Fleiri fréttir

Þórunn furðar sig á ályktun BÍ

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra furðar sig á því að Blaðamannafélag Íslands skuli saka hana um ritskoðun frétta og að félagið skuli álykta sérstaklega um myndatökur af hræi hvítabjarnar sem felldur var við bæinn Hraun á Skaga í síðustu viku. Blaðamannafélagið gagnrýndi yfirvöld í gær fyrir að takmarka aðgang fréttamanna að ísbjarnarhræinu og sagði það ekki í verkahring yfirvalda að ákveða hvað væri myndað og hvað sagt.

Miltisbrandshræ í gámi í átta mánuði

Ekki er mögulegt að brenna miltisbrandssmitaðar dýraleifar og jarðveg hér á landi enn sem komið er. Þetta segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir í samtali við Vísi. Leifar af dýrum sem fundust 2. nóvember í fyrra á svipuðum slóðum og beinin í Garðabæ í gær eru enn í geymslu.

Óttast að verðbólga aukist frekar vegna veikningar krónunnar

Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ, segir nýjar verðbólgutölur ekki koma á óvart en segir stöðu efnahagsmála grafalvarlega. Hann hefur jafnframt áhyggjur af því að verðbólgan eigi enn eftir aukast styrkist gengi krónunnar ekki á ný.

Olíufélögin lækka bensínið

Gunnar Karl Guðmundsson forstjóri Skeljungs segir fyrirtækið ekki ætla að elta uppi þá sem komu af stað tölvupósti þar sem fólk er hvatt til þess að sniðganga fyrirtækið. Hann segir bensínverð hér á landi hækka þegar það hækki erlendis og lækka þegar það lækki erlendis. Öll olíufélögin hafa lækkað verð hjá sér í morgun.

Viljayfirlýsing vegna álvers á Bakka framlengd

Fulltrúar Alcoa, ríkisstjórnarinnar og Norðurþings framlengdu í dag viljayfirlýsingu um rannsóknir á hagkvæmni þess að reisa álver á Bakka við Húsavík, til 1. október árið 2009. Um er að ræða framlengingu og uppfærslu á viljayfirlýsingu þessara aðila sem undirrituð var í maí árið 2006 eins og segir í tilkynningu frá aðilunum þremur.

Jarðvegur og bein úr Garðabæ verður brennt

Lögregla hefur vaktað byggingarsvæði við Lækjarfit í Garðabæ þar sem dýrabein fundust við uppgröft í gær en grunur leikur á að þau séu sýkt af miltisbrandi.

Engin skólpmengun mælst í Nauthólsvík

Umhverfiseftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar segir að mengun í Skerjafirði og Nauthólsvík hafi verið undir umhverfismörkum undanfarin fjögur ár.

Tafir á umferð á Vogavegi vegna framkvæmda

Vegfarendur um Vogaveg mega búast við truflunum á umferð í dag og næstu daga vegna vinnu við mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Vogavegar. Unnið er við tengingu nýrra gatnamóta við Vogaveg eins og segir í tilkynningu Vegagerðarinnar.

Verðbólgan 12,7 prósent í júní

Verðbólga í júní mælist 12,7 prósent og hefur hækkað um 0,4 prósentustig á milli mánaða. Þetta kom í ljós í dag þegar Hagstofan birti nýjar tölur yfir vísitölu neysluverðs en hún hækkaði um 0,9 prósent milli maí og júní. Fara þarf um 18 ár aftur í tímann til þess að finna viðlíka verðbólgutölur.

Dýrabein rannsökuð áfram

Rannsókn á dýrabeinum sem fundust í húsgrunni við Lyngholt í Garðabæ í gærkvöldi verður haldið áfram í dag. Grunur leikur á að þau séu smituð af miltisbrandi.

Ölfusárbrú opin á ný eftir malbikunarframkvæmdir

Ölfusárbrúnin var opnuð aftur fyrir 20 mínútum síðar og er nú opin fyrir umferð í báðar áttir. Brúnni var lokað á miðnætti í gærkvöldi vegna malbikunarframkvæmda sem þar stóðu yfir í nótt. Til stóð að brúin yrði opnuð aftur klukkan fimm í morgun en verklokin töfðust aðeins. Umferð um brúnna er nú í eðlilegu horfi að sögn lögreglunnar á Selfossi.

