Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bílaeigendur geta reiknað orkueyðslu bíla sinna Orkusetur gefur fólki kost á að reikna út eyðslu og útblástur bifreiða með því að nota sérstaka reiknivél á vefsíðu stofnunarinnar. 28.9.2007 16:36
Talþjálfun Reykjavíkur segir upp samningi um greiðsluþáttöku Talmeinafræðingar sem starfa hjá Talþjálfun Reykjavíkur hafa sagt sig af gildandi samningi milli Tryggingastofnunar og félags takennara og talmeinafræðinga. Þetta þýðir að frá og með næstu mánaðarmótum mun Tryggingastofnun ekki taka þátt í kosnaði þeirra sem þar eru í talþjálfun. 28.9.2007 16:02
Sektaður fyrir að kýla nágranna Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann til greiðslu áttatíu þúsund króna í sekt vegan líkamsárásar á annan mann. Þá var hann jafnframt dæmdur til að greiða manninum rúmar 60 þúsund krónur í miskabætur. 28.9.2007 15:57
Tryggingastofnun krefur landlausan öryrkja um 3 milljónir króna Guðmundur Bjarnason, sem er öryrki, þarf að endurgreiða Tryggingastofnun 3,3 milljónir króna vegna örorkulífeyris sem sagður er vera ofgreiddur. Krafan frá Tryggingastofnun var lögð fram eftir að Þjóðskrá tók einhliða ákvörðun um að breyta lögheimili Guðmundar Bjarnasonar án nokkurs samráðs við hann. 28.9.2007 15:53
Þota seint á ferð á Reykjavíkurflugvelli Það fór ekki framhjá íbúum í nágrenni við Reykjavíkurflugvöll þegar Boeing 757 þota lenti þar í gærkvöldi þegar klukkan var að ganga eitt. Þarna mun hafa verið um að ræða vél á vegum Flugfélags Íslands en fyrirtækið leigði vél frá Icelandair til þess að vinna upp biðlista sem myndast höfðu í gær. 28.9.2007 15:43
Heilsa kvenna forsenda efnahags- og félagslegra framfara Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra var í hópi leiðtoga sem ávörpuðu ráðherrafund um samþættingu alþjóðlegra öryggis- og heilbrigðismála, undir yfirskriftinni Global Health and Foreign Policy, sem haldinn var að frumkvæði Noregs og Frakklands í New York í gær. 28.9.2007 15:28
Á meðal frummælenda á heimsþingi Clintons Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson var meðal frummælenda í umræðum um loftslagsbreytingar og orkumál á heimsþingi Bills Clintons fyrrum Bandaríkjaforseta. Þingið kallast Clinton Global Initiative og fer það fram þessa dagana í New York. Þangað mæta þjóðarleiðtogar víða að úr veröldinni, forystumenn alþjóðastofnana, vísindamenn, sérfræðingar, áhrifafólk í baráttusamtökum og fulltrúar fjölmiðla, að því er segir í tilkynningu frá forsetaembættinu. 28.9.2007 15:04
„Kristinn H. er Þrándur í Götu“ Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins segir að Kristinn H. Gunnarsson hafi sagt þvert nei við því að Sigurjón yrði gerður að framkvæmdastjóra flokksins. Magnús Reynir Guðmundsson var í gærkvöldi ráðinn framkvæmdastjóri en Sigurjón segir að sér hafi verið lofuð staðan eftir kosningar. Það hafi ekki gengið eftir vegna andstöðu ákveðinna flokksmanna og tiltekur Sigurjón Kristinn H. Gunnarsson sérstaklega. 28.9.2007 14:38
Óskapleg einföldun að evran leysi öll mál Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir það óskaplega einföldun á flóknum veruleika að það leysi öll vandamál að kasta krónunni. Þetta kom fram í ræðu hans á aðalfundi Samtaka fiskvinnuslustöðva í dag. 28.9.2007 14:36
Ákærður fyrir kannabisrækt Fjörutíu ára gamall Reykvíkingur hefur verið ákærður fyrir vörslu á 120 grömmum af maríjúana, 36 kannabisplöntur og 22 kannabisplöntugræðlinga, sem lögregla fann við húsleit hjá manninum. 28.9.2007 14:12
Magnús áfram framkvæmdastjóri frjálslyndra Magnús Reynir Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins og þingflokks Frjálslynda flokksins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Frjálslynda flokknum. 28.9.2007 14:07
Þrír þjófar teknir Þrír þjófar voru gripnir glóðvolgir við iðju sína í jafnmörgum verslunum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Síðdegis var tvítug kona staðin að hnupli í miðborg Reykjavíkur en hún tók snyrtivörur úr umbúðum, stakk þeim í vasann og hugðist ganga út án þess að greiða fyrir þær. 28.9.2007 13:37
Þegar hafist handa við hagræðingu hjá MS Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri MS, segir að þegar verði hafist handa við hagræðingaraðgerðir sem fjallað var um á fulltrúafundi Auðhumlu, móðurfélags MS, í gær. Hann býst við að til einhverra uppsagna komi. 28.9.2007 13:30
Bátur sprakk á Árskógsströnd Trefjaplastbátur sprakk á bílaverkstæði á Árskógsströnd við Eyjaförð í morgun. Að sögn lögreglunnar á staðnum var verið að logsjóða á þilfari bátsins sem var inni á verkstæðinu. 28.9.2007 13:17
Vilja tólf hundruð milljónir fyrir sjómenn og fiskvinnslufólk Framsóknarflokkurinn vill að ríkisstjórnin verji tólf hundruð milljónum króna í að styrkja sjómenn og fiskvinnslufólk til að setjast á skólabekk. Formaður flokksins sagði á fundi í morgun að uppsagnir síðustu daga í sjávarútveginum séu bara toppurinn á ísjakanum. 28.9.2007 12:43
Talið er tryggingafélag flutningabíls beri ábyrgð á skemmdum Tveir fólksbílar skemmdust mikið þegar þeir óku á stórgrýti sem fallið hafði af tengivagni dráttarbíls á Kringlumýrarbraut á móts við Sigtún seint í gærkvöldi. 28.9.2007 12:34
Vilja að veiðigjald verði fellt niður vegna kvótaskerðingar Störfum í fiskvinnslu fækkar um allt að 600 um allt land á næstu mánuðum vegna skerðingar þorskkvótans segir formaður Samtaka fiskvinnslustöðva. Hann segir samtökin vilja að veiðigjald verði fellt niður til að bregðast við kvótaskerðingunni. 28.9.2007 12:29
Mistubishi og þýskur álframleiðandi með Arctus í Þorlákshöfn Japanska stórfyrirtækið Mitsubishi ásamt þýska álframleiðslufyrirtækinu Trimet Aluminium verða samstarfsaðilar íslenska ráðgjafafyrirtækisins Arctus um bygingu álvers í fyrirhuguðum Áltæknigarði í Þorlákshöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arctus. 28.9.2007 12:17
Hjartavernd fær 1,5 milljarða króna styrk frá Bandaríkjunum Öldrunarstofnun bandaríska heilbrigðisráðuneytisins hefur styrkt Hjartavernd um rúmlega 1,5 milljarða króna til áframhaldandi rannsókna á öldrun. 28.9.2007 11:52
Ólögleg áfengisframleiðsla í Hafnarfirði Rannsóknarlögreglumenn í Hafnarfirði fundu tæki og tól til áfengisframleiðslu við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í suðurhluta Hafnafjarðar í gær. Auk þess fundust 24 lítrar af landa og 90 lítrar af gambra. Karl á fertugsaldri var handtekinn vegna málsins og við yfirheyrslur viðurkenndi hann að hafa ætlað að selja áfengið. 28.9.2007 11:43
200 milljóna króna hagræðing hjá MS vegna lakrar afkomu Forsvarsmenn MS hyggjast grípa til hagræðingaraðgerða upp á allt að 230 milljónir króna vegna slakrar afkomu félagsins á fyrri helmingi ársins. Meðal annars á að selja húsnæði Osta- og smjörsölunnar. 28.9.2007 11:03
Stal 4000 vindlingum Karlmaður var dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands í morgun fyrir að brjótast inn í verslun við Landvegamót þann 17. september 2005. Athygli vekur að maðurinn stal engu nema tóbaki, alls 4000 vindlingum. 28.9.2007 10:48
Sakfelldur fyrir að smygla amfetamíni og sterum inn á Litla-Hraun Héraðsdómur Suðurlands hefur sakfellt fanga á Litla-Hrauni fyrir fíkniefnabrot og brot á tolla- og lyfsölulögum fyrir að hafa reynt að smygla bæði amfetamíni og anabólískum sterum inn í fangelsið. 28.9.2007 10:43
Milljón á hvern grunnskólanema á ári Áætlaður rekstrarkostnaður á hvern nemanda í grunnskólum landsins á þessu ári verður nærri 968 þúsund krónur samkvæmt útreikningum sem birtir eru á vef Hagstofunnar. 28.9.2007 09:38
Iðnaðarráðherra er ósammála Ágústi Ólafi um tvítyngda stjórnsýslu Össur Skarphéðinsson er ósammála hugmyndum Ágústar Ólafs um að taka beri upp tvítyngda stjórnsýslu. Á heimasíðu sinni segist hann hafa herst á þeirri skoðun að það sé vaxandi nauðsyn á að taka upp í stjórnarskrána ákvæði sem staðfesti tilvist íslenskunnar sem þjóðartungunnar. 28.9.2007 09:31
Áfram dregur úr vöruskiptahalla Vöruskiptahallinn reyndist 66,5 milljarðar króna á fyrstu átta mánuðum ársins samkvæmt tölum Hagstofunnar. Það er mun minni halli en á sama tíma í fyrra en þá reyndist hann nærrri 104 milljarðar. Vöruskiptajöfnuðurinn var því rúmum 37 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður. 28.9.2007 09:27
Tekinn á 150 kílómetra hraða Sautján ára ökumaður var stöðvaður eftir að hann hafði mælst á 150 kílómetra hraða á mótum Suðurlandsvega og Vesturlandsvegar í nótt, en hámarkshraði er þar 80 kílómetrar á klukkustund. 28.9.2007 08:04
Fór fram af háum vegakanti Maður slasaðist alvarlega þegar bíll, sem hann var í, fór fram af háum vegkanti á Hellisheiði eystri í gær og endastakkst. Ökumaður og annar farþegi í bílnum meiddust líka, en ekki alvarlega. 28.9.2007 07:15
Tveir ákærðir fyrir líkamsárás Tveir menn voru ákærðir fyrir líkamsárás í héraðsdómi í dag. Annarsvegar var um að ræða árás fyrir utan veitingastaðinn Kaffi Viktor í febrúar s.l. og hinsvegar árás fyrir utan skemmtistaðinn Glaumbar í ágúst s.l. 27.9.2007 21:53
Staðan endurmetin ef forsendur eru brostnar Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir að ef það sé raunin að einhverjar af forsendunum fyrir mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar séu brostnar verði stjórnvöld að endurmeta stöðuna. "Hinsvegar tel ég ekki að svo sé í augnablikinu," segir Árni í samtali við Vísi. 27.9.2007 21:30
Þorskeldi er enginn gullgröftur Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra sagði í ræðu á opnum fundi Matís um þorskeldi á Ísafirði í gærdag að menn skyldu gá að sér í fiskeldi. "Mér finnst ég skynja núna dálítið svipaða umræðu um þorskeldið og í árdaga þeirrar atvinnustarfsemi, gullgrafarastemminguna. Hún á lítinn rétt á sér," sagði ráðherrann. 27.9.2007 21:00
„Læt ekki taka mig af lífi án dóms og laga“ Atli Gíslason, alþingismaður og lögmaður, ætlar ekki að una úrskurði Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem nýverið dæmdi hann og veiðifélaga hans í þriggja ára veiðibann. Eftirlitsmaður í Hítará stóð nokkra þeirra að því að veiða á maðk í ánni og voru þeir í kjölfarið allir dæmdir í bann. Atli hyggst leita réttar síns í málinu og sættir sig ekki við að vera dæmdur fyrir verknað sem hann kom ekki nálægt og vissi ekki um. 27.9.2007 20:33
Starfar ekki sem lögmaður aftur Lögmannafélag Íslands hafði ekki hugmynd um að Róbert Árni Hreiðarsson væri grunaður um kynferðisbrot fyrr en fjallað var um málið í fjölmiðlum. Formaður félagsins segir að lögreglan ætti að hafa heimild til að tilkynna félaginu ef grunur leikur á að lögmaður hafi framið lögbrot. Róbert Árni mun að öllum líkindum aldrei starfa sem lögmaður á ný. 27.9.2007 18:57
Misbrestur á að sjómenn stundi öryggisæfingar Skólastjóri slysavarnarskóla sjómanna segir mikinn misbrest á að sjómenn stundi lífsnauðsynlegar öryggisæfingar um borð í skipum sínum. Engu að síður hafi tekist að fækka sjóslysum gríðarlega eftir að slysavarnarskólinn komst á flot. 27.9.2007 18:48
Borgin segir alrangt að skógareyðing sé í uppsiglingu Borgaryfirvöld segja alrangt að meiriháttar skógareyðing sé í uppsiglingu með nýjum byggingarhverfum. Þeim verði mætt með mótvægisaðgerðum og græni trefillinn verði jafnlangur. 27.9.2007 18:46
Guðfinna kallar eftir opinskárri umræðu um Evrópusambandsaðild Farið er að bera á umræðu meðal sjálfstæðismanna um þann möguleika að Íslendingar leggi niður krónuna og taki upp evru. Ungir sjálfstæðismenn hvetja til slíkrar skoðunar og Guðfinna S. Bjarnadóttir alþingismaður kallar eftir opinskárri umræðu, ekki aðeins um evruna heldur einnig Evrópusambandsaðild. 27.9.2007 18:37
Valur IS kominn til hafnar Lóðsinn á Ísafirði kom með Val IS til hafnar um kvöldmatarleytið. Áður hafði björgunarskip Landsbjargar á Ísafirði, Gunnar Friðriksson, komið línubátnum Val IS-18 frá Súðavík til aðstoðar. Skipin lágu fyrr í dag í vari undir Bjarnarnúp. 27.9.2007 18:35
Betur fór en á horfði í íþróttahúsi Fjölnis Allt tiltækt slökkvilið hefur var kallað út vegna elds í íþróttahúsi Fjölnis í Dalhúsum í Grafarvogi rétt eftir klukkan sex í kvöld. Tilkynnt var um að mikinn reyk legði frá húsinu og fóru reykkafarar þegar inn í húsið. Eldur hafði komið upp í búningsklefa og náðu slökkviliðsmennirnir tökum á honum á örfáum mínútum. 27.9.2007 18:10
Mátti búast við uppsögnum Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, harmar þær uppsagnir sem tilkynnt var um í dag á Eskifirði og í Þorlákshöfn. Hann segir að við þessu hafi mátt búast þegar ákveðið var að skera niður aflaheimildir í þorski. 27.9.2007 17:31
Í gæsluvarðhaldi til 18. október vegna smyglskútumáls Héraðsdómur Reykjavíkur hefur að kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu úrskurðað karl á þrítugsaldri í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. október vegna rannsóknar á aðild hans að fíkniefnamálinu á Fáskrúðsfirði. 27.9.2007 17:13
Fjórtán mánaða fangelsi fyrir líkamsárás Hæstiréttur þyngdi í dag dóm yfir manni sem sakfelldur var fyrir líkamsárás. Dæmdi Hæstiréttur hann í 14 mánaða fangelsi en héraðsdómur hafði áður dæmt hann í eins árs fangelsi. 27.9.2007 17:08
Sýknudómi í nauðgunarmáli vísað aftur í hérað Hæstiréttur ómerkti í dag sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni sem ákærður var fyrir nauðga 13 ára stúlku og vísaði málinu aftur heim til héraðs. 27.9.2007 16:51
Bæjarstjórinn miður sín Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri í Fjarðarbyggð, segist vera afskaplega miður sín vegna þess að til uppsagna á Eskifirði hafi þurft að koma. Eskifjörður er einn af þéttbýliskjörnunum í Fjarðarbyggð. 27.9.2007 16:47
Veiðimenn virði friðun blesgæsar Fuglavernd skorar á veiðimenn að virða friðun blesgæsar, nú þegar gæsirnar eru að streyma til landsins frá varpstöðvum sínum á Grænlandi. Fuglavernd skorar einnig á lögreglumenn og sýslumannsembættin í Borgarfirði og á Suðurlandi að aukaeftirlit með gæsaveiðum og skoða afla veiðimanna. 27.9.2007 16:47
Sárt en ekki óvænt Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis, segir það vera mjög sárt að fyrirtæki í sjávarútvegi hafi þurft að grípa til uppsagna. 27.9.2007 16:38