Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á og hóta lögreglumanni Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á og haft í hótunum við lögregluþjón við skyldustörf. 13.9.2007 10:42
Vill endurskipuleggja sjúkraflutninga í landinu Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur skipað vinnuhóp sem á að gera á tillögur um endurskipulag sjúkraflutninga í landinu. Vinnuhópurinn fær aðeins um tvo mánuði til að vinna verkefnið og er gert að skila tillögum sínum til ráðherra eigi síðar en 15. nóvember eftir því sem fram kemur á vef ráðuneytisins. 13.9.2007 10:34
Umferðaróhapp við Gullinbrú Bifhjólamaður missti stjórn á hjóli sínu við Gullinbrú í Grafarvogi laust fyrir klukkan átta í morgun með þeim afleiðingum að hann lenti í götunni. Maðurinn viðbeinsbrotnaði og var fluttur á slysadeild að sögn lögreglu. 13.9.2007 10:29
Actavis deilir við bandarískt fyrirtæki um einkaleyfi á verkjalyfi Actavis hefur lagt inn skráningu til bandaríska Matvæla- og lyfjaeftirlitsins fyrir samheitalyf verkjalyfsins Avinza en félagið véfengir einkaleyfi lyfjafyrirtækisins King Pharmaceuticals á lyfinu. 13.9.2007 10:24
Miklir búferlaflutningar til og frá landinu Tæplega 3800 erlendir ríkisborgarar fluttust til landsins á fyrri helmingi ársins samkvæmt tölum Hagstofunnar. Það er álíka há tala og undanfarin tvö ár. Hins hefur brottfluttum útlendingum fjölgað nokkuð frá fyrri árum en þeir voru rúmlega 1100 á fyrri helmingi ársins. 13.9.2007 09:11
Upplýsir um laun Páls á sínum forsendum Ómar Benediktsson, stjórnarformaður RÚV ohf, neitar að upplýsa Vísi um mánaðarlaun Páls Magnússonar útvarpsstjóra. Hann ætlar að birta þau á eigin forsendum á næsta ári. Leynd hefur líkt yfir launum Páls frá því að RÚV var breytt í opinbert hlutafélag en heimildir Vísis herma að þau sé töluvert hærri heldur en þær 718 þúsund krónur sem hann fékk á mánuði áður en breytingin átti sér stað fyrr á þessu ári. 13.9.2007 09:09
Yfir 15 þúsund fengu sér pylsu og kók Ríflega 305 þúsund krónur söfnuðust um helgina þegar Bæjarins beztu buðu upp á pylsu og kók á 20 krónur til styrktar Konukoti. Þetta gerðu eigendur Bæjarins beztu í tilefni 70 ára afmælis fyrirtækisins og út frá þessu má reikna að 15.277 hafi fengið sér pylsu og kók. 13.9.2007 09:00
Verkalýðsfélag Húsavíkur mótmælir misskiptingu Verkalýðsfélag Húsavíkur, krefst þess í ályktun sinni um kjaramál, að Samtök atvinnulífisins vakni til lífsins og taki þátt í að uppræta þá miklu misskiptingu launa, sem viðgengst á Íslandi. 13.9.2007 08:09
Forsætisráðherra Írlands virðist spilltur upp fyrir haus Forsætisráðherra Írlands, Bertie Ahern, mætir fyrir nefnd á fimmtudaginn þar sem hann þarf að svara fyrir meinta spillingu. Hann er sagður hafa þegið fjárgreiðslur frá kunningum og kaupsýslumönnum á tíunda áratug síðustu aldar þegar hann sat í stóli fjármálaráðherra. 12.9.2007 23:14
Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni sem var í síðustu viku dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir ýmis auðgunarbrot og er grunaður um önnur afbrot eftir að dómur var kveðinn. Maðurinn skal sæta varðhaldi þar til dómur fellur í Hæstarétti en þó eigi lengur en til föstudagsins 5. október 2007. 12.9.2007 22:44
Ákærður fyrir ólöglegar kvikmyndasýningar Eigandi veitingastaðarins Kaffi Kró í Vestmannaeytjum hefur verið lögsóttur fyrir að sýna gestum veitingastaðarins í nokkur skipti mynd Heiðars Marteinssonar "Uppbyggingin - Eldgosið í Heimaey" sumarið 2004. 12.9.2007 21:24
Ófært á Austfjörðum Á Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði og í Oddskarði hefur myndast krapi. Eru vegfarendur sem eru á ferð á þessum svæðum beðnir um að gæta varúðar. 12.9.2007 20:49
Slökkviliðið sinnti útkalli í slökkvistöðinni Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins þurfti ekki að fara langt til að sinna aðstoðarbeiðni vegna vatnsleka í höfuðborginni um sjöleytið í kvöld. Lekinn kom nefnilega upp í kjallara í sjálfri slökkvistöðinni við Skógarhlíð. Frárennslislagnir eru orðnar lélegar þar og létu undan í rigningarsuddanum í dag. Að sögn slökkviliðsins gekk ágætlega að hreinsa vatnið og litlar sem engar skemmdir urðu sökum lekans. 12.9.2007 20:31
Frændi Bretadrottningar afhjúpar minnisvarða Hertoginn af Kent, náfrændi Bretadrottningar, afhjúpaði í Fossvogskirkjugarði nú síðdegis minnisvarða um flugmenn bandamanna sem dvöldu hérlendis á árum síðari heimstyrjaldarinnar. 12.9.2007 19:12
Veiturnar verði almannaeign Össur Skarhéðinsson iðnaðarráðherra leggst gegn því að fjárfestar á markaði geti eignast almannaveitur og telur mikilvægt að tryggja að þær verði í félagslegri meirihlutaeign. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, vill ekki að útlendingar laumist bakdyramegin í orkulindir þjóðarinnar. 12.9.2007 19:09
Sögð mikilvægasta nefnd ríkisstjórnarinnar Hvað á að virkja og hvað á að friða? Nefnd, sem sögð er sú mikilvægasta sem ríkisstjórnin hefur skipað, er ætlað að svara þessum grundvallarspurningum á næstu tveimur árum. 12.9.2007 19:06
Vestfirðingar stefna á sjávarútvegsháskóla Vestfirðingar hafa sett stefnuna á eigin háskóla á Ísafirði strax á næsta ári. Þeir vilja að hann sérhæfi sig í fræðum sem lúta að hafinu. 12.9.2007 19:04
Búið að samþykkja tvöföldun Suðurlandsvegar Kjartan Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að búið sé að samþykkja að tvöfalda veginn frá Reykjavík að Selfoss. Það hafi verið gert í síðustu samgönguáætlun sem samþykkt var á liðnu þingi. Kjartan segir að Vegagerðin vinni nú að skipulagi þessa vegar ásamt viðkomandi sveitarfélögum. Þegar skipulagið verði samþykkt muni framkvæmdir hefjast. 12.9.2007 18:57
Tæplega 1700 athugasemdir vegna Kársness Kópavogsbæ barst athugasemdir frá 1674 einstaklingum og samtökum við hugmyndir að skipulagi á hafnarsvæði á Kársnesi. Þar af bárust 1117 athugasemdir af Kársnesinu sjálfu. Langflestar þeirra voru sendar inn eftir að bæjarráð Kópavogs ákvað að framlengja athugasemdafrestinn til 3. september. 12.9.2007 18:37
Vegarkaflinn milli Hveragerðis og Selfoss eins og Miklabrautin Vegurinn á milli Hveragerðis og Selfoss er orðinn eins og Miklabrautin í Reykjavík segir sýslumaðurinn á Selfossi og telur brýnt að hann verði tvöfaldaður strax. Tvö banaslys hafa orðið á veginum á þessu ári með stuttu millibili. 12.9.2007 18:34
Íslendingar kaupa þrjú hótel og veitingastaði í Kaupmannahöfn Þrjú þekktustu hótel Kaupmannahafnar eru nú í eigu Íslendinga. Fjárfestingarfélagið Nordic Partners hefur meðal annars keypt hið sögufræga hótel D’Anglaterre. 12.9.2007 18:30
Þrjár Boeing vélar fljúga frá Egilsstöðum í kvöld Á miðnætti fara þrjár Boeing flugvélar frá Egilsstaðarflugvelli á sama tíma til Tallinn borgar í Eistlandi. Þetta er fjölmennasta flug frá þessum flugvelli á einum tíma. Alls fljúga 378 manns í þessu flugi sem er skipulagt af ferðaskrifstofunni Trans-Atlantic á Akureyri. Stærsti hópurinn af þessum farþegum er starfsmannahópur frá Síldarvinnslunni á Neskaupsstað. 12.9.2007 18:04
Dauðsföllum barna fækkar Nýjar alþjóðlegar tölur sýna að mikill árangur hefur náðst í baráttunni við barnadauða. Dauðsföllum barna undir fimm ára hefur fækkað verulega. Samtökin UNICEF segja að ný alþjóðleg rannsókn bendi til að um 9,7-10 milljónir barna deyi nú á ári. Þetta er veruleg fækkun. Til samanburðar dóu 13 milljónir barna á árinu 1990. 12.9.2007 17:51
