Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tálbeitumál fyrir dómi Jóhannes Kr. Kristjánsson ritstjóri Kompáss og Ingi R. Ingason framleiðandi þáttarins voru kallaðir til vitnis í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna mála tveggja manna sem gengu í gildru þáttarins í vor. Mennirnir héldu að þeir væru að fara á fund 13 ára stúlku í kynferðislegum tilgangi. 14.9.2007 12:58
Húsleit hjá Lyfjum og heilsu Fulltrúar frá Samkeppniseftirlitinu gerðu í morgun húsleit á skrifstofum apótekakeðjunnar Lyf og heilsa. Þetta staðfesti Lyf og heilsa. 14.9.2007 12:28
Fjúkandi reiður út í HB Granda Gísli S. Einarsson bæjarstjóri á Akranesi er fjúkandi reiður út í HB Granda vegna ákvörðunnar fyrirtækisins um að hætta við að flytja upp á Akranes. "Það er verulega þungt í mér hljóðið sökum þess og þeir höfðu ekki einu sinni fyrir því að tilkynna okkur um þessa ákvörðun áður en hún birtist í fjölmiðlum," segir Gísli S. Einarsson bæjarstjóri á Akranesi í samtali við Vísi. 14.9.2007 12:15
Kjötkrókur dæmdur í skilorð Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í þrettán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela hangikjötslæri úr Bónus. Maðurinn var á skilorði fyrir brotið en vegna þess að hann þykir hafa komið lífi sínu á réttan kjöl eftir töluvert langan brotaferil þótti dómara rétt að dæma manninn aftur í skilorðsbundið fangelsi. 14.9.2007 12:15
Karl Steinar Guðnason hættir Karl Steinar Guðnason, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, lætur af störfum 1. nóvember næstkomandi vegna aldurs. Við starfi hans tekur Sigríður Lillý Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Þróunarsviðs Tryggingastofnunar. 14.9.2007 11:38
Fulltrúi Landsbjargar til Ghana Gisli Rafn Ólafsson, Slysavarnafélagi Landsbjargar, er nú á leið til Ghana til þess að aðstoða stjórnvöld í að meta umfang mikilla flóða sem þar hafa verið undanfarið. Gísli og félagar hans munu skoða aðstæður á vettvangi og samhæfa viðbrögð alþjóðasamfélagsins auk þess að styðja við bakið á almannavörnum landsins. 14.9.2007 11:34
Randver hrærður Randver Þorláksson leikari segir að það hræri hans litla hjarta hve sterk viðbrögðin hafa verið við brotthvarfi hans úr Spaugstofunni. "Mér þykir mjög vænt um hvað þjóðinni þykir vænt um mig," segir Randver í samtali við Vísi. Sett hefur verið upp sérstök vefsíða þar sem fólk getur mótmælt uppsögn Randvers og hafa yfir 300 skráð sig þar. 14.9.2007 11:19
Sluppu ómeiddir úr bílveltu Tveir menn sluppu ómeiddir þegar bifreið þeirra valt á Vífilsstaðavegi um klukkan tíu í morgun. Sjónarvottar að slysinu segja að um ofsaakstur hafi verið að ræða en lögregla tjáir sig ekki um það að svo stöddu. Að sögn vaktstjóra hjá slökkviliðinu voru sjúkrabílar kallaðir á vettvang en ökumaður og farþegi reyndust ekki alvarlega slasaðir. 14.9.2007 10:57
HB Grandi hættir við Skagann Stjórn HB Granda hefur hætt við áform sín um að flytja upp á Akranes og reisa þar nýtt fiskiðjuver. Á heimsíðu HB Grand er sagt að þessi ákvörðun sé tekin þar sem Faxaflóahafnir hafi ekki talið sér fært að uppfylla óskir HB Granda um gerð nýrrar fiskihafnar á Akranesi. Björn Ingi Hrafnsson stjórnarformaður Faxaflóahafna segir að þverpólitísk samstaða hafi verið innan hafnarstjórnar um samstarf við HB Granda. 14.9.2007 10:53
Bílakaup jukust í vor og sumar Neysla almennings eykst á ný á öðrum ársfjórðungi þessa árs samkvæmt Hagtíðindum Hagstofunnar. Á fyrsta ársfjórðungi dróst neysla saman um rúmlega eitt prósent. Bílakaup jukust lítilsháttar en færri kaupa hins vegar sjónvörp, tölvur og hjólhýsi. Alls jókst landsframleiðsla um 2,5 prósent á ársfjórðunginum. 14.9.2007 09:59
Ferðakóngurinn Andri á Írlandi Primera Travel Group, fyrirtæki Andra Más Ingólfssonar hefur fest kaup á stærstu ferðaskrifstofu Írlands. Kaupverðið er 46,4 milljónir evra eða rúmlega fjórir milljarðar króna. Ferðaskrifstofan ber nafnið Budget Travel og samkvæmt upplýsingum á heimsíðu hennar var veltan á síðasta ári um 200 milljónir evra eða um 18 miljarðar króna. 14.9.2007 08:49
Bolvíkingar kynna aðgerðaráætlun Bæjarstjórn Bolungarvíkur kynnti í gærkvöldi aðgerðaráætlun til að koma í veg fyrir atvinnuleysi og fólksfækkun í bænum vegna skertra þorskveiðiheimilda á þessu fiskveiðiári. 14.9.2007 08:14
Bílar fuku í óveðri í gærkvöldi Tveir menn voru fluttir meiddir á sjúkrahús eftir að lítill flutningabíll fauk út af veginum við Ingólfsfjall um níuleytið í gærkvöldi. Þá fauk bíll út af þjóðveginum við bæinn Reyðará hjá Lóni skammt frá Höfn í Hornafirði. Fimm voru í bílnum og þurfti einn að leita til læknis vegna skurðar á hendi en aðrir sluppu ómeiddir. 14.9.2007 07:58
Síldarvinnslan í Tallin Um það bil 320 manna hópur starfsmanna Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, og frá starfsstöðvum fyrirtækisins á Seyðisfirði, í Helguvík og á Siglufirði, er kominn til Tallin í Eistlandi. Þar stendur til að halda veglega árshátíð í Óperuhúsinu annað kvöld. 14.9.2007 07:26
Ölvun á skólaböllum Talsverð ölvun var á þremur skólaböllum sem haldin voru á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Ekki kom þó til alvarlegra átaka, að sögn lögrelgu, en þó þurfti að taka fimm ungmenni úr umferð vegna ölvunar. Foreldrum þeirra var gert viðvart, sem sóttu þá á lögreglustöðina. 14.9.2007 07:15
Slösuðust lítillega þegar bíll fauk út af veginum Tveir menn voru fluttir lítillega meiddir á sjúkrahús eftir að lítill flutningabíll fauk út af veginum við Ingólfsfjall um níuleytið í kvöld. Talsvert hvassviðri er á þessum slóðum og eru ökumenn kvattir til að sýna sérstaka aðgát við akstur. 13.9.2007 22:19
Stóra Lúkasarmálið týnt í kerfinu Öll gögn í Lúkasarmálinu eru týnd að því er virðist. Hvorki lögreglan á Akureyri né lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kannast við að málið sé á þeirra borðum. Erlendur Þór Gunnarsson, lögfræðingur Helga Rafns Brynjarssonar, sagði í samtali við Vísi í dag að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefði rannsakað málið í sumar. Síðan hefði verið tekin sú ákvörðun að fela það lögreglunni á Akureyri. 13.9.2007 21:23
Bílvelta í Lóni Bílvelta varð við bæinn Reyðará í Lóni austan við Höfn í Hornafirði. Mikið rok hefur verið fyrir austan í allan dag og telur lögreglan að bíllinn hafi hreinlega fokið út af. Fimm voru í bílnum og þurfti einn að leita til læknis vegna skurðar á hendi en aðrir sluppu ómeiddir. 13.9.2007 20:40
Íslenskir Bjarnabófar í gæsluvarðhaldi í Kaupmannahöfn Tveir íslenskir karlmenn eru sakaðir um bankarán sem var framið í Nordea á Amagerbrogade í gær. Mennirnir eiga það sameiginlegt að heita Bjarni. En þeir munu deila ýmsu fleira en fornafninu á næstunni. Þeir munu nefnilega dúsa saman í fangelsi í 27 daga. Saksóknari fór fram á gæsluvarðhaldsúrskurð yfir mönnunum svo þeir gætu ekki stungið af úr landi. 13.9.2007 19:49
Sjómenn sárir Formaður Sjómannasambands Íslands segir ríkisstjórnina hafa gleymt sjómönnum í mótvægisaðgerðum vegna kvótaskerðingarinnar. Hann segir sjómenn sára og urgur sé í þeim. 13.9.2007 19:19
Lúxuskvöldverður Kaupþings í Listasafni Reykjavíkur Kaupþing býður tæplega tvö hundruð viðskiptavinum bankans í lúxuskvöldverð á Listasafni Reykjavíkur um helgina. Michelinkokkur frá einum dýrasta veitingastað Frakklands eldar og dýrasta vínið kostar allt að hundrað þúsund krónum flaskan. 13.9.2007 19:11
Gangnamenn til byggða úr erfiðustu leitum um árabil Gangnamenn Hrunamanna komu til byggða í dag úr einhverjum erfiðustu leitum í áratugi. Mikil bleyta eftir úrhellisrigningar veldur því að hestar og menn koma sárir og örþreyttir ofan af hálendinu. 13.9.2007 18:48
