Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bíll í ljósum logum á Hverfisgötu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út rétt eftir miðnætti í nótt eftir að tilkynning barst um að númerslaus bifreið stæði í ljósum logum á bílastæði við Hverfisgötu gengt verslun 10-11. Bifreiðin var mannlaus en greiðlega gekk að slökkva eldinn að sögn slökkviliðsins. Eldsupptök eru ókunn. 13.4.2008 10:15
Flest skíðasvæði landsins opin Skíðasvæði Siglfirðinga er opið frá kl. 11 til fimm í dag og þar er gott skíðafæri. Sömu sögu er að segja af skíðasvæðunum í Hlíðarfjalli á Akureyri og Tindastóli á Sauðárkróki, en þar er færi með besta móti. Í Bláfjöllum og í Skálafelli er verið að leggja lokahönd á að troða skíðabrautir en þar snjóaði töluvert í nótt. Svæðin verða opin til klukkan sex í kvöld. 13.4.2008 10:06
Ógnaði manni með hnífi í leigubílaröð Karlmaður um tvítugt var handtekinn í leigubílaröðinni við Lækjargötu í Reykjavík rétt fyrir klukkan sjö í morgun eftir að hann hafði ógnað öðrum manni með hnífi. Maðurinn var í annarlegu ástandi að sögn lögreglu en engan sakaði. 13.4.2008 09:55
Keyrði á veitingastaðinn Asíu Um klukkan hálf fimm keyrði ölvaður ökumaður á veitingastaðinn Asíu við Laugaveg. Maðurinn hafði skömmu áður keyrt á aðra bifreið á Laugaveginum en farþegi í þeirri bifreið stökk út og réðst á manninn. Þeir voru báðir handteknir. 13.4.2008 09:50
Karlmaður lést í bruna á Blönduósi Tæplega fimmtugur karlmaður lést þegar eldur kviknaði í íbúð í raðhúsi við Skúlabraut á Blönduósi í morgun. Hann var einn í húsinu. Þegar slökkvilið kom á staðinn var töluverður eldur og mikill reykur í íbúðinni. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Blönduósi var tilkynnt um eldinn klukkan 6:16 í morgun. Slökkvistarfi er lokið en miklar skemmdir urðu á húsnæðinu. 13.4.2008 09:43
Sumarbústaður brann til kaldra kola Sumarbústaður í sumarbústaðarbyggð í Miðfellslandi brann til kaldra kola um klukkan þrjú í nótt. Tvennt var í bústaðnum þegar eldurinn kom upp. Þau náðu að koma sér út og fengu inni í öðrum bústað þar til lögregla og slökkvilið komu á vettvang. Slökkvistarfi lauk rétt fyrir klukkan sex, en þá hafði allt brunnið sem brunnið gat. 13.4.2008 09:21
Lagaprófessor telur dóm Birgis í Færeyjum þungan Íslendingurinn sem sakfelldur var í Færeyjum var dæmdur í sjö ára fangelsi og endurkomubann til Færeyja. Sigurður Líndal efast um að íslenskir dómstólar hefðu dæmt manninn í þetta þunga refsingu. 13.4.2008 00:01
Mótorhjólamaður alvarlega slasaður á gjörgæslu Karlmaður á þrítugsaldri liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild eftir mótorhjólaslys skammt frá Blönduósi í dag. Samkvæmt vakthafandi lækni á deildinni er maðurinn með alvarlega áverka á höfði og er haldið sofandi í öndunarvél. Enn er verið að gera rannsóknir á manninum. 12.4.2008 19:44
Ráðist á öryggisverði 10-11 Ráðist var á öryggisverði 10-11 verslunarinnar í Austurstræti á sjötta tímanum í morgun. Hópur manna hafði ráðist að vörðunum með þeim afleiðingum að þrír þeirra voru marðir og skrámaðir. Lögreglu bárust ítrekuð árásarboð og þegar þeir komu á vettvang voru árásarmennirnir horfnir. Ekki er vitað hverjir mennirnir voru. 12.4.2008 15:03
Skora á ráðherra að sniðganga Ólympíuleikana Íslenskir ráðamenn eiga að taka af skarið og sniðganga Ólympíuleikana í Peking að mati skipuleggjenda mótmæla gegn mannréttindabrotum Kínverja á Tíbetum. Birgitta Jónsdóttir skorar á menntamálaráðherra að taka af skarið í stað þess að bíða eftir viðbrögðum annarra ráðherra á Norðurlöndum. 12.4.2008 18:59
