Skynsamlegast að lýsa yfir umsókn í ESB 13. apríl 2008 18:15
Þorvaldur Gylfason prófessor í hagfræði segir það skynsamlegasta sem ríkisstjórnin geti gert í þeim efnahagsþrengingum sem nú ríkja, sé að lýsa því strax yfir að Íslendingar hyggist sækja um aðild að Evrópusambandinu og myntbandalagi Evrópu. Ef dýpki á kreppu bankanna komi til greina að þjóðnýta bankanna til að einkavæða þá á nýjan leik. Þorvaldur Gylfason segir að enn sem komið er eigi íslensku bankarnir eingöngu í lausafjárvanda eins og bankar annars staðar, en ef vandinn breiðist út til undirstaða bankanna, sem nú séu nokkuð traustar, þurfi að grípa til róttækra aðgerða. Hann bendir á að ríkisstjórnir Norðurlandanna hafi leyst til sín ný einkavædda banka upp úr 1990 þar sem þeim hafi ekki haldist vel á nýfengnu frelsi. Þorvaldur telur að einkavæðing bankanna hér hafi ekki tekist nógu vel. Þeir hafi verið seldir á undirverði eins og Ríkisendurskoðun benti á. Þá hafi ekki hafi verið tryggt dreift eignarhald á bönkunum með aðkomu erlendra fjárfesta eins og stefnt hafi verið að. Þorvaldur segir að stjórnvöld verði að senda skýr skilaboð út í heim um að þau skilji ástand mála og sé full alvara með að gera það sem þurfi að gera til að bregðast við ástandinu.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira