Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumenn Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í fjögurra mánaða fangelsi sem skilorðsbundið er til tveggja ára fyrir að hafa veist að tveimur lögreglumönnum sem voru við skyldustörf í heimahúsi á Selfossi í nóvember í fyrra. 15.6.2007 10:58
Ólafur Þór Gunnarsson mótmælir ásökunum Gunnars Birgissonar Ólafur Þór Gunnarsson bæjarfulltrúi VG í Kópavogi hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar viðtals við Gunnar I. Birgisson bæjarstóra í Kópavogi í Kastljósinu í gær. Þar hélt Gunnar því fram að fjölmiðlaumfjöllun undanfarinna daga væri runnin undan rifjum pólitískra andstæðinga sinna og að bæjarfulltrúar hefðu farið með róg um hann í fjölmiðla. 15.6.2007 10:32
Aldraðir Reykvíkingar fá öryggissíma Hundrað einstaklingar munu fá virk símtæki með þráðlausum neyðarhnappi sett upp heima hjá sér í haust. Um er að ræða tilraunaverkefni. Með öryggissímanum geta notendur náð sambandi við vaktmiðstöð með einu handtaki. 15.6.2007 09:57
Varnamálaráðherrar funda um framtíð Afganistan Varnarmálaráðherrar NATO ríkjanna funda þessa dagana um fyrirhugað eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjanna í Evrópu og framtíð varnarmála í Afganistan. 14.6.2007 23:31
Biskupinn á ferð um Rangárvallarprófastsdæmi Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, hefur vikulanga vísitasíu í Rangarvallaprófastsdæmi föstudaginn 15. júní. Á þeim tíma sækir hann heim Oddaprestakall, Breiðabólsstaðarprestakall og Fellsmúlaprestakall. Vísitasíu í Holtsprestakall var frestað vegna veikinda sóknarprests. 14.6.2007 22:31
Karlmaður hneig niður á fótboltaleik Karlmaður hneig niður á leik Keflavíkur og Fram sem fram fór í Keflavík í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum voru það sjúkraflutningamenn á frívakt sem veittu fyrstu skyndihjálp og var maðurinn með meðvitund þegar sjúkrabíll og lögregla komu á staðinn. 14.6.2007 22:15
Íslensk erfðagreining nær sátt í dómsmáli Íslensk erfðagreining hefur náð sátt í dómsmáli sem var höfðað gegn bandaríska sjúkrahúsinu Children’s Hospital of Philadelphia (CHOP) og nokkrum fyrrverandi starfsmönnum Íslenskrar erfðagreiningar sem hófu þar störf. Með dómsáttinni hafa allir aðilar dregið kröfur sínar til baka og fellt málið niður. 14.6.2007 21:21
Dagskrá 17 júní í Reykjavík Þjóðhátíðardagur Íslendinga er næstkomandi sunnudag og verða hátíðarhöld víða um borgina eins og venja stendur til. Reykjavíkurborg hefur nú birt skemmtidagskrá fyrir þjóðhátíðardaginn. 14.6.2007 21:09
Tveggja ára fangelsi fyrir vopnað rán Ungur karlmaður var í Hæstarétti í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir vopnað rán í verslun. Ránið var framið að kvöldi laugardagsins 15. júlí árið 2006 í Krónunni, Bjarkarholti í Mosfellsbæ. Maðurinn huldi andlit sitt, ógnaði afgreiðslustúlkunni með 24 cm löngum fjaðurhníf og skipaði henni að afhenda sér peninga úr sjóðsvél verslunarinnar. 14.6.2007 20:43
Herraklippingum fjölgar Þær eru kallaðar herraklippingar, ófrjósemisaðgerðirnar sem karlar fara í, en töluverð aukning hefur verið í þeim enda endanleg og afar örugg getnaðarvörn. 14.6.2007 20:31
Lyftukláfur upp í Eyrarfjall Ferðamenn geta farið með lyftukláfi upp á Eyrarfjall, ofan við Ísafjörð, áður en langt um líður. Þeir sem eru að vinna í málinu benda á að á Vestfjörðum þurfi menn að nýta öllu atvinnutækifæri sem bjóðast. Þeir segja að ef allir útgerðarkallar vestra láta tvö þorskígildistonn í fyrirtækið, dugi það til. 14.6.2007 20:10
