Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segist hafa verið að verja hagsmuni hluthafa Kaupþings Gunnar Páll Pálsson formaður VR segir það hafa verið skyldu sína sem stjórnarmanns í Kaupþingi að verja hagsmuni hluthafanna sem hann telur að hafi verið gert með niðurfellingu ábygða starfsmanna vegna lána sem tekin voru vegna kaupréttarsamninga. 5.11.2008 21:13
Farþegi í Herjólfi tekinn með fíkniefni Við leita hjá farþega sem var að koma með farþegaskipinu Herjólfi til Vestmannaeyja sl. mánudagskvöld fannst nokkuð magn fíkniefna. Um var að ræða 50 gr. af amfetamíni og um 120 gr. af íblöndunarefni sem notað er til að drýgja efnið. 5.11.2008 20:56
Forvarnardagur forsetans í boði Actavis Forvarnardagurinn verður haldinn á morgun 6. nóvember að frumkvæði forseta Íslands. Dagskrá forvarnardagsins verður haldin meðal 9. bekkinga í flestum grunnskólum landsins í þriðja skiptið í ár og vekur verðskuldaða athygli fjölmiðla. 5.11.2008 20:35
Sátt um stokk á Miklubraut-Kringlumýrarbraut Niðurstaða samráðs um framkvæmdir við Miklubraut - Kringlumýrarbraut er að leggja áherslu á stokk á Miklubraut frá Snorrabraut/Rauðarárstíg austur fyrir gatnamót við Kringlumýrarbraut. 5.11.2008 19:53
Grafa keyrði á fólksbíl Nokkuð harður árekstur varð á mótum Grænásvegar og Reykjanesbrautar í Reykjanesbæ um sex leytið í kvöld. Þar kom grafa akandi Reykjanesbraut og keyrði á fólksbílinn sem var að fara yfir gatnamót, með þeim afleiðingum að skófla sem var framan á gröfunni fór inn í hlið bílsins. 5.11.2008 19:46
Glæsibifreiðar hluti af launakjörum nýju bankastjóranna Bifreiðahlunnindi eru hluti af launakjörum stjórnenda Nýja Glitnis og Landsbankans, auk einhverra annarra lykilstjórnenda. Leynd hvílir enn yfir launakjörum bankastjóra Nýja Landsbankans. 5.11.2008 18:30
Starfsmenn Kaupþings gætu átt yfir höfði sér fangelsisdóm Helgi Magnús Gunnarsson yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra segir það geta reynst starfsmönnum Kaupþings dýrkeypt að bankinn hafi afskrifað skuldir þeirra vegna hlutabréfakaupa í bankanum. Þetta kom fram í fréttum Sjónvarpsins í kvöld. Helgi Magnús segir að brotin geti varðað allt að sex ára fangelsi. 5.11.2008 19:23
Framkvæmdarstjóri í Glitni ekki jafn heppinn og Birna Maður sem gegndi stöðu framkvæmdastjóra í Glitni var ekki jafn heppinn og Birna Einarsdóttir, bankastjóri bankans. Hann keypti hlutabréf í bankanum sama dag og Birna en þau kaup voru ekki ógild vegna tæknilegra mistaka. Fjölmiðlaráðgjafi segir að mál Birnu þurfi flýtimeðferð hjá fjármálaeftirlitinu því umræðan hafi skaðleg áhrif á bankann. 5.11.2008 18:45
Lykilstarfsmenn Kaupþings ekki reknir Bankastjóri Nýja Kaupþings segir að lykilstarfsmönnum, sem fengið höfðu sérstaka lánafyrirgreiðslu hjá bankanum, verði ekki vikið frá störfum, enda bendi ekkert til saknæms athæfis. Komi hins vegar annað í ljós verði tekið á því með viðeigandi hætti. 5.11.2008 18:36
Sveitarfélög vilja netþjónabú Greenstone Sjö sveitarfélög vítt og breitt um landið hafa undirritað viljayfirlýsingu við fyrirtækið Greenstone um að taka frá aðstöðu undir netþjónabú, sem skapað gæti allt að fjörutíu ný störf á hverjum stað. Fyrsta búið gæti tekið til starfa eftir rúm tvö ár, - svo fremi sem nýr sæstrengur verði kominn milli Íslands og Bandaríkjanna. 5.11.2008 18:30
Fjórmenningarnir játa samræði við stúlkuna Fjórir menn á þrítugsaldri eru grunaðir um að hafa nauðgað 17 ára stúlku í heimahúsi í vikunni. Þeir hafa allir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald en tekin verður skýrsla af stúlkunni fyrir dómi á morgun. 5.11.2008 18:30
Makaskiptasamningar margfaldast milli ára Þinglýstir kaupsamningar um fasteignir í nýliðnum október reyndust 312 talsins á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt upplýsingum á vef Fasteignamats ríkisins. Fækkaði samningunum um tæp 14 prósent frá fyrra mánuði og um 67,5 prósent frá árinu á undan. Makaskiptasamningum hefur fjölgað mikið á síðustu mánuðum miðað við sömu mánuði í fyrra. 5.11.2008 17:36
Fréttablaðið eykur forskot sitt á Morgunblaðið Lestur á Fréttablaðinu jókst um 3,06% á tímabilinu ágúst-október ef miðað er við sama tímabil í fyrra. Hann var 62,1% í fyrra en 64,0% á þessu tímabili í ár. Á sama tíma dróst lestur á Morgunblaðinu saman um 6,50%, fór úr 43,1% í 40,3%. Þessar tölur miðast við aldurshópinn 12-80 ára. 5.11.2008 17:13
Furða sig á hvernig farið var með kaupréttarsamninga ASÍ lýsir furðu sinni og hneykslan á því hvernig farið var með kaupréttarsamninga æðstu stjórnenda í bönkum og fjármálafyrirtækjum í aðdraganda þess að bankarnir féllu. 5.11.2008 17:00
Síbrotamaður áfram í varðhaldi Hæstiréttur hefur staðfest að karlmaður, sem dæmdur var í þriggja ára fangelsi í síðustu viku fyrir ýmis brot, skuli sæta gæsluvarðhaldi þar til áfrýjunarfrestur í máli hans rennur út. 5.11.2008 16:42
Vilja sekta þá sem nýta sér forgangsakreinar í leyfisleysi Sex þingmenn Samfylkingar, Vinstri - grænna og Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram frumvarp þar sem lagt er til að heimilt sé að sekta ökumenn fyrir að nýta sér forgangsakreinar fyrir strætisvagna og leigubifreiðar. 5.11.2008 16:28
Athugasemd frá Þorsteini Siglaugssyni Vegna fréttar Stöðvar 2 af ráðningu Þorsteins Siglaugssonar til ráðgjafarstarfa fyrir Reykjavík Energy Invest vill Þorsteinn koma eftirfarandi á framfæri: 5.11.2008 16:21
Nýir valdhafar í Bandaríkjunum geta orðið góðir vinir Íslendinga „Það hefur verið lögð á það áhersla núna á undanförnum vikum að við þurfum að styrkja okkar sess í veröldinni og okkar orðspor og afla okkar traustra og nýrra vina. 5.11.2008 16:21
Einn laus úr haldi í fíkniefnaframleiðslumáli Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur látið einn þremenninganna sem handteknir voru í tengslum við rannsókn á fíkniefnaverksmiðju í Hafnarfirði lausan. 5.11.2008 16:15
50 milljónir stöfnuðust í Á allra vörum Yfir 50 milljón króna söfnuðust í styrktarátakinu Á allra vörum sem fram fór í sumar en því er ætlað að safna fé til að styðja kaup á nýjum tækjabúnaði á Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands. Fjölmargir tóku þátt í átakinu með kaupum á varagljáa frá Yves Saint Laurent , auk þess sem ráðist var í sérstakan söfnunarþátt þar sem 35,2 milljónir krónur söfnuðust til styrktar átakinu. 5.11.2008 16:06
Reyndi að slá lögreglumenn með rörtöng Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 26 ára karlmann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa hótað lögreglumönnum og slegið til þeirra með rörtöng í tvígang þegar lögregla hafði afskipti af honum. 5.11.2008 16:00
Nám í flugvirkjun hefst á Íslandi Keilir og Icelandair Technical Services undirrituðu 30. október samstarfsmaning sem felur í sér að fyrirtækin munu í sameiningu hefja kennslu í flugvirkjun í september á næsta ári. 5.11.2008 15:46
