Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fimm prófkjör um helgina Úrslit ráðast í fimm prófkjörum nú um helgina auk þess sem Framsóknarmenn í Reykjavík munu stilla upp á sína framboðslista. 7.3.2009 09:48
Yfirmönnum klínískra sviða Landspítala fækkar úr 23 í 6 Landspítalinn auglýsir eftir sex framkvæmdastjórum um helgina samkvæmt nýju skipuriti spítalans sem tekur gildi að fullu fyrsta júní 2009. Samkvæmt nýja skipuritinu verður klínískum sviðum á Landspítala fækka úr 12 í 6. 7.3.2009 09:42
Von er á fjölda Vítisengla til Íslands í dag Fjöldi liðsmanna vélhjólasamtakanna Vítisengla er væntanlegur til landsins í dag. Þeir ætla að freista þessa að komast inn í landið í gegnum strangt landamæraeftirlit og í gleðskap vélhjólaklúbbsins Fáfnis sem opnar nýtt klúbbhús í Hafnarfirði með pompi og prakt í dag. 7.3.2009 08:00
Idol: Lísa hlaut síðasta sætið í úrslitin Tíu stelpur kepptu um fimm sæti í úrslitum Idolstjörnuleitar í beinni útsendingu á Stöð 2 í kvöld. Keppnin var æsispennandi og hélt dómnefndin keppendum við efnið með hárbeittum, gagnrýnum athugasemdum. Fimm stelpur duttu út og fimm stelpur fóru áfram. 6.3.2009 22:41
Stjórnlagaþing gæti kostað einn og hálfan milljarð Birgir Ármannsson alþingismaður segist hafa gert tilraun til þess að áætla kostnað við væntanlegt stjórnlagaþing. Niðurstaða Birgis er sú að kostnaðurinn gæti numið á bilinu 1.200 og 1.500 milljónir króna. Hann segir óvissuþættina þó vissulega vera marga en í lauslegum útreikningum sínum en miðað sé við útgjöld sem falla muni til miðað við ákvæði frumvarps sem lagt var fram á Alþingi í dag. 6.3.2009 20:20
Kolbrún Stefánsdóttir skipar fyrsta sætið í kraganum Félagsfundur var haldinn í kjördæmaráði Frjálslynda flokksins í kraganum í kvöld. Á fundinum var borin upp tillaga að skipun listans frá 1. sæti til 5. sæti. Samþykkt var að 1. sætið skipi Kolbrún Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Sjálfbjargar og ritari Frjálslynda flokksins. 6.3.2009 22:00
Idolið í beinni útsendingu Föngulegur hópur 20 söngvara hefur nú verið valinn af dómnefnd Idolsins til að halda áfram keppni um titillinn Idol stjarna 2009. Í kvöld keppa 10 efnilegustu stelpurnar um áframhaldandi sæti í Idol stjörnuleit í beinni útsendingu frá íslensku Óperunni. 6.3.2009 20:44
Leggur fram frumvarp um eignaumsýslufélög Fjármálaráðherra leggur væntanlega fram í næstu viku fram frumvarp um eignaumsýslufélag, sem getur tekið stærstu fyrirtæki landsins sem eiga í fjárhagsörðugleikum tímabundið yfir á meðan verið er að byggja þau upp. 6.3.2009 19:15
Segja Helguvík geta stytt kreppuna Ráðamenn Norðuráls eru staðráðnir í að koma smíði álvers í Helguvík á fulla ferð á ný og segja stórlækkun stálverðs og byggingarkostnaðar bjóða upp á kjöraðstæður. Forstjóri Hitaveitu Suðurnesja segir verkefnið geta stytt kreppuna verulega. 6.3.2009 18:45
Stjórnmálamenn verða líka skoðaðir Rannsóknarnefnd um bankahrunið ætlar að skoða hvort stjórnmálamenn hafi fengið sérstaka fyrirgreiðslu í bankakerfinu. Fjölmiðlafólk fær sömu meðferð hjá nefndinni. Stjórnendur bankanna og lykilmenn úr stjórnsýslunni verða yfirheyrðir. 6.3.2009 18:24
Blaðamenn fjalli síður um viðkvæm mál Elín Arnar ritstjóri Vikunnar og Björk Eiðsdóttir blaðamaður segja niðurstöðu Hæstaréttir í meiðyrðarmáli sem féll í gær vera einstaka í hinum vestræna heimi. Jafnframt lýsa þær furðu sinni með dóminn en Hæstiréttur ómerkti ummæli viðmælanda blaðsins og blaðamanninum sem skráði viðtalið var gert að greiða hálfa milljón í miskabætur, auk dráttarvaxta og málskostnaðar. 6.3.2009 17:59
Tólf Vítisenglar stöðvaðir í Leifsstöð Tólf félagar í vélhjólasamtökunum Hells Angels og stuðningsklúbbum þeirra voru stöðvaðir við komu þeirra til landsins í Leifsstöði í dag. Mönnunum var meinuð landgana. Sex þeirra hafa þegar farið úr landi. Á miðvikudag var tveimur félagsmönnum samtakanna meinuð landganga og héldu þeir aftur til síns heima daginn eftir. 6.3.2009 17:39
Segjast ekki hafa brotið samkeppnislög Bændasamtök Íslands telja sig ekki hafa brotið samkeppnislög. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Bændasamtökunum í kjölfar þess að Samkeppniseftirlitð úrskurðaði að samtökin skuli greiða 10 milljónir króna í stjórnvaldssekt fyrir ólöglegt samráð. 6.3.2009 17:08
Kjötsúpa og þungarokk í Vítisenglaveislu Margt verður á boðstólnum í innflutningsgleði Fáfnis sem verður haldin annað kvöld, en mikill viðbúnað er vegna komu Vítisengla víðsvegar úr heiminum á Leifsstöð í dag. Dómsmálaráðuneytið hefur sagt fyrirhugaðan fagnað Fáfnis ógna allsherjareglu og þjóðaröryggi. Enn hefur enginn Vítisengill komið inn í landið en félagar þeirra, með Jóni Trausta Lútherssyni fremstan í flokki, bíða eftir þeim upp á Leifstöð. 6.3.2009 15:45
Þingmenn úr öllum flokkum leggja fram frumvarp um hópmálsóknir Tíu þingmenn allra flokka á Alþingi hafa lagt fram frumvarp um hópmálsókn sem gerir fólki kleift að höfða sameiginlega mál til kröfu um bætur í stað þess að hver og einn fari í mál. Fyrsti flutningsmaður er Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna. Meðflutningsmenn eru meðal annars allir fulltrúar í allshverjarnefnd Alþingis. 6.3.2009 15:42
Raddir fólksins boða til mótmælafundar Samtökin Raddir fólksins standa fyrir útifundi á Austurvelli á morgun. Þetta er 22. vika útifundanna og 28 mótmælafundurinn á Austurvelli undir yfirskriftinni Breiðfylking gegn ástandinu, að fram kemur í tilkynningu frá samtökunum. 6.3.2009 15:29
Prófkjörshelgi framundan Fjölmörg prófkjör fara fram á næstu dögum og því fara línur að skýrast hverjir munu leiða framboðslista flokkanna. Kosið verður til Alþingis eftir 49 daga. Um helgina ráðast úrslit í fimm prófkjörum auk þess sem að framsóknarmenn í Reykjavík stilla upp á sína framboðslista og kynnt verða úrslit úr póstkosningu flokksins í Suðurkjördæmi. 6.3.2009 15:12
Óttast áhrif hvalveiða á ferðaþjónustu og orðspor Íslands Ferðamálaráð lýsir áhyggjum af áhrifum hvalveiða á ferðaþjónustu og orðspor landsins. Ráðið hefur sent Össuri Skarphéðinssyni iðnaðarráðherra, ráðherra ferðamála, yfirlýsingu þess efnis að ráðið taki undir þær áhyggjur sem Samtök ferðaþjónustunnar og fyrirtæki í Hvalaskoðunarsamtökum Íslands, hafa þegar lýst af fyrirhuguðum hvalveiðum Íslendinga. 6.3.2009 14:52
Ríkisstjórnin lofar allt að 6000 nýjum störfum Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögur í atvinnumálum,sem ætlað er að skapa rúmlega 4000 ársverk á næstu misserum. Unnið verður að framgangi ellefu tillagna sem kynntar voru á fundi með blaðamönnum í dag. 6.3.2009 14:29
Mestur stuðningur við Samfylkinguna - fylgi framsóknar dalar Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 30,5%. Þetta er veruleg aukning frá síðustu könnun í febrúar þegar fylgi flokksins mældist 24,1%. Fylgi Framsóknarflokksins dalar nokkuð og fer úr 14,9% í febrúar í 10% nú. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Markaðs- og miðlarannsókna, MMR. 6.3.2009 12:51
Vinstri grænir styðja ekki frumvarp Össurar Vinstrihreyfingin grænt framboð styður ekki frumvarp iðnaðarráðherra um heimild til samninga um álver í Helguvík. Steingrímur J. Sigfússon reiknar þó með að frumvarpið nái fram að ganga með stuðningi stjórnarandstöðunnar. 6.3.2009 12:47
Fáfnismenn bíða eftir félögum sínum í Leifsstöð Meðlimir úr mótorhjólaklúbbnum Fáfni eru mættir í komusalinn í Leifsstöð þar sem þeir bíða eftir að hitta félaga sína sem væntanlegir eru víðs vegar að úr heiminum í dag. Eftirlit hefur verið hert í stöðinni vegna þessa en félagar Fáfnismanna eru meðlimir í mótorhjólasamtökunum Hells Angels sem yfirvöld skilgreina sem skipulögð glæpasamtök. 6.3.2009 12:25
Svekkelsi með niðurstöður í forvali VG Frambjóðandi Vinstri grænna segir marga flokksmenn svekkta yfir óbreyttri forystu framboðsins í Norðausturkjördæmi. Ekkert ungt fólk sé á listanum. Úrsagnir úr flokknum séu hafnar. Í fyrrakvöld varð röð efstu manna á listanum ljós fyrir þingkosningarnar í apríl. 6.3.2009 12:23
Þeim fjölgar sem leita sér aðstoðar hjá Stígamótum Heildarfjöldi einstaklinga sem leituðu aðstoðar hjá Stígamótum jókst um tæp 4% á síðasta ári, samkvæmt ársskýrslu fyrir árið 2008. Þá voru um 10% fleiri viðtöl tekin á síðasta ári, í samanburði við árið 2007. Ekki hafa jafn margir einstaklingar leitað sér hjálpar hjá Stígamótum í fjölda ára, en samtals komu 547 einstaklingar í viðtal. 6.3.2009 12:12
Baugsmálið hafði áhrif á stofnun sérstaks saksóknara Baugsmálið varð meðal annars til þess að Alþingi féllst á að stofna embætti sérstaks saksóknara bankahrunsins, fremur en að fela verkið efnahagsbrotadeild Ríkislöglustjóra. 6.3.2009 12:11
Alþingi sitji fram að mánaðamótum Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gerir enn ráð fyrir að Alþingi sitji fram að mánaðamótum, þótt tilkynnt verði um þingrof í næstu viku. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögur í atvinnumálum sem iðanaðarráðherra mun kynna síðar í dag. 6.3.2009 12:01
Jóhanna boðar til blaðamannafundar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur boðað til blaðamannafundar í Alþingishúsinu við Austurvöll í dag klukkan 13. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu kemur fram að fundarefnið sé atvinnumál. 6.3.2009 11:53
Styrkja íslenska fræðimenn og námsmenn um 275 milljónir Samstarfsráðherrar Norðurlanda samþykktu á fundi sínum í Kaupmannahöfn í dag að veita jafnvirði 14,4 milljóna danskra króna, eða rúmlega 275 milljónir íslenskra króna, til að aðstoða Íslendinga í fjármálakreppunni. 6.3.2009 11:43
56 milljónir í ráðgjöf Félags- og tryggingamálaáðuneytið greiddi rúmar 56 milljónir fyrir aðkeypta þjónustu og ráðgjafa- og verktakakostnað í ráðherratíð Jóhönnu Sigurðardóttur núverandi forsætisráðherra. 6.3.2009 11:34
Móttökugleði ári fyrir kosningarnar 2006 Ári fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006 stóðu forsvarsmenn R-listans fyrir fleiri móttökum á kostnað borgarstjórnar en á meðalári. Kosið var til borgarstjórnar 27. maí 2006 og voru haldnar 112 móttökur ári fyrir kosningarnar. Á tímabilinu 2004 til 2008 voru að meðaltali haldnar 91 móttökur á ári hverju. 6.3.2009 11:05
Tugir Vítisengla væntanlegir í dag Vítisenglar frá öllum Norðurlöndunum og víðar munu reyna að komast inn í landið í dag þrátt fyrir hert landamæraeftirlit samkvæmt heimildum Vísis. Um er að ræða tugi Vítisengla víða um heim. Meðal annars munu Vítisenglarnir koma frá Þýskalandi, Frakklandi, Sviss, Bretlandi og nokkrir frá Bandaríkjunum auk Norðurlandanna. Þeir fyrstu munu koma hingað með flugi um hádegisbilið og er búist við að þeir síðustu munu lenda á Íslandi um miðnætti. 6.3.2009 10:19
500 búnir að kjósa í forvali Samfylkingarinnar Rúmlega 500 manns eru búnir að greiða atkvæði í netprófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sem hófst í gær og líkur klukkan 18 á morgun. Prófkjörið er opið öllum íbúum kjördæmisins. 6.3.2009 09:39
Bankarnir óstarfhæfir Svandís Svavardóttir, oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, segir að forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar sé að snúa hjólum efnahagslífsins af stað með því að gera bankana algerlega starfhæfa. Að hennar mati eru þeir engan veginn starfhæfir. Virkir bankar séu nauðsynlegir fyrir fyrirtækin en fyrirtækin fyrir fólkið. 6.3.2009 09:27
Verðmunur á höfuðborgarsvæðinu allt að 84 prósent Allt að 84 prósenta verðmunur var á sambærilegum hlutum, í nýrri könnun verðlagseftirlits ASÍ í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Fimmtíu og ein vörutegund var skoðuð og reyndist verðið lægst í Bónus í 34 tilvikum. 6.3.2009 08:07
Ryk bundið í nótt Allar helstu umferðargötur í Reykjavík voru rykbundnar í nótt til að kom í veg fyrir svifryksmengun. Þetta var gert samkvæmt viðbragðsáætlun borgarinnar um loftgæði en í gær mældist styrkur svifryks við heilsuverndarmörk. 6.3.2009 07:34
Barist í Hlíðum Til átaka kom milli tveggja hópa unglinga á mótum Mávahlíðar og Lönguhlíðar í Reykjavík, á tíunda tímanum í gærkvöldi. Vitni töldu að sumir hefðu hampað bareflum og jafnvel hnífum. 6.3.2009 07:27
Þrír í fangageymslu eftir árshátíð Þrír unglingar gista nú fangageymslur lögreglunnar á Selfossi þar sem þeir höfðust ekki við í uppábúnum rúmum á Hótel Selfossi og voru með háreysti og slagsmál á göngum hótelsins. Þeir höfðu verið á árshátíð fjölbrautaskóla úr Reykjavík, sem haldin var á hótelinu í gærkvöldi, en varð ekki svefnsamt. 6.3.2009 07:25
Gulldeplan á förum Gulldeplan, sem ýmist er kölluð kreppukóð eða bjargvætturinn, er nú um það bil að yfirgefa íslenska lögsögu djúpt suður af landinu. Tíu skip voru þar að veiðum í gær en eru um það bil að slá botninn í veiðarnar og halda heim. 6.3.2009 07:23
Sluppu nær ómeiddir úr bílveltu Þrír menn sluppu nær ómeiddir þegar jeppi þeirra valt út af Hrunamannavegi, skammt frá Flúðum í nótt. Hann valt tvær heilar veltur og er stórskemmdur ef ekki ónýtur. Mennirnir voru fluttir til læknis að Laugarási, þar sem þeir fengu aðhlynningu. Flughálka var á veginum þar sem slysið varð. 6.3.2009 07:19
Leit að Aldísi ber enn engan árangur Leit að Aldísi Westergren lauk án árangurs í gærkvöldi og er ekki búið að taka ákvörðun um frekari leit. Margir björgunarsveitarmenn og lögreglumenn tóku þátt í leitinni, en ekkert hefur sést til Aldísar í níu daga, eftir að hún hvarf af heimili sínu. Engar haldbærar vísbendingar hafa borist um ferðir hennar síðan. 6.3.2009 07:17
Átök milli unglinga í Hlíðahverfinu Lögreglan var kölluð að gatnamótum Lönguhlíðar og Mávahlíðar fyrir stundu en svo virðist vera sem komið hafi til slagsmála milli unglinga. Lögreglan er enn á staðnum og ekki er vitað að svo stöddu hvað olli átökunum eða hvort einhver hafi slasast. 5.3.2009 22:08
Leit að Aldísi lokið í dag Víðtæk leit sem staðið hefur yfir að Aldísi Westergren í dag lauk án árangurs þegar myrkra tók nú undir kvöld. 5.3.2009 22:52
Gríðarlegur fjöldi á framhaldsnámskynningu í HÍ Gríðarlegt fjölmenni var á námskynningu í Háskóla Íslands í dag þegar kennarar, nemendur og starfsmenn Háskóla Íslands kynntu framhaldsnám næsta skólaárs. 5.3.2009 22:45
Ásgarður hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins Ásgarður handverkstæði hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins að þessu sinni. Ásgarður er verndaður vinnustaður fyrir fólk með þroskahömlun. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. 5.3.2009 19:09
Flestir sögðust kjósa Sjálfstæðisflokkinn Sjálfstæðisflokkurinn hefur mest fylgi allra stjórnmálaflokka meðal svarenda í nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. 5.3.2009 18:28
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent