Fleiri fréttir

Lóðum fyrir 130 milljónir skilað í Hafnarfirði

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti í gær að taka við afsölum af sex lóðum í gær en verðmæti þeirra samanlagt eru 136 milljónir króna. Mikið hefur verið um að einstaklingar hafi skilað lóðum sem þeim var úthlutað fyrir efnahagshrunið.

Vegaframkvæmdir á Akureyri

Lögreglan á Akureyri tilkynnir að vegna gerðar undirganga á Hörgárbraut, norðan Skúta, verður Hörgárbraut lokuð milli Hlíðarbrautar og Undirhlíðar frá 7. maí til 4. júní næst komandi. Hjáleið er um Krossanesbraut.

Illugi formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins

Illugi Gunnarsson, þingmaður og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, var í dag kjörinn formaður þingflokks sjálfstæðismanna á fundi þingflokksins. Illugi gegndi stöðu varaformanns þingflokksins á síðasta kjörtímabili.

Lögregludólgur í þriggja ára fangelsi

Hæstiréttur staðfesti þriggja ára fangelsisdóm yfir síbrotamanninum Má Ívari Henryssyni. Már, sem er rúmlega þrítugur, var sakfelldur fyrir að sparka þrívegis í lögreglumenn auk fjöldann allan af þjófnaðarbrotum, ölvunarakstur og fjársvik.

ASÍ krefst mun lægri vaxta

Miðstjórn ASÍ krefst þess að vextir lækki verulega. Miðstjórnin hvetur Seðlabanka Íslands til að lækka stýrivexti við vaxtaákvörðun á morgun þannig að vaxtamunurinn verði ekki meiri en sem nemur 4% miðað við evrópska seðlabankann en vextir þar eru í dag 1,25%.

Síbrotamaður í 18 mánaða fangelsi

Hæstiréttur staðfesti í dag 18 mánaða fangelsisdóm yfir Ragnari Davíð Bjarnasyni fyrir vörslu fíkniefna og fyrir að aka bifreið án réttinda. Ragnar áfrýjaði dómi héraðsdóms til Hæstaréttar sem staðfesti dóminn sem fyrr segir. Fyrir dómi játaði Ragnar Davíð brot sín skýlaust en hann hefur margoft verið dæmdur í fangelsi og var á skilorði þegar brotin, sem hann var dæmdur fyrir, voru framin. Þótti hæfileg refsing ákærða því 18 mánuðir.

Hústökufólkið yfirgaf húsið

Hópur hústökufólks sem fór í leyfisleysi inn í hús við Vatnsstíg 4 í Reykjavík í hádeginu yfirgaf húsið á fjórða tímanum eftir að lögregla gaf hópnum tækifæri á að fara úr húsinu. Ekki kom til neinna ryskinga líkt og um miðjan síðasta mánuð þegar hústökufólk kom sér fyrir í húsinu sem var rýmt fimm dögum síðar af lögreglu. Að sögn lögreglu voru á annan tug manna í húsinu að þessu sinni.

Fjöldauppsagnir ósiðlegar

Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, segir að það hafi kannski hljómað vel á árinu 2007 að mæta sparnaðarkröfunni á Landspítalann með fjöldauppsögnum, en slík aðgerð sé ekki í kortunum nú. „Hún er samfélagslega óábyrg og hún er hreint út sagt ósiðleg.“

Miðbaugsmaddaman aftur í gæsluvarðhald

Catalina Mikue Ncoco sem komst í fréttirnar fyrr á þessu ári vegna vændishúsa sem hún hélt úti á höfuðborgarsvæðinu hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 12.maí vegna gruns um umfangsmikið fíkniefnasmygl. Karl Steinar Valsson hjá fíkniefnadeild lögreglunnar vill ekki staðfesta að Catalina eigi í hlut en útilokar ekki að konan tengist belgískum burðardýrum sem handtekin hafa verið við komuna hingað til lands undanfarið.

Fjölskylda Ragnars í sjokki

„Við erum bara í sjokki og erum að reyna að anda frá mínútu til mínútu til þess að geta gert eitthvað í þessum málum."

Búist við margir hjóli í vinnuna

Hin árlega landskeppni Hjólað í vinnuna var sett í morgun í Reykjavík. Búist er við feikigóðri þátttöku því reiðhjólið nýtur meiri vinsælda um þessar mundir en áður sem samgöngutæki, að fram kemur í tilkynningu.

Frjálslyndi flokkurinn skuldar sex milljónir

„Við erum ekkert hættir í pólitík þó við skuldum einhverjar milljónir. Það hefur oft komið fyrir áður að við skuldum peninga," segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins.

Olíuleki í Hafnarfjarðarhöfn

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er við störf í Hafnarfjarðarhöfn þar sem olía lak af pólskum togara sem þar liggur við festar. Búið er að hefta lekann og koma í veg fyrir að olían breiðist út í höfninni en um hundrað fermetra flekkur myndaðist í höfninni.

Umferðarslys í Hafnarfirði

Tveir bílar, jeppi og fólksbíll, skullu saman á gatnamótunum við verslunina Fjarðarkaup í Hafnarfirði á þriðja tímanum í dag. Sjúkrabílar og tækjabíll slökkviliðsins er á staðnum og þurfti að beita klippum til þess að koma fólkinu út úr flökunum. Fólkð verður flutt á slysadeild til aðhlynningar en að sögn slökkviliðs er fólkið ekki alvarlega slasað.

Hjálparstarf Kirkjunnar: Gríðarleg fjölgun beiðna um aðstoð

Gríðarleg fjölgun hefur orðið á beiðnum um aðstoð hjá Hjálparstarfi kirkjunnar eða 317 prósent miðað við sama tíma í fyrra þegar tekið er mið af fyrstu fjórum mánuðum ársins. Í tilkynningu kemur fram að umsóknir í ár, janúar til apríl, hafi verið 2.206 en voru 701 í fyrra.

Ákærð fyrir að sparka í höfuð á skemmtistað

Þrjátíu og sex ára gömul kona hefur verið ákærð fyrir að hafa sparkað í höfuð fórnarlambs með þeim afleiðingum að blæðandi sár myndaðist á vinstra eyra og vörum og bóglur mynduðust við hægra auga. Árásin átti sér stað á veitingastaðnum Kaffi Edinborg við Aðalstræti á Ísafirði í október á síðasta ári. Málið var þingfest í héraðsdómi Vestfjarða í dag.

Eigandinn á Vatnsstíg vissi ekki af hústökufólkinu

Ágúst Friðgeirsson, eigandi hússins á Vatnsstíg 4, kom af fjöllum þegar fréttastofan sagði honum frá því að hústökufólk hefði á ný tekið sér bólfestu í húsinu en fólkið var borið þaðan út með valdi fyrir nokkrum dögum síðan. Í dag sendi hópurinn frá sér yfirlýsingu þess efnis að þau væru mætt á svæðið á ný til þess að sýna samstöðu með pólsku hústökufólki en 6. maí er tileinkaður baráttu þeirra.

Stjórnvöld hafa klúðrað kynningu á aðgerðum fyrir heimilin

Stjórnvöld hafa klúðrað kynningu á þeim úrræðum sem Alþingi hefur samþykkt vegna skulda heimilanna og verða tafarlaust að grípa til aðgerða til stuðnings þeim úrræðum sem þegar eru fyrir hendi, að mati forseta Alþýðusambands Íslands. Hann segir misskilning að fólk með gjalddaga húsnæðislána í vanskilum eigi ekki rétt á greiðsluaðlögun.

Fimmtán mánaða fangelsi fyrir að slá mann með hamri og stela

Þrítugur karlmaður, Agnar Davíð Stefánsson, var dæmdur í 15 mánaða fangelsi í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Agnar var dæmdur fyrir margítrekuð þjófnaðar- og umferðarlagabrot auk þess sem hann var dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Þá sló hann karlmann í höfuðið með hamri í heimahúsi í Reykjavík með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð aftan á hnakka. Agnar hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 8.apríl en það kemur til frádráttar refsingar

Hústökufólkið snýr aftur að Vatnsstíg

Núna í hádeginu opnaði Fríbúðin svokallaða við Vatnsstíg 4 í Reykjavík en hún var fyrst opnuð þann 17.apríl. Húsið var rýmt af lögreglu fimm dögum síðar. Í tilkynningu frá hópnum segir að nú taki þau rýmið aftur í sínar hendur og opni búðina á ný. Tilefni þess er að í dag, 6.maí, er alþjóðlegur samstöðudagur með Rozbrat, gamalgrónu tökuhúsi í Poznan, Póllandi.

Nauðsynlegt að veirulyfjum sé ávísað af læknum

Nauðsynlegt er að veirulyfjum vegna inflúensu A (H1N1) verði ávísað af læknum sem leiðbeina jafnframt um notkun þeirra. Jafnframt er ástæðulaust fyrir einstaklinga og fyrirtæki að birgja sig upp af lyfjunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Jóhanna og Steingrímur funda um nýja stjórn

Stjórnarmyndunarviðræðum Samfylkingar og Vinstri grænna verður framhaldið í dag og munu formenn flokkanna funda saman eftir hádegi. „Flestir undirhóparnir eru búnir að mestu með sína vinnu þannig að nú eru þau tvö að púsla þessu saman," segir Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra. Hann á von á að myndun nýrrar ríkisstjórnar ljúki á næstu dögum.

Tveir handteknir vegna nauðgunar í Tryggvagötu

Tveir karlmenn af erlendu bergi brotnir voru handteknir á sunnudagsmorgun grunaðir um nauðgun á 19 ára gamalli stúlku. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafa mennirnir verið yfirheyrðir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Rannsókn er í gangi.

Einungis Samfylkingin hefur ákveðið að upplýsa um alla styrki

Samfylkingin er eini stjórnmálaflokkur landsins sem hyggst enn sem komið er birta upplýsingar um fjárstyrki til aðildarfélaga og fulltrúaráða flokksins vegna ársins 2006. Aðrir flokkar hafa ekki tekið ákvörðun um það hvort að upplýsingunum verði safnað saman og þær birtar opinberlega. Árið 2006 fóru fram sveitarstjórnarkosningar.

Innbrot í sumarbústað í Grímsnesi

Brotist var inn í sumarbústað í Grímsnesi í gærdag og þaðan stolið 40 tommu flatskjá og fleiri verðmætum. Þjófurinn beitti kúbeini við að spenna upp glugga og komst þannig inn. Hann komst undan og er ófundinn.

Samið við hávaðasaman hana í Eyjum

Stoltur hani af landnámsætt, sem býr búi sínu í hænsnakofa í miðbæ Vestmannaeyjakaupstaðar, hefur orðið við þeim tilmælum lögreglunnar að raska ekki ró nágranna sinna ókristilega snemma á morgnana.

Víða metúrkoma í apríl

Ný úrkomumet voru sett í þó nokkrum veðurathugunarstöðvum á landinu í nýliðnum aprílmánuði. Í Vestmannaeyjum mældist mesta rigning í 128 ár og úrkoman í Reykjavík var heilum 70 prósentum yfir meðallagi. Mest var úrkoman á Suður- og Suðvesturlandi og á vestanverðu Norðurlandi. Hitastig í síðasta mánuði var líka nokkuð yfir meðallagi.

Brennuvargar á ferð í nótt

Kveikt var í tveimur blaðagámum í nótt, öðrum í Mosfellsbæ og hinum í Fossvogi í Reykjavík. Slökkviliðið var kvatt á vettvang í bæði skiptin og slökkti eldinn. Engin mannvirki voru í hættu og ekki er vitað hverjir voru þarna að verki.

Tvö umferðaróhöpp á Akureyri

Tvö umferðaróhöpp urðu á mótum Hamarstígs og Þórunnarstrætis á Akureyri með skömmu millibili undir kvöld í gær. Fyrst lentu þrír bílar þar í árekstri, en enginn meiddist alvarlega.

Grunaður um akstur undir áhrifum nokkurra efna

Tveir ökumenn voru teknir úr umferð í nótt, grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna, annar í Reykjavík og hinn á Selfossi. Skimun bendir til þess að sá síðari hafi neytt nokkurra tegunda fíkniefna.

Útgáfudögum DV fækkar

Útgáfudögum DV fækkar enn frekar og kemur blaðið því út á þriðjudögum, miðvikudögum og svo um helgar. Í tilkynningu um fækkun útgáfudaga sem finna má á vefsíðu dv.is, segir að ástæðan sé sparnaður, þá sérstaklega vegna mikillar hækkunar á pappírsverði.

