Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flutningabíll ók inn í hrossastóð, eitt hross aflífað Eitt hross drapst samstundis og aflífa þurfti annað vegna áverka, eftir að flutningabíll ók inn í hrossastóð á þjóðveginum á móts við bæinn Steinstaði í Öxnadal um klukkan ellefu í gærkvöldi. 15.4.2008 07:42
Grunaður um að hafa kveikt í sumarbústað Karlmaður, sem var fluttur á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun, eftir að eldur kom upp í sumarbústað í Miðfellslandi við Þingvallavatn aðfararnótt sunnudags, er grunaður um að hafa kveikt í bústaðnum. 15.4.2008 07:38
Margir ökumenn teknir á of miklum hraða í Kópavogi Sjötíu og tvö prósent ökumanna, sem óku um Dalsmára í Kópavogi á einni klukkustund í gær, mældust á of miklum hraða. 15.4.2008 07:34
Þrettán ungmenni fengu hvatningarverðlaun forseta Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti 13 ungmennum „Hvatningu forseta Íslands til ungra Íslendinga“ í heimsókn sinni til Skagafjarðar í dag. 14.4.2008 21:30
Neitar aðild að pólsku mafíunni Przemyslaw Plank, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í kvöld vegna gruns um aðild að hrottalegu morði í Póllandi, segist vera saklaus. 14.4.2008 20:23
Búið að handtaka eftirlýsta Pólverjann Búið er að handtaka Premyslaw Plank sem eftirlýstur var í Póllandi vegna gruns um aðild að morði þar í landi, eftir því sem Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík segir. 14.4.2008 19:13
Segir ástandið í miðbæ Reykjavíkur mjög alvarlegt Öryggismiðstöðin hefur þurft að fjölga öryggivörðum á ýmsum vaktstöðum á höfuðborgarsvæðinu til að bregðast við vaxandi ofbeldi. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir ástandið í miðbæ Reykjavíkur vera mjög alvarlegt. 14.4.2008 18:59
Sex teknir fyrir of hraðan akstur Sex ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í dag. Þeir mældust allir á meira en 120 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraðinn er 90 km/klst. Sá sem hraðast ók fór á 135 km/klst. 14.4.2008 18:38
Samið við ríkisstjórn Djíbúti um hagkvæmnisathugun á nýtingu jarðhita Gengið hefur verið frá samkomulagi milli Reykjavik Energy Invest og ríkisstjórnar Afríkuríkisins Djíbútí um gerð ítarlegrar hagkvæmniathugunar á nýtingu jarðhita í landinu. 14.4.2008 17:24
Krúnukúgarar fyrir rétt í Lundúnum Íslendingurinn Paul Aðalsteinsson kom fyrir rétt í Bretlandi í dag ásamt félaga sínum Sean McGuigan. Þeim er gefið að sök að hafa reynt að kúga fé út úr meðlim bresku konungsfjölskyldunnar. 14.4.2008 17:11
Síminn stuðlar að ábyrgari Netnotkun Síminn hefur ákveðið að bjóða ADSL viðskiptavinum sínum á einstaklingsmarkaði ókeypis aðgang að Websense. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að Websense sé „ein besta netvörn sem völ er á í heiminum í dag." Lausnin hefur fengið nafnið Netvari Símans og er veigamikill liður í að börn geti leitað sér upplýsinga og skemmtunar á Netinu á jákvæðan og öruggan hátt um leið og Netvarinn ver þau gegn viðsjárverðu efni. 14.4.2008 16:51
Tvennt dæmt fyrir aðild að TR-fjársvikum Þrítugur karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir aðild sína að stórfelldu fjársvikamáli í Tryggingastofnun ríkisins. Þá var 52 ára kona dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild sína að málinu. 14.4.2008 16:39
Einn áfram í gæsluvarðhaldi en hinir í farbann Einn af þeim sex sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna Keilufellsmálsins svokallaða var úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald nú síðdegis. Hinir fimm voru úrskurðaðir í farbann til 5.maí næstkomandi. 14.4.2008 16:39
Ráðist á ungan mann við skemmtistað á Selfossi Ungur maður var fluttur á heilsugæslustöðina á Selfossi aðfaranótt sunnudags eftir að ráðist var á hann við skemmtistaðinn Hvítahúsið í bænum. 14.4.2008 15:43