Landsbankinn býður 200 völdum viðskiptavinum á La Scala á Ítalíu Landsbankinn býður tvö hundruð völdum viðskiptavinum bankans ásamt mökum í ferð til Ítalíu um helgina. Farið verður á La Scala Óperuna, gist verður á fimm stjörnu lúxushóteli og vel gert við sig í mat og drykk. 13.9.2007 18:45
Snarræði forðaði stórslysi í Kollafirði Litlu mátti muna að fjöldi fólks slasaðist alvarlega í Kollafirði í morgun þegar rúta með fimmtíu farþega ók inn í aurskriðu við Esjurætur. Tveir farþegar meiddust lítillega. 13.9.2007 18:45
Hydro keppir um orku til álvers á Íslandi Norski álframleiðandinn Hydro gefur ekkert eftir í álverskapphlaupinu og vill hefja framkvæmdir sem fyrst í Þorlákshöfn, á Keilinesi eða á öðrum hentugum stað á landinu. Sendinefnd frá Hydro fundaði í gær með Landsvirkjun og Orkuveitu Reykjavíkur. 13.9.2007 18:41
Slökkviliðið kallað að Spítalastíg Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað að Spítalastíg á sjötta tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Jóni Viðari Matthíassyni slökkviliðsstjóra lagði mikinn reyk frá húsi þar. Því var ákveðið að senda inn tvo reykkafara. Sennilegast hafi verið einhver eldur. Síðar kom í ljós að eldurinn var ekki eins mikill og fyrst var talið. 13.9.2007 17:33
Tveggja mánaða skilorð fyrir að reyna að keyra niður fyrrverandi konuna sína Hæstiréttur staðfesti í dag fangelsisdóm yfir karlmanni sem sakaður var um að hafa stofnað lífi fyrrum konu sinnar í hættu. Maðurinn ók bifreið sinni að konunni sem tókst með naumindum að forða sér. Í dómnum kemur fram að karlmaðurinn hafi borið mjög þungan hug til konunnar og þykir sannað að hann hafi sett hana í háska með ófyrirleitnum hætti. 13.9.2007 17:23
Ölvuð undir stýri með barnið í bílnum Kona á fertugsaldri var tekin fyrir ölvunarakstur við gatnamót Reykjanesbrautar og Breiðholtsbrautar síðdegis í gær. Með konunni í bílnum var barn hennar sem er á grunnskólaaldri. Þá var rúmlega þrítugur karl tekinn fyrir ölvunarakstur í nótt en sá var stöðvaður í Skútuvogi. 13.9.2007 17:15
Þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun Hæstiréttur dæmdi í dag Americo Luis Da Silva Conçalves í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga konu þann 10 september 2006 . Þá var hann dæmdur til að greiða fórnarlambinu eina milljón króna í miskabætur. Maðurinn fékk fjögurra ára fangelsi í héraði. 13.9.2007 16:57
Fékk ekki að kveðja eiginmann sinn eftir að honum var vísað úr landi Eiginkona rússnesks manns sem búsettur hefur verið hér á landi undanfarin tvö ár óttast um afdrif hans eftir að hann var rekinn úr landi í gær. Maðurinn, sem er frá Tjetjeníu, var sendur til baka til Rússlands og óttast kona hans að þar verði hann settur í fangelsi vegna uppruna síns. Lögreglan meinaði henni að kveðja hann á Leifsstöð í gær. 13.9.2007 16:40
Skilja þarf betur á milli einkaleyfis- og samkeppnisþátta raforkumarkaðar Samkeppniseftirlitsins telur að huga þurfi að aðgerðum til að virkja betur samkeppni á íslenskum raforkumarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu eftirlitsins í tilefni af því að í dag kom út skýrsla norrænu samkeppniseftirlitsstofnanna um raforkumarkaðinn. 13.9.2007 16:17
Geir fundar með forseta Írlands Geir H. Haarde, forsætisráðherra, fundaði í dag með frú Mary McAleese, forseta Írlands. Þá ræddi Geir um stöðu efnhags- og atvinnumála á Íslandi og Írlandi við Michael Martin, ráðherra iðnaðar-,viðskipta- og vinnumarkaðsmála. 13.9.2007 16:12
Stefna að því að koma á fót alhliða brjóstameinastöð Tveir hjúkrunarfræðingar vinna að því að koma á fót brjóstameinamiðstöð hér á landi þar sem konum sem greinast með brjóstakrabbamein og aðra sjúkdóma í brjóstum og aðstandendum þeirra verður boðið upp á alla þjónustu, allt frá greiningu til loka meðferðar. 13.9.2007 15:37
Lítið atvinnuleysi í landinu í ágúst Atvinnuleysi á landinu öllu mældist 0,9 prósent í nýliðnum ágústmánuði samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Þetta jafngildir því að 1.476 manns hafi verið án atvinnu í mánuðinum að meðaltali. Fleiri konur voru án atvinnu en karlar í síðasta mánuði. 13.9.2007 15:37
Býður vesturbæingum upp á heimsendingar með lyf Apótek Vesturlands býður vesturbæingum í Reykjavík upp á heimsendingar á lyfjum í auglýsingu sem apótekið birti í Vesturbæjarblaðinu í dag. Í auglýsingunni er fullyrt að Lyf og heilsa láti vesturbæinga niðurgreiða lyf vegna samkeppni á Akranesi. Eigandi Apóteks Vesturlands segist geta boðið vesturbæingum upp á allt að 76 prósent lægra lyfjaverð. 13.9.2007 14:41
Keppst um hver er sparneytnasti bíllinn Nú stendur yfir kappakstur á höfuðborgarsvæðinu þar sem markmiðið er ekki hraði heldur sparneytni bíla og lágan eldsneytiskostnað. Kappaksturinn er haldinn á vegum samráðsvettvangs atvinnulífs og Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands og Orkuveitu Reykjavíkur og taka 30 vistvænustu bifreiðar landsins þátt í honum. 13.9.2007 14:17
Yfir 300 ökumenn teknir fyrir hraðakstur á Bústaðavegi Alls eiga 322 ökumenn yfir höfði sér sekt vegna hraðaksturs á Bústaðavegi í gær og fyrradaga. Brot þeirra náðust á löggæslumyndavél á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallarvegar. 13.9.2007 14:00
Knúði mann til að taka fé af reikningi sínum með ofbeldi Karlmaður hefur verið ákærður fyrir bæði líkamsárás og rán fyrir að knýja annan mann með ofbeldi og hótunum um ofbeldi til þess að fara í banka og taka út fé af reikningum sínum. Ákæra á hendur manninum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 13.9.2007 13:51
Rektor braut klósett í reiðikasti Rektor Menntaskólans við Hamrahlíð braut í gær klósett sem nemendur höfðu ætlað að nota við busavígslu og hellti úr skálum reiði sinnar yfir þá. Nemendur voru miður sín eftir atvikið, en þeir höfðu fengið klósettið lánað fyrir vígsluna. 13.9.2007 13:44
Ríkisstofnunum fækkar Ríkisstofnunum fækkaði um 50 frá árunum 1998 til 2006 samkvæmt samantekt fjármálaráðuneytisins. Fjöldi starfsmanna hjá ríkisstofnunum var 21.600 í lok síðasta árs og um þriðjungur þeirra vann hjá heilbrigðisstofnunum. 13.9.2007 13:27
Tryggja verður að orkulindir verði í almannaeigu Formaður iðnaðarnefndar Alþingis segir að tryggja verði að orkulindir þjóðarinnar verði í almannaeigu. Formaður Framsóknarflokksins telur hlutafélagavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur orka tvímælis. 13.9.2007 13:04
Ekki komið nægilega til móts við fólk í sjávarútvegi Stjórnarandstaðan segir mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar við skerðingu þorskkvótans ekki koma nægilega til móts við sjómenn, fiskvinnslufólk og þau útgerðarfyrirtæki sem verði mest fyrir þorskskerðingunni. Sjávarútvegurinn standi jafn slyppur og snauður eftir aðgerðirnar. 13.9.2007 12:57
Sigurjón svikinn um stöðu framkvæmdastjóra Sigurjón Þórðarson fyrrverandi alþingismaður frjálslyndra, fær ekki stöðu framkvæmdastjóra flokksins, eins og honum hafði verið lofað, þegar hann vék sæti fyrir Kristni H. Gunnarssyni. 13.9.2007 12:29
Lúxussjávarafurðafyrirtæki komið í þrot Fyrirtæki sem framleitt hefur sæeyru við Eyjafjörð er gjaldþrota. Öllum starfsmönnum hefur verið sagt upp. 13.9.2007 12:00
Erlendir ferðamenn eyða þriðjungi meira en í fyrra Gjaldeyristekjur af ferðamönnum jukust verulega á öðrum fjórðungi ársins miðað við sama tímabil í fyrra eftir því sem segir í frétt frá Ferðamálastofu. Þar er vitnað í tölur frá Seðlabankanum sem sýni að neysla ferðamanna hafi aukist um nærri þriðjung, úr ellefu milljörðum króna í rúma 14 á tímabilinu. 13.9.2007 11:48