Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Útlendingar trúa því að Íslandi hafi verið lokað Fjölmargir útlendingar trúa því að Ísland hafi orðið gjaldþrota síðasta haust og hreinlega verið lokað. Þetta segir viðskiptaráðherra og að miklu máli skipta að uppgjörið vegna bankahrunsins verði sanngjarnt og gagnsætt til að endurvekja trú alþjóðasamfélagsins á íslensku viðskiptalífi. 10.4.2009 12:03
Sundlaugarnar opnar í dag Laugardalslaug og Árbæjarlaug eru opnar frá klukkan tíu til sex í dag, föstudaginn langa. Þjónustuhús Ylstrandarinnar í Nauthólsvík er opið í dag frá ellefu til eitt og á annan í páskum frá fimm til sjö í eftirmiðdaginn. 10.4.2009 09:59
Víða hægt að skíða í dag Skíðasvæði eru víðast hvar opin landsmönnum í dag. Hlíðafjall opnaði klukkan níu í morgun og verður opið til klukkan fimm síðdegis, opið er á skíðasvæðinu á Dalvík frá klukkan tíu til fimm og í Tindastóli og á Siglufirði verður jafnframt opið til klukkan fimm. Þá verður opið í Bláfjöllum til klukkan fimm. Fjölmenni var á skíðum á Akureyri og á Ísafirði í gær og á Siglufirði voru um 1400 manns á skíðum. 10.4.2009 09:55
Eldur logaði í gámi Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Faxafeni á fjórða tímanum í nótt þar sem kveikt hafði verið í blaðagámi. Að sögn lögreglu var um lítinn eld að ræða og gekk greiðlega að slökkva hann. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að nóttin hafi verið tíðindalítil. Fáir hafi verið á ferli í miðbænum og allt gengið vel fyrir sig. 10.4.2009 09:45
Sjálfstæðismenn opna bókhald: 81 milljón frá níu fyrirtækjum Sjálfstæðismenn birtu í dag á heimasíðu sinni lista yfir þau fyrirtæki sem styrktu flokkinn um meira en eina milljón á árinu 2006. Um er að ræða níu fyrirtæki sem greiddu samtals rétt tæpa 81 milljón í styrki. 10.4.2009 09:08
Bankarnir þrír styrktu Samfylkinguna um þrettán milljónir Glitnir, Landsbankinn og Kaupþing styrktu Samfylkinguna um samtals þrettán milljónir á árinu 2006 eftir því heimildir Vísis herma. 10.4.2009 01:40
Kjartan Gunnarsson fer undan í flæmingi Enginn í forystu Sjálfstæðisflokksins eða starfsmenn hans, að Geir H, Haarde undanskildum, kannast við að hafa óskað eftir tugum milljóna í styrk frá FL Group og Landsbankanum. 9.4.2009 18:56
Lamdi fyrrverandi kærustuna sína Tveir menn gengu hrottalega í skrokk á nítján ára stúlku á Vesturgötunni í Reykjavík í nótt. Fyrrverandi kærasti stúlkunnar og maður voru handteknir vegna árásarinnar. Þeir höfðu ruðst inn á heimili stúlkunnar og lamið hana þar. 9.4.2009 19:49
Símaviðtal við Bjarna Benediktsson Hér má heyra í heild sinni símaviðtal við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, um styrkveitingar FL Group og Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins 2006, skömmu áður en lög um styrki við stjórnmálaflokka tóku gildi. 9.4.2009 19:30
Hluthafi FL Group kærir risastyrk „Á þessum tíma var ég hluthafi og og langar að fá svör," segir lögfræðineminn Finnbogi Vikar sem hefur óskað eftir lögreglurannsókn á risastyrk FL Group upp á þrjátíu milljónir til Sjálfstæðisflokksins í lok árs 2006. 9.4.2009 17:25
Umfjöllun um kosti og galla Evrópusambandsins Spurningin um stöðu Íslands í Evrópu ræður miklu í aðdraganda þingkosninganna sem fram fara hinn 25. apríl næst komandi. Meirihluti Íslendinga vill viðræður við sambandið um hugsanlega aðild en mun færri eru tilbúnir til að samþykkja aðild án þess að hafa séð samningsniðurstöðuna fyrst. Lóa Pind Aldísardóttir var með ítarlega fréttaskýringu um málið í Íslandi í dag í gærkvöldi, sem sjá má hér 9.4.2009 16:02
Guðlaugur Þór: Hafði ekki milligöngu um risastyrki Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér rétt fyrir fréttir, að það sé rangt sem fullyrt sé í svo kallaðri fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag, að hann hafi hafi haft samband við tiltekin fyrirtæki og óskað fjárframlaga til Sjálfstæðisflokksins. Hið rétta sé að hann hafi fengið nokkra einstaklinga í flokknum til að aðstoða skrifstofu hans við fjársöfnun sem fram fór síðari hluta árs 2006. Guðlaugur segist ekki hafa óskað eftir styrk frá neinu ákveðnu fyrirtæki eða einstaklingi til Sjálfstæðisflokksins enda hafi hann hvorki haft umboð til þess né áhuga. 9.4.2009 14:36
Skúli Helgason: Heildarmynd styrkja liggur ekki fyrir Fyrrum framkvæmdarstjóri Samfylkingarinnar, Skúli Helgason, vill að Samfylkingin opni bókhald sitt frá árinu 2006. Hann tekur þó fram í bloggfærslu á heimasíðu sinni að heildarmynd liggi ekki fyrir vegna styrkja til flokksins árið 2006. 9.4.2009 18:51
Lamdi son sinn með hárbursta Bresk móðir missti stjórn á skapi sínu og lamdi tíu ára gamlan son sinn með hárbursta í öxlina. Móðirinn sagðist hafa gert það því drengurinn hafi verið að drolla og ekki viljað klæða sig í fötin sín. Í ljósi þess að þau voru að verða sein, og móðirinn var verulega stressuð að eigin sögn, þá sló hún hann í öxlina tvívegis með hárburstanum. 9.4.2009 16:52
Athugasemd frá Fréttablaðinu vegna yfirlýsingar Björgólfs Thors Í kjölfar yfirlýsingar Björgólfs Thors Björgólfssonar fyrr í dag hafa Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson, ritstjórar Fréttablaðsins, sent frá sér eftirfarandi athugasemd. 9.4.2009 16:32
Samfylkingin með mest fylgi Samfylkingin nýtur mest fylgis allra flokka með 32,6 prósent samkvæmt könnun Capacent Gallup fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. 9.4.2009 16:04
Samfylkingin fékk mest fimm milljónir Samfylkingin fékk fimm milljón króna framlag frá einu fyrirtæki árið 2006 samkvæmt heimildum Vísis. Ekki er ljóst hvaða fyrirtæki studdi flokkinn svo rausnarlega en Jóhanna Sigurðardóttir hét því í fréttum Stöðvar 2 í gær að hún myndi reyna að opna fyrir bókhald flokksins árið 2006. Búist er við því að bókhaldið verði ekki opnað fyrr en eftir helgi. 9.4.2009 15:29
Sátu allir í nefnd um hámarksstyrki Guðlaugur Þór Þórðarson auk Kjartans Gunnarssonar sátu í nefnd allra flokka sem var falið að fjalla um fjárframlög til stjórnmálaflokkanna. Geir H. Haarde leiddi nefndina en hann hefur nú tekið opinbera ábyrgð á því að Sjálfstæðisflokkurinn veitti styrkjum FL Group og Landsbankans viðtöku. 9.4.2009 13:41
VG vill stórauka störf í ferðaiðnaði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna kynnti í gær áætlun flokksins um uppbyggingu atvinnumála. Alls telur flokkurinn í greinagerð að mögulegt sé að skapa allt að átján þúsund störf á næstu árum. Flest þessara starfa myndu vera við ferðamannaiðnað, eða allt að 4300. 9.4.2009 12:50
Björgólfur Thor: Okkur hefur ekki verið stefnt Björgólfur Thor Björgólfsson segir í tilkynningu sem hann sendi frá sér nú í morgun að honum og föður hans, Björgólfi Guðmundssyni hafi ekki verið stefnt vegna vangoldinnar skuldar. 9.4.2009 11:46
Fréttablaðskassar á Álftanesi Íbúar á Álftanesi geta frá og með deginum í dag nálgast Fréttablaðið í svokölluðum Fréttablaðskössum, sem hafa verið settir upp við götur sveitarfélagsins. 9.4.2009 11:27
Misræmi Guðlaugs Þórs Misræmi er á milli þess sem Guðlaugur Þór Þórðarson fyrrverandi heilbrigðisráðherra sagði um vitneskju sína um styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins og þess sem Morgunblaðið fullyrðir um málið í dag. 9.4.2009 10:24
Framsókn íhugar að opinbera bókhald „Það er verið að fara yfir þessi mál," segir framkvæmdarstjóri Framsóknaflokksins, Sigfús Ingi Sigfússon, spurður hvort flokkurinn hyggis opna bókhald flokksins aftur í tímann líkt og Sjálfstæðisflokkurinn hefur boðað að hann muni gera. 9.4.2009 09:58
Ölvunareftirlit á Akureyri Lögreglan á Akureyri er með sérstak ölvunareftirlit í bænum en mikið af ferðafólki hefur verið að streyma til bæjarins. Lögreglan hafði þegar stöðvað tug ökumanna í morgun og kannað ástand þeirra en fæstir reyndust ölvaðir. Að sögn varðstjóra verður eftirlitið eins yfir helgina og hvetur fólk til þess að drekka ekki og keyra. 9.4.2009 09:27
Fimm líkamsárásir í nótt Fimm líkamsárásir eru tiil rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina í nótt. Alla árásirnar eru minniháttar líkamsárásir. Talsverður erill var í miðborginni en fangageymslur lögreglunnar eru fullar. 9.4.2009 09:19
Sjálfstæðismenn sviku hina flokkana „Ef þetta er rétt er þetta með ólíkindum,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um þrjátíu milljóna styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins í desember 2006. 9.4.2009 09:00
Vill létta leynd af styrkjum stjórnmál Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, mun beita sér fyrir því að leynd verði létt af fjárstyrkjum til Samfylkingarinnar, ríki einhver leynd yfir þeim. Svo geti verið að í einhverjum tilfellum hafi aðilar veitt styrki með leynd í huga, en leitað verði til þeirra og óskað eftir að leyndinni verði aflétt. 9.4.2009 06:30
Ríkisstjórnin með öruggan meirihluta Skoðanakönnun Fylgi Sjálfstæðisflokksins dalar talsvert samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Flokkurinn mælist með 24,8 prósenta fylgi nú, en 29,1 prósents fylgi í könnun sem gerð var fyrir tveimur vikum. Munurinn er 4,3 prósent. 9.4.2009 06:00
Stjórnmálafræðingur gáttaður á risastyrkjum „Ég er eiginlega gáttaður á því hvað fjárhæðin er há. Maður hélt að þetta væri eitthvað sem gerðist ekki í íslenskum stjórnmálum," segir stjórnmálafræðingurinn Einar Már Þórðarson spurður út í risastyrki Landsbankans og FL Group til Sjálfstæðisflokksins. 8.4.2009 20:41
Björn Bjarnason: Styrktarmál brýtur allar hefðir flokksins Sjálfstæðismaðurinn Björn Bjarnason skrifar á heimasíðu sína að styrkir FL Group til Sjálfstæðisflokksins upp á þrjátíu milljónir brjóti gegn öllu hefum Sjálfstæðisflokksins. 8.4.2009 22:54
Bjarni Benediktsson: Risastyrkur ekki tengdur REI „Ég hef ekki minnstu ástæða til þess að ætla að málið tengist REI málinu," svaraði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, spurningu á opnum borgarafundi í Suðvesturkjördæmi en spurningin kom frá einum gestanna. 8.4.2009 20:54
Útilokar kosningar um aðildarviðræður Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, slær út af borðinu hugmyndir um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Aðild að ESB segir hún vera grundvöll að stefnu Samfylkingarinnar í efnahags- og atvinnumálum fyrir kosningar. 8.4.2009 19:55
Ábyrgð Geirs stórjókst á sjö mínútum Ábyrgð Geirs H. Haarde jókst talsvert á sjö mínútum því fyrsta fréttatilkynningin sem fjölmiðlum barst í hendur sagðist hann bera ábyrgð á 30 milljón króna styrk FL Group til flokksins. Þar var ekkert minnst á 25 milljón króna styrk frá Landsbankanum. 8.4.2009 19:44