Trúbador stefnir Tinnu og krefst skaðabóta Hörður Torfason trúbador með meiru hefur stefnt Þjóðleikhúsinu og krefst skaðabóta fyrir meintar vanefndir á munnlegum samningi sem hann segist hafa gert um tónleika í Þjóðleikhúskjallaranum í fyrra. "Ég tel að þessi krafa hans sé byggð á miklum misskilningi," segir Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri í samtali við Vísi. Hörður Torfason vill ekki tjá sig um málið að svo stöddu. 12.9.2007 17:00
Tíu og hálfur milljarður til mótvægisaðgerða Tíu og hálfum milljarði verður varið til mótvægisaðgerða á næstu tveimur fiskveiðiárum vegna niðurskurðar á þorskkvóta. Þetta kom fram í máli Árna Mathiesen fjármálaráðherra þar sem fjórir ráðherrar ríkisstjórnarinnar kynntu mótvægisaðgerðirnar í Þjóðmenningarhúsinu í dag. 12.9.2007 16:35
Sautján ára ákærð fyrir að ráðast á fimmtán ára Sautján ára stúlka hefur verið ákærð fyrir að ráðast á 15 ára stúlku við Bónusvideó í Hólagarði í fyrravor. Ákæra á hendur henni var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 12.9.2007 16:20
Flugmaðurinn ákærður fyrir hrottalegt heimilisofbeldi Ákæra á hendur karlmanni fyrir hrottalegt heimilisofbeldi var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Um er að ræða sama mann og komst í fréttirnar í síðasta mánuði þar sem hann var sakaður um að hafa smyglað konu frá Venesúela inn í landið þegar hann var flugmaður á fraktflugvél í fyrra. 12.9.2007 16:00
Veiða má rjúpu í mánuð, hámark 38.000 fugla Umhverfisráðherra hefur ákveðið að rjúpnaveiðitímabilið í ár standi frá 1. til 30. nóvember. Mælt er með því að veiddir verði að hámarki 38.000 fuglar. Áfram mun ríkja sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum. Ákvörðunin byggir á mati Náttúrufræðistofnunar Íslands á veiðiþoli rjúpnastofnsins og mati Umhverfisstofnunar á heildarveiði árið 2006 12.9.2007 15:27
Tveir gripnir í innbroti Tveir karlar á fertugsaldri voru handteknir í verslun í Ármúla í gærkvöld. Mennirnir brutu upp útidyrahurð og höfðu stungið á sig skiptimynt úr búðarkassa þegar lögreglan kom á vettvang. Þjófarnir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu en annar þeirra var eftirlýstur fyrir aðrar sakir. 12.9.2007 15:17
184 sektaðir fyrir hraðakstur á Digranesvegi 184 ökumenn eiga von á sektum eftir að hafa verið myndaðir við hraðakstur á Digranesvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt á móts við Menntaskólann í Kópavogi en þar er 30 kílómetra hámarkshraði. 12.9.2007 14:39
Heildarmat á virkjanakostum liggi fyrir um mitt ár 2009 Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hafa skipað verkefnastjórn sem á að undirbúa rammaáætlun um verndun og nýtingu náttúrusvæða. Er nefndinni ætla að skila skýrslu til ráðherranna með heildarmati á virkjunarkostum fyrir mitt ár 2009. 12.9.2007 14:15
Lögregla kærð fyrir að beita harðræði við handtöku Lögð hefur verið fram kæra á hendur lögreglunni fyrir að beita þrjá unga menn óeðlilega miklu harðræði. Drengirnir voru handteknir að tilefnislausu af vopnuðum sérsveitarmönnum sem beindu að þeim skotvopnum. 12.9.2007 14:00
Mótvægisaðgerðir kynntar í dag Fjármálaráðherra, iðnaðarráðherra, menntamálaráðherra og félagsmálaráðherra hafa boðað til blaðamannafundar í Þjóðmenningarhúsinu klukkan fjögur í dag. 12.9.2007 13:38
Láta kanna hvort skerðingar á lífeyrisgreiðslum séu lögmætar Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalags Íslands hefur falið lögmanni að kanna hvort Greiðslustofu lífeyrissjóðanna sé heimilt samkvæmt lögum að skerða eða afnema örorkulífeyri eins og nú stendur til. 12.9.2007 13:27
