Innlent

Reyndu að villa á sér heimildir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði um helgina ellefu ökumenn sem ýmist höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi eða aldrei öðlast ökuréttindi. Tveir þeirra reyndu að villa á sér heimildir og gaf annar þeirra upp nafn bróður síns. Þá framvísaði einn ökuskírteinin sem rann út fyrir hálfum öðrum áratug.

Þá kemur fram í frétt lögreglunnar að hugsunarleysi sumra ökumanna sé með ólíkindum. Þannig var þrítugur ökumaður stöðvaður í Kópavogi um helgina. Með honum í för var barnið hans, tveggja ára. Barnið sat í framsætinu með öryggisbelti en barnabílstóll eða ámóta öryggisbúnaður var hvergi sjáanlegur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×