Íslendingar gætu grætt meira á olíu en Norðmenn Drekasvæðið gætu skilað meiri tekjum á hvert mannsbarn hérlendis en þeim sem Norðmenn hafa fengið af sínum olíulindum, miðað við bjartsýnustu spár. 8.4.2009 19:38
Bankaráð samþykkti ekki 25 milljóna styrk Bankaráð Landsbankans samþykkti ekki 25 milljón króna styrk til Sjálfstæðisflokksins árið 2006 og hafði enga vitneskju um það. Þetta staðhæfir Ásgeir Friðgeirsson, sem var aðstoðarmaður Björgólfs Guðmundssonar, fyrrum formanns bankaráðs. 8.4.2009 19:19
Ekki þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, slær út af borðinu hugmyndir um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það tefji aðeins málið og gefi ekki raunsanna mynd á kostum og göllum aðildar fyrir kjósendur. Aðild að ESB segir hún vera grundvöll að stefnu Samfylkingarinnar í efnahags- og atvinnumálum fyrir kosningar. 8.4.2009 18:45
Landsbankinn styrkti Sjálfstæðismenn um 25 milljónir Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að endurgreiða styrki sem þeir fengu frá bæði FL Group, sem nam þrjátíu milljónum króna, og svo Landsbankanum, sem styrkti flokkinn um 25 milljónir króna árið 2006. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem forysta Sjálfstæðisflokksins sendi frá sér. 8.4.2009 18:37
Búsáhaldabylting hafin á ný Þrjátíu til fjörtíu manns hafa tekið stöðu fyrir framan Alþingishúsið og eru að mótmæla vopnuð pönnum og pottum. Lögreglan er með lágmarksviðbúnað og stendur vörð á svæðinu og fylgist með. 8.4.2009 18:27
Geir H. Haarde tekur ábyrgð á FL styrk Fyrrum forsætisráðherrann Geir H. Haarde tekur alla ábyrgð á að Sjálfstæðisflokkurinn veitti styrk FL Group viðtöku í lok desember árið 2006. Þá var Geir formaður flokksins. Hann segir jafnframt í yfirlýsingu að framvkæmdarstjórar flokksins, núverandi og fyrrverandi, beri enga ábyrgð á þessu máli. 8.4.2009 18:12
Guðlaugur Þór: Ekki inn í fjármálum flokksins „Ég er ekki inn í fjármálum flokksins," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins varðandi þrjátíu milljón króna styrk sem FL Group veitti Sjálfstæðisflokknumi lok desember 2006. 8.4.2009 18:07
Kjartan vissi ekki um FL styrkinn Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, vissi ekki af 30 milljóna króna styrk FL Group til flokksins í árslok 2006. Hann heyrði fyrst af styrknum í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær og segir málið sér algjörlega óviðkomandi. 8.4.2009 17:16
Samfylkingin stærst í Kraganum Samfylkingin mælist með mest fylgi flokka í Suðvesturkjördæmi samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Ríkisútvarpið birtir í dag. 8.4.2009 16:31
Bjarni og Þorgerður funda um málið Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður eru ekki á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins sem hófst klukkan 16:00 í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu funda þau um FL-Group málið svokallaða. Á fundinum munu þau vera að fara yfir stöðuna sem upp er komin í kjölfar frétta Stöðvar 2 af 30 milljóna króna styrk FL-Group til Sjálfstæðisflokksins árið 2006. 8.4.2009 16:27
Bolli í 17: Trúi ekki að Kjartan hafi samþykkt þetta Ásgeir Bolli Kristinsson, betur þekktur sem Bolli í Sautján, trúir því hreinlega ekki að Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, hafi samþykkt styrk frá FL Group upp á 30 milljónir rétt undir lok árs 2006. 8.4.2009 16:17
FL málið í höndum Bjarna og Þorgerðar Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ræddi 30 milljóna króna styrk FL Group til flokksins í árslok 2006 á miðstjórnarfundi sem haldinn var í dag, en boðað var til fundarins fyrr í vikunni. 8.4.2009 15:43