Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Helmingur fíkniefnanna í Papeyjarmálinu var amfetamín Rúmlega helmingur fíkniefnanna sem hald var lagt á í Papeyjarmálinu svokallaða í síðasta mánuði reyndist vera amfetamín, eða 55 kílógrömm. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þar kemur jafnframt fram að mikið hafi verið af marijúana, eða 34 kílógrömm og hassi, eða 19,5 kílógrömm. E-töflurnar voru rúmlega 9.400 talsins. 13.5.2009 13:44
Kærir Brunavarnir Árborgar til samkeppniseftirlitsins „Jú, ég get staðfest það," svarar Frank Höybye, sem er er búinn að kæra Brunavarnir Árborgar til Samkeppniseftirlitsins. 13.5.2009 13:39
Stjórn UVG: Spurning hvort lög flokksins hafi verið brotin Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir megnri óánægju með að ekki skuli vera jafnt hlutfall kynja í ráðherraliði nýrrar ríkisstjórnar. Í tilkynningu frá stjórninni er sett fram sú krafa að þegar næst verði gerðar breytingar á skipan ráðherra í ríkisstjórninni verði hlutfall kynjanna innan hennar leiðrétt, enda sé slíkt í samræmi við samþykktir Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Þá telur stjórnin að spurningar vakni hvort forysta flokksins hafi gerst brotleg við lög flokksins þegar fleiri karlar en konur voru skipaðir ráðherrar. Þrír karlar og tvær konur skipa ráðherralið VG, líkt og hjá Samfylkingunni. 13.5.2009 12:57
Brotist inn í verslun í Þorlákshöfn Brotist var inn í verslun í Þorlákshöfn í nótt. Að sögn lögreglunnar á Selfossi voru tveir ungir karlmenn að verki. Þeir voru handteknir og játuðu þeir brot sín við yfirheyrslur. Málið telst upplýst samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. 13.5.2009 12:48
Hischem útskrifaður af sjúkrahúsi - neitar enn að borða Alsírski hælisleitandinn sem hefur verið í mótmælasvelti í tuttugu og einn dag var lagður inn á sjúkrahús í gær vegna hjartsláttatruflana. Hann var skoðaður af læknum en fór heim á miðnætti þar sem hann hafnaði allri læknisaðstoð og neitaði að borða. 13.5.2009 12:17
Miðbaugs-maddaman er laus úr gæsluvarðhaldi Catalina Mikue Ncogo, stundum hefur verið kölluð Miðbaugs-maddaman, er laus úr gæsluvarðhaldi. Catalina var grunuð um aðild að nokkuð umfangsmiklu smygli á fíkniefnum hingað til lands og sat í gæsluvarðhaldi þar til í gær vegna þess. Lögreglan fór ekki fram á áframhaldandi gæsluvarðhald en hún mun sæta farbanni til 10 júní. 13.5.2009 11:59
H1N1: Meiri smithæfni en í „venjulegri" inflúensu Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 5.935 í morgun í 31 ríki í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB. Þar á meðal eru tvö staðfest tilfelli í Finnlandi sem tilkynnt var um í gær. Í tilkynningur frá Sóttvarnalækni og Almannavarnadeild er bent á að það með hafi flensan stungið sér niður alls staðar á Norðurlöndum nema á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum. 13.5.2009 11:56
Fjögur hundruð kannabisplöntur haldlagðar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði tvær kannabisræktanir í Hafnarfirði í gær. Alls voru 400 plöntur haldlagðar. 13.5.2009 11:20
Kópavogur setur sér siðareglur Kópavogsbær hefur sett sér siðareglur sem gilda um kjörna bæjarfulltrúa og stjórnendur hjá bæjarfélaginu. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti siðareglurnar einróma á fundi sínum í gær. Í fréttatilkynningu frá bæjarstjórn kemur fram að Kópavogur sé fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að setja sér slíkar siðareglur. 13.5.2009 11:09
Bindisskylda þingmanna afnumin Þær markverðu breytingar hafa verið gerðar á reglum um klæðaburð þingmanna að þingmönnum er ekki skylt að ganga með hálstau. Helgi Bernódusson skrifstofustjóri Alþingis tilkynnti nýjum þingmönnum þetta á nýliðanámskeiði sem nú stendur yfir í þingsal. 13.5.2009 10:57
Arnarhreiður í beinni útsendingu Reykhólasveit býður almenningi að horfa á arnarpar ala upp ungviði sitt á afskekktum stað í sveitinni fyrir tilstuðlan vefmyndavélar. 13.5.2009 10:52
Fyrsti „skóladagur“ nýrra þingmanna Tuttugu og sjö þingmenn taka sæti á Alþingi í fyrsta sinn næstkomandi föstudag þegar þing kemur saman. Helgi Bernódusson skrifstofustjóri Alþingis tók nýliðina í kennslustund í dag og verða þeir á námskeiði hjá Helga, sem þekkir þingstörfin eins og handarbakið á sér, í allan dag. 13.5.2009 09:48
Aukið samstarf háskóla í deiglunni Til greina kemur að auka samstarf háskóla á Íslandi til þess að ná fram aukinni hagræðingu, að sögn Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra. Katrín segist hafa rætt breytingar á starfi skólanna til að ná fram aukinni hagræðingu. „En ekki sameiningu háskólanna endilega heldur aukið samstarf að minnsta kosti. Jafnvel hvernig hægt er að skipta verkum meira en verið hefur," segir Katrín. 13.5.2009 09:43
Vandræðaástand í sjávarþorpum Vandræðaástand er að skapast í sjávarþorpum víða um land þar sem markaður með leigukvóta er hruninn. Það leiðir af sér að bátar geta ekki róið þótt þeir eigi til dæmis nægan kvóta af ýsu og steinbít, en ekki þorski. 13.5.2009 07:17
Særok á Skutulsfirði Vindur er nú genginn niður á Ísafirði og er þar nú sól og hæglætisveður. Þar var bálhvasst í hviðum í gær og var um tíma særok á Skutulsfirðinum. 13.5.2009 07:15
Hichem fluttur á sjúkrahús Hælisleitandinn Mansri Hichem, sem verið hefur í hungurverkfalli í rúmlega tuttugu sólarhringa á gistiheimili í Njarðvík, var í gærkvöldi fluttur á sjúkrahúsið í Keflavík og dvelur þar enn. 13.5.2009 07:13
Íbúðalánasjóður lækkar vextina Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að lækka vexti í kjölfar útboðs á íbúðabréfum. Vextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði lækka úr 4,9 prósentum í 4,7 prósent og vextir lána án uppgreiðsluákvæðis lækka úr 5,4 prósentum niður í 5,2 prósent. Lækkunin tekur gildi í dag. 13.5.2009 07:11
Skora á stjórnina að hætta við fyrningarleið Stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva skorar á ríkisstjórnina að afturkalla fyrirhugaða fyrningarleið í sjávarútvegi. Í ályktun samtakanna segir að fyrningarleiðin feli í sér að afkomu sjávarútvegsfyrirtækja og atvinnuöryggi starfsfólksins verði kippt í burtu á fáeinum árum. 13.5.2009 07:03
Ísland verður sjöunda lagið á svið í úrslitunum Eftir að fyrri undanúrslitakeppninni í Eurovision lauk í kvöld var farið í það að draga um númeraröð landanna á úrslitakvöldinu. Keppendur landanna svöruðu einnig nokkrum spurningum. Ísland verður sjöunda atriðið á svið á laugardaginn. Portúgal verður atriðið á undan okkur. 12.5.2009 23:09
Jóhanna Guðrún: „Var orðin frekar svartsýn“ Jóhanna Guðrún Jónsdóttir var í skýjunum eftir að ljóst var að hún komst áfram upp úr undankeppni Eurovison nú í kvöld. Vísir náði tali af henni rétt eftir að kepnninni lauk og sagðist hún ekki geta verið ánægðari. 12.5.2009 21:53
Reiknar með að einhverjir þingmenn VG styðji aðildarumsókn Formaður Vinstri grænna reiknar með að einhverjir þingmenn muni greiða aðildarumsókn að Evrópusambandinu atkvæði sitt. Engir hlekki verði settir á þingmenn flokksins og vonandi eigi það einnig við þingmenn annarra flokka. 12.5.2009 21:31
Jóhanna Guðrún komst áfram í úrslit Eurovision Jóhanna Guðrún Jónsdóttir komst áfram upp úr fyrri undanúrslitariðlinum í Eurovision fyrir stundu og tekur því þátt í úrslitakvöldinu sem fer fram á laugardaginn. 12.5.2009 20:21
Sjúkraflutningamaður hraunar yfir hælisleitanda á Facebook ,,Negla ætti frímerki á rassgatið á þessu liði og senda út með fyrstu vél til Órafarrillíu." Þetta er skoðun sjúkraflutningsmanns á Suðurnesjum um flóttamenn og alsírskan hælisleitanda sem verið hefur í hungurverkfalli í tuttugu daga. 12.5.2009 19:45
Hjúkrunarfræðingar hætta í BHM Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur samþykkt að segja sig úr Bandalagi háskólamanna en tillaga þess efnis var samþykkt á aðalfundi félagsins í dag. Úrsögnin á að öðlast gildi frá áramótunum 2009 og 2010. 12.5.2009 19:28
Bankastjórar verða að lækka laun sín um tæpa milljón Lagabreytingu þarf til að lækka laun sumra ríkisforstjóra, en stjórnir annarra stofnana þurfa að lækka laun sinna forstjóra svo hægt verði að fara að vilja ríkisstjórnarinnar um að engin ríkislaun verði hærri en laun forsætisráðherra. 12.5.2009 18:30
400 þúsund króna ríkisstjórnarfundur Ríkisstjórnarfundurinn á Akureyri hefur líklega kostað um fjögur hundruð þúsund krónu 12.5.2009 18:30
Slökkviliðsdeila í Árborg: Öryggi íbúa tryggt Margrét K. Erlingsdóttir formaður Brunavarna Árborgar segir að öryggi íbúa sé tryggt þrátt fyrir að fimmtán slökkviliðsmenn hafi sagt upp störfum, en þeir munu hætta um næstu mánaðarmót. Nokkuð harðvítugar deilur hafa staðið milli slökkvliðsmannanna og yfirstjórnar en þeir sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem skorað er á stjórnina og slökkviliðsstjórann að segja af sér. Deilan snýst, samkvæmt ályktun þeirra, um samskiptaörðugleika og trúnaðarbrest. 12.5.2009 17:58
Nýr samstarfsráðherra ríkisstjórnarinnar Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra verður jafnframt samstarfsráðherra í nýrri ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Þetta var ákveðið á fyrsta fundi ríkisstjórnarinnar á Akureyri í dag. 12.5.2009 16:56
Óveður undir Hafnarfjalli Óveður er undir Hafnafjalli og á norðanverðu Snæfellsnesi, eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Vegagerðinni. 12.5.2009 16:25
Össur sendir bréf til 1.400 breskra þingmanna Sendiherra Íslands í London hefur, að beiðni Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra, sent öllum þingmönnum breska þingsins bréf þar sem brugðist er við skýrslu fjármálanefndar breska þingsins, sem út kom í apríl sl. Alls er um tæplega 1400 bréf að ræða, en þingmennirnir eru 646 í neðri deild og 738 í efri deild. Lokið var við útsendingu bréfanna í síðustu viku. 12.5.2009 16:24
Formaður Skilanefndar í felum Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans, hyggst ekki tjá sig við fjölmiðla um viðskipti Landsbankans með hlut í Byr sparisjóði. Sagt var frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöld að skilanefnd Landsbankans hefði selt 2,6% hlut í Byr til Reykjavík Invest, sem er lítilð fjárfestingafélag, rúmri viku fyrir 12.5.2009 14:54
Hætta á að börn í efnahagslegum erfiðleikum neyti fíkniefna Efnahagslegir erfiðleikar á heimilum ungmenna eru áhættuþáttur fyrir margvísleg vandamál sem þau glíma við. Þetta segir Jón Gunnars Bernburg, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands. „Þeim líður verr, eru reiðari, eru meira í ofbeldi og afbrotum og fíkniefnaneyslu. Þetta er skýrt mynstur," segir Jón Gunnar. 12.5.2009 14:32
Smyglskútumenn áfram í gæsuvarðhaldi Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir Rúnari Þór Róbertssyni, Árna Hrafni Ásbjörnssyni og hollenskum karlmanni sem handteknir voru á skútunni Sirtaki í síðasta mánuði. 12.5.2009 14:10
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar ræða ESB mál við ríkisstjórnina Formenn allra stjórnararandstöðuflokkanna fara á fund forystumanna ríkisstjórnarinnar í stjórnarráðinu í fyrramálið þar sem drög að þingsályktun um aðildarviðræður að Evrópusambandinu verður rædd. 12.5.2009 12:13
Jóhanna og Össur komin norður Þau Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra lentu á Akureyrarflugvelli fyrir hádegið en ríkisstjórnarfundur hófst í Ráðhúsi Akureyrar í hádeginu. 12.5.2009 12:07
Gæsluvarðhald yfir skútusmyglurum rennur út í dag Gæsluvarðhald yfir Rúnari Þór Róbertssyni, Árna Hrafni Ásbjörnssyni og hollenskum karlmanni sem handteknir voru á skútunni Sirtaki í síðasta mánuði rennur út í dag. 12.5.2009 12:04
Laun bankastjóranna lækka um rúm 800 þúsund Laun bankastjóra Íslandsbanka og Kaupþings munu lækka um að minnsta kosti 815 þúsund krónur verði launum starfsmanna ríkisins breytt þannig að engin ríkislaun verði hærri en laun forsætisráðherra. 12.5.2009 09:56
Síbrotamaður bankaði upp á hjá lögreglu Vegalaus maður bankaði upp á hjá lögreglunni á Akureyri í gærkvöldi og baðst gistingar í fangaklefa, þar sem hann hefði ekki í nokkurt hús að venda og væri peningalaus. 12.5.2009 07:09
Tekinn með ætluð fíkniefni á Akureyri Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn á Akureyri í gærkvöldi eftir að þrjátíu grömm af hvítu efni, líklega anfetamíni eða kókaíni, fundust í fórum hans við húsleit lögreglunnar. 12.5.2009 07:06
Ný ríkisstjórn fundar á Akureyri Nýja ríkisstjórnin ætlar að halda sinn fyrsta fund í bæjarstjórnarsalnum í Ráðhúsinu á Akureyri í dag, og hefst hann í hádeginu. 12.5.2009 07:02
Uvg sakna Kolbrúnar af þingi Ung vinstri græn þakka Kolbrúnu Halldórsdóttur fyrir frábært hugsjónastarf í þágu náttúrunnar, kvenfrelsis, félagslegs jafnréttis og friðar í þau 10 ár sem hún hefur setið á þingi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Uvg í kvöld en Kolbrún lætur nú af þingmennsku. 11.5.2009 20:00
Stjórnarandstaðan gæti haldið evrópumálum í herkví Meirihluti er fyrir aðildarviðræðum við Evrópusambandið á Alþingi ef komið verður til móts við skilyrði Framsóknarflokks og Borgarahreyfingar fyrir viðræðum. Sérfræðingur í Evrópusambandsmálum segir að stjórnarandstöðuflokkarnir gætu hins vegar haldið málinu í herkví. 11.5.2009 19:00
Fyrningarleiðin drepur útgerðir á 6 árum Engar ákvarðanir hafa verið teknar um hvenær eigi að hefja innköllun á kvóta né hvernig honum verði síðan deilt út að nýju. Það verður gert í nánu samráði við hagsmunaaðila, segir glænýr sjávarútvegsráðherra, Jón Bjarnason. Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ og útgerðarmaður á Seyðisfirði, segir sjávarútvegisfyrirtæki lifa lengst í sex ár eftir að innköllun hefst. 11.5.2009 18:45
Ítarlegasti stjórnarsáttmáli í árafjöld Ýmis nýmæli eru í stjórnarsáttmálanum sem er einhver sá ítarlegasti á síðari árum. Þar er gert ráð fyrir bráðaaðgerðaáætlun í tíu liðum til að sporna við atvinnuleysi. Beinharðar hugmyndir um niðurskurð í ríkisbúskapnum eru ekki tíundaðar og leiðrétting á skuldum heimilanna er ekki í pípunum. 11.5.2009 18:30
Ekki grunaður um skipulagningu á Brasilíusmygli Vegna fréttar um Sverri Þór Gunnarsson í fréttatíma Stöðvar 2 í gærkvöldi vill fréttastofa koma eftirfarandi á framfæri. Ekki var rétt farið með staðreyndir í inngangi fréttarinnar þar sem Sverrir Þór var sagður vera grunaður um að skipuleggja smygl á fíkniefnum frá Brasilíu. 11.5.2009 18:00