Björgvin segir ónafngreinda sjálfstæðismenn vera bleyður Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra finnst ekki mikill mannabragur á þeim ónafngreindu þingmönnum Sjálfstæðisflokksins sem gagnrýndu hann í Viðskiptablaðinu í gær fyrir ákafa í að koma evru- og Evrópumálum á dagskrá. „En broslegt er það nú í besta falli að kapparnir skuli ekki geta verið menn til að tala undir nafni," segir Björgvin í nýrri færslu á heimasíðu sinni. 12.9.2007 13:24
Þorkell Helgason hættir sem orkumálastjóri Dr. Þorkell Helgason hættir sem orkumálastjóri um áramót. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkustofnun. Þar segir að Þorkell hafi af persónulegum ástæðum óskað eftir þessu við iðnaðarráðherra og hann fallist á óskina. 12.9.2007 12:59
Frú Vigdís Finnbogadóttir gisti alltaf á D´Angleterre Hotel D´Angleterre sem nú er komið í eigu Íslendinga er eitt þekktasta hótel Norðurlandanna og iðjulega gististaður þeirra þjóðhöfðingja sem koma í heimsókn til Kaupmannahafnar. Þegar frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti Íslands kom til borgarinnar hér á árum áður gisti hún ávallt á D' Angleterre. Auk þeirra hafa nær allir frægustu kvikmyndaleikarar og tónlistamenn heims gist hótelið ef þeir hafa verið í borginni. 12.9.2007 12:53
Einkennilegur áróður fyrir álveri í Helguvík þótt ekkert sé að gerast Mikill og einkennilegur áróður er rekinn fyrir álveri í Helguvík þótt þar sé ekkert að gerast. Þetta segir forstjóri Orkuveitu Húsavíkur. 12.9.2007 12:30
Rok og rigning hamla ekki hjólagörpum í grunnskólunum Krakkar í Fossvogsskólanum létu ekki rok og rigningu aftra sér frá því að hjóla í skólann í morgunn en í dag er sérstakur umhverfisdagur í grunnskólum Reykjavíkur. 12.9.2007 12:10
Segja yfirmann fjölskyldudeildar hafa verið rekinn fyrir ummæli Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi segir segir að yfirmaður fjölskyldudeildar hafi verið rekinn eftir að hún hélt því fram í fjölmiðlum að deildin væri undirmönnuð. Nokkrum síðar var gerður við hana starfslokasamningur. Samfylkingarmenn hafa krafist þess að fá að sjá starfslokasamninginn en við því hefur ekki verið orðið enn. 12.9.2007 11:53
Staðfesti úrskurð Samkeppniseftirlitsins vegna Icelandair og Bláfugls Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í máli á hendur Icelandair Group og Bláfugli vegna samruna félaganna. Samkeppniseftirlitið ákvað í sumar að breyta skilyrðum sem sett voru í ákvörðun samkeppnisráðs vegna samruna FL Group, Bláfugls og og Flugflutninga árið 2005. 12.9.2007 11:48
Skjalda setti framleiðslumet Fólki hefur fjölgað hratt á Íslandi undanfarin misseri, einkum með erlendu vinnuafli sem hefur streymt til landsins. Fyrir einu og hálfu ári var fyrirsjáanlegt að skortur yrði á mjólk og mjólkurvörum. Stjórnvöld biðluðu þá til bænda að auka framleiðsluna. Bændur brugðust svo vel við að það vara sett framleiðslumet, 125 milljónir lítra. 12.9.2007 11:35
Hafnarstjórn og Hvalfjarðarsveit vilja bjóða sameiginlega í NATO-eigur Faxaflóahafnir og sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar ræða nú saman um sameignlegt tilboð í fyrrum eigur NATO í Hvalfirði. "Okkar áhugi beinist fyrst og fremst að bryggjunni sem er til staðar þarna," segir Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna í samtali við Vísi. "Við getum vel hugsað okkur bryggjuna sem lið í framtíðaráformum okkar." 12.9.2007 11:31
Fékk útsýnislóð út á spaðaásinn Jónas Gestur Jónasson varð hlutskarpastur í útdrætti um eftirsótta lóð á Húsavík á dögunum. Alls sóttu 33 um lóðina, sem stendur á fallegum útsýnisstað í bænum, en dregið var úr umsækjendum með aðstoð spilastokks. 12.9.2007 11:16
Forstjóraskipti í Leifsstöð Höskuldur Ásgeirsson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar ohf. í lok nóvember nk. og staðgengill forstjóra, Elín Árnadóttir, tekur þá við starfi forstjóra félagsins. 12.9.2007 11:09