Innlent

Opnir borgarafundir hefjast á ný

Frá borgarafundi í Iðnó í haust.
Frá borgarafundi í Iðnó í haust.

Opnir borgarafundir um þjóðmálin eru að hefjast á ný og verður fyrsti fundurinn haldinn að Borgartúni 3 klukkan átta í kvöld. Frummælendur verða Marinó G. Njálsson frá Hagsmunasamtökum heimilanna og Sveinn Aðalsteinsson. Umræðuefnið mun verða aðgerðir í þágu heimilanna og skuldir og staða þjóðarinnar og heimilanna. Fundarform verður með sama sniði og áður og hefur öllum þingmönnum sérstaklega verið boðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×