Grunaður brennuvargur fluttur á sjúkrahús með reykeitrun Lögreglan á Selfossi rannsakar nú bruna í sumarbústað í Þingvallasveit þar sem grunur er um að kveikt hafi verið í. 14.4.2008 15:36
Lýsismenn segjast tilbúnir með mengunarbúnað Lögmaður Lýsis kannar nú réttarstöðu þess með málshöfðun í huga vegna orða talsmanns íbúa í Þorlákshöfn sem mótmælt hafa því að fyrirtækið reki fiskhausaþurrkunarverksmiðju í bænum með tilheyrandi lyktarmengun. 14.4.2008 15:20
Hvalfjarðargöng lokuð næstu nætur Hvalfjarðargöng verða lokuð næstu nætur vegna viðhalds. Göngunum verður fyrst lokað í nótt og svo allar nætur til og með aðfaranótt föstudags. 14.4.2008 14:37
Rak meintan morðingja Premyslaw Plank, sem grunaður er um aðild að hrottalegu morði í Póllandi, hefur unnið sem iðnaðarmaður í Hafnarfirði undanfarnar vikur. Honum var sagt upp störfum á laugardaginn eftir að Fréttablaðið greindi frá því að handtökuskipan hefði verið gefin út á hendur honum. 14.4.2008 14:30
Dæmdur fyrir að slá mann í höfuðið með glerflösku Héraðsdómur Austurlands dæmdi í dag karlmann í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa slegið annan mann í höfuðið með glerflösku þannig að hann hlaut skurð á höfði. 14.4.2008 14:22
Geð- og kvensjúkdómalæknar spá í spilin „Konan á frjósemisskeiði til tíðahvarfa“ var yfirskrift ráðstefnu sem Geðlæknafélag Íslands stóð fyrir á Hótel Sögu á laugardag í samvinnu við Félag íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna. 14.4.2008 14:09
Þrír af hverjum fjórum óku of hratt Þrír af hverjum fjórum ökumönnum sem óku um Grænatún í Kópavogi á einni klukkustund á föstudag óku of hratt samkvæmt mælingum lögreglu. 14.4.2008 13:37
Falið að ræða við HB Granda vegna leigu á kvóta frá Akranesi Bæjarráð Akraness hefur falið formanni verkalýðsfélagsins á staðnum og bæjarstjóra að leita skýringa á því hjá HB Granda, hvers vegna fyrirtækið hefur leigt frá sér umtalsverðar veiðiheimildir á sama tíma að það sagði fjölda fiskvinnslufólks upp á Akranesi. 14.4.2008 13:00
Áhyggjuefni að ríkissjóður komi nær tómhentur út úr góðæri Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði, segir það áhyggjuefni að ríkissjóður komi nær tómhentur út úr góðæri síðustu ára þar sem hann hefði átt að nota tímann í að byggja upp gjaldaeyrisforðann. 14.4.2008 12:32
Pólverji hefur ekki gefið sig fram Pólverjinn sem eftirlýstur er í heimalandi sínu fyrir morð ætlar að gefa sig fram við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í dag. Engin handtökubeiðni hefur borist frá Póllandi og því getur lögreglan hér á landi lítið aðhafst. 14.4.2008 12:02
Íslensk stúlka býður upp á nektarsýningu á netinu Átján ára íslensk stúlka býður upp á nektarsýningu á netinu gegn greiðslu. Hægt er að sjá sýninguna í gegnum spjallforritiði MSN. Stúlkan sem kallar sig Kata segist hafa nóg að gera. 14.4.2008 11:49
Stöðugildum fjölgar ekki í samræmi við aukin verkefni Fjölgun stöðugilda hjá lögregluembættinu á Suðurnesjum er í engu samræmi við fjölgun íbúa á svæðinu og farþega sem fara um Keflavíkurflugvöll. Þetta kemur fram í samantekt sem embættið lét gera og Vísir hefur undir höndum. Frá árinu 2004 hefur lögreglumönnum í fullu starfi fækkað um ellefu, þeir voru 94 fyrir fjórum árum en í ár eru þeir 83. 14.4.2008 11:48
Tekinn tvisvar á sama degi langt yfir leyfilegum hámarkshraða Lögregla á Vestfjörðum hafði í gær tvisvar afskipti af ökumanni sem ók langt yfir leyfilegum hámarkshraða. 14.4.2008 11:31
Enn haldið sofandi eftir vélhjólaslys Karlmanni á þrítugsaldri sem slasaðist alvarlega í vélhjólaslysi við Blönduós í fyrradag er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. 14.4.2008 11:01
Brauðþjófur veittist að lögreglu Í dag er þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur ákæra á hendur manni á fertugsaldri sem gefið er að sök að hafa tekið brauðhleif ófrjálsri hendi í verslun Hagkaupa í Smáralind. 14.4.2008 10:54
