Fleiri fréttir

Eiríkur hættir - Davíð einn eftir

Eiríkur Guðnason einn þriggja bankastjóra Seðlabankans stefnir að því að láta af embætti bankastjóra þann 1.júní næstkomandi. Áður hefur Ingimundur Friðriksson gefið út að hann hyggist láta af embætti. Davíð Oddsson ætlar hinsvegar að sitja áfram.

Bankastjórarnir bera ábyrgðina á hruninu

Bankastjórar og eigendur gömlu bankanna geta ekki vikið sér undan því að þeir, og þeir einir, bera ábyrgð á því hvernig fór fyrir bönkunum, segir Mats Josefsson, sérfræðingur ríkisstjórnarinnar við endurreisn fjármálakerfisins. Hann segir ríkisstjórnina þurfa að koma með ákveðnari hætti að rekstri nýju bankanna og að stjórnendur þeirra þurfi að átta sig á breyttum aðstæðum.

Lögreglan leitar að Rolls Royce

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú að Rolls Royce bifreið sem stolið var í Hafnarfirði en tilkynnt var um nytjastuldinn í síðasta mánuði. Eigandi bílsins var erlendis í nokkrar vikur en þjófnaðurinn uppgötvaðist þegar hann kom til baka.

Endurreisnarnefndin kynnir skýrslu sína

Nefnd um endurreisn fjármálakerfisins birti fyrstu skýrslu sína á fundi með blaðamönnum sem haldin var í mogun í Þjóðmenningarhúsinu. Mats Josefsson, sænskur bankasérfræðingur sem leiðir nefndina, kynnti vinnu hennar, áherslur og þau verkefni sem fram undan eru. Jafnframt var lögð fram starfsáætlun nefndarinnar og grein gerð fyrir þeim þáttum sem hún vinnur að.

Of mikil læti í Sturlu vörubílstjóra

Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu segir að einum mótmælanda við Seðlabankann hafi verið kynnt lögreglusamþykkt reykjavíkurborgar vegna hávaða sem hann myndaði með mikilli lúðraþeytingu. Um er að ræða Sturlu Jónsson vörubílstjóra sem mótmælt hefur með mjög stórum gaslúðri síðustu daga. Um tuttugu manns mótmæla við Seðlabankann að sögn yfirlögregluþjóns.

Ragna ræður Ásu sem aðstoðarmann

Ása Ólafsdóttir, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, hefur verið ráðin aðstoðarmaður Rögnu Árnadóttur dóms- og kirkjumálaráðherra.

Gúggla verður að glöggva og Facebook verður vinabók

Málfræðingurinn Baldur Jónsson, sem situr í tölvuorðanefnd, hefur lagt til íslenskar þýðingar á orðunum Facebook, sem þúsundir Íslendinga nota, og einnig orðinu að gúggla, sem er dregið af leitar síðunni Google. Í grein sem Baldur skrifar í Morgunblaðið í dag leggur hann, og tölvuorðanefndin til, að íslenska þýðingin á Facebook, verði vinabók.

112-dagurinn er í dag

Dagur neyðarnúmersins,112-dagurinn er haldinn um allt land í dag. Að þessu sinni leggja samstarfsaðilarnir áherslu á að vekja athygli grunnskólabarna á því víðtæka öryggis- og velferðarneti sem þau hafa aðgang að í gegnum neyðarnúmerið ef eitthvað bjátar á.

Hefur ekki trú á boðuðum breytingum á stjórnarskrá

Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist aðspurður ekki hafa mikla trú á boðuðum stjórnarskrárbreytingum ríkisstjórnarinnar og fyrirhuguðu stjórnlagaþingi. Hann hefur lagt fram á Alþingi fyrirspurn til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í fimm liðum varðandi málið.

Innbrot í söngskóla og verslun

Brotist var inn í söngskóla við Snorrabraut í nótt og hafði þjófurinn þar einhverja peninga upp úr krafsinu. Einnig var brotist inn í verslun í bakhúsi við Laugaveg og peningaskúffa úr sjóðsvél tekin í heilu lagi, með einhverjum fjármunum í. Þjófurinn, eða þjófarnir, eru ófundnir.

Kafari hætt kominn við Reykjanes

Kafari komst í hann krappan þegar hann ætlaði að stíga á land en straumur hreif hann og bar frá landi, út af Garði á Reykjanesi í gærkvöldi.

Slökkvilið kallað að húsnæði Odda

Fjölmennt slökkvilið var sent að prentsmiðjunni Odda við Höfðabakka í Reykjavík í nótt eftir að eldvarnarkerfi nam reyk í húsinu og sendi boð um það til slökkviliðsins.

Sumarbústaður stórskemmdur eftir innbrot

Sumarbústaður í Vaðneslandi í Grímsnesi er stórskemmdur, ef ekki ónýtur, eftir að innbrotsþjófur skildi bústaðinn eftir opinn, þannig að vatnsleiðslur frostsprungu og vatn flæddi um allt.

Selt ríkisland verður ekki síðar þjóðlenda

Ríkið getur ekki selt jarðir og síðar tekið þær aftur sem þjóðlendur, segir í dómi í máli Orkuveitunnar sem stefndi ríkinu vegna landadeilu á Hellisheiði. Annar úrskurður óbyggðanefndar um þjóðlendur á svæðinu var hins vegar staðfestur.

Segir mjólkina hollari og kýrnar kátari

Hyggst reisa sláturhús, fjárhús og hænsnabú og hefja lífrænan búskap. Bóndi sem það hefur gert í áratugi segir afurðina hollari og kýrnar fari leiðar sinnar „skellihlæjandi“. Ráðunautur segir Íslendinga eftirbáta annarra þjóða í þessari þróun.

Búið að slökkva eld á Litla-Hrauni

Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður fangelsisins á Litla-Hrauni, segir að búið sé að slökkva eld sem kom upp í fangaklefa fyrr í kvöld. Slökkviliðsmenn eru nú að reykræsta klefann. Ekki var um mikinn reyk að ræða. Hún segir að hvorki fanga né starfsfólk hafi sakað vegna málsins. Eldsupptök eru að óljós, að sögn Margrétar.

Krefja Kolbrúnu um svör vegna álversuppbyggingar

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins ætla að krefja Kolbrúnu Halldórsdóttur, nýjan umhverfisráðherra, svara á Alþingi á morgun um álversuppbyggingu á Bakka við Húsavík og í Helguvík á Suðurnesjum.

Forsjárdeilur skaða börn til langs tíma

Deilur milli foreldra um forsjá skaða börn oft alvarlega og til langs tíma. Tengslarof barna við feður eftir skilnað er ein alvarlegasta atlaga sem unnin er á barni. Þetta er meðal þeirra sem kemur fram í skýrslu Stefaníu Katrínar Karlsdóttur, um aðskilnað barna frá öðru foreldri.

Sjálfstæðismenn með prófkjör í Kraganum

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, Kraganum, sem haldinn var í dag samþykkti að viðhaft skuli prófkjör í vegna uppröðunar á lista flokksins við þingiskosningarnar vorið 2009. Prófkjörið fer fram 14. mars.

Eldur á Litla-Hrauni

Eldur kom upp í fangaklefa á Litla-Hrauni í kvöld og fóru slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu á staðinn. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var um minniháttar eld að ræða og er nú verið að reykræsta fangaklefann.

ASÍ kynnir skýrslu um efnahagshorfur

Alþýðusamband Íslands hyggst kynna á morgun nýja skýrslu hagdeildar sambandsins um horfur í efnhagsmálum þjóðarinnar 2009 til 2001. Ólafur Darri Andrason, deildarstjóri hagdeildar, mun kynna skýrsluna. Í október sagði hagdeildin að atvinnuleysi hér á landi gæti orðið 4 til 5% á árunum 2008 til 2010.

Amnesty hvetja til vopnahlés á Srí Lanka

Átökin á Sri Lanka halda áfram. Aðstæður almennings á átakasvæðunum fara versnandi. „Æ fleiri raddir krefjast þess nú að ríkisstjórn Sri Lanka og Tamílsku tígrarnir semji um vopnahlé,“ segir í tilkynningu frá Íslandsdeild Amnesty International.

Kafara bjargað úr sjónum við Garð

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út klukkan 18:30 í kvöld vegna kafara sem lenti í vandræðum rétt fyrir utan höfnina í Garði á Suðurnesjum. Kafarinn var að koma að landi þegar mikill straumur greip hann og bar frá landi. Maður sem var á bryggjunni í Garði að fylgjast með köfuninni kallaði eftir aðstoð.

Árni: Stjórnin verður að hugsa sinn gang

Árni Mathiesen, telur að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir þurfi að hugsa sinn gang þegar kemur að mannabreytingum. Formenn bankaráða Nýja Glitnis og Nýja Kaupþings tilkynntu fyrr í dag um afsögn sína.

Hlini vill 2. sætið í Suðvesturkjördæmi

Hlini Melsteð Jóngeirsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi. Flokkurinn hefur í dag einn þingmann í kjördæminu, Siv Friðleifsdóttur.

Býður milljón þeim sem tekur að sér afborganir

Fjölskyldufaðir á Akranesi hefur auglýst einbýlishús sitt til sölu og býður eina milljón í peningum þeim sem er reiðubúinn að yfirtaka skuldirnar á húsinu. Hann segir gjaldþrot blasa við ef ekki selst og er illur út í þá sem stýrðu þjóðarbúinu í þrot.

Vændishús á Hverfisgötu

Lögreglan hefur til skoðunar meinta vændisstarfsemi sem fram fer í húsi við Hverfisgötu í Reykjavík. Íbúar í húsinu eru orðnir langþreyttir á á starfseminni og segja hana hafa valdið þeim vökunætum í þrjár vikur.

Fjölþættar aðgerðir til að rétta fjármálakerfið við

Ríkisstjórnin kynnti í morgun fjölþættar aðgerðir til að rétta við fjármálakerfið í landinu og sem eiga að auðvelda einstaklingum of fyrirtækjum að standa undir aukinni skuldabyrði. Forsætisráðherra viðurkennir að margt sé sótt í smiðju síðustu ríkisstjórnar, sem hins vegar hafi þjáðst af ákvarðanafælni.

Þorgerður Katrín vill vera varaformaður áfram

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ætlar ekki að bjóða sig fram til formennsku í Sjálfstæðisflokknum á landsfundi flokksins í mars. Hún sækist hins vegar eftir endurkjöri sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins.

Tólf líkamsárásir

Tólf líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um nýliðna helgi. Meirihluti þeirra, eða sjö, átti sér stað í miðborginni aðfaranótt laugardags. Flestar líkamsárásanna voru minniháttar en tveir eða þrír karlar fóru þó nefbrotnir heim eftir skemmtanir næturinnar.

Fylgst með áhrifum efnahagsþrenginga á stöðu kynjanna

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að settur verði á fót vinnuhópur til að meta áhrif efnahagsástandsins á stöðu kynjanna. Hópurinn verður skipaður af Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, félags- og tryggingamálaráðherra.

Steingrímur vill að Magnús og Valur sitji áfram

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hefur óskað eftir því að formenn bankastjórna Nýja Glitnis, Valur Valsson, og Nýja Kaupþings, Magnús Gunnarsson, gegni störfum áfram. Í dag óskuðu þeir eftir að verða leystir frá störfum í stjórnum bankanna. Steingrímur vill að þeir endurskoði ákvarðanir sínar og gegni störfum áfram að minnsta kosti fram að aðalfundum bankanna í apríl.

Áætlun um endurreisn fjármálakerfisins kynnt

Starfsáætlun samráðsnefndar um endurreisn fjármálakerfisins verður kynnt í fyrrmálið. Formaður nefndarinnar, Svíinn Mats Josefsson, mun kynna áætlunina á fundi með blaðamönnum í Þjóðmenningarhúsinu. Hann var ráðinn til tímabundinna starfa 1. desember.

Þuríður vill 2.sætið

Þuríður Backman, alþingismaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 2. sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi vegna Alþingiskosninganna í vor. Í síðustu alþingiskosningum var Þuríður í 2. sæti.

Stjórnarformenn Glitnis og Kaupþings segja af sér

Formenn bankastjórna Nýja Kaupþings og Nýja Glitnis, þeir Valur Valsson hjá Glitni og Magnús Gunnarsson hjá Kaupþingi hafa sagt af sér. Í bréfi sem þeir hafa sent til Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra segja þeir að samstarfið í stjórnum bankanna hafi gengið vel en í ljósi þess að ný ríkisstjórn hafi tekið við völdum hafi orðið „eðlilegar pólitískar áherslubreytingar og mannabreytingar,“ eins og þeir orða það.

Bróðir barnaníðings dæmdur fyrir misnotkun á barnungri dóttur sinni

Karlmaður var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að misnota dóttur sína ítrekað frá árunum 2006 til nóvember 2008. Dóttir hans er þriggja og hálfs árs gömul í dag. Þá var amma barnsins einnig grunuð um verknaðinn til að byrja með en síðan var fallið frá þeim gruni. Hálfbróðir mannsins er sjálfur dæmdur barnaníðingur samkvæmt dómsorði en hann er núna búsettur í Taílandi.

Marsibil skráði sig í Samfylkinguna

Marsibil Sæmundardóttir sem starfað hefur sem óháður varaborgarfulltrúi síðan í ágúst þegar hún sagði sig úr Framsóknarflokknum er gengin til liðs við Samfylkinguna. Marsibil segist ekki hafa getið skráð sig í stjórnmálaflokk fyrr en hún væri fullviss og sannfærð um að þar ætti hún heima. Hún hefur nú fundið sinn flokk.

Ásdís Halla ætlar ekki á þing

Ásdís Halla Bragadóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Garðabæ, hefur ákveðið að bjóða sig ekki fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna þingkosninga í vor. „Fyrir fjórum árum ákvað ég að snúa mér að fyrirtækjarekstri og hætta í stjórnmálum.

Misskilinn forseti

Ólafur Ragnar Grímsson forseti hefur þrisvar sinnum þurft að leiðrétta erlendar fréttir um sjálfan sig síðan bankarnir hrundu. Ólafur hefur verið duglegur að ræða við erlenda fjölmiðla sem margir hverjir virðast misskilja orð forsetans. Nýjasta dæmið eru ummæli er varða innistæður sparifjáreigenda í Þýskalandi en áður hafði BBC misskilið forsetann sem og norskur sendiherra sem sat með honum hádegisverðarfund.

Velferðarvakt hleypt af stokkunum

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í morgun að stofnuð verði velferðarvakt í samvinnu ríkis, sveitarfélaga, aðila vinnumarkaðarins og fleiri aðila til að fylgjast með félagslegum og fjárhagslegum afleiðingum bankahrunsins á einstaklinga og fjölskyldur og gera tillögur um viðbrögð. Í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu segir að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, muni skipa hóp til að stýra verkefninu, samhæfa upplýsingaöflun og gera tillögur um viðbrögð.

Móðir segir son sinn ekki ofbeldisfullan

„Hann er ekki ofbeldisfullur, hann hefur aldrei ráðist á neinn eða gert neinum neitt," segir móðir mannsins sem situr í gæsluvarðaldi, grunaður um aðild að andláti konu sem fannst látin í dúfnakofa í Hafnarfirði á fimmtudaginn. Maðurinn, sem er 37 ára og jafngamall konunni, bjó með henni í tvo mánuði. Hann var handtekinn aðfaranótt föstudagsins og úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í kjölfarið.

Loftmengun yfir heilsuverndarmörkum í borginni

Líklegt er að loftmengun verði yfir heilsuverndarmörkum í dag. Kalt er í lofti, lítill raki og logn og götur þurrar. Í tilkynningu frá Umhverfis- og samgöngusviði borgarinnar segir að bæði svifryk (PM10) og köfnunarefnisdíoxíð (NO2) gæti því farið yfir mörkin við helstu umferðargötur á höfuðborgarsvæðinu.

Frjálslyndir velja sér þingflokksformann á morgun

Jón Magnússon þingmaður hefur sagt sig úr Frjálslynda flokknum en hann hefur verið þingflokksformaður síðan Kristinn H. Gunnarsson lét af því embætti. Nýr formaður verður skipaður á þingflokksfundi á morgun klukkan 16:00. Vísir tók púlsinn á þingflokknum, ræddi við alla þingmenn hans og spurði hver væri líklegastur.

Sjá næstu 50 fréttir