Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Loðnuveiðar heimilaðar á ný - má veiða 100 þúsund tonn Einar K. Guðfinsson sjávarútvegsráðherra hefur heimilað loðnuveiðar á ný en þær voru stöðvaðar í síðustu viku. Þetta kemur fram á vef Fiskistofu. 27.2.2008 15:44
Hugmyndir um mislæg gatnamót kynntar umhverfisráði Hugmyndir sem kynntar voru fyrir umhverfis- og samgönguráði borgarinnar í gær gera ráð fyrir bæði stokki og hringtorgi á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. 27.2.2008 15:30
Gaukur áfrýjar til Hæstaréttar Gaukur Úlfarsson, sem í gær var fundinn sekur um meiðyrði í héraðsdómi hefur ákveðið að áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Þetta staðfestir Sigurmar K. Albertsson, lögmaður Gauks við fréttastofu Stöðvar 2. Gauki var gert að greiða Ómari R. Valdimarssyni 800 þúsund krónur í miskabætur og málskostnað vegna ummæla sem hann lét falla um Ómar á bloggsíðu sinni. Þar kallaði Gaukur Ómar meðal annars „Aðal rasista bloggheima." 27.2.2008 15:13
Vill ræða Breiðavíkurskýrslu í borgarráði Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, hefur óskað eftir því að Breiðavíkurskýrslan svokallaða verði tekin til umfjöllunar á fundi borgarráðs á morgun. 27.2.2008 14:46
Krabbameinsfélagið fær 42 milljónir frá SPRON sjóðnum SPRON-sjóðurinn ses. hefur veitt Krabbameinsfélagi Íslands 42 milljóna króna styrk til kaupa á úrlestrarstöðvum sem röntgenlæknar nota til að lesa úr stafrænum brjóstamyndum. Jóna Ann Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SPRON-sjóðsins ses., afhenti Guðrúnu Agnarsdóttur, forstjóra Krabbameinsfélags Íslands, styrktarféð við athöfn í dag. 27.2.2008 14:39
Hakakrossinn tók á móti ferðalöngum í Leifsstöð Það voru þreyttir ferðalangar sem komu með flugi Iceland Express frá Kaupmannahöfn um miðnætti í gærkvöldi. Lítilsháttar seinkun hafði verið á fluginu en farþegarnir ráku upp stór augu við lendinguna í Keflavík. Hakakrossinn tók á móti hópnum. 27.2.2008 14:27
Vilja skoða það að endurvekja Þjóðhagsstofnun Tveir þingmenn Samfylkingarinnar vilja skoða það að Þjóðhagsstofnun verði endurvakin sem rannsóknarstofnun í efnahagsmálum. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í dag. Þeir eru ósammála tveimur þingmönnum Sjálfstæðisflokksins um að hverfa frá verðbólgumarkmiðum Seðlabankans. 27.2.2008 14:07
Auglýst eftir vitnum að líkamsárás Lögreglan á Akureyri lýsir eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað laugardaginn 4. september 2004 um miðjan dag á Eyjafjarðarbraut eystri skammt frá Akureyri. 27.2.2008 13:52
Kristján Möller gaf sig fram í morgun Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri í Kópavogi auglýsti eftir Kristjáni L. Möller samgönguráðherra í Morgunblaðinu í morgun undir fyrirsögninni, Hvar ertu Kristján? Ráðherrann brást skjótt við og mætti í vínarbrauð rétt fyrir níu í morgun. 27.2.2008 13:36
Framleiða álvír í Reyðarfirði Framleiðsla er hafin á álvírum í steypuskála Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði en þá á að nota í hásprennustrengi líka þeim sem flytja raforku frá Kárahnjúkavirkjun að álverinu. 27.2.2008 13:31
