Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
"Vélin skall harkalega niður í lendingunni" "Vélin skall harklega niður í lendingunni og um leið slökknaði á öðrum hreyfli hennar. Síðan var hún keyrð á miklum hraða eftir flugbrautinni og fór of hratt í beygju inn að flugstöðinni," segir Georg Guðjónsson en var ásamt konu sinni farþegi með flugvélinni sem lenti í óhappinu á Keflavíkurvelli í nótt. 28.10.2007 12:38
Fall meirihlutans frestaði enn Ásatrúarhofi Ásatrúarmenn reikna með að borgarráð afgreiði endanlega óskir þeirra um nýtt hof á fundi sínum í komandi viku. Málið hefur frestast af ýmsum ástæðum nú síðast ftrestaist það þar sem meirihlutinn féll í borginni. Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði segir að Kafka sé eins og krakkaleikur í samanburði við hvernig ferillinn hefur verið. 28.10.2007 11:18
Ölvaður og óviðræðuhæfur varðist handtöku Ölvaður og óviðræðuhæfur ökumaður reyndi að hlaupa frá lögreglunni eftir að hann lenti í umferðaróhappi í nótt. Er lögreglan náði í skottið á honum varðist hann handtöku en gistir nú fangageymslur. 28.10.2007 10:30
Eldur í sorpgeymslu í tólf hæða húsi Slökkvilið var kallað út var vegna elds sem kviknaði í sorpgeymslu í tólf hæða fjölbýlishúsi í Hátúni í Reykjavík í nótt. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en nokkur viðbúnaður var á vettvangi enda fjölmargir í húsinu. Ekki er vitað um eldsupptök. 28.10.2007 10:08
Alvarleg líkamsárás á Solon Mikill erill var hjá lögreglu í höfuðborginni í nótt og voru nokkrar líkamsárásir kærðar samkvæmt venju. Alvarlegasta árásin var á dyravörð á skemmtistaðnum Solon sem skaddaðist í andliti. 28.10.2007 09:58
Ók dópaður á götuvita og veittist að sjúkraliðum Klukkan þrjú í nótt ók maður undir áhrifum fíkniefna á götuvita á mótum Grensásvegar og Bústaðavegar. Götuvitinn hafnaði á vélarhlíf bifreiðarinnar, en það hamlaði ekki förinni. 28.10.2007 09:54
Rafmagn fór af Efra-Breiðholti í nótt Rafmagn fór af Efra-Breiðholtinu í Reykjavík á tólfta tímanum í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur var það bilun í háspennusteng milli Hraunbergs og Iðufells sem olli því að rafmagn fór af í Berg-, Hóla- og Fellahverfum. 28.10.2007 09:47
Hálka í borginni og víða um land Mikil hálka er nú víða á höfuðborgarsvæðinu og ástæða til að bílstjórar fari varlega í moegunsárið. Einnig eru hálkublettir í öllum fjórðungum landsins að Austfjörðum undanskildum. 28.10.2007 09:22
Flugslysanefnd kannar óhapp á Keflavíkurflugvelli Starfsmenn Flugslysanefndar eru nú staddir á Keflavíkurflugvelli að kanna óhapp sem þar varð í nótt. Farþegavél með farþega á heimleið frá Tyrklandi fór út af flugbrautinni þegar nefhjól hennar affelgaðist í lendingu. Hálku er kennt um óhappið. 28.10.2007 09:09
Rafmagnslaust í Efra-Breiðholti í klukkutíma Rafmagnið fór af í Hóla-, Berg- og Fellahverfum í Efra-Breiðholti kl. 23.15 í kvöld vegna háspennubilunnar. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunni var rafmagnslaust í rétt rúman klukkutíma en allt rafmagn var komið á 25 mínútum eftir miðnætti. 27.10.2007 23:55
Fjórir kærðir fyrir akstur utan vega Lögreglan á Suðurnesjum var með sérstakt eftirlit með akstri utan vega í dag. Fjórir voru kærðir fyrir utanvega akstur við Grindavík í þessu átaki. 27.10.2007 20:17
Meirihluti Norðurlandabúa vill samvinnu í umhverfismálum Mikilll meirihluti Norðurlandabúa vill að norrænu ríkin taki höndum saman í umhverfis- og loftslagsmálum og vinni í sameiningu að því að gerður verði nýr alþjóðasamningur um losun gróðurhúsalofttegunda. 27.10.2007 16:31
Kennaraháskólinn útskrifar 70 kandidata Í dag brautskráðust 70 kandídatar frá Kennaraháskóla Íslands við hátíðlega athöfn í Skriðu, fyrirlestrarsal skólans. Alls brautskráðust 33 úr grunnnámi og 37 úr framhaldsnámi. Brautskráðir voru 10 með meistaragráðu í uppeldis- og menntunarfræði og 27 með diplómugráðu í uppeldis- og menntunarfræði. 27.10.2007 16:24
Beðist velvirðingar Vísir biðst velvirðingar á frétt um banaslys í Kirkjubólsfjalli sem datt inn á vefinn í 4 mínútur í dag. Fréttin er rúmlega 3ja ára gömul en kom inn á ritstjórnarvefinn með annari frétt frá lögreglunni á Vestfjörðum eins og þetta hefði gerst í dag. 27.10.2007 16:11
Rigningar seinka endurbótum á Þjóðleikhúsi Hinar miklu rigningar sem verið hafa í undanfarna tvo mánuði hafa seinkað framkvæmdum við endurbætur á útiveggjum Þjóðleikhússins. Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri segir að áformuð verklok séu nú í nóvember en upphaflega stóð til að verkinu yrði lokið í þessum mánuði. 27.10.2007 15:13
Ítrekaðir þjófnaðir úr búningsklefum Ármanns Helgi G. Garðarsson segir að síðustu fjóra mánuði hafi ítrekað verið stolið úr búningsklefa Ármanns í íþróttamiðstöð Þróttar-Ármanns Laugardal. Þetta virðist eingöngu eiga sér stað á tímabilinu 17-20 úr einum ákv. búningsklefa. 27.10.2007 15:00
Kveikt á fyrsta jólatréinu Kveikit verður á fyrsta jólatréinu í dag þegar Jólalandið í Blómavali í Skútuvogi verður opnað. 27.10.2007 13:39
Íslenskur árangur í baráttunni gegn malaríu Notkun á flugnanetum með skordýraeitri hefur margfaldast í Gíneu-Bissá eftir að fyrirtæki á Íslandi hófu að styrkja tvíhliða verkefni í landinu í gegnum UNICEF, en malaría er talin vera einn helsti dánarvaldur bissáskra barna. Við lok árs 2006 sváfu 40% íbúa í hinu litla Vestur-Afríkuríki Gíneu-Bissá undir flugnaneti, en mælingar frá árinu 2000 sýna einungis 2-7% notkun. 27.10.2007 13:15
HÍ í hópi þeirra 100 bestu fyrr en áformað var Háskóli Íslands brautskráir tæplega 400 kandidata, þar af 111 með meistaragráðu við hátíðlega athöfn sem hófst í Háskólabíó nú klukkan eitt í dag. Í ræðu sinni segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands m.a.að skólinn hafi stigið mjög markverð skref í átt til þess að verða einn af 100 bestu háskólum í heimi á síðustu tveimur árum, svo að markmiðið sem sumir töldu óraunhæft í upphafi var það alls ekki. Skólinn þurfi að sækja hraðar og ná markmiði fyrr en hann ætlaði sér í upphafi. 27.10.2007 13:00
Erlend kona lést í banaslysinu á Holtavörðuheiði Erlend kona á sextugsaldri lést í umferðarslysi í gærkvöldi á norðanverðri Holtavörðuheiði. Fjórir slösuðust til viðbótar og var tvennt, maður og kona, flutt með þyrlu á sjúkrahús í Reykjavík. 27.10.2007 12:54
Brunaútkall í samgönguráðuneytið Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út skömmu eftir klukkan 10 í morgun þar sem brunaboði hafði farið í gang í samgönguráðuneytinu í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Kviknað hafði í tusku í lyftuhúsi ráðuneytisins og reyndist ekki mikil hætta á ferðum. 27.10.2007 11:40