Óléttur fíkill á götunni Eva Rut er tuttugu og fjögurra ára gömul, hún er ólétt og hefur verið í fíkniefnum frá þrettán ára aldri. Hún neytti fíkniefna fram á tuttugustu viku meðgöngunnar, þegar hún komst að því að hún væri þunguð. 14.6.2007 20:07
Samvinna þó skiptar skoðanir um Írak Nicholas Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, segist harma það að margir Íslendingar hafi talið Bandaríkjamenn hegað sér með dónalegum hætti þegar varnarliðið var kallað heim frá Íslandi í fyrra. Samvinna þjóðanna verði styrkt. Hann segir skiptar skoðanir um málefni Íraks vel rúmast í samskiptum þjóðanna. 14.6.2007 19:18
Meira fjármagn þarf til rannsókna efnahagsbrota Hvítflibbaglæpir verða algengari með auknu flæði fjármagns í alþjóðasamfélaginu. Arðbærasti glæpurinn í dag er sala á eftirlíkingum tískuvara sem færir mun meiri hagnað en fæst af flutningi og sölu fíkniefna. Mun meira fjármagn þarf til efnahagsrannsókna hér á landi til að takast á við glæpi af þessu tagi. 14.6.2007 19:07
Skipið sem fann Titanic rannsakar eldvirkni við Ísland Skipið sem fann Titanic á hafsbotni fyrir 22 árum mun næstu þrjátíu daga rannsaka eldvirkni á Reykjaneshrygg í samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Háskólans á Hawaii. Rannsóknin er talin geta svarað spurningum um uppruna Íslands. 14.6.2007 19:05
Sárið morandi í lirfum Öldruð kona sem legið hefur rúmföst árum saman var flutt ásamt eiginmanni sínum á spítala fyrir þremur dögum eftir að nágrannar höfðu fundið megna ólykt frá íbúð þeirra. Aðkoman var skelfileg en þau gatu enga björg sér veitt. Konan var með sár á fæti sem var alsett lirfum. 14.6.2007 18:58
Ellilífeyrir gæti hækkað verulega hjá mörgum Lagabreytingin, sem tekur gildi um næstu mánaðamót, og afnemur tekjuskerðingu ellilífeyris hjá sjötugum og eldri, gæti þýtt allt að 126 þúsund króna viðbótargreiðslu til einstaklinga á mánuði og 207 þúsund króna viðbótargreiðslu til hjóna. Fjármálaráðuneytið áætlar að lagabreytingin kosti ríkið allt að 700 milljónir króna á ári. 14.6.2007 18:57
Hver á tugmilljarða eignir Samvinnutrygginga? Lokaður hópur eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga hittist á aðalfundi á morgun en eignir félagsins nema tugum milljarða króna. Lögmaður veltir því upp í blaðagrein í dag hver eigi eiginlega þessar stóreignir, en það virðist engan vegin ljóst. 14.6.2007 18:49
Flóahreppur hafnar Urriðafossvirkjun Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt að taka Urriðafossvirkjun út úr drögum að aðalskipulagi. Landsvirkjunarmenn segja þetta koma mjög á óvart og hyggjast ræða betur við hreppinn. 14.6.2007 18:49
Skora á ráðherra að endurskoða lög um torfæruhjól Umferðarstofa og forráðamenn Forvarnarhússins skora á samgönguráðherra að endurskoða undanþágu frá umferðarlögum sem leyfa börnum niður í sex ára að keyra torfæruhjól sem ná allt að 100 kílómetra hraða. Um er að ræða undanþágu frá umferðarlögum sem tók gildi í byrjun júnímánaðar. Hún kveður á um að börn niður í sex ára aldur megi nota mótorhjólin til æfinga og keppni. 14.6.2007 18:47
Keyrði undir áhrifum fíkniefna karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn í gærmorgun grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn hafði ekið sendibifreið sinni fram af vegkanti þar sem bifreiðin sat síðan föst. 14.6.2007 18:23
Ókeypis sprautunálar fyrir fíkla? Haraldur Briem sóttvarnarlæknir segir í samtali við Vísi.is að skoða þurfi ítarlega þann kost að fíklar geti nálgast ókeypis sprautunálar. Hann segir það sérstaklega mikilvægt í ljósi aukinna lifrarbólgu C smita hér á landi. 14.6.2007 18:20
Dæmdur fyrir bjórauglýsingu Hæstiréttur dæmdi í dag Ásgeir Johansen, framkvæmdastjóra Rolf Johansen & Company, til að greiða 500 þúsund króna sekt fyrir brot á áfengislögum. Fréttablaðið birti bjórauglýsingar frá fyrirtækinu fyrir ári síðan undir fyrirsögninni „Flott og sexý" með mynd af Heineken bjór. 14.6.2007 18:10
Alþjóðleikar ungmenna í næstu viku Alþjóðaleikar ungmenna verða haldnir í Laugardal í næstu viku og hefjast þeir með glæsilegri opnunarhátíð fimmtudaginn 21. júní. Keppni fer fram föstudag og laugardag og úrslitakeppni verður sunnudaginn 24. júní. 14.6.2007 17:29
Sakfelldur fyrir vörslu fíkniefna og umferðarlagabrot Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir þrítugum karlmanni sem var dæmdur fyrir vörslu fíkniefna, þjófnað og að hafa ekið þrívegis ölvaður og án ökuréttinda. 14.6.2007 17:16
Grænlenskum þingmönnum meinað að lenda á Húsavík Flugvél með fulltrúum grænlenska þjóðþingsins innanborðs var snúið fyrirvaralaust frá lendingu á Húsavíkurflugvelli fyrir skemmstu og henni gert að lenda Akureyrarflugvelli til að fara í gegnum tollskoðun. Sérstök opinber móttökunefnd var mætt á Húsavíkurflugvöll til að taka móti þingmönnunum og kom það henni verulega á óvart þegar vélinni var snúið til Akureyrar. 14.6.2007 17:05
Eins og hálfs árs fangelsi fyrir kókaínsmygl Hæstiréttur hefur staðfest eins og hálfs árs fangelsisdóm yfir karlmanni sem sakfelldur var fyrir stórfellt fíkniefnabrot með því að hafa staðið að innflutningi á nærri 700 grömmum af kókaíni til Íslands sem ætluð voru til sölu. 14.6.2007 16:56
Breskum réttardómstjóra falið að rannsaka banaslys í Hallormsstaðarskógi Réttarrannsókn á Englandi sem staðið hefur yfir vegna banaslyss í Hallormsstaðarskógi í ágúst 2005 hefur verið frestað. Beðið er eftir frekari upplýsingum frá íslenskum yfirvöldum. Ættingjar hjóna sem létust þegar bíll þeirra lenti í árekstri við flutningabíl eru ósátt við að bílstjórinn skuli ekki hafa verið kærður. 14.6.2007 16:50
Sýknaður af áfengislagabroti í Hæstarétti Hæstiréttur sýknaði í dag mann af ákæru um að hafa brotið áfengislög með því að hafa sem starfandi stjórnarformaður heildsölu látið birta auglýsingu á léttvíni í Gestgjafanum árið 2003. 14.6.2007 16:49
Þriggja ára fangelsi fyrir fjölmörg brot Hæstiréttur dæmdi í dag Ívar Smára Guðmundsson í þriggja ára fangelsi fyrir ýmis brot, þar á meðal fyrir tvö rán, líkamsárás, eignaspjöll og fíkniefna- og umferðalagabrot. Hann var meðal annars ákærður fyrir rán í Bónusvídeó í Hafnarfirði í júlí fyrra en þar komst hann á brott með hátt í tvær milljónir króna. 14.6.2007 16:40
Reynir íhugar að kæra Gunnar Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, íhugar að kæra Gunnar Birgisson, bæjarstóra í Kópavogi fyrir ummæli hans á Vísi fyrr í dag. Hann segist hafa falið lögfræðingum að fara yfir málið og skoða hvort Gunnar hafi gerst brotlegur við meiðyrðalöggjöf. 14.6.2007 16:30
Fyrstu trén gróðursett á Geitasandi Fyrstu trén í svokölluðum Kolviðarskógi voru gróðursett á Geitasandi í dag. Skógurinn er hluti af Kolviðarsjóðsverkefninu sem miðar að því að binda kolefni úr andrúmsloftinu og vinna þannig gegn loftlagsbreytingum í heiminum. 14.6.2007 14:52
Gunnar Birgisson ætlar að kæra Mannlíf og Ísafold Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi ætlar að kæra umfjallanir tímaritanna Ísafoldar og Mannlífs en bæði blöðin hafa fjallað ítarlega um meint hneyklismál sem Gunnar er bendlaður við. Gunnar segir umfjöllun Mannlífs mestu lágkúru íslenskrar blaðamennsku og hann ætlar ekki að svara efnislega þeim ávirðingum sem á hann eru bornar í blaðinu. 14.6.2007 14:52
Byggingarkrani féll á götuna Hluti af stórum byggingarkrana féll á götuna og skemmdi gangstétt við gatnamót Lönguhliðar og Flókagötu. Engin slys urðu á fólki en ökumaður sem á eftir krananum ók þurfti að hafa snör handtök til að forða árekstri. 14.6.2007 14:49
Ókeypis í strætó í Kópavogi Gera á strætivagna í Kópavogi gjaldfrjálsa fyrir alla íbúa bæjarins frá og með næstu áramótum samkvæmt tillögu meirihluta bæjarráðs Kópavogs. Tillagan var samþykkt á fundi ráðsins í dag og henni vísða til afgreiðslu bæjarstjórnar. Gert er ráð fyrir því að kostnaður vegna þessa nemi um 90 milljónum króna. 14.6.2007 14:41
Bandaríkjamenn styðja ekki þjóðir til framboðs í öryggisráð Nicholas Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir það stefnu Bandaríkjanna að lýsa ekki stuðningi við nokkurt ríki til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þetta kom fram á blaðamannafundi eftir fund Burns með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra í Ráðherrabústaðnum í Tjarnargötu í dag. 14.6.2007 14:29
Pólverjar fjölmennir á Íslandi Tæplega þriðjungur erlendra ríkisborgara sem búsettir eru hér á landi koma frá Póllandi samkvæmt vefriti fjármálaráðuneytisins. Alls voru 18.652 erlendir ríkisborgarar búsettir hér landi um síðustu áramót þar af um 6 þúsund Pólverjar. Á síðastliðnum tveimur áratugum hafa 8.300 Pólverjar flutt hingað til lands. 14.6.2007 13:58
Styttir gæsluvarðhald yfir meintum kókaínsmyglurum Hæstiréttur hefur stytt gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um að hafa reynt að smylga ríflega 3,7 kílóum af kókaíni til landsins sem ætlað var til sölu. 14.6.2007 13:15
Tvö torfæruslys á sólarhring Ungur maður lærbrotnaði þegar hann ók torfæruhjóli sínu á kyrrstæðan bíl í íbúðahverfi á Akranesi í gærkvöldi. Þetta er annað slysið af þessu tagi á einum sólarhring. 14.6.2007 13:00
Burns fundar með íslenskum ráðamönnum Nicholas Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom í gærkvöldi í heimsókn til Íslands í boði Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra. 14.6.2007 12:45
Færri teknir með fölsuð vegabréf Kona á fimmtugsaldri, ættuð frá Srí Lanka og Hvít-Rússi á fertugsaldri voru dæmd í 30 daga fangelsi í Héraðsdómi Suðurnesja í gær fyrir að hafa framvísað fölsuðum vegabréfum við komuna til landsins um helglina. Samkvæmt upplýsingum lögreglu og tollgæslu á Keflavíkurflugvelli hefur heldur dregið úr svona tilvikum upp á síðkastið. 14.6.2007 12:30
Skoða olíuhreinsistöð í Þýskalandi Hópur sveitarstjórnarmanna frá Vestfjörðum fer til Þýskalands innan tíðar til að kynna sér rekstur olíhreinsistöðvar. Mikill áhugi er vestra fyrir hugmyndinni um slíka stöð sem annaðhvort yrði í Dýrafirði eða Arnarfirði. 14.6.2007 12:29
706 sjóliðar í Reykjavík um helgina 706 bandarískir, spænskir og þýskir sjóliðar verða í Reykjavík um helgina. Þrjú herskip Atlantshafsbandalagsins komu til hafnar í morgun og verða til sýnis fyrir almenning laugardag og sunnudag. 14.6.2007 12:14
Sjötugir og eldri geta unnið án þess að ellilífeyrir skerðist Nýsamþykkt lög, sem afnema skerðingu ellilífeyris vegna atvinnutekna sjötugra og eldri, taka gildi um næstu mánaðamót. Talið er að frumvarpið auki útgjöld ríkissjóðs um allt að 700 milljónir króna á ári. 14.6.2007 12:03
Þarf meira fjármagn til að takast á við hvítflibbaglæpi Hvítflibbaglæpir verða algengari með auknu flæði fjármagns í alþjóðasamfélaginu. Arðbærasti glæpurinn í dag er sala á eftirlíkingum tískuvara sem færir mun meiri hagnað en fæst af flutningi og sölu fíkniefna. Mun meira fjármagn þarf til efnahagsrannsókna hér á landi til að takast á við glæpi af þessu tagi. 14.6.2007 12:02