Maðurinn bak við Stokkhólmseinkennið allur Magnús Jochum Pálsson skrifar 27. júní 2025 08:13 Olofsson varð heimsfrægur þegar klefafélagi hans, Jan-Erik Olsson, dró hann með sér í bankarán við Norrmalmstorg. Gíslarnir féllu fyrir Olofsson sem varð til þess að Stokkhólmseinkennið var búið til sem hugtak. Getty Clark Olofsson, einn frægasti glæpamaður Svíþjóðar, er látinn 78 ára að aldri. Olofsson var annar af tveimur sem báru ábyrgð á Norrmalmstorgs-ráninu 1973, sex daga gíslatöku þar sem gíslarnir urðu svo hændir að bankaræningjunum að hugtakið Stokkhólmseinkenni var skapað.
Fjölskylda Olofsson greindi sænska fjölmiðlinum Dagens ETC frá því að hann væri látinn eftir löng veikindi. Olofsson varði miklum tíma ævi sinnar í fangelsi fyrir margvísleg brot, þ.á m. líkamsárásir, morðtilraun, fíkniefnasmygl, fíkniefnasölu og bankarán. Olofsson hefur verið kallaður fyrsti „stjörnukrimmi“ Svíþjóðar en þekktastur varð hann fyrir þátt sinn í Norrmalmstorg-ráninu þar sem hann og Jan-Erik Olsson tóku fjóra gísla í banka í Stokkhólmi. Mennirnir höfðu verið saman í fangaklefa og voru báðir að afplána fangelsisdóma þegar ránið átti sér stað. Olsson hafði fengið tímabundið leyfi til að yfirgefa fangelsið og nýtti það til að brjótast inn í Kreditbanken við Norrmalmstorg og taka þar þrjár konur og einn karl í gíslingu. Olsson krafðist þess í viðræðum við Lennart Geijer, þáverandi dómsmálaráðherra Svíþjóðar, að félagi hans úr fangelsinu, Clark Olofsson, yrði fluttur úr fangelsi í bankann. Þrátt fyrir að vera góðkunningi lögreglunnar og síbrotamaður töldu yfirvöld ólíklegt að Olofsson hefði verið með í ráðum við bankaránið. Stokkhólmsheilkennið Olofsson var því fluttur í bankann sem var umkringdur lögreglumönnum. Mörgum árum síðar hélt Olofsson því fram í viðtali við Aftonbladet að hann hefði verið beðinn um að vinna fyrir lögregluna við að halda gíslunum öruggum í skiptum fyrir stytta refsingu. Lögreglan hefði ekki virt það samkomulag að hans sögn. Lögreglumenn á verði fyrir utan Kreditbanken, tilbúnir að bregðast við.Getty Olofsson sannfærði einn gíslanna, Kristinu Enmark, að ræða við Olof Palme forsætisráðherra fyrir hönd ræningjanna. Enmark bað Palme um að leyfa sér að yfirgefa bankann með ræningjunum í undankomubíl og sagðist treysta þeim fullkomlega. Enmark ræddi við Palme nokkrum sinnum við Palme og varði ræningjana og sagðist óttast að lögreglan myndi meiða þá. „Hann lofaði því að ekkert myndi koma fyrir mig og ég ákvað að trúa honum. Ég var 23 ára og óttaðist um líf mitt,“ sagði Enmark um Olofsson í ævisögu sinni. Eftir sex daga lauk gíslatökunni þegar lögreglan braust gegnum þak bankans og notaði táragas til að yfirbuga þá Olsson og Olofsson. Gíslarnir neituðu í fyrstu að yfirgefa ræningja af ótta við að lögreglan myndi skjóta þá og síðar neituðu gíslarnir að bera vitni gegn þeim. Jan-Erik Olsson í járnum eftir að lögreglan stöðvaði gíslatökuna í Kreditbanken.Getty Eftir gíslatökuna bjó sænski sálfræðingurinn og afbrotafræðingurinn Nil Bejerot til hugtakið Stokkhólmsheilkenni til að útskýra órökréttan hlýhuginn sem gíslarnir báru til gíslatökumannanna. Hugtakið varð síðan enn útbreiddara 1974 þegar Patty Hearst, erfingja Hearst-blaðaveldisins, var rænt af skæruliðum í Symbionese Liberation Army (SLA). Hún varð þátttakandi í glæpum hersins og var handtekinn ásamt öðrum meðlimum í bankaráni árið 1975. Sérfræðingar hafa deilt um það hvort Stokkhólmsheilkennið sé raunverulegt sálfræðilegt ástand eða varnarmekanismi fólks sem lendir í trámatískum aðstæðum. Kristin Enmark ræddi árið 2021 við hlaðvarpið Sideways á BBC og gaf þá lítið fyrir heilkennið. „Það er leið til að kenna fórnarlambinu um. Ég gerði hvað ég gat til að lifa af,“ sagði hún. Olofsson losnaði úr fangelsi í síðasta sinn árið 2018 eftir að hafa setið inni fyrir fíkniefnabrot í Belgíu. Árið 2022 komu út sænsku þættirnir Clark á Netflix sem fjölluðu um ævi og glæpi Olofsson en Bill Skarsgård fór með hlutverk stjörnukrimmans.
Andlát Svíþjóð Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið Innlent Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Innlent Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Innlent Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Innlent Fleiri fréttir Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Sjá meira