Kjötsúpa fyrir yfir 2.000 manns á Skólavörðustíg Stóri kjötsúpudagurinn er í dag á Skólavörðustíg með ýmsum uppákomum og sýningum upp og niður götuna. Jóhann Jónsson eigandi Ostabúðarinnar hefur veg og vanda að gerð kjötsúpunnar og hefur soðið 350 lítra af henni. Hann reiknar með að það dugi fyrir yfir 2.000 manns. 27.10.2007 10:33
Hnífstungur í rannsókn á Akureyri Lögreglunni á Akureyri barst tilkynning um klukkan hálf sjö í morgun um mann sem að hafði verið stunginn í heimahúsi á Akureyri. 27.10.2007 09:59
Egilsstaðaskóli sextugur Í dag laugardag verður haldið upp á 60 ára afmæli Egilsstaðaskóla. Klukkan 13.00 verður opnuð sýning í skólanum á ýmsu því sem tengist skólahaldinu fyrr og nú. Klukkan 19.30 í kvöld hefst svo árshátíð skólans í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum. 27.10.2007 09:21
Alvarlegt umferðarslys á Holtavörðuheiði Alvarlegt umferðarslys varð á Holtavörðuheiðinni á áttunda tímanum og hefur veginum verið lokað fyrir umferð. Búið er að kalla út lögreglu, sjúkrabíla og þyrla Landhelgisgæslunnar er á staðnum. Lögreglan í Borgarnesi verst allra frétta að svo stöddu. 26.10.2007 20:48
Jarðskjálfti við Selfoss Jarðskjálfti að stærð 2,6 á Richterskvarða varð um klukkan hálfsex í dag. Upptök skjálftans eru 2,9 km. norð-norðaustur af Selfossi og fundu Selfyssingar greinilega fyrir skjálftanum. Annar skjálfti um 3,2 á Richter varð á svipuðum slóðum um hádegisbil í gær. 26.10.2007 18:19
Björgólfur Jóhannsson endurkjörinn formaður LÍÚ Björgólfur Jóhannsson var endurkjörinn formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna næsta starfsár. 26.10.2007 18:01
Sigurgeir Þorgeirsson verður ráðuneytisstjóri Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að skipa dr. Sigurgeir Þorgeirsson í embætti ráðuneytisstjóra í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu frá og með 1. janúar 2008. 26.10.2007 17:50
Vínbúðin innkallar rauðvín Glerbrot hefur fundist í rauðvínsflösku af tegundinni Amalaya de Colomé 2005. 26.10.2007 17:46
Bílvelta við Skíðaskálann í Hveradölum Betur fór en á horfðist þegar Suzuki bifreið fór út af Suðurlandsvegi við Skíðaskálann í Hveradölum. Lögregla og slökkvilið frá Selfossi var kallað á staðnum en ökumaður í bílnum reyndist ekki slasaður. Hálka er á Hellisheiðinni og vill lögregla brýna það fyrir mönnum að fara varlega. 26.10.2007 17:39
Fingralangir félagar á ferð um Reykjavík Nokkuð af fatnaði var stolið úr þvottahúsi fjölbýlishúss í miðborginni í gær en á meðal þess sem saknað var eru gallabuxur og peysur. 26.10.2007 17:26
Geir Jón sáttur með nýju fötin „Það er almenn ánægja með nýju búningana sem eru að koma í hús þessa dagana,“ segir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni en nýir lögreglubúningar verða teknir í notkun 1.nóvember. 26.10.2007 16:51
Kröfu lögreglu um gæsluvarðhald yfir grunuðum brennuvargi hafnað Héraðsdómur Suðurlands hafnaði í dag kröfu lögreglunnar á Selfossi um að kona á fertugsaldri, sem grunuð er um að hafa kveikt í húsi í Vestmannaeyjum í vikunni, yrði úrskuðuð í gæsluvarðhald. Konan er því laus úr haldi lögreglu. 26.10.2007 16:42