Kjör Obama hefur mikla þýðingu fyrri bandarískt samfélag Kjör Baracks Obama sem forseta Bandaríkjanna hefur gífurlega þýðingu fyrir bandarískt samfélag að mati Silju Báru Ómarsdóttur, aðjúnkts við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og forstöðumanns Alþjóðamálastofnunar. 5.11.2008 15:17
Þjóðadagur á Húsavík Í tilefni 50 ára afmælis Húsavíkurdeildar Rauða kross Íslands verður haldinn þjóðadagur í bæjarfélaginu laugardaginn 15. nóvember. 5.11.2008 15:13
Greiða sjálfboðaliðum 15.000 kr. fyrir prófun lýsisstíla Læknadeild Háskóla Íslands óskar eftir sjálfboðaliðum til þátttöku í rannsókn á kremi og endaþarmsstílum sem unnið er úr þorskalýsi og ætlað er að mæla þol heilbrigðra einstaklinga gagnvart þessari nýjung sem þróuð er og unnin að öllu leyti hér á landi. 5.11.2008 15:02
Sjálfstæðisþingmenn segja þingið máttlaust Þingmenn úr bæði stjórn og stjórnarandstöðu kölluðu eftir því í dag að Alþingi fengi meira hlutverk í því að taka ákvarðanir um framtíðarstefnu landsins og að framkvæmdavaldið sæti ekki eitt að því. Sögðu þingmenn Sjálfstæðisflokksins meðal annars að þingið væri máttlaust. 5.11.2008 14:31
Rætt um óróamenn í Framsókn Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins, var spurður að því hvort hann væri eini maðurinn í Framsóknarflokknum sem með viti væri og hvort aðrir væru óróamenn sem vildu vinna flokknum tjón með umræðu um Evrópumál. 5.11.2008 14:07
Upptaka annars gjaldmiðils en krónunnar nauðsynlegt skref ,,Full aðild að ESB myndi færa okkur traustari gjaldmiðil en við höfum núna en henni myndu einnig fylgja ákveðnir ókostir. Ísland þyrfti að gangast undir sameiginlega fiskveiðistefnu ESB, sem veikir stöðu sjávarútvegsins og við yrðum hluti af sístækkandi stjórnkerfi sambandsins," segir Árni Helgason í pistli á vefsíðunni Deiglunni. 5.11.2008 14:03
37 milljónir sendar til Kongó Rauði kross Íslands hefur sent 37 milljónir króna til leitarþjónustuverkefnis Rauða krossins í Kongó sem stuðlar að því að sameina fjölskyldur sem hafa sundrast vegna átaka. 5.11.2008 13:47
Ellefu þúsund Íslendingar þakka Færeyingum á Netinu Rétt liðlega ellefu þúsund manns hafa skráð nafn sitt við þakkarkveðju til Færeyinga, sem ákváðu á dögunum að lána Íslendingum 300 milljónir danskra króna eða um 6 milljarða íslenskra. Algjör pólitísk sátt var um málið í Færeyjum og er víst að mörgum Íslendingum hlýnaði um hjartaræturnar við að heyra fréttirnar. 5.11.2008 13:46
Samstarf við einkaaðila betra en samkeppni ,,Á meðan Íslandspóstur er ríkisfyrirtæki á það að sinna sinni kjarnastarfsemi og ekki vera í samstarfi eða samkeppni við einkaaðila hvort sem það er á þessu sviði eða öðrum," segir Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður og bætir við að samkeppnisaðstaða einkarekinna fyrirtækja við slíkar aðstæður geti aldrei talist jöfn eða sanngjörn. 5.11.2008 13:42
„Peningafalsarinn" fundinn Ráðgátan um Davíðsseðilinn er upplýst. Eins og greint var frá í morgun komst einhver óprúttinn aðili upp með að greiða fyrir vörur í verslun í Reykjavík með tíu þúsund króna seðli sem skartaði mynd af Davíð Oddssyni Seðlabankastjóra. Seðillinn er vitanlega ekki löggildur enda enginn tíu þúsund króna seðill til enn sem komið er. Uppruna seðilsins má hins vegar rekja til lokaverkefnis í Listaháskóla Íslands í fyrra þegar Óðinn Þór Kjartansson, nemi í grafískri hönnun sýndi tvær fullar töskur af Davíðsseðlum. 5.11.2008 13:35
