Greiða sjálfboðaliðum 15.000 kr. fyrir prófun lýsisstíla Atli Steinn Guðmundsson skrifar 5. nóvember 2008 15:02 Það er Lýsi hf. sem annast framleiðslu stílanna. MYND/Lýsi hf.
Læknadeild Háskóla Íslands óskar eftir sjálfboðaliðum til þátttöku í rannsókn á kremi og endaþarmsstílum sem unnið er úr þorskalýsi og ætlað er að mæla þol heilbrigðra einstaklinga gagnvart þessari nýjung sem þróuð er og unnin að öllu leyti hér á landi. Það er Oculis, sprotafyrirtæki í eigu Einars Stefánssonar augnlæknis og Þorsteins Loftssonar, prófessors í eðlislyfjafræði, sem stendur á bak við rannsóknina en Lýsi hf. leggur til hráefni til framleiðslu vörunnar. „Þetta byggist á því að lýsið hefur bæði bólgueyðandi og sýkladrepandi áhrif. Þetta er verkefni sem við vinnum í samvinnu við Þorstein og fleiri í lyfjafræðideild og læknadeild Háskólans í þeim tilgangi að nýta þessa virkni lýsis og fitusýra í lyfjatilgangi ef svo má segja," útskýrir Einar. „Við vorum að rannsaka lýsisaugndropa og það leiddi okkur út í þetta," bætir hann við. Þrjár læknisskoðanir og notkun í tvær vikur Orri Þór Ormarsson barnaskurðlæknir kemur að rannsókninni ásamt Einari og Þorsteini. „Um er að ræða krem og stíla sem byggjast á lýsi. Við ætlum að rannsaka hversu vel þetta þolist í heilbrigðum einstaklingum. Þeir sem taka þátt í rannsókninni koma þrisvar sinnum í læknisskoðun og nota svo kremið og stílana í tvær vikur," segir Orri. Hann segir framhaldsrannsókn svo fara fram síðar og ákvarði hún hvort lyfið geti virkað við ýmsum kvillum, svo sem góðkynja endaþarmssjúkdómum og hægðatregðu. Þeim, sem hafa áhuga á að taka þátt í rannsókninni, er bent á að senda Helgu Halblaub hjá Landspítalanum póst á netfangið helghalb@landspitali.is. Ætlunin er að rannsaka 30 manna hóp og greiðast 15.000 krónur fyrir þátttökuna.
Mest lesið Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Innlent Hljóp á sig Innlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira