Innlent

Fjórtán teknir fyrir ölvunarakstur

MYND/365

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði 14 ökumenn fyrir ölvunarakstur um helgina. Í flestum tilvikum var um að ræða karla á aldrinum 20 til 45 ára.

Þrír voru stöðvaðir á föstudagskvöld, fimm á laugardag og sex á sunnudag. Ellefu voru teknir í Reykjavík og einn í Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ. Þetta voru 11 karlar á aldrinum 20 til 45 ára og þrjár konur, 17, 19 og 38 ára samkvæmt tilkynningu lögreglunnar.

Þá voru þrír karlar, 19, 28 og 33 ára, teknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Tveir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Mosfellsbæ en í bíl þess yngsta og á honum sjálfum fundust ætluð fíkniefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×