Á sjúkrahús með kalsár á fæti Björgunarsveitarmenn úr Mývatnssveit og Reykjadal sóttu í nótt tvo pólska skíðagöngumenn sem höfðust við í skála í Kistufelli norðan Vatnajökuls. 27.2.2008 13:15
Skoðar áætlunarflug til Akureyrar og Egilsstaða Flugfélagið Iceland Express hefur fengið bráðarbirgðaaðstöðu á Reykjavíkurflugvelli fyrir innanlandsflug. Félagið skoðar nú áætlunarflug til Akureyrar og Egilsstaða. 27.2.2008 13:00
Svifryk fimm sinnum yfir mengunarmörk í janúar á Akureyri Svifryk fór fimm sinnum yfir mengunarmörkin á Akureyri í janúar. Það jafngildir nánast öllum mengunarkvóta ársins 2010. 27.2.2008 12:53
Býst við bylgju netþjónabúa Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra er sannfærður um að bylgja netþjónabúa eða gagnavera komi í kjölfarið á því sem var innsiglað í Reykjavík í gær. 27.2.2008 12:46
Kynnti Moon framboð Íslands til Öryggisráðsins Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, átti í gærkvöldi fund með Ban Ki Moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Jafnfréttismál og framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna voru efst á baugi. 27.2.2008 12:40
Loðnusjómenn telja fiskifræðinga meta mun minna magn af loðnu Væntanlega fæst úr þvi skorið í dag hvort fiskifræðingar og loðnusjómenn meta ólíkt samskonar upplýsingar af fiskileitartækjum. Sjómennirnir telja að fræðingarnir meti mun minna magn en raunveruleikinn er. 27.2.2008 12:32
Tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga barnapíu Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart fjórtán ára stúlku sem gætti tveggja sona hans. 27.2.2008 12:23
Nissan Navara innkallaður Bílaumboðið Ingvar Helgason ehf. hefur nú fyrir hönd Nissan í Evrópu hafið þjónustuinnköllun á pallbílum af gerðinni Nissan Navara. Bílarnir eru kallaðir inn til þess að endurstilla megi ræsibúnaðinn sem stjórnar því hvernig loftpúðar bílsins springa út við árekstur framan á hann. Endurstillingunni er ætlað að tryggja hraðari ræsingu loftpúðanna. 27.2.2008 11:58
Vill endurskoða vopnalög Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað nefnd til að vinna að endurskoðun vopnalaga og þeirra reglugerða og reglna sem settar hafa verið á grundvelli laganna. Tíu ár eru liðin frá setningu gildandi vopnalaga. 27.2.2008 11:51
Sjö hundruð stúdentar við HÍ bíða eftir íbúð Stúdentaráð Háskóla Íslands bendir á að 700 stúdentar bíði nú eftir íbúð og fagnar því að nýkynntar hugmyndir um skipulag í Vatnsmýrinni taki mið af áframhaldandi uppbyggingu Háskóla Íslands og aðstöðu stúdenta. 27.2.2008 11:45
Sextíu prósentum ungmenna boðin fíkniefni Um sextíu prósentum ungmenna á aldrinum 18-20 ára, sem tóku þátt í könnun á vegum Ríkislögreglustjóra, hefur verið boðin fíkniefni. Það er álíka hátt hlutfall og árið 2004 þegar sams konar könnun var gerð. 27.2.2008 11:25
Nýskráðum ökutækjum fjölgar um nærri 50 prósent á milli ára Nýskráðum ökutækjum á fyrstu 53 dögum þessa árs fjölgaði um 47 prósent miðað við sama tímabil í fyrra samkvæmt samantekt Umferðarstofu. 27.2.2008 11:01