Meintur morðingi gengur laus Pólskur karlmaður sem er eftirlýstur fyrir morð í heimalandi sínu hefur óáreittur stundað byggingavinnu á Íslandi í nokkra mánuði. Lögreglan veit af manninum en aðhefst ekki þar sem hann er ekki eftirlýstur á alþjóðavettvangi. 12.4.2008 18:56
Íslendingar áhugasamir um fasteignakaup erlendis Þrátt fyrir hæstu stýrivexti í heimi og spár um 30 prósenta lækkun fasteignaverðs, er ein stærsta fasteignasýning Norðurlanda haldin í Vetragarðinum í Smáralind um helgina. 12.4.2008 18:51
Verðbólgan rýkur upp Allt stefnir í að verðbólgan fari yfir 10 prósent við næstu mælingu og verði sú mesta í tæplega tuttugu ár. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir óskynsamlegt að hækka laun jafnvel þótt verðbólga fari í 11 prósent. 12.4.2008 18:51
Steinríki skilað til Noregs Leiguþyrlu Landhelgisgæslunnar LN-OBX, eða Steinríki eins og hún var einnig kölluð, verður skilað í dag. Þyrlan fór til Noregs á fimmta tímanum. Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar segir að Steinríkur fari tímabundið til Noregs í verkefni á vegum eigenda hennar auk þess sem viðhaldi við hana verði sinnt. Hún komi líklega aftur hingað til lands í sumar. 12.4.2008 17:55
Þyrla sótti ökklabrotinn vélsleðamann Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt eftir klukkan tvö í dag til að sækja vélsleðamann á Þórisjökli. Maðurinn mun hafa verið í hópi vélsleðamanna þegar hann fór fram af hengju á vélsleðanum. Samkvæmt upplýsingum vakthafandi læknis á slysadeild er maðurinn ökklabrotinn. 12.4.2008 16:27
Þyrla sækir slasaðan mótorkrossmann Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrir tæpri klukkustund til Blönduóss þar sem maður slasaðist á mótorhjóli. Lögreglan á Blönduósi segir að svo virðist sem maðurinn hafi dottið og orðið undir mótorhjólinu. Samkvæmt upplýsingum landhelgisgæslunnar er um höfuðáverka að ræða. 12.4.2008 16:18
Mótorhjólamaður slasaðist við Esjuna Óskað var eftir sjúkrabíl við Esjurætur á þriðja tímanum í dag þar sem mótorhjólamaður hafði dottið af hjóli sínu við Mógilsá. Sjúkralið flutti manninn á slysadeild þar sem hann er nú til rannsóknar. 12.4.2008 15:56
Snjóbrettamaður meiddist í Bláfjöllum Snjóbrettamaður meiddist í Bláfjöllum í dag þegar hann fór fram af hengju í Kóngsgili. Sjúkrabíll flutti manninn á slysadeild. Samkvæmt upplýsingum slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu er talið að maðurinn hafi rotast. Hann var vankaður eftir atvikið og mundi ekki eftir því. Vakthafandi læknir á slysadeild segir að maðurinn sé í rannsókn en virðist ekki vera alvarlega slasaður. 12.4.2008 15:48
Viðskiptaráðherra heimsækir Kína Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra heldur í opinbera heimsókn til Kína í dag. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að heimsóknin sé farin til að endurgjalda heimsókn viðskiptaráðherra Kína til Íslands í júní í fyrra. 12.4.2008 14:36
Iceland Express flýgur á tvo velli í London Iceland Express býður upp á þá nýjung næsta vetur að fljúga til tveggja flugvalla í London auk þess að fjölga ferðum til borgarinnar. Varsjá í Póllandi verður einnig nýr áfangastaður félagsins að vetri til samkvæmt nýrri vetraráætlun sem gefin hefur verið út. 12.4.2008 13:54
Opið í Bláfjöllum og Skálafelli Í dag er opið í Bláfjöllum og Skálafelli. Veður er mjög fínt, sól, örlítill vindur og um það bil fimm stiga frost. Klukkan 15 verður tekin skóflustunga að nýjum skála ÍR og Víkings á Bláfjallasvæðinu. 12.4.2008 13:24
Skemmta sér í gömlum Varnarliðsklúbbi Ungmenni á grunnskólaaldri í Reykjanesbæ skemmta sér nú í gömlum Varnarliðsklúbbi á Keflavíkurflugvelli. Þar hafa þau eina glæsilegustu félagsaðstöðu á landinu með kvikmyndahúsi og afþreyingu í rúmum 1000 fermetrum. 12.4.2008 13:06
Breytingar á þjónustu í flugi Icelandair Miklar breytingar verða á þjónustu í flugi hjá Icelandair á næstu mánuðum. Nýjum og rýmri sætum með sjónvarpsskjám verður komið fyrir í öllum vélum félagsins, skipt verður um einkennisbúninga og nýtt hljóðkerfi verður sett upp. Flugfargjöld hækka ekki við breytingarnar heldur er félagið að bregðast við alþjóðlegri samkeppni 12.4.2008 12:35
Hætt við flugtak á Reykjavíkurflugvelli Flugvél frá flugfélaginu Örnum þurfti að hætta við flugtak á síðustu stundu á Reykjavíkurflugvelli í gær. Atvikið var tilkynnt til flugmálastjórnar en ekki var hætta á ferðum að sögn flugstjóra vélarinnar. 12.4.2008 12:19
Sinnuleysi stjórnvalda í efnahagsmálum Stjórnvöld hafa sýnt sinnuleysi gagnvart versnandi horfum í efnhagsmálum að mati framkvæmdastjóra Alþýðusambandsins. Hann segir ljóst að kjarasamningar verði í uppnámi gangi verðbólguspá Seðlabankans eftir. 12.4.2008 12:14
Birgi mjög brugðið við dóminn í Færeyjum Birgi Páli Marteinssyni var mjög brugðið í gærkvöldi þegar hann var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir vörslu fíkniefna í Héraðstómi í Færeyjum samkvæmt heimildum færeyska útvarpsins. Færeyska blaðið Dimmalætning hefur eftir Birgi Páli að verst þyki honum að fá ekki að fara aftur til Færeyja - honum finnist hann eiga frekar heima þar en á Íslandi. Í Færeyjum býr afi hans og þar á hann einnig fleiri ættingja. 12.4.2008 12:06
Pólverji á Íslandi eftirlýstur fyrir morð í Póllandi Pólskur karlmaður sem stundað hefur byggingavinnu hér á landi undanfarna mánuði er eftirlýstur af pólsku lögreglunni fyrir hrottalegt morð í heimalandi sínu. Íslensk lögregluyfirvöld bíða eftir handtökubeiðni frá Póllandi. 12.4.2008 12:00
Gulleggið 2008 afhent í dag Frumkvöðlar átta efstu viðskiptahugmynda í Frumkvöðlakeppni Innovit 2008 eru nú í óða önn að kynna viðskiptahugmyndir sínar fyrir yfirdómnefnd keppninnar. Úrslit hófust í morgun með þessum hætti en keppnin er fyrir íslenska háskólanemendur. 12.4.2008 11:54
Karlmaður réðist á lögreglumenn Til átaka kom milli lögreglu og karlmanns á sextugsaldri fyrir utan bensínstöð N1 við Hringbraut laust eftir klukkan sjö í morgun. Maðurinn var sofandi í bifreið sinni fyrir utan bensinstöðina þegar lögregla hafði afskipti af honum. Brást hann illa við og réðst að lögreglumönnum með þeim afleiðingum að einn þeirra hlaut áverka í andliti og á hálsi. 12.4.2008 10:02
Tekinn á 150 km hraða Lögreglan á Hólmavík stöðvaði í gærkvöldi ökumann sem mældist á 150 kílómetra hraða í Kollafirði þar sem hámarkshraði er 90. Málið var sent fulltrúa lögreglustjóra til afgreiðslu. 12.4.2008 09:25
Dæmdur í sjö ára fangelsi í Færeyjum Birgir Páll Marteinsson var í kvöld dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir hlut sinn í Pólstjörnumálinu. 12.4.2008 00:01
Íslendingur fundinn sekur í Færeyjum Kviðdómur í Færeyjum úrskurðaði 25 ára Íslending sekan í tveimur ákæruliðum af þremur í Pólstjörnumálinu. Eins og að lenda í hakkavél, segir móðirin. 12.4.2008 00:01
Kalla eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar Ungir framsóknarmenn í Reykjavík kallar eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að endurheimta þann stöðugleika í efnahagslífi þjóðarinnar sem ríkti í ríkisstjórnartíð framsóknarmanna. Þetta kemur fram í ályktun sem þeir sendu frá sér í dag. 11.4.2008 22:03
Þakkar guði fyrir að allt fór vel Guðrún V. Bjarnadóttir þakkar guði fyrir að allt fór vel eftir að meðlimir Steed Lord lentu í bílslysi á Reykjanesbraut á miðvikudag. 11.4.2008 20:41
Sæfara var fagnað í Grímsey Grímseyingar fögnuðu mjög þegar nýr Sæfari lagðist í fyrsta skipti að bryggju í eynni í dag. Ferjan hreppti leiðindaveður og urðu sumir sjóveikir þegar siglt var í fyrsta skipti frá Dalvík til Grímseyjar með allnokkurn hóp af farþegum og boðsgestum. Ölduhæð var allt að fjórir metrar, eftir því sem fram kom í fréttum Stöðvar 2. 11.4.2008 20:19
Stöðvaður fyrir óhæfilegan frágang á farmi Ökumaður var stöðvaður á Faxabraut í Reykjanesbæ í dag þar sem hann var með planka í bifreiðinni og stóð hann allnokkuð langt fram fyrir bifreiðinni og voru á honum engar merkingar. Ökumaður verður sektaður fyrir athæfið, eftir því sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á Suðurnesjum. 11.4.2008 19:44
Brá við að sjá háskaakstur í fréttum „Þetta er ekki það sem við viljum sjá,“ sagði Sturla Jónsson, talsmaður vöruflutningabílstjóra um atvik sem varð í dag þegar vörubílstjórar voru að mótmæla með hægkeyrslu í Ártúnsbrekkunni. 11.4.2008 19:24
Sýkna og sekt fyrir Birgi Pál - Refsing ákveðin í kvöld Kviðdómur í Færeyjum úrskurðaði í dag að Birgir Páll Marteinsson væri ekki sekur um aðild að Pólstjörnumálinu svokallaða. Birgir er hins vegar ekki laus allra mála því kviðdómurinn komst að þeirri niðurstöðu að hann væri sekur um vörslu á fíkniefnum. 11.4.2008 18:01
Neituðu að segja til nafns Nokkur ölvun var á skóladansleik í Reykjavík í gærkvöld en á honum voru framhaldsskólanemar að gera sér glaðan dag. Hringt var í foreldra og forráðamenn tæplega tuttugu ungmenna undir 18 ára aldri og þeim gert að sækja börn sín á fyrrnefndan dansleik. 11.4.2008 17:37
Ingibjörg fundaði með Rice Efling samstarfs kvenutanríkisráðherra, áritanir fyrir Íslendinga sem sinna viðskiptum í Bandaríkjunum og öryggissamstarf voru á meðal þeirra atriða sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Condoleezza Rica, utanríkisráðherra Bandaríkjanna ræddu á fundi sínum í Washington D.C. í dag. 11.4.2008 17:34
Kílóverð á dilkakjöti hækki um nærri 100 krónur Verð á dilkakjöti til bænda mun hækka að lágmarki um 98 krónur fyrir kíló í ár samkvæmt samþykkt sem stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda hefur gert. 11.4.2008 17:11
Hátt í þúsund lítrar af olíu láku í Sundahöfn Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins vinnur nú að því að hreinsa upp 900-1000 lítra af dísilolíu sem láku úr flutningaskipinu Laxfossi fyrr í dag. 11.4.2008 16:58
Hefur játað á sig árás á öryggisvörð Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja vikna gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem grunaður er um að hafa slegið öryggisvörð 10-11 í höfuðið með glerflösku um síðustu helgi. 11.4.2008 16:43
Kennarar vandi sig Kennurum ber að vinna samkvæmt akademískum vinnubrögðum líkt og nemendum segir Stúdentaráð Háskóla Íslands í ályktun til fjölmiðla í dag. 11.4.2008 16:25
Móðir Steed Lord-strákanna í Íslandi í dag í kvöld ,,Mamma við lentum í bílslysi.......en það eru allir í lagi". Svona lýsir Guðrún V. Bjarnadóttir því þegar Einar Egilsson, sonur hennar, hringdi í hana af slysstað eftir alvarlegt bílslys á Reykjanesbrautinni í vikunni. 11.4.2008 16:22