Fleiri fréttir

Segja tölur um gjaldþrot ýktar

Ekki er raunhæft að ætla að 3.500 fyrirtæki verði gjaldþrota á árinu, eins og tölur sem Credit Info á Íslandi hefur tekið saman gefa til kynna. Þetta segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra. Hann segir að hér sé skuldastaða fyrirtækjanna tekin miðað við gengi krónunnar eins og það sé í dag. Það sé ekki raunhæft viðmið, enda vitað að gengið eigi eftir að styrkjast.

Frjálslyndir funduðu í framsóknarvígi

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, og þingflokksformaðurinn Jón Magnússon funduðu með ríflega sjötíu Íslendingum á Klöru­bar á Kanaríeyjum á laugardag. Barinn hefur hingað til verið þekktur sem mikið vígi framsóknarmanna og þeir reglulega haldið þar fundi.

Ríkisfyrirtæki bíða úrskurðar kjararáðs

Stjórnir fyrirtækja í eigu ríkisins fara yfir tilmæli ríkisstjórnarinnar um að lækka laun helstu stjórnenda á næstunni. Talið er að niðurstaða kjararáðs varðandi launalækkun æðstu embættismanna og stórra hópa í þjónustu ríkisins geti lagt línuna fyrir ríkisfyrirtæki og er því beðið eftir niðurstöðu kjararáðs. Undirbúningur kjararáðs hefst á næstunni og má búast við að niðurstaða liggi fyrir síðar í janúar.

Mikil aðsókn á landsfund

Allflest félög í Sjálfstæðisflokknum hafa gengið frá skráningu landsfundarfulltrúa sinna samkvæmt upplýsingum sem fengust á skrifstofu flokksins. Mikill áhugi á fundinum er talinn stafa af stöðu efnahagsmála á Íslandi auk þess sem ákvarðanir um stefnu flokksins í Evrópumálum liggja fyrir fundinum.

Svo sannarlega ekkert lamb að leika sér við

„Lambið er mjög sprækt og ljónstyggt svo að það er mjög erfitt að nálgast það,“ segir Hlynur Sigurðarson, formaður björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ, sem ásamt þremur öðrum björgunarsveitarmönnum og sex bændum gerði árangurslausa tilraun til að ná lambi af syllu í Úlfarsfelli í gær.

Verka fisk við Malavívatn

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur sett upp fiskverkunaraðstöðu í þorpinu Madzedze við Malavívatn. Aðstaðan gæti hugsanlega orðið fyrirmynd fleiri slíkra umhverfis Malavívatn. „Framtíðin verður að dæma um hvort vel hafi til tekist og hvort þetta verði fiskimannafjölskyldum til framdráttar með aukinni fæðuöflun,“ er haft eftir Stefáni Kristmannssyni, verkefnastjóra fiskimála hjá ÞSSÍ í Malaví, í tilkynningu.

Náttúrulegu skilyrðin góð

Síðasta ár var metár í innvigtun mjólkur en rúmum 126 milljónum lítra af mjólk var skilað til samlaga innan Samtaka afurðastöðva á árinu.

Segir umræðuna í sjálfheldu

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra útilokar ekki lengur að látið verði á það reyna hvaða árangur gæti náðst í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Hann telur það nauðsynlegt í ljósi þess endurmats sem nú fer fram í Evrópumálum í kjölfar bankahrunsins. Hann segir hins vegar ljóst að samningsmarkmið slíkra viðræðna yrðu út frá hagsmunum Íslands og gengu lengra en hjá öðrum þjóðum.

Endurskoðun fer á fullt

Formenn og samninganefnd Alþýðusambandsins, ASÍ, hefur átt fund með forystu opinberra starfsmanna í því skyni að taka upp samningaviðræður um að framlengja kjarasamninga sem losna um miðjan febrúar. Upp úr viðræðum við ríkið slitnaði fyrir jól.

Sjósundkona er maður ársins

Birna Jóhanna Ólafsdóttir, sundkona og lyfjafræðingur, hefur verið kjörin íþróttamaður ársins 2008 á Álftanesi.