Miltisbrandsaðgerðum frestað til morguns

Lögreglan og slökkviliðið hefur frestað aðgerðum á lóðinni þar sem dýrabein fundust í Garðabænum til morguns. Grunur lék á um að miltisbrandur kynni að leynast í beinunum. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir litla hættu á ferðum.

Bilun í gervihnetti Basel að kenna

"Nei, þetta var ekkert stress. Maður er ýmsu vanur," sagði Pétur Guðmundsson útsendingarstjóri hjá Rúv nokkrum mínútum eftir að leik Þýskalands og Tyrklands lauk með sigri Þjóðverja. Á hápunkti leiksins datt gervihnötturinn út og milljónir áhorfenda horfðu á auðan skjá.

Miltisbrandur í Garðabæ - íbúar með lokaða glugga

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu og lögreglan rannsakar nú dýrabein sem fundust í húsgrunni í Garðabæ. Grunur leikur á miltisbrandssmiti. Íbúi undrast samskiptaleysi af hálfu lögreglunnar. Hann hefur gluggana lokaða til vonar og vara.

Fresta ákvörðun um Droplaugarstaði

Velferðarráð Reykjavíkurborgar ákvað á fundi sínum í dag að fresta ákvörðun um hvort bjóða eigi út rekstur á hjúkrunarhemilinu Droplaugarstöðum. Minnihlutinn í ráðinu sakar meirihlutann um að halda stofnuninni í fjársvelti.

Gruna Olís ekki um bensínstríð

Gunnar Karl Guðmundsson, framkvæmdastjóri Skeljungs, segir tölvupóst þar sem fólk er hvatt til að sniðganga N1 og Shell fullan af rangfærslum. Hann grunar Olís ekki að standa á bak við hugsanlegt bensínstríð.

Áfangasigur - segir lögfræðingur systursona Fischer

"Það má segja að þetta sé áfangasigur," segir Guðjón Ólafur Jónsson, lögmaður systursona Bobby Fischer. Hæstiréttur ómerkti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði hafnað kröfum systursonanna um að dánarbúið yrði tekið til opinberra skipta.

Ómerkir úrskurð héraðsdóms um dánarbú Fischers

Hæstiréttur hefur ómerkt úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafnaði kröfum systursona Bobbys Fischer, fyrrverandi skákmeistara, um að dánarbú hans yrði tekið til opinberra skipta. Er málinu vísað aftur heim í hérað til löglegrar meðferðar.

SVÞ vilja aðildarviðræður við ESB

Samtök verslunar og þjónustu hvetja íslensk stjórnvöld til að lýsa yfir vilja til að undirbúa viðræður að aðild að Evrópusambandinu. Samtökin vilja að samhliða aðildarviðræðum fari fram ,,ítarlegar, hlutlausar og fordómalausar umræður á opinberum vettvangi um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu," eins og segir í tilkynningu frá SVÞ.

Kaþólskur prestur hjálpar syrgjandi Pólverjum

„Þeir hafa ekki fengið áfallahjálp en kaþólski presturinn í Keflavík hefur rætt við þá,“ segir Sveinn Ingvar Hilmarsson, vinnuveitandi og leigusali Pólverjanna, sem syrgja nú landa sinn sem lést eftir að hafa fengið höfuðáverka í híbýlum mannanna við Frakkastíg fyrir rúmum tveimur vikum.

Borga 2,6 prósent af heildarkostnaði ráðherrabíla

Ráðherrar greiða 2,6 prósent af heildarkostnaði við rekstur ráðherrabifreiða. Ráðherrar greiða skatt af bifreiðahlunnindum sínum og er samanlagur kostnaður þeirra rúmar 2,2 milljónir á ári. Á árunum 1998 til 2003 var meðalkostnaður á ári við rekstur bílanna 82,3 milljónir.

Ingibjörg Sólrún í Damaskus að ræða friðarmál

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fundaði í dag í Damaskus með sýrlenskum ráðamönnum um stöðu mála í Mið-Austurlöndum og málefni Íraks og Íran. Heimsóknin tengist áherslum ráðherra á málefni Mið-Austurlanda og nauðsyn þess að friður komist á fyrir botni Miðjarðarhafs eins og segir í tilkynningu utanríkisráðuneytisins.

Ákvörðun um Droplaugarstaði frestað

Velferðarráð Reykjavíkur ákvað á aukafundi sínum nú fyrir stundu að fresta ákvörðun um tillögu varðandi rekstrarform hjúkrunarheimilisins Droplaugarstaða við Snorrabraut fram í ágúst.