Iceland Express ekki með lóð heldur aðstöðu Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Flugstoða segir að um villandi fréttaflutning hafi verið að ræða þegar greint var frá því í gær að IcelandExpress hefði fengið úthlutað lóð í Vatnsmýrinni fyrir starfssemi sína. Þeir Gísli Marteinn Baldursson og Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúar voru gestir í þættinum „Í bítið" í morgun. Þar komu þeir af fjöllum og staðhæfðu að þetta hafi aldrei komið inn á þeirra borð. 27.2.2008 10:02
Hafa ekki heyrt um lóðaúthlutun til Iceland Express Hvorki Gísli Marteinn Baldursson né Dagur B. Eggertsson hafa heyrt um fyrirhugaða lóðaúthlutun til Iceland Express á Reykjavíkurflugvelli. 27.2.2008 09:23
Bílvelta á Álftanesvegi Bílvelta varð á Álftanesvegi nú fyrir níu. Ökumaðurinn er sagður hafa orðið fyrir einhverjum meiðslum en að sögn lögreglu eru þau ekki talin alvarleg. Óvíst er um tildrög slyssins en bíllinn var dreginn á brott með dráttarbíl. 27.2.2008 09:07
Fiskiskipum fækkar um 50 milli ára Tæplega 1650 fiskiskip voru á skrá hjá Siglingastofnun við lok síðasta árs eða um fimmtíu færri en við lok árs 2006. 27.2.2008 09:07
Hvetur til málsóknar á hendur vefsíðum með nafnlausum níðskrifum Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hvetur til þess að einhver láti reyna á ábyrgð þeirra sem halda úti vefsíðum þar sem vegið er að fólki í skjóli nafnleysis með dónaskap og óhróðri. 27.2.2008 08:32
Slagsmál meðal hælisleitenda í Reykjanesbæ Slagsmál brutust út milli tveggja manna í vistarverum hælisleitenda, á gistiheimili í Reykjanesbæ í gærkvöldi, sem enduðu með því að annar mannanna nef- og kinnbeinsbrotnaði. 27.2.2008 08:02
Lánum fækkar eftir því sem kjör versna Íbúðalánum sem veitt eru hjá bönkum hefur fækkað mikið að undanförnu. Lán hjá Íbúðalánasjoði eru nú margfalt fleiri en hjá bönkunum. Augljóslega doði yfir markaðnum, segir Jón Grétar Jónsson framkvæmdastjóri Húsakaupa. 27.2.2008 08:00
Mæling náðist á vestari loðnugönguna Fiskifræðingum um borð í Árna Friðrikssyni tókst í gærkvöldi að mæla vestari loðnugönguna, sem nú er úti af Skógarsandi, austan við Vestmannaeyjar. 27.2.2008 07:26
Tveir strætisvagnar í óhöppum á Akureyri Tveir voru fluttir á sjúrkahúsið á Akureyri eftir að strætisvagn og fólksbíll lentu í árekstri á Drottningarbraut á Akureyri í gærkvöldi. 27.2.2008 07:21
Rúðubrot og eltingarleikur við ölvaðan ökumann Lögregla handtók fimm ölvaða menn á Barónstíg í nótt eftir að þeir höfðu bortið þar rúðu í húsi. Ekki er vitað hvað þeim gekk til, en þeir verða yfirheyrðir með aðstoð túlks, þegar af þeim verður runnið í dag 27.2.2008 07:19
Hermenn kærleikans verðlaunaðir Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru veitt í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Þau komu í hlut Hjálpræðishersins fyrir meira en hundrað ára kærleiksknúið starf hérlendis í þágu þeirra sem minnst mega sín. 27.2.2008 07:00
Pólskum skíðamönnum bjargað úr Kistufelli Björgunarsveitarmenn úr Mývatnssveit og Reykjadal sóttu í gærkvöldi tvo pólska skíðagöngumenn, sem höfðust við í skála í Kistufelli, norðan Vatnajökuls. 27.2.2008 06:55
Búið að opna veginn um göngin í Súgandafirði Búið að opna veginn um göngin í Súgandafirði en snjóflóð féll við gangamunnan í Súgandafirði á tíunda tímanum í gærkvöldi og lokaði þeim. Vegfarendur létu vita um flóðið um neyðarsíma í göngunum. 27.2.2008 06:50
Líst vel á Ban Ki-moon „Mér líst vel á Ban Ki-moon og hef fulla trú á því að hann láti verkin tala í þeim málum sem hann hefur gert að sínum, loftslagsbreytingum og ofbeldi gegn konum,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra að loknum fundi sínum með framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í gær. 27.2.2008 06:30
Efnahagsþrengingar auka stuðning við aðild að ESB Stjórnmálamenn og verkalýðsleiðtogar eru sammála um að þrengingar í efnahagslífinu auki á stuðning við aðild að ESB. Skoðanakönnun Fréttablaðsins sýnir að um 55 prósent eru hlynnt því að Ísland sæki um. 27.2.2008 05:30
Minni olíuflutningar en gert var ráð fyrir Mun minni er flutt af olíu um íslenska lögsögu en spár gengu út frá fyrir nokkrum árum. Um er að ræða flutinga frá Norðvesturhluta Rússslands til Vesturheims, en leið flutningaskipa milli þessara heimshluta liggur óhjákvæmilega um efnahagslögsögu Íslands. Skipin sem flytja olíu við íslenskar strendur eru einnig minni en Norðmenn og Rússar ætluðu. 27.2.2008 05:00
Íslendingar mikilvægir í Afganistan Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir þátttöku Íslands í friðargæslu í Afganistan mikilvæga og telur lofsvert að þar séu um 30 Íslendingar að störfum. 27.2.2008 03:30
Telur hættulegt að hverfa frá verðbólgumarkmiði Aðalhagfræðingur Seðlabankans undrast skilaboð um að hverfa eigi frá verðbólgumarkmiði í ljósi vaxandi verðbólgu. Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins telja áhættu af verðbólgu minni en af fjármálakreppu. 27.2.2008 02:30
Höfuðborgarþingmenn vilja aðstoðarmenn á næsta ári Meirihluti allsherjarnefndar telur að sterk rök hnígi að því að allir þingmenn fái aðstoðarmenn líkt og ætlunin er nú með formenn stjórnarandstöðuflokka og landsbyggðarþingmenn. Vilja þeir fá aðstoðarmenn strax á næsta ári. 26.2.2008 21:54
Þrír slösuðust í hörðum árekstri á Akureyri Tveir voru fluttir með sjúkrabíl á slysadeild eftir að strætisvagn og fólksbíll rákust saman á Drottningarbraut við Austurbrú á Akureyri um hálfníu í kvöld. Að sögn lögreglunnar slasaðist einn maður til viðbótar en meiðsl hans eru ekki talin vera eins alvarlega og hinna tveggja. Fólksbíllinn er gerónýtur að sögn lögreglu. 26.2.2008 21:40
Snjóflóð lokar veginum í Súgandafirði Snjóflóð lokar veginum í Súgandafirði, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Hálkublettir eru á Hellisheiði, á Sandskeiði og í Þrengslum en á Suðurlandi eru víða hálkublettir eða jafnvel hálka. 26.2.2008 22:38
Á gjörgæsludeild eftir 15 metra fall Maðurinn sem féll 15 metra niður af vinnupalli Þingahverfi í Kópavogi í dag liggur nú á gjörgæsludeild í eftirliti. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild er maðurinn talsvert slasaður, með beinbrot og innvortis meiðsl. Læknirinn segir þó að hann verði að teljast hafa sloppið vel miðað við aðdragandann. Sjúkraflutningamenn sögðu við Vísi í dag að svo virtist sem vinnupallurinn hefði hrunið undan manninum með fyrrgreindum afleiðingum. 26.2.2008 19:59
Baka stærstu köku Vesturbæjar Unglingar í æskulýðsstarfi í Neskirkju hyggjast baka stærstu súkkulaðiköku sem bökuð hefur verið í Vesturbæ, föstudaginn 29. febrúar næstkomandi. 26.2.2008 19:32