Innlent

Ók útaf eftir árekstur

Fólksbíll fór útaf veginum efst í Norðurárdal eftir að pallbíl var ekið utan í hann um klukkan hálf tíu í kvöld. Tveir voru í bílnum en þá sakaði ekki að sögn lögreglu. Bíllinn var fluttur í burtu með kranabíl.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi ætlaði ökumaður pallbílsins að taka fram úr fólksbílnum. Ekki vildi betur til en svo að hann rakst utan í fólksbílinn með þeim afleiðingum að fólksbíllinn hafnaði utan vegar. Pallbíllinn dró hestakerru með tveimur hestum en þeir sluppu ómeiddir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×