Arðgreiðslur í stað tekna skattavandamál

„Í ljósi breytinga í þjóðfélaginu þarf að taka skattalöggjöfina til gagngerrar endurskoðunar,“ segir Birkir Jón Jónsson, fulltrúi Framsóknarflokks í efnahags- og skattanefnd. „Þá þarf að gæta meira jafnræðis milli þeirra sem reka einkahlutafélög og fá tekjur í gegnum arðgreiðslur og almennra launamanna.“ Hann segir fulla ástæðu til að endurskoða skattkerfið, þannig að það verði einfalt, en tekið sé tillit til aðstæðna fjölskyldna.

Endurskoða ætti fyrirkomulag við ráðningar dómara

Fulltrúar allra flokka í allsherjarnefnd Alþingis telja ástæðu til að endurskoða fyrirkomulag við skipanir dómara, bæði við héraðsdóma og Hæstarétt. Þeir vilja hins vegar ganga mislangt í þeim efnum.

Íslenskur eldisfiskur til Evrópu

HB Grandi hefur flutt út 50 tonn af eldisþorski til Evrópu. Fiskurinn kemur úr tilraunaeldi fyrirtækisins í Berufirði og hefur verið tvö ár í sjó. Um hágæðahráefni er að ræða segir Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri fyrirtækisins.

Tónleikum verður fækkað

„Við ætlum ekki að grípa til uppsagna nema í allra, allra ýtrustu þörf og vonum að til þess þurfi ekki að koma," segir Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Nóg af fiski en erfitt að veiða

„Það er nóg af henni hérna en það er bara málið að koma henni í pokann og halda henni þar,“ sagði Gylfi Viðar Guðmundsson, skipstjóri á Hugin VE, í gær þar sem hann var við tilraunaveiðar á norrænni gulldeplu.

Betra að fá lánað en staðgreiða

Neytendur sem staðgreiða vörur geta verið í lakari réttarstöðu en þeir sem borga með raðgreiðslum fari fyrirtækið í þrot, segir talsmaður neytenda. Dæmi eru um að fólk sitji uppi með gallaðar og jafnvel ónýtar vörur sem það fær ekki bætt vegna þess að fyrirtækið sem seldi því vöruna hefur skipt um kennitölu.

Ríkisskattstjóri rannsakar fleiri greiðslukort

Þrjátíu erlend greiðslukort hafa bæst við í rannsókn Ríkisskattstjóra á notkun kortanna hér á landi eftir að tímabil rannsóknarinnar var lengt. Alls eru því 60 erlend greiðslukort til skoðunar. Íslenskir eigendur kortanna notuðu erlendu kortin hér á landi og gátu þannig komist hjá því að greiða skatt af tekjum sínum.

Uppstokkun á ríkisstjórninni væntanleg

Uppstokkun á ríkisstjórninni er talin í bígerð. Í þingliði stjórnarinnar er rætt um að flokkarnir víxli á utanríkis- og fjármálaráðuneyti, og jafnvel fleiri ráðuneytum, og að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fari í menntamálin frekar en fjármálin.

Læknir ætlar í mál við ríkið vegna uppsagnar

Stjórn sjúkrahússins á Akureyri beitir starfsfólk sitt ofbeldi, segir forstöðumaður dagdeildar á geðsviði sjúkrahússins. Hann ætlar í skaðabótamál við ríkið, vegna meintrar ólöglegrar uppsagnar.

Sameining til að verja heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hvetur menn til að skoða reynsluna af sameiningu heilbrigðisstofnana á Austurlandi og Suðurlandi. Hörð mótmæli berast nú gegn sameiningum annarsstaðar á landsbyggðinni. Hann viðurkennir að margir stjórnendur muni missa vinnuna.

Eltingarleikur við ölvaðan ökumann

Lögregla á Suðurnesjum handtók í morgun mjög ölvaðan ökumann eftir eftirför um götur Reykjanesbæjar. Maðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og ók utan í lögreglubifreiðina við eftirförina.

Telur kosningar líklegar fyrir lok kjörtímabils

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra telur líklegt að kosið verði áður en kjörtímabilinu lýkur árið 2011. Þetta sagði hún í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.

