Innlent

Pólskum skíðamönnum bjargað úr Kistufelli

Björgunarsveitarmenn úr Mývatnssveit og Reykjadal sóttu í gærkvöldi tvo pólska skíðagöngumenn, sem höfðust við í skála í Kistufelli, norðan Vatnajökuls.

Þeir óskuðu eftir aðstoð þar sem annar var kominn með kal á fæti og gat ekki gengið lengra. Björgunarmenn lögðu af stað um kvöldmatarleitið og komu með mennina til byggða í nótt, þar sem manninum með kalsárin var komið undir læknis hendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×