Lúxuskvöldverður Kaupþings í Listasafni Reykjavíkur 13. september 2007 19:11
Kaupþing býður tæplega tvö hundruð viðskiptavinum bankans í lúxuskvöldverð á Listasafni Reykjavíkur um helgina. Michelinkokkur frá einum dýrasta veitingastað Frakklands eldar og dýrasta vínið kostar allt að hundrað þúsund krónum flaskan. Kaupþing í Lúxemborg býður til einkakvöldverðar bæði föstudags og laugardagskvöld og hafa forsvarsmenn bankans flutt inn matreiðslumeistara frá Frakklandi. Hann heitir Emile Jung og er eigandi staðarins Au Crocodile sem er í Strasborg. Veitingastaðurinn er með þeim dýrari í Frakklandi. Hann er með tvær michelin stjörnur sem er mælikvarði á gæði staðarins. Mest geta veitingastaðir fengið þrjár Michelin stjörnur. Sem dæmi kostar 10 rétta tilboðsmatseðill á heimasíðu staðarins fyrir tvo með víni um 415 evrur eða tæpar fjörutíu þúsund krónur. Í porti Listasafns Reykjavíkur fara herlegheitin fram. 80 íslenskum viðskiptavinum verður boðið til kvöldverðar á morgun og um 115 stærstu viðskiptavinum Kaupþings í Lúxemborg verður boðið til kvöldverðar á laugardagskvöld. Boðið verður upp á 10 rétta máltíð bæði kvöldin. Á boðstólnum verður meðal annars hreindýr, anda-og gæsalifur, linghænur, dúfur, humar og fleira. Þá verður boðið upp á hágæðavín með matnum, Pingus frá Spáni og Bordeaux vín frá Frakklandi. Veitinga þjónustuna Múlakaffi aðstoðar Emile Jung við framleiðslu. Heimildir fréttastofu herma að ódýrasta vínið kosti tæpar fjörutíu þúsund krónur en dýrustu vínin á kvöldverðinum kosti allt að hundrað þúsund íslenskum krónum. Í vínbúðinni í Austurstræti kostar dýrasta rauðvínið tæpar tuttugu þúsund krónur. Forsvarsmenn Kaupþings vildu ekki tjá sig um veisluhöldin þegar leitað var eftir því.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Sammála því að erfitt haust sé í vændum Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Sjá meira