Fleiri fréttir

Bílvelta í Ártúnsbrekkunni

Bílvelta varð í Ártúnsbrekkunni laust fyrir klukkan fimm í dag. Ökumaður var einn í bílnum. Samkvæmt upplýsingum frá sjúkraflutningamönnum var ökumaðurinn kominn út úr bílnum þegar að þeir komu á staðinn en sjúkrabifreið flutti hann á slysadeild til skoðunar. Maðurinn var á leið í austurátt þegar slysið varð og var hann að keyra aðein upp á brúna.

Barðastrandaránið: Bæjarstjóra mjög brugðið

„Mér er náttúrlega bara mjög brugðið við þessar fregnir. Þetta er bara skelfilegur atburður. Og það vill svo til að ég þekki þann sem að fyrir þessu varð mjg vel þannig að ég sendi honum auðvitað mínar bestu kveðjurm," segir Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri á Seltjarnarnesi.

Vann dómsmál vegna læknamistaka

Eyjamaður á sjötugsaldrinum vann skaðabótamál gegn ríkinu vegna ófaglegrar meðferðar eftir að hann fór úr axlalið.

Vill vita um skilyrði fyrir áframhaldandi starfi Josefsson

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknaflokksins, hyggst leggja skriflega fyrirspurn fyrir viðskiptaráðherra um það hvaða skilyrði Mats Josefsson setti fyrir áframhaldandi starfi sínu í samræmingarnefnd um endurreisn bankakerfisins. Eins og greint var frá í fjölmiðlum í gær hótaði Josefsson að hætta sem formaður

Umferðarljós aftengd

Umferðarljós á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallarvegar verða aftengd tímabundið í kvöld kl. 19:00 og verða óvirk í nótt og fram eftir degi á morgun, miðvikudag. Á sama tíma verða vinstri beygjur af Flugvallarvegi inn á Bústaðaveg bannaðar. Umferðarhraði er tímabundið lækkaður í 30 km og er brýnt fyrir vegfarendum að virða hraðatakmarkanir.

Reykingamaður kveikti í hurð

Lögreglan og slökkviliðið í Vestmannaeyjum var kallað að heimili við Brimhólabraut um helgina vegna elds sem hafði kviknað við hurð hússins.

Eldur í gámi við Hamraborg

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Hamraborg í Kópavogi rétt eftir hádegið í dag. Þar logaði eldur í gámi. Samkvæmt upplýsingum frá fréttastofu var þó um lítinn eld að ræða og var hann fljótlega slökktur.

Barðastrandaránið: „Ég er bara heppinn að lifa þetta af“

„Mér heilsast bara vel," segir úrsmiðurinn á Seltjarnarnesinu sem lenti í óhugnanlegri árás þegar tveir menn um tvítug brutust inn á úraverkstæði mannsins á Seltjarnarnesi í gærkvöldi. Þegar þeir urðu hans varir yfirbuguðu þeir manninn, svo límdu þeir á honum hendur og fætur. Að lokum fóru þeir ránshendi um úraverkstæðið sem er á heimili hans.

Rannsókn lögreglu á Heiðmerkurárás lokið

Rannsókn lögreglunnnar á fólskulegri árás á unga stúlku í Heiðmörk er lokið og tekin verður ákvörðun um framhald málsins innan skamms, segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík.

Gekk í flasið á þjófunum - var bundinn, laminn og rændur

Úrasmiður á áttræðisaldri gekk í flasið á tveimur þjófum um klukkan átta í gærkvöldi. Mennirnir voru inn á úraverkstæði mannsins þegar hann kom inn. Þegar þeir urðu hans varir yfirbuguðu þeir manninn. Þeir límdu og bundu á honum hendur og fætur.

Alþingi niðurlægt

Guðlaugur Þ. Þórðarson alþingismaður segir að þær fullyrðingar Mats Josefsson, efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar, að það kosti 85% af vergri landsframleiðslu að endurreisa bankana séu allt aðrar upplýsingar en þær sem þingið hafi fengið. Ummælin lét Josefsson falla í sænskum fjölmiðli.

Uppblásin hrefna fyrir utan sendiráðið í London

Mótmælendur tóku sér stöðu við íslenska sendiráðið í London í dag til þess að mótmæla hvalveiðum Íslendinga en veiðar hefjast að nýju í dag. Þeir tóku með sér stóra uppblásna hrefnu auk þess sem kynnt var ný skoðanakönnun sem sýnir að 82 prósent Breta eru andsnúnir hvalveiðum Íslendinga.

Elliði Vignisson: Guð forði okkur frá pólitískum ráðningum

„Hann karl faðir minn er búinn að starfa hjá bænum síðan árið 1967, eða tveimur árum áður en ég fæddist. Þannig ég kom nú ekki beint að ráðningunni hans," segir bæjarstjóri Vestmannaeyja, Elliði Vignisson, en minnihlutinn hefur gagnrýnt Sjálfstæðisflokkinn fyrir óeðlilegar ráðningar í íþróttamiðstöð bæjarins.

Seðlabankastjóri fær tæpar 1600 þúsund á mánuði

Svein Harald Øygard fær greiddar 1575 þúsund krónur í laun á mánuði. Lára V. Júlíusdóttir, formaður bankaráðs Seðlabankans, segir að þetta séu sömu laun og Davíð Oddsson, fyrrverandi bankastjóri hafði.

Umferðarráð vill meiri löggæslu á vegum úti í sumar

Umferðarráð hvetur stjórnvöld til þess að auka umferðarlöggæslu á komandi sumri þar sem viðbúið er að fleiri ferðist innanlands í ár en oft áður. Þá varar ráðið við niðurskurði á fjármagni til Umferðarstofu. „Vegna breyttra aðstæðna í efnahagsmálum hér á landi má búast við að fólk ferðist meira innanlands en utan á komandi sumri. Fyrir bragðið má búast við aukinni bílaumferð sem hefur mögulega hættu í för með sér,“ segir í ályktun frá Umferðarráði.

Brutu hugsanlega sveitastjórnalög

„Þau viku ekki af fundi bæjarráðs né bæjarstjórnar þegar ráðningarnar voru ræddar og samþykktar," segir Páll Scheving Ingvarsson, oddviti V-listans í Vestmannaeyjum, en hann gagnrýnir verklag við ráðningar meirihlutans harðlega.

Sumaráætlun Strætó tekur gildi

Sumaráætlun Strætó tekur gildi næstkomandi sunnudag. Samkvæmt tilkynningu frá Strætó verða helstu frá vetraráætlun þær að allir vagnar sem óku á 15 min. tíðni í vetur fara yfir á 30 min. tíðni í sumar. Leið 25 ekur ekki í sumar.

Byssan var eftirlíking

Byssan sem 17 ára gamall unglingur var tekinn með í nágrenni við Skeifuna í morgun var eftirlíking að skotvopni, samkvæmt upplýsingum frá Herði Jóhannessyni, aðstoðarlögreglustjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hörður segir að vopnalög fjalli þó jöfnum höndum um skotvopn og eftirlíkingar. Bannað sé að vera með hvorutveggja á almannafæri enda alls óvíst að nærstaddir geti greint muninn.

Réð pabba í vinnu

Hörð átök voru á síðasta bæjarstjórnarfundi Vestmannaeyja fyrir helgi en þar bókaði minnihluti V-listans gegn ráðningu nýs forstöðumanns íþróttamiðstöðvarinnar sem og ráðningu umsjónarmanns sömu miðstöðvar. Ástæðan fyrir mótmælum minnihlutans er sú að ný ráðin forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar er eiginmaður bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Páleyju Borgþórsdóttur sem er formaður bæjarráðs Vestmannaeyja.

Greiðslur lífeyrissjóðsins ekki skertar

Ekki þarf að skerða greiðslur úr Lífeyrissjóði verslunarmanna þrátt fyrir neikvæða afkomu sjóðsins í fyrra. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að þetta sé vegna góðrar ávöxtunar undanfarin ár.

Umferð um íslenskt flugstjórnarsvæði minnkaði

Flugumferð um íslenska flugstjórnarsvæðið, sem er eitt hið stærsta í heimi, minnkaði um tíu og hálft prósent fyrstu fjóra mánuði ársins, samanborið við sama tímabil í fyrra. Umferð um svæðið jókst hins vegar um fimm prósent í fyrra.

Steinsofnaði í handfærabáti

Óttast var um afdrif sjómanns, sem var einn á handfærabáti á Sandvíkinni við Reykjanes undir morgun, og báturinn datt út úr sjálfvirka tilkynningakerfinu.

Með skammbyssu í Skeifunni

Sérsveitarmenn ríkislögreglustjóra voru kallaðir út laust fyrir klukkan fjögur í nótt eftir að tilkynning barst um að maður, vopnaður skambyssu, væri á ferli við Hagkaup í Skeifunni, en þar er opið allan sólarhringinn.

Danski sjóliðinn bíður yfirheyrslu

Tuttugu og eins árs sjóliði af danska varðskipinu Hvítabirninum, sem liggur í Reykjavíkurhöfn, gistir nú fangageymslur og bíður þess að verða yfirheyrður vegna innbrots í Kaupþing við Austurstræti um klukkan hálfníu í gærkvöldi, þar sem hann var yfirbugaður innandyra.

Sveitarstjóra greinir á um fyrningarleið

Sveitarstjóri að vestan spyr sig hvort mótmæli sveitarstjórnarmanna gegn fyrningarleiðinni sé vegna pressu útgerðarmanna. Kvótakerfið lék sveitarfélag hans illa. Fyrningarleiðin veldur þegar tjóni segir bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar.

Norsk flugsveit til gæslustarfa

Utanríkismál Þrjár norskar F16-orrustuþotur ásamt um 40 manna fylgdarliði munu stunda æfingar og sinna loftrýmisgæslu hér við land næstu tvær vikur. Þoturnar komu hingað til lands seinnipart dags í gær, segir Friðrik Jónsson, sviðsstjóri hjá Varnarmálastofnun. Spánverjar hættu nýverið við að senda flugsveit hingað til lands vegna kostnaðar og mun norska flugsveitin koma í þeirra stað.

Ungmenna leitað hátt í þrjú hundruð skipti

253 sinnum hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitað að ungmennum á aldrinum 11 til 18 ára síðan í janúar 2008. Oftast var leitað 13 sinnum að sama einstaklingnum. Miklar sveiflur eru á milli mánaða.

Sýnist tillagan hafa breyst lítið

„Ég sagði við fyrri tillögu að ég myndi ekki styðja hana óbreytta og persónulega sýnist mér hún hafa tekið litlum breytingum,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknar.

Lóan nemur land í Surtsey

Starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands gengu fram á heiðlóuhreiður með fjórum eggjum í síðustu viku. Þetta er í fyrsta sinn sem lóan verpir í eynni.

Framúrkeyrsla um 45 prósent

Sigurður Jóhannesson, hagfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, segir að kostnaður við Kárahnjúkavirkjun hafi farið um 45 prósent fram úr áætlun. Sé tillit tekið til vaxta sé framúrkeyrslan um 40 prósent. Sigurður miðar þarna við Bandaríkjadali, enda séu tekjur af virkjuninni í þeirri mynt.

Endurspegla breytingar á VR

Stjórn VR ákvað í gær að skipta út fulltrúum félagsins í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Þar með mun stjórnarformaðurinn, Páll Gunnar Pálsson, fyrrverandi formaður VR, fara úr stjórn lífeyrissjóðsins.

Vill fjölga 30 kílómetra svæðum

„Ég er á þeirri skoðun að margir pólitíkusar ættu að tala minna um tugmilljónaframkvæmdir í jarðgangagerð og tónlistar- og ráðstefnuhúsi á meðan þeir spara eyrinn í einföldum öryggisaðgerðum. Öryggi á alltaf að hafa forgang yfir gæluverkefni stjórnmálamanna,“ segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans og óháðra.

Forsetinn fékk fyrsta eintakið

Ný hljóðbók MND-félagsins var gefin út í gær. Bókin nefnist Björt framtíð og er samsafn greina eftir 49 höfunda á þremur hljóðdiskum. Það var forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem fékk fyrsta eintakið afhent. Sjálfur á hann eina grein í bókinni og les hana upp sjálfur.

Kröfu landeigenda hafnað

Héraðsdómur Austurlands staðfesti í gær úrskurð óbyggðanefndar um að hluti lands í svokallaðri Krepputungu á Mývatnsöræfum teljist þjóðlenda. Landeigendur á bænum Brú kröfðust þess að úrskurður óbyggðanefndar yrði felldur úr gildi. Þeirri kröfu var hafnað. Héraðsdómur taldi gögn ekki sýna fram á að umdeild þjóðlenda teldist hluti af jörð Brúar. Heimildir um landnám á svæðinu séu ekki nægilega skýrar til að hægt sé að fullyrða um það. Málskostnaður í málinu var felldur niður. - bj

Undrast fjarveru sjálfstæðismanna

Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, undrast að enginn sjálfstæðismaður hafi á tímabili í dag verið viðstaddur umræður í framhaldi á munnlegri skýrslu Jóhönnu Sigurðardóttir, forsætisráðherra, um efnahagsmál, en skýrslan var flutt að beiðni þingflokks sjálfstæðismanna.

Bankaræningi fékk hjartastopp í löggubíl

Karlmaður sem lögregla handtók á níunda tímanum í kvöld í útibúi Kaupþings í Austurstræti fékk hjartastopp í lögreglubifreið. Hann var í framhaldinu fluttur á slysadeild og að sögn varðstjóra bar endurlífgun lögreglumanna árangur. Ekki er vitað um líðan mannsins að öðru leyti.

Ítrekaði andstöðu atvinnulífsins við fyrningarleiðina

Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, ítrekaði andstöðu samtakanna við áform stjórnvalda við svokallað fyrningarleið á fundi forystumanna ríkisstjórnarinnar með forystu launþega og atvinnurekenda í kvöld.

Sykurskattur tilraunarinnar virði

„Ég held að það sé tilraunarinnar virði að gera eitthvað í þessa veru,“ segir Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs og fyrrverandi landlæknir, um umdeildar hugmyndir um sérstakan sykurskatt.

Heilbrigðisnefnd fundar vegna inflúensunnar

Rannsókn hefur leitt í ljós að sexmenningarnar, sem talið var að kynnu að vera smitaðir af H1N1 inflúensunni, reyndust ósýktir. Áfram verður þó fylgst með heilsu þeirra, en um er að ræða skyldmenni mannsins, sem staðfest er að hafi smitast af inflúensunni í Bandaríkjunum.

Hægt verður að ættleiða börn frá Póllandi og Togo

Allt bendir til þess að Íslendingar í ættleiðingarhugleiðingum geti fljótlega leitað til Póllands. Félagið Alþjóðleg ættleiðing mun væntanlega byrja að taka á móti umsóknum vegna þessa strax í sumar.

Sjá næstu 50 fréttir