Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjörutíu prósent færri út í janúar Fjörutíu prósent færri Íslendingar fóru frá Leifsstöð til útlanda í janúar síðastliðnum, samanborið við sama mánuð í fyrra. Þeir voru 16 þúsund í ár en 31 þúsund í fyrra þannig að samdrátturinn nemur 15 þúsund manns. 10.2.2009 07:22
Leita loðnu sem aldrei fyrr Tvö skip eru byrjuð loðnuleit út af Suðurströndinni ásamt hafrannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni og tvö til viðbótar eru á leið til leitar. 10.2.2009 07:19
Nýr meirihluti í bæjarstjórn Blönduóss Nýr meirihluti var myndaður í bæjarstjórn Blönduóss í gærkvöldi eftir að fyrrverandi meirihluti sprakk vegna ágreinings um laun bæjarstjórans. 10.2.2009 07:16
Fiskibátur í vandræðum vegna rafmagnstruflana Tveir menn á litlum fiskibáti lentu í erfiðleikum í nótt vegna rafmagnstruflana um borð. Þeir voru í stöðugu sambandi við land en ekki þótti tilefni til að senda björgunarskip til móts við þá. Í stað þess að fara til Dalvíkur, eins og til stóð, fóru þeir skemmstu leið til Siglufjarðar, þar sem gert verður við rafkerfið. 10.2.2009 07:10
Innbrot í Ölduselsskóla Brotist var inn í Ölduselsskóla í nótt og þaðan stolið skjávarpa. Þjófurinn er ófundinn. Þá var gerð tilraun til að brjótast inn í Breiðholtsskóla undir morgun en þjófurinn virðist hafa lagt á flótta áður en hann hafði ráðrúm til að taka eitthvað til handargagns. Hann er líka ófundinn. 10.2.2009 07:08
AGS benti á brotalamir í seðlabankafrumvarpi Forsætisráðuneytinu hafa borist tæknilegar ábendingar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um frumvarp um breytingar á yfirstjórn Seðlabankans, sem liggur nú fyrir viðskiptanefnd Alþingis. Ekki liggur fyrir hvers kyns athugasemdirnar eru. 10.2.2009 04:00
Norðurlöndin sjái um íslenskt loftrýmiseftirlit Utanríkisráðherra segir það áhugaverða hugmynd í nýrri norrænni skýrslu að Norðurlöndin taki saman við loftrýmiseftirliti Atlantshafsbandalagsins yfir Íslandi. Eftir sé þó að ræða hana nánar. 9.2.2009 22:15
Íslandshreyfingin stefnir á þingframboð „Eins og staðan lítur út núna stefnum við að framboði í öllum kjördæmum og miðum okkar starf við það,“ segir Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar, aðspurður hvort að flokkurinn muni bjóða fram í næstu þingkosningum. Í kosningunum vorið 2007 hlaut flokkurinn 3,3% fylgi og engan mann kjörinn. 9.2.2009 21:21
Guðjón vill vera formaður áfram „Ég hafði ekki hugsað mér annað. En vika er langur tími í pólitík," sagði Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, spurður hvort hann muni gefa kost á sér sem formaður á landsþingi flokksins um miðjan mars. Guðjón segist ekki hafa tekið ákvörðun um annað en að gefa kost á sér til áframhaldandi þingmennsku og formennsku. Hann hræðist ekki slag um formannsembættið. 9.2.2009 20:56
Blaðamaðurinn segir forsetahjónin samrýmd en ólík Bandarískur blaðamaður sem tók umdeilt viðtal við forsetahjóninn á Besstastöðum segir það hafa verið ákaflega sérstakt að hluta á hjónin þrasa um hvað mætti birta í viðtalinu og hvað ekki. Hjónin séu greinilega samrýmd, en afar ólík. 9.2.2009 20:15
Dalai Lama væntanlegur til Íslands Dalai Lama handhafi Friðarverðlauna Nóbels og andlegur og veraldlegur leiðtogi Tíbeta, er væntanlegur til landsins og mun dvelja á Íslandi dagana 1.-3. júní næstkomandi. Þetta er í fyrsta sinn sem Dalai Lama heimsækir Ísland en hann hefur heimsótt fjölda landa undanfarin 50 ár, ýmist sem gestur trúfélaga, ríkisstjórna eða í boði einkaaðila. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. 9.2.2009 19:26
Umsögn AGS verði birt opinberlega Forsætisráðuneytið hefur þegar óskað eftir því við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn að sem fyrst verði send formleg umsögn um Seðlabankafrumvarpið svokallaða sem ekki sé bundin trúnaði, og verði birt opinberlega þegar hún berst og kynnt viðskiptanefnd Alþingis sem hefur frumvarp til laga um breytingar á lögum um bankans nú til umfjöllunar. 9.2.2009 18:50
Davíð reyndi að hrista blaðamenn af sér Davíð Oddsson var hvergi sjáanlegur í Seðlabankanum í morgun en þar komu tæplega eitthundrað mótmælendur saman til að krefjast þess að hann víki burt. Davíð sýndi snilldartakta þegar hann hristi blaða og fréttamenn af sér við Landspítalann. 9.2.2009 18:38
Jóhanna ætlar ekki að eyða tíma og þræta við Davíð Forsætisráðherra segir ríkisstjórnina í kappi við tímann og hún ætli ekki að elta ólar við einstaka ávirðingar Davíðs Oddssonar í sinn garð. Frumvarp ríkisstjórnarinnar um Seðlabankann var afgreitt til nefndar í dag og segir Jóhanna mikilvægt að málið verði afgreitt sem fyrst. 9.2.2009 18:29
Jarðgöng í stað Mýrargötustokks Útlit er fyrir að jarðgöng verður grafin undir Mýrargötu í stað stokksins sem áætlaður var í góðærinu. Efnt verður til hugmyndasamkeppni um allt gamla hafnarsvæðið og Örfirisey. Allir mega taka þátt, ekkert skilyrði er að vera drátthagur. 9.2.2009 19:45
Evrópubúar sólgnir í þorsklifur í dós Þau voru þrjú í fyrravor í litlu fjölskyldufyrirtæki í Grindavík að sjóða niður þorsklifur í dósir. Nú eru Evrópubúar orðnir svo sólgnir í lifrina þeirra að þau eru komin með tuttugu manns í vinnu og tugþúsundir dósa rúlla nú af færibandinu á degi hverjum. 9.2.2009 19:45
Margt þarf að skoða í tengslum við bankahrunið Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, boðaði til blaðamannafundar í dag og kynnti starfsemi embættisins. Auk Ólafs hafa fjórir verið ráðnir: þeir Grímur Grímsson , Hólmsteinn Gauti Sigurðsson, og Sveinn Ingiberg Magnússon og Sigurður Tómas Magnússon. Þeir hófu störf í síðustu viku og gera ráð fyrir að funda nánar með samstarfsaðilum sínum, s.s. ríkisskattstjóra og fjármálaeftirlitinu í þessari viku. 9.2.2009 19:24
Einungis verið að ryðja bankastjórunum út Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að með frumvarpi ríkisstjórnarinnar um breytingar á Seðlabankanum sé einungis verið að ryðja ákveðnum einstaklingum úr vegi. „Þetta er mjög gallað frumvarp. Þetta er samið í flýti. Þetta er mjög vanbúið frumvarp,“ sagði Geir í þættinum Ísland í dag fyrr í kvöld. 9.2.2009 19:10
AGS sendi ríkisstjórninni ábendingar varðandi Seðlabankafrumvarp Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sendi ríkisstjórninni um helgina óumbeðið ábendingar varðandi frumvarp hennar um Seðlabanka íslands. Forsætisráðherra vissi ekki af ábendingunum fyrr en eftir umræður á Alþingi í dag. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn óskar eftir trúnaði um innihald ábendinganna, en forsætisráðherra hefur óskað eftir því að þeim trúnaði verði aflétt. Ábendingarnar eru sagðar vera tæknilegs eðlis. 9.2.2009 18:36
Norrænir utanríkisráðherrar vilja auka aðstoð á Gaza Norrænu utanríkisráðherrarnir lýstu í dag yfir áhyggjum sínum vegna ástandsins á Sri Lanka þar sem um 250.000 óbreyttir borgarar hafa lokast inni á átakasvæðum. Þá sögðu utanríkisráðherrarnir að bráð nauðsyn væri á að auka aðstoð við Palestínumenn á Gaza. Ráðherrarnir funduðu í dag í Ósló og stýrði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, fundinum. 9.2.2009 17:37
Jón segir skilið við Frjálslynda Jón Magnússon tilkynnti við upphaf þingfundnar í dag að hann hefði sagt sig úr Frjálslynda flokknum og þingflokki flokksins. Hann mun sitja á Alþingi fram að kosningum utan flokka. Jón settist á þing fyrir Frjálslynda flokkinn í maí 2007 og í september sl. var hann kjörinn þingflokksformaður flokksins. 9.2.2009 17:18
Fíkniefnaleit í FB Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði að fíkniefnum í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í hádeginu í dag. Á undanförnum árum hefur lögreglan nokkrum sinnum farið þessara erinda í skólann en niðurstaðan hefur ávallt verið sú sama. Þar hafa engin fíkniefni fundist. Fíkniefnaleitarhundur frá tollinum var notaður við aðgerðina í dag. 9.2.2009 17:08
Katrín skipar nýja stjórn LÍN Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, hefur skipað nýja fulltrúa menntamálaráðherra og fjármálaráðherra í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna til næstu tveggja ára frá 9. febrúar 2009. 9.2.2009 17:03
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti stjórnmálaflokkur landsins með 26 prósent samkvæmt netkönnun sem Reykjavík síðdegis á Bylgjunni lét gera fyrir sig. Alls greiddu 4.300 manns atkvæði og var aðeins eitt atkvæði á hverja ip-tölu. Sé tekið mið af þeim sem tóku afstöðu til flokka þá mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 34 prósent í fylgi. 9.2.2009 16:46
Dánarorsök konunnar enn óljós Bráðabirgðaniðurstaða krufningar hefur ekki varpað ljósi á dánarorsök konu á fertugsaldri, sem fannst látin í Kapelluhrauni, sunnan Hafnarfjarðar, á fimmtudag. 9.2.2009 16:42
Leyfir takmarkaðar loðnuveiðar í rannsóknarskyni Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, hefur því nú ákveðið að heimila takmarkaðar loðnuveiðar íslenskra skipa í rannsóknaskyni. Um er að ræða 15.000 tonna kvóta. 9.2.2009 16:34
Ekki til svo mikið sem minnisblað um ákvörðun Einars Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra segir að ekki hafi verið til svo mikið sem eitt minnisblað í ráðuneytinu um ákvörðun forvera síns um að gefa út veiðiheimildir til næstu fimm ára á hrefnum og langreyðum. Hann gagnrýnir einnig fátæklegan lagagrunn sem liggur að baki ákvörðuninni og skilur ekki hversvegna forverar sínir hafi ekki endurskoðað lögin sem eru frá fimmta áratug síðustu aldar. Einar segir Steingrím flækja málin. 9.2.2009 16:08
Seðlabankafrumvarp fer í viðskiptanefnd Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur dregið frumvarp sitt um breytingar á lögum um Seðlabankann til baka. Tvö frumvörp komu fram sem voru samhljóða utan þess að frumvarp Jóhönnu gerði ráð fyrir því að málið færi fyrir efnahags- og skattanefnd en frumvarp þriggja þingmanna Frjálslynda flokksins gerir ráð fyrir að málið fari fyrir viðskiptanefnd. 9.2.2009 15:44
Skráir sig í Frjálslynda flokkinn - og á atvinnuleysisbætur Vörubílstjórinn Sturla Jónsson, sem fór fremstur í flokki vörubílstjóra sem mótmæltu háu bensínverði síðasta sumar, er búinn að missa öll vinnutækin sín, auk þess sem hann skráði sig í Frjálslynda flokkinn og hyggur þar á pólitískan frama. Flokkurinn er þó ekki það eina sem hann er búinn að skrá sig í - Sturla er líka búinn að skrá sig á atvinnuleysisbætur. Sturla ekki á sjö daganna 9.2.2009 15:34
Loðnutorfan ekki nógu stór Loðnan sem fannst út af Ingólfshöfða gefur því miður ekki tilefni til að gefa út loðnukvóta. Þetta segir Sveinn Sveinbjörnsson, leiðangursstjóri um borð í Árna Friðrikssyni. 9.2.2009 15:21
Bréf Eiríks og Ingimundar birt Seðlabankinn hefur nú birt svarbréf þeirra Eiríks Guðnasonar og Ingimundar Friðrikssonar til Jóhönnu Sigurðardóttur, en svarbréf Davíðs Oddonar hefur þegar verið birt eins og flestir vita. Í bréfunum eru bankastjórarnir að svara tilmælum forsætisráherra um að þeir láti sjálfviljugir af störfum. Þeir Eiríkur og Davíð hyggjast ekki verða við þeirri bón en Ingimundur ætlar sér að hætta. 9.2.2009 14:42
Fundu gríðarstóra loðnutorfu við Ingólfshöfða Áhöfnin á Lundey NS sigldi nú undir morguninn fram á gríðarstóra loðnutorfu suður af Ingólfshöfða. Torfan var 14 mílna löng, um 600 til 1000 metra breið og þykkt hennar var um 10 til 30 faðmar. 9.2.2009 14:25
Össur tekur við Stoltenberg skýrslunni Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tók í dag, fyrir hönd norrænna starfsbræðra sinna, við skýrslu Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkis- og varnarmálaráðherra Noregs, um norrænt samstarf í utanríkis- og öryggismálum. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að skýrslan hafi verið kynnt á fundi fundi norrænu utanríkisráðherrana sem haldinn var í Ósló í dag. 9.2.2009 14:22
Mótmælandinn búinn að kæra hagfræðinginn Hermann Valsson mótmælandi hefur kært Ólaf Klemensson hagfræðing hjá Seðlabankanum fyrir árás. Hermann segir Ólaf hafa bakkað á sig í morgun fyrir utan bankann en Ólafur hefur kært Hermann fyrir að skemma bíl sinn. Vitni að atvikinu segir Ólaf hafa bakkað á Hermann. 9.2.2009 12:59
Von á bráðabirgðaniðurstöðum krufningar í dag Vonast er til að bráðabirgðaniðurstöður krufningar í tengslum við andlát konu sem fannst í dúfnakofa í Hafnarfirði fyrir helgi liggi fyrir síðdegis. Sambýlismaður konunnar var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna gruns um að hann hefð átt aðild að láti hennar. 9.2.2009 12:49
Lögreglumenn: Metnaðarleysi fjárveitingarvaldsins Landsamband lögreglumanna segir það lýsa metnaðarleysi fjárveitingarvaldsins gagnvart lögreglunni, að ekki séu til brynvarðar bifreiðar eins og til stóð að fá lánaðar frá dönsku lögreglunni vegna óeirða við opinberar byggingar á dögunum. 9.2.2009 12:32
Þrjú frumvörp um Seðlabanka lögð fram Svo gæri farið að forsætisráðherra verði undir í atkvæðagreiðslu á Alþingi í dag, þegar ákveðið verður í hvaða nefnd frumvarp hennar um Seðlabankann verður sent. Greidd verða atkvæði um tvö frumvörp um Seðlabanka Íslands á Alþingi í dag, að lokinni fyrstu umræðu um þau. Annars vegar er frumvarp forsætisráðherra og hins vegar frumvarp þriggja þingmanna Frjálslynda flokksins. 9.2.2009 12:27
Davíð á Landspítalanum Ekkert hefur sést til Davíðs Oddssonar við Seðlabankann í morgun. Fréttamaður fréttastofu sá hinsvegar til Davíðs þar sem hann ók bíl sínum að Landspítalanum við Hringbraut. 9.2.2009 11:58
Ólafur Ragnar og Dorrit rífast í blaðaviðtali Forsetafrúin Dorrit Moussiaeff segist hafa varað við efnahagshruninu á Íslandi lengi vel í viðtali við glanstímaritið Condé Nast Portfolio. 9.2.2009 11:57
Innbrot í Rauða húsið Brotist var inn í veitingastaðinn Rauða húsið á Eyrarbakka aðfaranótt laugardags. Þaðan var stolið sjóðvél og skjávarpa. Hluti þýfisins fannst í sandnámu vestan við Eyrarbakka. 9.2.2009 11:00
Díselolía lækkar Vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði á dieselolíu síðustu daga hefur Bensínorkan ákveðið að lækka verð á Orkustöðvunum um 5 krónur. Almennt verð á diesel verður eftir breytingu 159,1 króna. 9.2.2009 10:26
Hagfræðingur Seðlabankans hyggst kæra mótmælanda „Hann var að lemja bílinn með hnefa og kylfu," segir hagfræðingurinn Ólafur Klemensson, en mótmælandi lamdi í bílinn hans og dældaði að sögn Ólafs þegar hann var á leið til vinnu í Seðlabankanum í morgun. Aðspurður segist Ólafur ætla að kæra mótmælandann fyrir að hafa unnið skemmdarverk á grárri Nissan bifreið sem hann ekur um á. 9.2.2009 09:48
Segir starfsemi Seðlabankans ganga sinn vanagang Stefán Jóhann Stefánsson ritstjóri hjá Seðlabankanum segir starfsemi bankans ganga sinn vanagang. Um hundrað mótmælendur haf nú tekið sér stöðu við bílageymslu bankans sem og aðalinngang. Stefán segist ekki geta tjáð sig um það hvort Davíð Oddsson sé mættur til vinnu en mótmælendur vilja Davíð úr Seðlabankanum. 9.2.2009 09:46
Um hundrað mótmæla Seðlabankastjórum - myndir Um það bil hundrað manns eru nú að mótmæla fyrir utan Seðlabanka Íslands vopnuð búsáhöldum. Það var Hörður Torfason, forsprakki Radda Fólksins, sem boðaði mótmælin á Laugardaginn. 9.2.2009 09:05
Að minnsta kosti 13 skip við gulldepluveiðar Fjölveiðiskipin eru aftur byrjuð gulldepluveiðar suður af landinu eftir brælu í gær. Að minnsta kosti þrettán skip eru nú á Grindavíkurdýpi og fara brátt að berast aflatölur. 9.2.2009 07:15