Segja mannslífum stefnt í hættu

Starfsmannafélag Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi mótmælir harðlega öllum hugmyndum um stórfellda sameiningu heilbrigðisstofnana, sem kynntar voru á fundi 7. janúar. Í tilkynningu frá félaginu segir að engin haldbær gögn hafi verið lögð fram sem sýni að um raunsparnað sé að ræða og engin fagleg rök hafi komið fram fyrir sameiningunni. Þjónusta við íbúana muni skerðast verulega og mannslífum sé stefnt í hættu.

Drykkjulæti og sprengingar í Reykjavík í nótt

Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni í Reykjavík. Flest voru útköllin vegna hávaða frá samkvæmum í heimahúsum eða sprengingum, en skotgleði landans virðist lítið hafa dvínað þó langt sé liðið á janúar.

Aðeins eðlilegar gengisvarnir

Forsvarsmenn Existu hafna því að félagið hafi veikt íslensku krónuna með því að taka stöðu gegn henni, eins og fulltrúar Landssambands íslenskra útvegsmanna hafa haldið fram.

Mótmæltu hreppaflutningum á Akureyri

Ríflega 270 manns tóku þátt í mótmælagöngu gegn hreppaflutningum á gamla fólkinu á Akureyri í dag. Gengið var frá Samkomuhúsinu niður á Ráðhústorg. Rósa Eggertsdóttir og Edward Huijbens töluðu, og eftir að tókust mótmælendur í hendur og hugleiddu réttlæti.

Kannabisræktun í Grafarholti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Grafarholti í gær. Við húsleit á staðnum fundust um 70 kannabisplöntur, þar af margar á lokastigi ræktunar. Jafnframt var lagt hald á ýmsan búnað sem tengdist starfseminni. Kona á fertugsaldri var handtekin í þágu rannsóknar málsins. Hún hefur áður komið við sögu hjá lögreglu vegna fíkniefnamála.

Góð mæting á Austurvöll

Fjölmenni er á Austurvelli, þar sem mótmæli á vegum Radda fólksins fer fram, og er völlurinn fullur af fólki. Mótmælin hafa farið friðsamlega fram. Ræðumenn í dag eru Lilja Mósesdóttir hagfræðingur, Þorvaldur Þorvaldsson trésmiður og Lárus Páll Birgisson sjúkraliði.

Unnið fram á nótt við Ósárbrú

Unnið er af krafti við að steypa brú yfir Ósá, sem er framhald að Bolungarvíkurgöngum. Starfsmenn Vestfirskra Verktaka, undirverktaka Ósafls unnu fram á nótt í gær við brúarsmíðina. Brúin er 30m löng og í dekkið á henni fóru um 280 rúmmetrar af steypu. Búið er að sprengja rúmlega 1400 metra af þeim 5156 metrum sem þarf að sprengja fyrir Bolungarvíkurgöngin.

Björn Bjarna skrifar bók um Evrópumálin

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur skrifað bók um tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Björn greindi frá þessu á heimasíðu sinni í gær og sagðist með þessu vilja efla umræður um Evrópumálin. Bókin, sem nefnist Hvað er Íslandi fyrir bestu? kom úr prentun í gær. Hún fer sölu og kynningu í bókaverslunum eftir helgi, en það er útgáfufélagið Ugla sem gefur bókina út.

Versnandi veður á Norðurlandi

Veður fer versnandi á Norðurlandi frá Skagafirði austur að Melrakkasléttu. Í tilkynningu frá Vegagerðinni er spáð vaxandi ofanhríð og skafrenningi og afar takmörkuðu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum. Dregur úr ofanhríð og vindi undir kvöldið.

Lágt olíuverð hindrar nýja orkugjafa

Lægra olíuverð minnkar verulega hvatann til að finna nýja orkugjafa og erfiðar efnahagsaðstæður seinka tilkomu nýrra orkugjafa um einhver ár. Þetta kemur fram í nýrri eldsneytisspá sem Orkuspárnefnd hefur gefið út til næstu áratuga.

Fjöldi mótmælafunda í dag

Niðurskurði í heilbrigðiskerfinu verður víða mótmælt í dag. Borgarafundur verður í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði klukkan 14, en þar vonast menn til að heilbrigðisráðherra verði meðal gesta. Klukkan 15 verður mótmælaganga á Akureyri, frá Samkomuhúsinu að Ráðhústorginu. Þar er hreppaflutningum á gamla fólkinu mótmælt, sem og lokun geðdeilda, uppsögnum ljósmæðra og skerðingu á þjónustu fjórðungssjúkrahússins.