Hálkan strax farin að taka sinn toll Fimm umferðaróhöpp hafa orðið í dag vegna hálku í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Einn árekstur varð í þrengslunum og tveir bílar keyrðu útaf. Einn keyrði útaf á Hellisheiði og bílvelta varð á Bikupstungnabraut. Enginn hlaut alvarleg meiðsli í þessum óhöppum að sögn lögreglu. 26.10.2007 16:15
Ætlar að rífa öll útvarpstæki úr rútunum sínum Eigandi rútufyrirtækis segist ætla rífa öll útvarpstæki úr bifreiðum sínum fari svo að Ríkissútvarpið rukki afnotagjöld af hverju tæki. Héraðsdómur Reykjaness felldi í morgun dóm þessa efnis að Ríkisútvarpinu sé heimilt að rukka afnotagjöld af útvarpstækjum í bifreiðum sem notaðar eru í atvinnuskyni. 26.10.2007 16:02
Vilja byggja upp þjónustuíbúðir á gamla Fákssvæðinu Samtök aldraðra, sem eru byggingarsamvinnufélag í borginni, hafa sótt um lóðir hjá borginni fyrir fjölbýlishús með þjónustumiðstöð fyrir aldraðra á nokkrum stöðum í borginni, þar á meðal á Fákssvæðinu neðst við Bústaðarveg og í Skerjafirði þar sem áður var birgðastöð Skeljungs. 26.10.2007 15:53
Alcoa Fjarðarál harmar að verklagsreglum hafi ekki verið fylgt Í tilkynningu frá Alcoa Fjarðarál sem send var fjölmiðlum síðdegis er það harmað að verklagsreglum hafi ekki verið fylgt við uppsögn tveggja starfsmanna í síðustu viku. 26.10.2007 15:40
Fullur og ökuréttindalaus á bíl með sex manns í annarlegu ástandi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gær 18 ára pilt Grafarvogi vegna gruns um ölvunarakstur. 26.10.2007 14:31
Harðskeljadekk í stað negldra „Jú það er allt vitlaust að gera sérstaklega þar sem það er spáð kólnandi," segir Elías hjá dekkjaverkstæðinu Nesdekk en miklar biðraðir hafa myndast fyrir utan dekkjarverkstæðin í dag. Elías segir þó að yfirleitt byrji traffíkin ekkert almennilega fyrr en fyrsti snjórinn falli. 26.10.2007 14:28
Umhverfis hvað? Áhugi Íslendinga á Norrænu samstarfi í umhverfis- og loftslagsmálum er minni en annarsstaðar. 26.10.2007 14:27
Fá rúm 180 þúsund tonn úr norsk-íslenska síldarstofninum Íslendingar fá að veiða samtals 184 þúsund tonn af síld úr norsk-íslenska síldarstofninum á næsta ári samkvæmt samkomulagi sem náðist á fundi strandríkja í Lundúnum í gær. 26.10.2007 14:23
Vegagerðin rukkar fyrir ónýta vegi Í gær drápust 85 kindur þegar sérútbúinn fjárflutningavagn með 230 kindum valt þegar vegkantur gaf sig. Fjórir bílstjórar Olíudreifingar hafa lent í því sama. Fyrirtækið fékk að auki senda reikninga fyrir skemmdum sem urðu á vegunum. 26.10.2007 14:06
Myndband: Skipulögð unglingaslagsmál á Akureyri "Þetta er háalvarlegur hlutur," segir Gunnar Jóhannsson lögreglufulltrúi á Akureyri en það virðist færast í aukana að unglingar á Akureyri mæli sér mót til þess að fylgjast með skipulögðum slagsmálum. 26.10.2007 14:04
Skógræktarfélag Íslands og Kaupþing í víðtækt samstarf Skógræktarfélag Íslands og Kaupþing hafa gert með sér þriggja ára samning um samstarf sem sagður er einn sá stærsti og umfangsmesti Skógræktarfélagið hefur gert við fyrirtæki. 26.10.2007 14:01
Segir viðsnúning bæjarstjóra óskiljanlegan Viðsnúningur bæjarstjórans í Reykjanesbæ varðandi málefni Hitaveitu Suðurnesja er algjörlega óskiljanlegur segir Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi A-listans. 26.10.2007 13:15