Vakningu þarf til þess að uppfræða erlenda ökumenn 29. október 2007 12:58 MYND/Anton
Af þeim ellefu sem látist hafa í umferðinni á þessu ári eru þrír útlendingar. Talsmaður Umferðarstofu segir ekki einfalt að fræða útlendinga um hættur í umferðinni hér. Hann segir að vakningu þurfi meðal almennings við að uppfræða erlenda ökumenn. Séstakt átak var gert í umferðarmálum gagnvart erlendum ökumönnum fyrir verslunarmannahelgina í sumar þegar nýtt umferðarskilti á ensku var afhjúpað. Það tiltekur að malbik endi og við taki malarvegur. Þótt þetta framtak sé vissulega lofsvert þarf augljóslega meira til. Ljóst er að erlendir ökumenn glíma í fæstum tilvikum í heimalandi sínu við aðstæður líkar þeim sem hér eru og allra síst þegar vetur er genginn í garð. Af tveimur banaslysum þar sem útlendingar áttu í hlut var vetrarfærð. Þann þriðja mars síðastliðinn lést tæplega fertugur Ítali er hann ók bifreið sinni út af veginum í Hörgárdal. Þann sautjánda september lést tvítugur Pólverji á Vestfjarðavegi þegar bíllinn sem hann ók fór þar út af veginum. Og nú fyrir helgi lést indversk kona á sextugsaldri er bifreið sem hún var í lenti í mjög hörðum árekstri við annan í flughálku á norðaverðri Holtavörðuheiði. Í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda sem samþykkt var í vor er gert ráð fyrir að verja fé til að auka öryggi erlendra ökumanna hér. Einar Magnús Magnússon hjá Umferðarstofu segir að mesti vandinn sé að ná til útlendinga sem hyggjast aka um vegina hér á landi. Einar Magnús segir að nú sé unnið að gerð bæklings fyrir þá útlendinga sem hér búa en einnig hefur Umferðarstofa unnið fræðslumynd fyrir útlendinga um hættuna í umferðinni hér á landi.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira