Fleiri fréttir

Fjárreiðustjóri Ísfélagins ósammála stjórnarformanninum

Baldvin Johnsen fjárrreiðustjóri Ísfélags Vestmannaeyja segist vera ósammála þeim orðum stjórnarformanns fyrirtækisins að hann hafi farið út fyrir heimildir félagsins eða vanrækt upplýsingagjöf til stjórnar. Baldvin og Ægi Pál Friðbertssyni, framkvæmdastjóri Ísfélagsins, var sagt upp störfum fyrr í vikunni vegna taps félagsins af afleiðusamningum.

Kannabisrækt í Kópavogi stöðvuð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 50

Héraðsdómur: Fá bætur vegna harkalegrar handtöku

Þremur ungum mönnum voru í dag dæmdar bætur í Héraðsdómi Reykjavíku þegar lögregla braut gegn meðalhófsreglu þegar gerð var á þeim líkamsleit í kjölfar handtöku. Lögreglan var vopnuð og beitti við handtökuna óþarflega særandi aðgerðum og á niðurlægjandi hátt að mati dómara. Skömmu síðar kom í ljós Mennirnir fá í bætur 200 þúsund krónur hver að viðbættum vöxtum. Gjafsóknarkostnaður sækjanda, 600 þúsund krónur, greiðist úr ríkissjóði.

Dæmd til þess að greiða Geira 500.000 krónur

Björk Eiðsdóttir blaðakona á Vikunni var í Hæstarétti í dag dæmd til þess að greiða Ásgeiri Þór Davíðssyni 500.000 krónur vegna ummæla sem féllu í blaðinu. Elín Arnar ritstjóri var sýknuð af fjárkröfu Ásgeirs. Héraðsdómur hafði áður sýknað blaðamennina en Ásgeir fór í meiðyrðarmál vegna ummæla sem fyrrverandi nektardansmey lét falla um Ásgeir í blaðinu. Vikunni var einnig gert að birta niðurstöður dómsins í næsta tölublaði auk þess sem ummæli voru dæmd dauð og ómerk.

Foringi Vítisenglanna: Var á Íslandi fyrir tveimur vikum

Leiðtogi norsku Vítisenglanna, Leif Ivar Kristiansen var hér á landi fyrir tveimur vikum síðan, í boði Fáfnis, samkvæmt heimildum Vísis. Leif er einn alræmdasti Vítisengillinn í Noregi en hann hefur meðal annars verið ákærður fyrir stórfelldan fíkniefnainnflutning.

Maður reyndi að tæla stúlku í Langholtshverfi

Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er með til skoðunar mál sem kom upp við Langholtsveg í Reykjavík í vikunni. Hreiðar Sigtryggsson skólastjóri Langholtsskóla sendi foreldrum bréf þar sem þau eru beðin um brýna fyrir börnum sínum að fara ekki upp í bíl hjá ókunnugum. Bréfið sendi hann í kjölfar þess að maður reyndi að tæla unga stúlku sem er nemandi í skólanum upp í bíl til sín.

Brottvikning Margrétar kostaði Frjálslynda flokkinn rúma milljón

Frjálslyndi flokkurinn hefur verið dæmdur til að greiða Margréti Sverrisdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra flokksins, 614 þúsund krónur með dráttarvöxtum vegna ógreiddra launa. Að auki þarf flokkurinn að greiða Margréti 600 þúsund krónur í málskostnað.

Umdeild eftirlaunalög afnumin á Alþingi

Þrjátíu og fjórir þingmenn samþykktu afnám laga um eftirlaun forseta, þingmanna, hæstaréttardómara og ráðherra á Alþingi í dag. Engin greiddi atkvæði gegn frumvarpinu en tuttugu og sex þingmenn voru fjarverandi.

Beðinn um að missa minnið í réttarsal

Ragnar Magnússon var beðinn um að missa minnið í dómssal í dag. Þar fór fram aðalmeðferð í þremur líkamsárásarmálum gegn Benjamín Þór Þorgrímssyni. Árásin á Ragnar vakti nokkra athygli á síðasta ári þegar hún var sýnd í fréttaskýringarþættinum Kompás. Ragnar sagði meðal annars að eftir þáttinn hefði hann fengið hótanir frá þriðja aðila sem bað hann um að missa minnið fyrir dómi. Hann sagðist því miður ekki geta gefið upp hver sá aðili væri. Fullt var út úr dyrum í sal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Sumarannir í staðinn fyrir atvinnuleysi

Stúdentaráð Háskóla Íslands telur að stór hluti þeirra 13.500 stúdenta sem stunda nám við Háskólann muni ekki ná að verða sér úti um sumarvinnu. Því hvetur ráðið Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands, til að endurvekja sumarannir við skólann.

Móttökur hjá borginni fjórða hvern dag

Móttökur á vegum borgarstjórnar Reykjavíkurborgar hafa verið haldnar að meðaltali fjórða hvern dag undanfarin ár. Með móttökum er átt við öll mannamót sem haldin hafa verið á kostnað borgarstjórnar hvort sem um er að ræða móttökur með vínveitingum eða öðrum veitingum.

Jón Trausti Lúthersson: „Ótrúlega öfgakennd viðbrögð“

Fáfnismenn mótmæla harðlega viðbrögðum stjórnvalda en gefin hefur verið út yfirlýsing, af hálfu dómsmálaráðuneytis, þar sem fram kemur að tekið verði upp tímabundið landamæraeftirlit á innri landamærum Schengen-svæðisins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar frá 5. mars til 7. mars.

Vítisenglaveisla ógn við þjóðaröryggi

Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að taka upp tímabundið landamæraeftirlit á innri landamærum Schengen-svæðisins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar frá 5. mars til og með 7. mars. Í tilkynningu í Lögbirtingablaðinu kemur fram að breytingunni sé ætlað að „koma í veg fyrir væntanlega komu ákveðins hættulegs hóps frá og um nágrannalönd Íslands í Evrópu.“

Klúbbhús Fáfnis í ólöglegu húsnæði

Klúbbhús vélhljólaklúbbsins Fáfnis sem fyrirhugað er að opna um helgina er í ólöglegu húsnæði. Það er byggt og samþykkt sem iðnaðarhúsnæði og öll breyting á því í aðra veru er ekki heimil.

Ekkert ákveðið um mánaðarlegar barnabætur

Ekkert bólar á loforði síðustu ríkisstjórnar um að barnabætur verði greiddar út mánaðarlega en ekki ársfjórðungslega. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lofaði þessu á blaðamannafundi um aðgerðarpakka fyrir heimilin þann 14. nóvember.

FME getur tafið vinnu sérstaks saksóknara

Tafir geta orðið á rannsóknum sérstaks saksóknara bankahrunsins, þar sem Fjármálaeftirlitið getur borið fyrir sig bankaleynd. Breytingar á lögum um saksóknarann eru langt komnar.

Mannshvarf: Vitni sá Aldísi í miðbænum

„Ég var ekkert að spekúlera í þessu fyrr en nokkru síðar," segir Erna Margrét Ottósdóttir, fyrrum vinnufélagi Aldísar Westergren, sem hefur verið týnd í rúma viku. Erna segist hafa séð Aldísi síðdegis fyrir um viku síðan, hún geti þó ekki verið viss hvort það var á mánudegi eða þriðjudegi.

Eftirlaunalögin verði afnumin á kjördag

Eftirlaunalögin verða afnumin 25. apríl, sem er áætlaður kjördagur, nái breytingartillaga á frumvarpi sem fjallar um eftirlaun æðstu ráðmanna fram að ganga. Lokaumræða um frumvarpið hófst í dag.

Jákvæð fyrir sameiningu Varnarmálastofnunar og Landhelgisgæslu

Ragna Árnadóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, telur að sameining Landhelgisgæslunnar og Varnarmálastofnunar sé einn af þeim möguleikum til hagræðingar sem verði að skoða með opnum hug. Erfitt sé að meta hvort slík sameining myndi hafa jákvæð áhrif á fjárhag Landhelgisgæslunnar. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í dag þegar að Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði ráðherrann um boðaðan niðurskurð hjá Landhelgisgæslunni sem nýverið var tilkynnt um. Fækka þarf starfsmönnum stofnunarinnar um 20 til 30.

Hrefnan étur mun meira af þorski og ýsu en áður var talið

Niðurstöður hrefnurannsókna Hafrannsóknastofnunarinnar á árunum 2003-2007 benda til þess hrefnan éti árlega allt að 300.000 tonn af þorski og ýsu. Frá þessu er greint á heimasíðu LÍU og sagt að um fimmfalt meira magn að ræða en en eldri rannsóknir hafa leitt í ljós. Til samanburðar er nefnt að heildaraflamark þorsks og ýsu á yfirstandandi fiskveiðiári er um 250.000 tonn.

Íslendingar sem búið hafa erlendis lengur en í átta ár mega kjósa

Breyting á lögum um kosningar til Alþingis sem tók gildi í dag gerir íslenskum ríkisborgurum, sem hafa verið búsettir erlendis í meira en átta ár og höfðu ekki sótt um að verða teknir á kjörskrá fyrir 1. desember sl., kleift að kjósa í alþingiskosningunum 25. apríl nk. Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu segir að sæki þeir um til Þjóðskrár í síðasta lagi 25. mars nk. geti þeir kosið í kosningunum í vor ef umsókn þeirra reynist fullnægjandi.

Gripinn við innbrot í bíl

Lögreglan greip þjóf glóðvolgan eftir að hann hafði brotist inn í fyrirtækjabíl við Ármúla á sjöunda tímanum í morgun. Hann var með þýfi á sér og gistir fangageymslur þar til hann verður yfirheyrður í dag. Ekki er loku fyrir það skotið að hann hafi fleiri innbrot upp á síðkastið á samviskunni.

Stjórnarskrárfrumvarpi dreift í gær

Frumvarpi um breytingar á stjórnarskrá var dreift á Alþingi í gærkvöldi þar sem meðal annars er lagt til að auðlindir, sem ekki eru háðar einkaeignarrétti, séu þjóðareign.

Viðamikil leit að Aldísi skipulögð

Björgunarsveitir Landsbjargar og lögreglan hafa skipulagt viðamikla leit í dag að Aldísi Westergren, sem hvarf frá heimili sínu við Gvendargeisla í Grafarholti 24. febrúar.

Flugfarþegum fækkar um tæpan þriðjung

Tæplega 28 prósent færri farþegar fóru um Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli í febrúar síðastliðnum, en í sama mánuði í fyrra. Þá voru þeir 115 þúsund, en aðeins 83 þúsund í ár.

Handtekinn eftir að bíll fannst utan vegar

Lögreglan á Akureyri handtók ungan mann undir morgun, þar sem hann var á gangi eftir Borgarbraut, en áður hafði bíll, sem hann hafði til umráða, fundist utan við veginn og mannlaus. Maðurinn, sem er grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna, er líka grunaður um akstur í því ástandi og verður málið kannað nánar. Hann hefur áður gerst brotlegur við ýmis lög.

Björgunarsveitir leita Aldísar á morgun

Aldís Westergren, konan sem lögreglan hefur leitað að undanförnu, er enn ekki fundin. Víðtæk leit stóð yfir að Aldísi um helgina, en hún bar engan árangur.

Stjórnarráðið hefur greitt 197 milljónir vegna sérfræðiþjónustu

Stjórnarráðið greiddi á síðasta ári út tæpar 197 milljónir króna vegna sérfræðiþjónustu, í tengslum við neyðarástand á fjármálamörkuðum. Þetta kemur fram í svari forsætisráðuneytisins við fyrirspurn nokkurra fjölmiðla um kaup á sérfræðiþjónustu.

Fjölga ferðum til Lundúna

Iceland Express hyggst auka verulega framboð á flugsætum til Lundúna næsta haust. Frá og með 1. september næstkomandi mun félagið fljúga tvisvar á dag til Lundúna. Brottför Lundúnaflugs Iceland Express verður klukkan sjö að morgni og klukkan tuttugu mínútur yfir tvö síðdegis, alla virka daga vikunnar. En áfram verður einungis eitt flug á dag um helgar.

Strákagöng lokuð á morgun

Vegurinn um Strákagöng við Siglufjörð verður lokaður vegna viðgerða á milli klukkan tólf og eitt á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þar kemur jafnframt fram að víðast hvar á landinu er mikil hálka þessa stundina.

Loftrýmisgæsla hefst í næstu viku

Loftrýmisgæsla danska flughersins yfir Íslandi hefst í næstu viku. Fjórar F-sextán þotur Dana komu til landsins í dag. Gæslan nú kosta fimm sinnum minna en upphafleg kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir.

Fáfnir opnar nýtt klúbbhús

Vélhjólaklúbburinn Fáfnir ætlar að opna nýtt klúbbhús í Hafnarfirði um næstu helgi. Fáfnir er opinber stuðningsklúbbur Hell's Angels klíkunnar sem ítrekað hefur reynt að ná fótfestu hér á landi.

Kolbrún snúin niður í þinginu

Framsóknarmenn hafa með sjálfstæðismönnum og frjálslyndum myndað nýjan pólitískan meirihluta á Alþingi gegn stefnu Vinstri grænna í umhverfis- og stóriðjumálum. Flokkarnir standa saman að þingsályktunartillögu um að knýja Kolbrúnu Halldórsdóttur umhverfisráðherra til að sækja á um meiri undanþágur fyrir Ísland í loftlagsmálum.

Kúgaðar konur fastar í skuldaklafa

Bágt efnahagsástand veldur því að fleiri konur en áður ákveða að búa áfram við ofbeldi í stað þess að skilja við maka sinn. Þær eru fastar í skuldaklafa, segir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins.

Verktakar svindla á íbúðalánasjóði

Dæmi eru um verktakar stofni sérstök leigufélög sem þeir nota til að kaupa fasteignir af sjálfum sér. Leigufélögin fá lán frá Íbúðalánasjóði fyrir kaupunum en eru síðan látin fara í þrot.

Aðdráttarafl Akureyrar eykst

Ferðamenn hafa flykkst til Akureyrar í vetur og sett voru fjöldamet bæði í Hlíðarfjalli og sundlaug bæjarins. Það er um 120% aukning á gestum í fjallinu frá því í fyrra segir Ragnar Hólm Ragnarsson upplýsinga-og kynningamálastjóri Akureyrarbæjar.

Guðni formannsframbjóðandi fer fram í Reykjavík

Guðni Halldórsson, formannsframbjóðandi í Frjálslynda flokknum, hefur hefur hætt við að gefa kost á sér í efsta sætið í prófkjöri flokksins í Norðvesturkjördæmi og sækjast þess í stað eftir forystusæti í Reykjavík.

Endurreisnarmaður í framboð

Formaður sérstakrar undirnefndar endurreisnarnefndar Sjálfstæðisflokksins, Sigurður Örn Ágústsson, hyggur á framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norðvesturkjördæmi.

Geir: Búið að flauta til leiks

Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, mælti fyrir frumvarpi fyrir hönd fjögurra flokka á Alþingi í dag um breytingar á kosningalögum. Sjálfstæðismenn gagnrýndu frumvarpið og sagði Geir H. Haarde, formaður flokksins, að það væri venja að allir flokkar væru hafðir með í ráðum þegar kosningalögum væri breytt.Frumvarpið gerir meðal annars ráð fyrir persónukjöri.

Sjá næstu 50 fréttir