Gæsluvarðhald rennur út Gæsluvarðhald yfir sex mönnum sem grunaðir eru um alvarlega líkamsárás í Keilufelli í síðasta mánuði rennur út í dag. 14.4.2008 10:51
Tekið á móti forsetahjónunum í Skagafirði Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff hófu í morgun opinbera heimsókn sína til Skagafjarðar. 14.4.2008 10:22
Þrír teknir á dag fyrir hraðakstur í umdæmi Hvolsvallarlögreglu Lögreglan á Hvolsvelli hefur tekið 340 manns fyrir hraðakstur í umdæmi sínu frá áramótum sem jafngildir því að rúmlega þrír að meðaltali séu teknir á dag. 14.4.2008 09:26
Nærri átta prósentum meiri afli í mars í ár en í fyrra Heildarafli íslenskra skipa í mars var nærri átta prósentum meiri en í sama mánuði í fyrra. 14.4.2008 09:11
Ökumaður slapp ómeiddur úr bílveltu Ökumaður , sem var einn í bíl sínum, slapp ómeiddur þegar bíllinn valt heila veltu út af veginum í Reykholtsdal í gærkvöldi og hafnaði aftur á hjólunum. 14.4.2008 08:06
Húsnæðisverð í borginni heldur áfram að lækka Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað um 0,4 prósent á síðustu fjórum vikum og húsnæðiskaupveltan er nú undir meðaltali síðustu tólf vikna. 14.4.2008 07:41
Fjórir teknir eftir innbrot í tölvuverslun í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra menn í nótt eftir að þeir brutust inn í tövluverslun í Kópavogi og stálu þaðan ýmsum dýrum tölvubúnaði. 14.4.2008 07:18
Grunur um íkveikju í eldavoða í Hafnarfirði Eldur kom upp í yfirgefnu íbúðarhúsi við Herjólfsgötu í Hafnarfirði um klukkan ellelfu í gærkvöldi og leilkur grunur á að kveikt hafi verið í því. 14.4.2008 07:03
Ákvörðun um inngöngu í ESB leysir ekki vanda Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir ákvörðun um inngöngu í Evrópusambandið ekki leysa þann vanda sem uppi er í dag. Þetta sagði hún í þættinum Mannamáli hjá Sigmundi Erni Rúnarssyni í kvöld. 13.4.2008 19:58
Skynsamlegast að lýsa yfir umsókn í ESB Þorvaldur Gylfason prófessor í hagfræði segir það skynsamlegasta sem ríkisstjórnin geti gert í þeim efnahagsþrengingum sem nú ríkja, sé að lýsa því strax yfir að Íslendingar hyggist sækja um aðild að Evrópusambandinu og myntbandalagi Evrópu. Ef dýpki á kreppu bankanna komi til greina að þjóðnýta bankanna til að einkavæða þá á nýjan leik 13.4.2008 18:15
Helmingur ráðherra í útlöndum Helmingur ráðherra ríkisstjórnarinnar er og hefur verið í útlöndum þessa vikuna, á meðan stjórnarandstaðan og fleiri gagnrýna hana fyrir aðgerðarleysi í efnahagsmálum og flottræfilshátt við ferðalög. 13.4.2008 18:09
LÍN lánaði 2,6 milljarða vegna skólagjalda á Íslandi 2001-2007 Lánasjóður íslenskra námsmanna lánaði um 2,6 milljarða króna til námsmanna til að greiða skóalgjöld í íslenskum skólum á árunum 2001-2007. 13.4.2008 20:43
Ekki ljóst hvað olli eldsvoðanum á Blönduósi Enn er ekki ljóst hvað olli eldsvoða í íbúð í raðhús á Blönduósi í morgun. Maður á fimmtugsaldri lést í brunanum. 13.4.2008 18:30
Öryggisverðir í Leifsstöð mótmæla uppstokkun Öryggisverðir í flugstöð Leifs Eiríkssonar afhentu í dag Kristjáni Möller, samgönguráðherra undirskriftalista þar sem þeir mótmæla uppstokkun löggæsluembættisins en gert er ráð fyrir að þeir fari undir stjórn samgönguráðherra. 13.4.2008 18:16
Icelandair gæti þénað 700 mkr á kvikmyndasýningum Icelandair gæti þénað tæpar 700 milljónir króna á ári á kvikmyndasýningum um borð í flugvélum félagsins. Farþegar á almennu farrými þurfa framvegis að greiða fyrir áhorf á kvikmyndum. 13.4.2008 18:01
Fjölskylduvæn verslun Eymundsson í Holtagörðum Bókaverslunin Eymundsson opnaði í gær nýja verslun í Holtagörðum þar sem sérstakt mið er tekið af fjölskyldufólki. Þar er að finna eina stærstu barnabókadeild landsins þar sem ævintýrabók býður börnum að hlusta á ævintýri og börn sem fullorðnir geta litað í sérstöku litahorni. 13.4.2008 14:07