Boða annan borgarafund og vilja flokksformenn á staðinn Hópur manna sem stóð fyrir opnum borgarafundi í Iðnó fyrir rúmri viku blæs til annars fundar á laugardaginn kemur á sama stað vegna efnahagsástandsins. 5.11.2008 13:06
Vegagerðin stöðvar útboð á verkum Vegagerðin hefur stöðvað öll frekari verkútboð og afturkallað þau útboð, sem þegar voru komin í auglýsingu. 5.11.2008 12:57
Geir býst við að samstarf við Bandaríkin styrkist með kjöri Obama Geir H. Haarde forsætisráðherra hlakkkar til að hitta Barack Obama á næsta leiðtogafundi NATO og gerir ráð fyrir að hið góða samstarf Íslands og Bandaríkjanna muni styrkjast eftir að hann taki við í Hvíta húsinu. 5.11.2008 12:48
Lífsýni í rannsókn vegna meintrar nauðgunar Lögregla hefur tekið lífsýni úr fjórum mönnum og 17 ára stúlku vegna rannsóknar á því hvort mennirnir hafi nauðgað stúlkunni. Engin játning liggur fyrir í málinu. 5.11.2008 12:18
Greiddi fyrir vörur með fölsuðum Davíðsseðli Kreppan á Íslandi hefur tekið á sig nýja og áður óþekkta mynd í formi peningafölsunar. 5.11.2008 11:59
Nagladekk kosta borgina 300 milljónir á ári Kostnaður Reykjavíkurborgar vegna notkunar nagladekkja er sennilega um 300 milljónir króna á ári. Ef engin bifreið á götum borgarinnar væri búin nagladekkjum gæti Reykjavíkurborg sennilega sparað um það bil 300 milljónir króna árlega. 5.11.2008 11:53
Rannsaka enn margra milljarða millifærslur frá Kaupþingi Skilanefnd Kaupþings hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að ekkert liggi fyrir um að fjármunum hafi verið með ólögmætum hætti ráðstafað úr sjóðum bankans eða að peningar hafi verið færðir til landa þar sem erfitt er að komast að því hver reikningseigandinn er, eins og gefið hafi verið til kynna í fréttum Stöðvar 2 og Vísis í gær. Enn sé verið að rannsaka starfsemi bankans. 5.11.2008 11:49
Undirskriftum fjölgar um 7500 á tveimur dögum Rúmlega 10200 manns hafa ritað nafn sitt á vefsíðu þar sem Færeyingum er þakkað fyrir veitta aðstoð og hefur þeim fjölgað um ríflega 7500 á tveimur dögum. 5.11.2008 11:34
Skilorðsbundinn dómur fyrir bensínþjófnað Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrri að hafa í tvígang stolið bensíni á bensínstöðvum Olís í Reykjavík á árunum 2006 og 2007. 5.11.2008 11:27
Ríkisstjórnin ber ábyrgð á auknu atvinnuleysi og hruni heimilanna Miðstjórn Samiðnar lýsir fullri ábyrgð á hendur íslenskum stjórnvöldum vegna vaxandi atvinnuleysis og efnahagslegu hruni heimilanna. 5.11.2008 11:25
Dæmd fyrir að svíkja fé út af bankareikningi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í mánaðar óskilorðsbundið fangelsi og konu í jafnlangt skilorðsbundið fangelsi fyrir að svíkja 300 þúsund kónur út af reikningi annars manns hjá Kaupþingi. 5.11.2008 11:10
Formaður félagsmálanefndar gagnrýnir nýju bankana ,,Ég hef verið óánægður með bankana vegna þess að mér hefur fundist það taka alltof langan tíma að samræma reglur á milli þeirra og tryggja það að fólk viti hvað er framundan í sambandi við íbúðalánin," segir Guðbjartur Hannesson formaður félags- og tryggingamálanefndar Alþingis. 5.11.2008 10:55
Vill að ríkisstjórnin tileinki næsta ár skapandi hugsun og nýsköpun Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, leggur til að ríkisstjórnin tileinki næsta ár skapandi hugsun og nýsköpun og vill að stjórnmálaflokkar á Alþingi sameinist um lausn efnahagsvandans í stað þess að deila. 5.11.2008 10:52