Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vel gengur að slökkva í sinu á Vatnsleysu Tilkynnt var um sinueld á Vatnsleysuströnd rétt fyrir sjö og er slökkvilið frá Suðurnesjum á staðnum. Ekki er um mikinn eld að ræða en svæðið er nokkuð stórt. Eyðibýli er á landinu en eldurinn er vestan við bæinn Minni Vatnsleysu. Björgunarsveitarmenn aðstoða við að slökkva í sinunni. 20.4.2008 19:04
Stofna varalið lögreglu á þessu ári Stefnt er að því að tvöhundurð og fjörtíu manna varalið lögreglu verði stofnað á þessu ári. Þekktasta útkall varaliðs lögreglu var þegar NATO aðildin var samþykkt á Alþingi fyrir nærri 60 árum. Ekki hefur verið heimild til að kalla út varalögreglu síðan 1996. 20.4.2008 18:35
Fjaran iðaði af lífi Fjaran við Gróttu iðaði af lífi í dag þegar haldinn var hinn árlegi Gróttudagur. Talið er að yfir þúsund manns hafi komið í eyjuna í dag og hafa aldrei fleiri tekið þátt. 20.4.2008 18:45
Aðgengi almennings að Hallargarðinum ekki skert Hollvinir Hallargarðsins, sem héldu stofnfund sinn í dag, vilja tryggja að almenningur hafi áfram fullan aðgang að Hallargarðinum í Reykjavík. Talsmaður tilvonandi kaupenda að Fríkirkjuvegi 11 segir ekki rétt að aðgengi almennings að garðinum, sem umlykur húsið, verði skert. 20.4.2008 18:45
Mótettur J.S: Bach í flutningi Kammerkórs Langholtskirkju Kammerkór Langholtskirkju heldur tónleika í Langholtskirkju kl. 20 í kvöld þar sem efnisskráin samanstendur af fjórum mótettum eftir Johann Sebastian Bach. Mótetturnar eru talin einhver glæsilegustu virtuósaverk sem hafa verið fyrir kór 20.4.2008 18:44
Dómsmálaráðherra segir skiptingu Suðurnesjalögreglu standa á Samfylkingunni Einungis stendur á þingflokki Samfylkingar að afgreiða uppskiptingu á lögregluembættinu á Suðurnesjum, segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra. Ríkisstjórnin sé búin að afgreiða málið fyrir sitt leiti. 20.4.2008 18:36
Utanríkisráðherra segir að íhuga verði alvarlega aðild að ESB Utanríkisráðherra segir að þingmenn verði að íhuga alvarlega aðild að Evrópusambandinu ætli þeir sér ekki að vera úr takti við almenning. Ný skoðanakönnun sýnir að tæplega sjötíu prósent þjóðarinnar vill hefja undirbúning að umsókn í ESB. 20.4.2008 18:31
Stofnandi Saving Iceland fyrir rétt á morgun Ólafur Páll Sigurðsson, stofnandi Saving Iceland, sem mótmælt hafa Kárahnjúkavirkjun síðustu ár, verður kallaður fyrir Héraðsdóm Austurlands á morgun ákærður fyrir eignaspjöll. Í tilkynningu frá samtökunum segir að Ólafur sé ákærður fyrir að valda tjóni á lögreglubifreið en að í raun hafi ökumaður bifreiðarinnar ekið á Ólaf. 20.4.2008 16:57
Guðni tekur ekki undir orð Valgerðar Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, segist ekkert hafa um ummæli Valgerðar Sverrisdóttur í hádegisfréttum Stöðvar 2 að segja. Þar lýsti Valgerður, sem er varaformaður Framsóknarflokksins, þeirri skoðun sinni að ríkisstjórnin ætti að hefja undibúning að aðildarviðræðum við Evrópusambandið nú þegar. 20.4.2008 15:10
Mótorhjólaslys í Naustagili á Húsavík Mótorhjólaslys varð í Naustagili á Húsavík um hádegisbil í dag. Tveir voru á hjólinu og segir lögregla að svo virðist vera sem ökumaðurinn hafi misst hjólið á hliðina. Ökumaður og farþegi slösuðust eitthvað en óljóst er um alvarleika meiðslanna. Þeir munu þó ekki vera í lífshættu að sögn lögreglu. Þeir voru fluttir til skoðunnar á heilbrigðisstofnun bæjarins. 20.4.2008 14:35
Vilja tryggja fullan og frjálsan aðgang að Hallargarðinum Samtökin Hollvinir Hallargarðsins voru stofnuð í Hallgargarðinum eftir hádegi. Tilgangur samtakanna er að reyna að koma í veg fyrir að væntanlegir kaupendur Fríkirkjuvegs 11 sem garðurinn tilheyrir fái yfirráð yfir garðinum og að gera þar viðhafnar innkeyrslu. 20.4.2008 14:25
Valgerður: Ríkisstjórnin hefji undirbúning að ESB umsókn Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, segir að ríkisstjórnin eigi að hefja undirbúning að ESB umsókn, enda sé það það sem þjóðin vilji og svigrúm sé til þess innan stjórnarsáttmálans. 20.4.2008 12:05
Fjölskyldudagur í Gróttu í dag Kvenfélagið Seltjörn og Skólaskrifstofa Seltjarnarness, standa fyrir fjölskyldudegi í Gróttu í dag á milli klukkan 11 og 14;30. Boðið verður upp á veitingar og skemmtilega stemmningu í Fræðasetrinu í Gróttu. 20.4.2008 11:31
Drengurinn fylltist skelfingu en gaf sig fram skömmu síðar Faðir piltsins sem ók á stúlku við Breiðholtsbraut í gærdag vill koma því á framfæri að sonur hans hafi ekki stungið af eftir slysið eins og greint var frá á Vísi í gær. Faðirinn segir að sonur hans hafi ekki séð hvað hann keyrði á en að hann hafi stansað. Þegar hann heyrði mikil læti hafi hann farið á taugum og ekið af stað. Hann stöðvaði skammt frá við verslun og hljóp til félaga síns. 20.4.2008 10:57
Hurðin þeyttist af hjörunum Sprenging varð í íbúð í Heiðarhverfi í Reykjanesbæ um ellefu leytið í gærkvöldi. Við sprenginguna þeyttist hurð af hjörunum og hurðarkarmurinn fylgdi í kjölfarið að því sem fram kemur á fréttavef Víkurfrétta. 20.4.2008 10:45
Óboðnir baðgestir á Selfossi Lögreglan á Selfossi stöðvaði tvo fyrir ölvunarakstur í bænum í nótt en að öðru leyti var nóttin róleg. Þó barst tilkynning um að fjórir einstaklingar hafi ákveðið að bregða sér í sundlaugina á Selfossi um hálffjögur í nótt. 20.4.2008 10:13
Kviknaði í bíl á ferð Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að kviknað væri í bíl í Bakkahverfinu í Breiðholti rétt fyrir klukkan sex í morgun. Bíllinn var á ferð en þegar slökkviliðið kom á staðinn voru bílstjóri og farþegar komnir út úr bílnum. Þau sakaði ekki en bílinn er töluvert skemmdur. Slökkviliðið var einnig kallað tvisvar út í gærkvöldi til að slökkva í sinu í Hafnarfirði. 20.4.2008 09:41
Óku of hratt á Reykjanesbrautinni Þrír ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í nótt. Sá sem hraðast ók mældist á hundrað fjörtíu og eins kílómetra hraða en hámarkshraði á brautinni er nítíu. 20.4.2008 09:31
Keyrði á barn í Breiðholti og stakk af Um tvöleytið í dag var keyrt yfir fót á barni við Breiðholtsbraut í Breiðholti. Ökumaðurinn stakk af en náðist síðar. Barnið var flutt á slysadeild og telst málið upplýst. 19.4.2008 19:36
Nýr framhaldsskóli í Kópavogi Nýr framhaldsskóli fyrir afreksíþróttamenn er í undirbúningi í Kórahverfi í Kópavogi. Samhliða því verður reist ein glæsilegasta íþróttaaðstaða landsins. 19.4.2008 18:53
REI verður ekki selt Borgarstjóri stendur fast á því að fyrirtækið REI verði ekki selt. Hann telur tillögu meirihluta stjórnar Orkuveitunnar, þess efnis að áhættuverkefni fyrirtækisins verði seld, ekki víkja frá þeirri stefnu sem stýrihópur um REI markaði. 19.4.2008 18:50
Tollstjórinn í Reykjavík vill frekari fækkun embætta Dómsmálaráðherra vill stía lögreglu og tollgæslu á Suðurnesjum í sundur til að bregðast við fjárhagsvanda embættisins. Það hefur verið gagnrýnt en fleiri eru sömu skoðunar og hann. 19.4.2008 18:43
Sjálfstæðisflokkurinn verður að fara að girða sig í brók Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn segir stefnu minnihlutans í málefnum REI vera skýra en bendir á að Sjálfstæðisflokkurinn skipti um skoðun frá degi til dags. Hann segir upphlaupið sem er í kringum REI núna eiga rætur að rekja til innbyrðis átaka meirihlutans en komi verkefnum REI lítið við. 19.4.2008 18:34
Vilhjálmur Þ: Allir sammála um að REI verði ekki í áhættufjárfestingum Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, segir fulla einingu í meirihlutanum að takmarka starfsemi REI við ráðgjöf og þróunarverkefni, sem ekki fylgi fjárhagsleg áhætta. Um þetta hafi tillaga meirihluta stjórnar OR kveðið í gær. 19.4.2008 18:02
Vinir Tíbets mótmæla í sjöunda sinn Félagið Vinir Tíbets mættu í sjöunda sinn fyrir utan kínverska sendiráðið í dag. í tilkynningu frá félaginu segir að þeim eina og hálfa mánuði sem liðinn er síðan þau hófu aðgerðir hafi lítið gerst hjá ráðamönnum landsins. 19.4.2008 15:23
Hollvinir Hallargarðsins hittast við Fríkirkjuveginn Á morgun sunnudaginn 20. apríl kl. 13 verða stofnuð Hollvinasamtök Hallargarðsins. Undirbúningshópurinn hafði auglýst opið hús að Fríkirkjuvegi 11 kl. 13-14 en síðdegis á föstudegi bárust boð um að búið væri að banna borgarminjaverði að sýna húsið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. 19.4.2008 14:47
Reykur í Turninum í Kópavogi - enginn eldur Tilkynnt var um reyk í Turninum í Kópavogi fyrir stundu. Slökkviliðið var með töluverðan viðbúnað og sendi lið sitt á staðinn. Síðan kom í ljós að enginn eldur var á staðnum og kom reykurinn frá iðnaðarmönnum sem voru að vinna með tjörupappa á þaki hússins. 19.4.2008 14:29
Vandi OR og REI ekki einungis Sjálfstæðismanna Björn Bjarnason dómsmálaráðherra skrifar pistil á heimasíðu sína í dag þar sem hann fjallar um Orkuveitu Reykjavíkur og REI. 19.4.2008 13:38
Ráðist gegn aðalatvinnuvegi heilla landshluta Félög Vinstri grænna í Skagafirði og Húnavatnssýslum skora á Alþingi að stöðva frumvarp ríkisstjórnarinnar sem galopnar á innflutning á fersku kjöti og kjötvörum til landsins. Með frumvarpinu er ekki einungis vegið að einstökum atvinnugreinum heldur afkomu heilu landshlutanna ásamt því að sjúkdómavörnum og öryggi neytenda er teflt í tvísýnu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum. 19.4.2008 11:36
Bílvelta á Þrengslavegi Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi valt bíll á Þrengslavegi nú fyrir stundu. Lítil sem enginn meiðsli urðu á ökumanninum sem komst sjálfur út úr bílnum. 19.4.2008 09:19
Ölvaður flugfarþegi handtekinn í Leifsstöð Ölvaður og æstur flugfarþegi var handtekinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöldi eftir að hann hafði veist að öryggisverði. Gisti maðurinn fangageymslur lögreglunnar í nótt og bíður yfirheyrslu þegar runnið er af honum. 19.4.2008 09:11
Segir alla ánægða með niðurstöðuna Allir þeir sem aðild eiga að borgarstjórnarmeirihlutanum eru ánægðir með þá niðurstöðu sem fékkst á fundi stjórnar Orkuveitunnar í dag, að sögn Gísla Marteins Baldurssonar borgarfulltrúa. 18.4.2008 20:50
Handteknir vegna vörslu fíkniefna Þrír karlmenn á þrítugsaldri voru í gærkvöldi og í nótt handteknir í Grindavík grunaðir um vörslu fíkniefna. 18.4.2008 19:47
Segist heppinn að vera á lífi Öryggisvörður sem varð fyrir lífshættulegri árás í 10-11 við Austurstræti segist heppinn að vera á lífi. Hann segir lækna hafa unnið kraftaverk. 18.4.2008 19:34
Líst vel á niðurstöðuna Ásta Þorleifsdóttir, varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, segir að sér lítist ákaflega vel á þá niðurstöðu sem hafi fengist á fundi stjórnarinnar í dag. 18.4.2008 19:22
Þrír árekstrar á stuttum tíma Þrír árekstrar urðu á svipuðum tíma hjá lögreglunni á Suðurnesjum í dag. Tveir árekstrar urðu rétt fyrir klukkan þrjú á Reykjanesbraut við Grænás og var annar þeirra mjög harður. Tvær bifreiðar voru ónýtar eftir harðari áreksturinn. 18.4.2008 18:54
Gagnrýnir umfjöllun um efnahagslíf Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að sér finnist að á stundum sé fjallað um ástand efnahagsmála af léttúð og skilningsleysi. Þetta kom fram í ræðu hans á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins, sem fram fór í dag. 18.4.2008 17:53
Lögreglan fær að taka munnvatnssýni Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að lögreglan hafi heimild til þess að taka munnvatnssýni úr karlmanni sem grunaður er um líkamsárás. 18.4.2008 17:30
„Þau verða að fara að gefa borgarbúum frí frá þessu.“ Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur segist hafa orðið vitni að gamalkunnum töktum á stjórnarfundinum í dag. Þegar lögð var fram tillaga um að gera úttekt á REI og losa fyrirtækið úr áhættusömum rekstri. Hún segir meirihlutann óboðlegann fyrir borgarbúa. 18.4.2008 17:12
Þetta er til háborinnar skammar Sigrún Elsa Smáradóttir fulltrúi Samfylkingarinnar segir nýjasta útspilið í Orkuveitu Reykjavíkur um málefni REI vera til háborinnar skammar. Eftir tæplega fimm tíma fundarhöld í dag segir Sigrún að tillagan rýri verðgildi fyrirtækisins. Minnihlutinn lét bóka tvær athugasemdir varðandi tillöguna. 18.4.2008 16:44
Fengu ekki leyfi fyrir auglýstu opnu húsi "Það var aldrei neitt leyfi gefið fyrir opnu húsi," segir Hrólfur Jónsson forstöðumaður framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar. 18.4.2008 16:43
Fá ekki að skoða Fríkirkjuveg Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar hefur afturkallað leyfi sem nýstofnuð Hollvinasamtök Hallargarðsins höfðu fengið til þess að sýna borgarbúum Fríkirkjuveg 11 undir leiðsögn borgarminjavarðar. 18.4.2008 16:22
REI verði losað úr áhætturekstri Fundi stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur var að ljúka í húsi Orkuveitunnar nú fyrir stundu. Þar var ekki lögð fram tillaga um að hefja undirbúning að sölu REI eins og greint var frá í Fréttablaðinu í morgun. Hinsvegar var rætt hvort hægt sé að losa REI út úr þeim verkefnum sem þykja of áhættusöm líkt og Vísir sagði frá í morgun. 18.4.2008 16:05
BSRB vill skammtíma samning Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, BSRB, hvetur til þess að þegar í stað hefjist viðræður við fjármálaráðuneytið um skammtíma samning. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn BSRB sendi frá sér í dag. 18.4.2008 15:38
Segir aðbúnað á geðdeild óviðunandi "Ég átti satt að segja von á því að það væri betur hlúð að þeim sem þarna liggja og þeirra sem þarna starfa," segir Árni Tryggvason leikari um aðbúnað sjúklinga og starfsfólks á geðdeild landspítalans. 18.4.2008 14:45