Bandarískur ríkisborgari lést úr svínaflensu

Bandarísk kona á fertugsaldri lést úr svínaflensu fyrr í vikunni. Konan er frá Texas en samkvæmt frétt BBC um málið þá hafði hún einnig verið þjökuð af veikindum fyrir.

Þriggja bíla árekstur í dag

Lögreglan og sjúkrabíll voru kölluð á slysstað á Sæbrautinni í dag. Ástæðan var þriggja bíla árekstur sem varð á háannatíma eða klukkan fimm í dag.

Gamall Brasilíufangi: Segir erfiða tíma bíða Ragnars

Hlynur Smári Sigurðarson gerði þau mistök árið 2006 að reyna smygla tveimur kílóum af kókaíni úr landinu. Hann þurfti að dúsa í alræmdu braislísku fangelsi og lýsingarnar hans voru hrottalegar: Ég geng um með tálgaðan tannbursta á mér allan daginn ef einhver skyldi ráðast á mig," sagði hann í samtali við Fréttablaðið og Vísis árið 2006.

Frá Brasilíu til Íslands - Svona smygla þeir dópinu

Íslendingurinn sem tekinn var í Brasilíu ætlaði að notfæra sér velþekkta smygleið úr undirheimunum til að koma fíkniefnunum til Íslands. Heimildir fréttastofu herma að smyglleiðin hafi margoft verið notuð til að koma kókaíni til landsins.

Ferðamenn neita að nota seðlabankagengið

Ferðaþjónustan horfir fram á gríðarlegt tap vegna gjaldeyrishafta. Erlendir kaupendur sem hafa skuldbundið sig til að greiða í íslenskum krónum fá það ekki og þurfa að greiða í erlendri mynt. Þeir neita að nota gengi Seðlabankans á krónunni og miða við erlent gengi sem er allt að fjörtíu prósentum lægra.

Tugir fanga sluppu úr fangelsi Ragnars í fyrra

Gæsluvarðhaldsfangelsið þar sem Ragnar Erling Hermannsson er vistaður í kjölfar þess að hann var handtekinn á flugvellinum í Recife með sex kíló af kókaíni komst í fréttirnar í Brasilíu í febrúar á síðasta ári þegar 51 fangi slapp úr vistinni. Þegar fangaflóttinn átti sér stað voru 20 fangaverðir í fangelsinu en þeir voru allir lausráðnir og höfðu hlotið litla þjálfun. Einn daginn mættu aðeins fimm til vinnu og nýttu fangarnir sér mannfæðina og ruddust út.

Brasilíufangi: Smyglaði dópi vegna fíkniefnaskuldar

20 ára fangelsisvist bíður 25 ára íslendings sem handtekinn var í Brasilíu á föstudaginn með mikið magn af sterku kókaíni. Lögregla þar í landi segir hann hafa farið í smyglferðina til að greiða fyrir dópskuld hér á íslandi.

Lág tilboð í Hvítárbrú

Ræktunarsamband Flóa og Skeiða bauð lægst í gerð nýrrar 270 metra langrar brúar yfir Hvítá í Árnessýslu á móts við Flúðir. Óvenju margir verktakar börðust afar hart um verkið og munaði innan við einu prósenti á þremur lægstu tilboðum.

Var hættur að mæta í vinnuna

„Mér fannst eins og hann væri kominn í einhverja óreglu en ég get ekki fullyrt það. Hann svaf yfir sig í hádeginu og kom of seint. Þess vegna urðum við að láta hann fara," segir Linda.

Nýta þarf úrræði til bjargar heimilunum

Forseti Alþýðusambandsins segir þau úrræði sem Alþingi hefur samþykkt til bjargar heimilunum hvorki hafa verið virkjuð eða nýtt og segir mikilvægt að það sé gert hið fyrsta. Ríkisstjórnin fundaði í dag með aðilum vinnumarkaðarins.

Úrskurðuð í gæsluvarðhald vegna fíkniefnainnflutnings

Kona um þrítugt var í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðuð í gæsluvarðhald til 12. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Konan er grunuð um aðild að innflutningi fíkniefna. Hún hefur kært úrskurðinn til Hæstaréttar.

Sjá næstu 50 fréttir