Kartöflur betri fyrir loftslagið en hrísgrjón

Borðaðu kartöflur í stað hrísgrjóna ef þú vilt vinna gegn loftslagsbreytingum. Þetta ráð kemur frá Moniku Pearson hjá sænsku matvælastofnuninni en hún hélt fyrirlestur um málið á námstefnu í Växjö í dag.

Gert ráð fyrir að yfirvinnubannið taki gildi

Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir félagið ekki gera ráð fyrir öðru en að boðað yfirvinnubann hjúkrunarfræðinga sem vinna hjá ríkinu taki gildi þann 10. júlí.

Skartgripasölumennirnir héldu leiðar sinnar í morgun

Rúmenarnir sem lögreglan á Selfossi handtók í gær fyrir ólöglega skartgripasölu hafa verið látin laus. Fólkið var handtekið í gær eftir að kvartað hafði verið yfir því að þau væru að selja verðlaust glingur sem fínasta skart. Að sögn lögreglunnar var fólkið vistað í fangageymslum lögreglunnar í nótt en þeim sleppt í morgun eftir að mál þeirra höfðu verið gerð upp.

Yngri heilabilunarsjúklingar látnir bíða dauðans í geymslu

Íslenska heilbrigðiskerfið gerir vart ráð fyrir að fólk undir 65 ára aldri greinist með heilabilunarsjúkdóm. Sérhæfð úrræði eru af skornum skammti og yfirleitt er sjúklingum einfaldlega komið fyrir á hjúkrunarheimilum með mun eldra fólki þar sem ekkert er ýtt undir andlega virkni.

Baráttan gegn Þjórsárvirkjunum ekki töpuð

Baráttan gegn Þjórsárvirkjunum er ekki töpuð, segir Sigþrúður Jónsdóttir, íbúi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Hún segir fleiri landeigendur íhuga málaferli gegn Landsvirkjun eftir að hreppsnefndin ákvað einróma í fyrrakvöld að setja tvær af þremur fyrirhuguðum virkjunum í Þjórsá inn á aðalskipulag.

Franskar herþotur æra Keflvíkinga

Íbúar í Reykjanesbæ hafa kvartað til bæjarfélagsins vegna hávaða frá Mirage þotum franska flughersins sem nú sér um loftrýmiseftirlit yfir landinu. Bæjarbúar segja að hávaðinn í vélunum sé mun meiri en hann var þegar Bandaríkjamenn voru hér á sínum tíma með sínar herþotur. Ekki hefur borið á kvörtunum hjá utanríkisráðuneytinu.

Vill ekki skapa vangaveltur um forstjórastöðu LSH

Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Aker-sjúkrahússins í Noregi, segir að hún vilji ekki skapa vangaveltur varðandi sig og forstjórastöðu LSH. Hulda hefur verið nefnd sem hugsanlegur forstjóri.

Segja flugumferðarstjóra ekki vinna mikla yfirvinnu

Flugstoðir ohf. hafna þeim fullyrðingum formanns Félags íslenskra flugumferðarstjóra að vinna þeirra sé keyrð á yfirvinnu. Eins og fram hefur komið hafa flugumferðarstjórar boðað til 20 vinnustöðvana frá og með föstudeginum og vilja með því knýja á um nýjan kjarasamning.

Mál séra Gunnars sent saksóknara í dag

Lögreglan á Selfossi hefur lokið rannsókn sinni á meintum kynferðisbrotum séra Gunnars Björnssonar, sóknarprests á Selfossi, og verður málið sent ríkissaksóknara í dag. Þetta staðfesti Elís Kjartansson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Selfossi, við Vísi.

Veltu bíl á Suðurstrandarvegi

Skömmu fyrir miðnættið í gærkvöldi barst lögreglunni á Suðurnesjum tilkynning um bílveltu á Suðurstrandarvegi rétt við Ísólfsskála. Þar höfðu ferðamenn velt bílaleigubíl sínum. Engin slys á fólki og komu farþegarnir sér sjálfir upp í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þar sem þeir voru á leið í flug.

Umboðsmaður átelur Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðuneytið vísaði til jafnréttislaga við skipu í stöðu embætti sendifulltrúa í utanríkisþjónustunni. Umboðsmaður Alþingis átelur Utanríkisþjónustuna fyrir það þar sem slíkt réði ekki úrslitum við stöðuveitinguna

Sjá næstu 50 fréttir