Ásgarður hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins 5. mars 2009 19:09 Fulltrúar Ásgarðs tóku við Samfélagsverðlaununum í dag.
Ásgarður handverkstæði hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins að þessu sinni. Ásgarður er verndaður vinnustaður fyrir fólk með þroskahömlun. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Í umsögn um Ásgarð segir að fagleg markmiðs vinnustaðarins eigi rætur í uppeldiskenningum Rudolfs Steiner en í kenningum hans felist meðal annars að ekki er litið á fötlun sem vandamál heldur möguleika. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti fulltrúum Ásgarðs verðlaunin. Ari Edwald, forstjóri 365, afhenti þeim síðan verðlaunafé að upphæð ein milljón króna. Þetta er í fjórða sinn sem Fréttablaðið veitir Samfélagsverðlaunin en þau eru veitt í fjórum flokkum auk heiðursverðlauna. Aðrir sem voru únefndir til Samfélagsverðlaunanna voru : Ekron Höndin Ljósið Vinir Indlands Til Samfélagsverðlaunanna koma til greina félagasamtök sem hafa unnið framúrskarandi mannúðar- eða náttúruverndarstarf; samtök sem hafa með starfi sínu lagt sitt af mörkum til að gera samfélagið betra fyrir okkur öll.Hvunndagshetja Hvunndagshetja ársins 2008 er Bergdís Jónsdóttir. Bergdís er snyrtifræðingur í eigin rekstri. Einn dag í viku lokar hún stofunni og mætir á Dagsetur Hjálpræðishersins þar sem hún þvær og snyrtir fætur heimilislausra fastagesta staðarins. Aðrir sem voru tilnefndir í þessum flokki: Anna Marta Ásgeirsdóttir og Ingólfur Örn Guðmundsson Guðrún Arndís Tryggvadóttir Gunnar og Kristján Jónssynir Sigríður Valdís Bergvinsdóttir Verðlaunin eru veitt einstaklingi sem hefur sýnt einstaka óeigingirni eða hugrekki annað hvort við vinnu að ákveðnum málaflokki eða í tengslum við einn atburð. Frá kynslóð til kynslóðar Verðlaun í þessum flokki fær Norðlingaskóli. Í Norðlingaskóla hefur verið bryddað upp á ýmsum nýjungum. Öflug tengsl við heimilin og nærsamfélagið eru meðal þess sem einkennir starf skólans. Aðrir tilnefndir í þessum flokki: Gylfi Jón Gylfason KFUM og KFUK Ólafur Beinteinn Ólafsson Svanhildur Sif Haraldsdóttir Í þessum flokki koma allir þeir til greina sem hafa unnið eftirtektarvert starf í þágu menntunar, uppfræðslu eða umönnunar þeirrar kynslóðar sem er að vaxa úr grasi, jafnt einstaklingar sem samtök eða stofnanir.Til atlögu gegn fordómum Rauði krossinn á Akranesi hlýtur verðlaunin í þessum flokki fyrir hlutverk sitt við góða aðlögun hóps palestínsks flóttafólks að samfélaginu á Akranesi. Aðrir tilnefndir: Alþjóðahús í Breiðholti Dagur Steinn Elfu Ómarsson, Elvar Sveinn Jóhannsson, Gunnar Darri Kjærnested, Jóhann Haukur Arnarson, Jón Gylfi Sigfússon Sigrún Daníelsdóttir Styrmir Barkarson Verðlaun í þessum flokki eru veitt einstaklingi eða félagasamtökum sem hafa unnið ötullega að því að eyða fordómum í samfélaginu.Heiðursverðlaun Heiðursverðlaun Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins hlýtur Jóhanna Kristjónsdóttir, rithöfundur og blaðamaður. Jóhanna hefur um árabil kynnt menningu Mið-Austurlanda á Íslandi og með því lagt mikið af mörkum til að draga úr fordómum. Á sama tíma hefur hún staðið fyrir hjálparstarfi í Jemen sem meðal annars snýr að því að gefa börnum kost á menntun sem þau ættu ella ekki kost á, sökum fátæktar. Þannig hefur Jóhanna látið gott af sér leiða bæði hér heima og í Jemen.Um verðlaunin Vel á fjórða hundrað tilnefninga til Samfélagsverðlaunanna bárust frá lesendum Fréttablaðsins. Markmið með Samfélagsverðlaununum er að beina sjónum að þeim góðu verkum sem unnin eru í samfélaginu. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins eru sem fyrr segir ein milljón króna, aðrir verðlaunahafar fá síma. Dómnefnd var þannig skipuð: Steinunn Stefánsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, var formaður nefndarinnar. Aðrir: Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, Hildur Petersen, stjórnarformaður Kaffitárs og Pfaff og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra.
Mest lesið Harpa Elín Haraldsdóttir er látin Innlent Lögreglan innsiglaði Flóka Innlent Ítrekar hótanir sínar og hvetur íbúa til að kjósa Cuomo Erlent Snúin staða Sönnu og sameiginlegt framboð virðist ekki í kortunum Innlent Ætlar ekki að láta „óða“ Demókrata kúga sig Erlent Tveir reyndir lögreglumenn ákærðir fyrir brot í starfi Innlent Með meðvitund fastur í rústunum en lést á leið á sjúkrahús Erlent „Við vorum komin með súrefniskúta heim“ Innlent Hyggjast banna klám sem sýnir kyrkingar Erlent Ódæðin í Súdan mögulega glæpir gegn mannkyninu Erlent Fleiri fréttir Harpa Elín Haraldsdóttir er látin Snúin staða Sönnu og sameiginlegt framboð virðist ekki í kortunum Lögreglan innsiglaði Flóka „Við vorum komin með súrefniskúta heim“ Tveir reyndir lögreglumenn ákærðir fyrir brot í starfi Lögreglumenn ákærðir fyrir uppflettingar og hlerun Sækja slasaðan sjómann djúpt austur af landinu Miðflokkurinn nálgast Sjálfstæðisflokkinn óðfluga Óvænt stólaskipti skyggðu ekki á Bandaríkjareisuna Ákærður fyrir að birta fjölda nektarmynda af fyrrverandi Ekki meiðyrði hjá RÚV að lýsa yfirlýsingum Elds Smára réttilega Georgíumaður hafi kvænst Letta til þess að fá dvalarleyfi Eldur í bíl á Hellisheiði Líklegra að það gjósi nær áramótum Stíga ekki inn í Intra-málið í bili Vélfag kvartar til ESA og ræður kanónu „Væri fínt ef fullorðna fólkið myndi girða sig og setja reglur fyrir sig sjálft“ Álftin fæli bændur frá kornrækt Íslenskir unglingar veðja næst mest í Evrópu Húsnæðismálin í brennidepli og Alvotech lækkar á mörkuðum Aðalmeðferð í Súlunesmálinu frestað Viðreisn stillir upp á lista í Mosfellsbæ Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra tekur upp nýtt nafn Foreldrar langveikra barna einangruð og endi jafnvel sem öryrkjar Vilja rýmri reglur um veiðar fjögurra fuglategunda Tvö pör handtekin og afskipti höfð af tvímenningum Grunaður um að nauðga konu þrisvar sömu nóttina „Aldrei fyrirgefanlegt þegar það er farið svona með opinbert fé“ Hjóluðu 1300 kílómetra meðfram Dóná með börnum sínum „Gætir verið pirrandi við matarborðið en það er þess virði“ Sjá meira