Skíðasvæðin í Hlíðarfjalli og Oddsskarði opin

Vont veður veldur því að mörg skíðasvæði verða lokuð í dag þrátt fyrir að ekki vanti snjóinn. Veðrið er bærilegra hjá öðrum, og verða skíðasvæðin í Hlíðarfjalli og Oddsskarði opin í dag.

Hálka um land allt

Færð er slæm um mest allt land og hálka í öllum landshlutum. Hálka er á Reykjanesbraut. Á Suðurlandi er hálka og hálkublettir. Snjóþekja er á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á Vesturlandi er snjóþekja, hálka og hálkublettir. Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði.

Rólegheitanótt um land allt

Nóttin var með rólegasta móti um allt land. Þrír voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu. Þá barst Lögreglu fremur óvanaleg tilkynning um að skipstjóri væri ölvaður og beið eftir að hann kæmi í land við Reykjavíkurhöfn. Lögreglan á Selfossi tók einn fyrir fíkniefnaakstur. Þá varð ein bílvelta á Skeiðarvegi seint í gærkvöldi. Tvennt var í bílnum og sluppu ómeidd.

Bara fuglinn fljúgandi kemst á sjúkrahúsið

Bæjarstjórn Vesturbyggðar bendir á að á milli sunnan- og norðanverðra Vestfjarða kemst enginn nema fuglinn fljúgandi í allt að 8 mánuði á ári vegna erfiðra samgangna og mótmælir harðlega fyrirhugaðri sameiningu Heilbrigðisstofnunarinnar á Patreksfirði við Heilbrigðisstofnunina á Ísafirði.

Bjarni tekur við embætti Björns

Björn Bjarnason lætur af embætti dóms- og kirkjumálaráðherra að loknum landsfundi Sjálfstæðisflokksins um næstu mánaðamót. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er ákveðið að Bjarni Benediktsson alþingismaður taki við embættinu.

Sérstakur saksóknari rannsaki gengisfallið

Forsvarsmenn útgerðarinnar spyrja hvort bankarnir og eigendur þeirra hafi svindlað og krefjast rannsóknar. Útgerðinni voru seldir gengissamningar sem gerðu ráð fyrir sterkri krónu. Bankarnir og eigendurnir veðjuðu á veikingu.

Slökkviliðið kallað að Áslandsskóla

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Áslandsskóla í Hafnarfirði laust fyrir klukkan tíu í kvöld. Þar hafi brunaboði farið í gang. Talið er að flugeldi hafi verið skotið inn í skólann og reykurinn sem hlaust af hafi kveikt á brunavarnarkerfinu. Ekki var um neinn eld að ræða.

Tæknifræði í fyrsta sinn á vegum HÍ

Kennsla hefst í lok mánaðarins í tæknifræði við Háskóla Íslands í fyrsta sinn og er námið samstarfsverkefni HÍ og Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs. Nemendur verða skráðir við HÍ og munu útskrifast þaðan, en námið fer fram hjá Keili á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Formenn stjórnarflokkanna segja litlar líkur á kosningum

Forsætisráðherra segir ólíklegt að boðað verði til alþingiskosninga á þessu ári. Ágreiningur stjórnarflokkanna um hvort boða eigi til sérstakrar þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildaviðræður að Evrópusambandinu kallar ekki á stjórnarslit að mati formanna stjórnarflokkanna.

Átta virkjanir gæti þurft fyrir Helguvík

Ráðamenn Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja eru sammála um að fyrirtækin muni ekki getað útvegað alla þá orku sem álver í Helguvík þarf innan sjö ára, þrátt fyrir að þau réðust í byggingu sex virkjana. Tvöhundruð megavött hið minnsta vantar upp á, sem samsvarar því að virkja þyrfti til viðbótar bæði við Bitru og Urriðafoss til að ná endum saman.

Flokkarnir fá hálfan milljarð króna

Styrkir til stjórnmálaflokkanna voru ekkert skornir niður í meðförum Alþingis. Flokkarnir fá rúmlega hálfan milljarð króna í styrki frá ríkinu á þessu ári, samkvæmt nýsamþykktum fjárlögum.

Sjá næstu 50 fréttir