað við Hagamel um eittleytið í nótt. Mennirnir verða yfirheyrðir síðar í dag.

Fékk rafknúinn hjólastól að gjöf

Tíu ára stúlka brosti allan hringinn í dag þegar hún fékk afhentan nýjan rafknúinn hjólastól að gjöf. Það ríkti nokkur eftirvænting hjá Elísu Sól Sonjudóttur þegar hún mætti í húsnæði Kiwanisklúbbsins Sólborgar í dag. Hún var þangað komin ásamt fjölskyldu sinni til að fá afhentan nýjan rafknúin hjólastól að gjöf frá kiwanisklúbbnum.

Gríðarlegt ábyrgðarleysi að gabba lögregluna

Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki, segir að gabb af hálfu hóps Akureyringa í skemmtiferð um Skagafjörð í dag sé litið alvarlegum augum. Um hafi verið ræða gríðarlegt ábyrgðarleysi hjá fullorðnu fólki.

Tjón meira en áætlað var

Viðlagatrygging hefur greitt út sex milljarða króna vegna tjóns í Suðurlandsskjálftanum í fyrra. Tjónið er orðið mun meira en áætlað var en frá áramótum hafa borist um þrjú hundruð nýjar tilkynningar um tjón. Búist er við að heildartjón vegna skjálftans verði sjö og hálfur milljarður.

Þakklátir björgunarsveitarmönnum

Íslenskir Fjallaleiðsögumenn vilja koma á framfæri innilegu þakklæti við þær björgunarsveitir sem tóku þátt í björgun sex spænskra ferðamanna og leiðsögumanna þeirra af Vatnajökli í gær.

Nýtt þing kemur saman eftir viku

Nýtt þing kemur líklega saman eftir viku. Hugsanlega á föstudaginn en þó er líklegra að það verði ekki fyrir enn eftir næstu helgi. Að því gefnu að ný ríkisstjórn verði mynduð á morgun. Þetta sagði Guðbjartur Hannesson, sitjandi forseti Alþingis, í samtali við fréttastofu.

Skyttur í viðbragðsstöðu vegna ísbjarnargabbs

Hópur Akureyringa í skemmtiferð um Skagafjörð gabbaði fjölmiðla og lögreglu í dag með rangri tilkynningu um ísbjörn norðan við Hofsós. Eftir að frétt birtist um málið laust fyrir klukkan hálffjögur ræsti lögreglan á Sauðárkróki út mannskap og setti skyttur í viðbragðsstöðu. Um hálftíma síðar kom hið sanna í ljós.

Endanleg ráðherraskipan liggur ekki fyrir

Þingmenn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar funduðu í morgun með formönnum sínum til að ræða komandi stjórnarsamstarf flokkanna. Búist er við því að ný ríkisstjórn verði kynnt síðdegis á morgun eftir að flokksráð Vinstri grænna og flokksstjórn Samfylkingarinnar hafa tekið afstöðu til stjórnarsáttmálans.

Ófært var til Seyðisfjarðar í morgun

Þrír fjallvegir eru ófærir, Eyrarfjall í Ísafjarðardjúpi, Lágheiði í Ólafsfirði og á Öxi ofan Berufjarðar. Þá var ófært til Seyðisfjarðar í morgun en Fjarðarheiði hefur nú opnast og þar sögð þæfingsfærð í tilkynningu Vegagerðarinnar upp úr klukkan eitt. Þar kemur fram að vetrarfærð sé um norðan- og austanvert landið og hálka er einnig á heiðum vestanlands.

Mörður: Steinunn Valdís vann ekki gegn mér

Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, segir að flokkssystur hans og þingmaðurinn, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, hafi ekki unnið gegn sér í kosningunum fyrir hálfum mánuði þegar 656 strikuðu yfir nafn Marðar. 1443 kjósendur Samfylkingarinnar strikuðu yfir nafn Steinunnar Valdísar.

Bretar svara ekki með beinum hætti

Breska forsætisráðuneytið svarar ekki með beinum hætti spurningum fréttastofu um hvað hafi legið að baki ummælum Browns forsætisráðherra Bretlands í þinginu fyrir helgi um viðræður við Alþjóða gjaldeyrissjóðsins vegna skulda Íslands. Í yfirlýsingu er forsætisráðherrann er aðeins sagður hafa átt við lánasamkomulag sjóðsins við Ísland og Icesave viðræðurnar.

Stjórnvöld tryggi að Ísland eigi öfluga talsmenn erlendis

Stjórn Almannatengslafélag Íslands hvetur stjórnvöld til að tryggja að Ísland og Íslendingar eigi sér öfluga talsmenn erlendis, sem hafi umboð og tæki til að bregðast við neikvæðri fjölmiðlaumfjöllun um leið og hún kemur upp. Það þolir ekki lengri bið, að fram kemur í ályktun stjórnar félagsins.

Kokkar keppa í Höllinni

Sýningin Ferðalög og frístundir stendur yfir í Laugardalshöll um helgina þar sem kynnt eru tækifæri sem landsmönnum býðst til verja frítímanum hér heima og erlendis. Markmið sýningarinnar er að kynna fjölbreytni ferðaþjónustu og frístundamöguleika og vekja athygli á fyrirtækjum og stofnunum í þessum geira.

Orðspor Íslands hefur beðið hnekki

Orðspor Íslands á alþjóðavettvangi hefur orðið fyrir verulegu tjóni í kjölfar bankahrunsins að mati fjármálaráðherra. Ráðslag íslenskra ráðamanna og útrásarvíkinga á undanförnum misserum mun reynast Íslandi dýrt.

Duncan kominn úr öndunarvél

Bandaríski tónlistarmaðurinn Duncan McKnight sem féll af húsþaki á Skólavörðustíg fyrir rúmri viku er enn á gjörgæsludeild en er þó kominn úr öndunarvél.

Stjórnvöld íhugi að slíta stjórnmálasambandi við Breta

Stjórnvöld hafa ekki gætt hagsmuna Íslands nægilega vel gagnvart Bretum, að mati formanns Framsóknarflokks. Hann vill að íslensk stjórnvöld íhugi að slíta stjórnmálasambandi við Bretland fallist bresk stjórnvöld ekki á að aflétta beitingu hryðjuverkalaganna. Formaður Sjálfstæðisflokks segist ekki vera bjartsýnn á að hagstæðir samningar náist í Icesave deilunni.

Guðjón fundar um framtíðina

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, efnir til fundar í dag með flokksmönnum og hyggst hann ræða stöðu flokksins og þjóðmálin.

Meindýraeyðirinn á Húsavík: Ekki rétt að skjóta sendiboðann

Ómar Örn Jónsson, meindýraeyðir, segir að margt megi læra af máli kattarins Carras sem hann skaut á færi á þriðjudagskvöldið á Húsavík. Ómar Örn segir að víða sé pottur brotinn þegar kemur réttindum gæludýraeigenda, dýranna sjálfra og þeirra sem þurfa að umbera ókunnug dýr á einkalóð eða heimili.

Fallinna hermanna minnst í Fossvogskirkjugarði

Í dag er þess víða minnst að 64 ár eru liðin frá því að herir nasista gáfust upp fyrir bandamönnum í heimsstyrjöldinni síðari. Minningarathöfn var við minnismerki Rússa í Fossvogskirkjugarði í morgun.

Stjórnarflokkarnir funda um sáttmálann

Stjórnarsáttmáli Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og Samfylkingarinnar er að mestu tilbúinn og er búist við að ný ríkisstjórn verði kynnt á morgun. Þingmenn Vinstri grænna og Samfylkingar ganga á fund formanna sinna í dag til að kynna sér sáttmálann og geta þeir einnig komið með athugasemdir.

Mesti fjöldi þinglýstra kaupsamninga það sem af árinu

50 kaupsamningum vegna fasteignakaupa var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku og er það mesti fjöldi samninga á einni viku það sem af er þessu ári. Heildarveltan nam rúmum tveimur milljörðum króna.

Boðið upp á ókeypis tannlækningar

Barnafjölskyldum sem búa við kröpp kjör er í dag boðið upp á fría tannlæknaþjónustu í Læknagarði. Það eru Tannlæknafélag Íslands og Tannlæknadeild Háskóla Íslands sem bjóða upp á þjónustuna en hún er fyrir börn og unglinga undir átján ára aldri.

Björguðu ökumönnum og farþegum af Holtavörðuheiði

Ekkert ferðaveður var á Holtavörðuheiði í gær og í nótt og var henni lokað um tíma. Björgunarsveitarmenn komu ökumönnum og farþegum átján bíla og einnar rútu til aðstoðar en í bílunum voru um sextíu manns og þar af nokkur kornabörn.

Bjargað af Vatnajökli

Átta manna hópur gönguskíðafólks sem var veðurtepptur á Vatnajökli í gær er kominn til byggða. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar komust að hópnum skömmu eftir miðnætti.

Róleg nótt hjá lögreglu

Gærkvöldið og nóttin virðist hafa verið róleg hjá lögreglunni víðsvegar um landið. Víða var lítið ferðaveður og fáir á ferli.

Þurfa að grípa til varasjóða

Frjáls félagasamtök á Íslandi sem starfa að mannúðarmálum í þróunarríkjum hafa mörg hver neyðst til að grípa til varasjóða til þess að halda starfseminni gangandi. Samtökin hafa einnig dregið úr framkvæmdum eða leitað samstarfs við aðra um verkefni. Þetta kemur fram í Veftímariti um þróunarmál.

Viðbrögð við flensu mikil en skiljanleg

Fyrstu fregnir af svínaflensunni í Mexíkó báru með sér að um banvæna sótt væri að ræða sem legðist þungt á þá sem fyrir henni urðu. Fólk um allan heim bjó sig undir það versta; að nýr faraldur á borð við spænsku veikina væri á leiðinni með tilheyrandi dauðsföllum. Nú, réttum hálfum mánuði síðan fyrstu fregnir bárust, hafa tæplega 2.500 manns sýkst, þar af um helmingur í Mexíkó, og 46 hafa látist.

Tilfellunum fjölgar hægar

Staðfest tilfelli svínaflensu, eða inflúensu A (H1N1), voru alls 2.489 í 24 ríkjum í heiminum í gærmorgun. Þeim hafði þá fjölgað um 272 sólarhringinn þar á undan samkvæmt upplýsingum Sóttvarnastofnunar ESB.

Sjá næstu 50 fréttir