Bandaríkjamenn styðja ekki þjóðir til framboðs í öryggisráð 14. júní 2007 14:29 MYND/Stöð 2
Nicholas Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir það stefnu Bandaríkjanna að lýsa ekki stuðningi við nokkurt ríki til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þetta kom fram á blaðamannafundi eftir fund Burns með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra í Ráðherrabústaðnum í Tjarnargötu í dag. Eins og kunnugt er sækjast Íslendingar eftir setu í öryggisráðinu en Burns vildi ekki lýsa yfir stuðningi við framboðið þar sem Bandaríkjamenn gerðu ekki slíkt. Fram kom að Ingibjörg Sólrún og Geir hefðu rætt við Burns um alþjóðamál á breiðum grundvelli, þar á meðal loftslagsbreytingar, Íraksstríðið og málefni Írans. Sagði Burns að margar og mismunandi þjóðir væru innan Atlantshafsbandalagsins sem hefðu mismunandi skoðanir á stöðunni í Írak. Mikilvægt væri þó að horfa fram á veginn og stuðla að uppbyggingu í Írak. Burns var einnig spurður út í yfirlýsingar sínar í erlendum miðlum um að Íranar sæju talibönum í Afganistan fyrir vopnum. Sagði hann að Bandaríkjamenn hefðu sannanir fyrir því að vopnin sem um ræddi væru upprunnin í Íran. Eftir fundinn heimsótti Burns Alþingishúsið en þar tók Sturla Böðvarsson, foresti Alþingis, á móti honum og sýndi honum húsakynnin. Burns ritaði svo nafn sitt í gestabók Alþingis. Nicholas Burns fer svo af landi brott í dag.
Mest lesið Íris Helga neitar sök Innlent Öðruvísi kappræður í beinni útsendingu með gestum í sal Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Innlent Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Innlent Árasin einkenndist af talsverðri heift Innlent Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Innlent Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Innlent Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Innlent Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Innlent Fleiri fréttir „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Öðruvísi kappræður í beinni útsendingu með gestum í sal Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Lækka ráðgjöf um hrefnuveiðar vegna villu í útreikningi Grunaður um ítrekuð brot gegn fósturbarni „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Íris Helga neitar sök Tveir bankar spá stýrivaxtahækkun þrátt fyrir kólnun hagkerfis Intuens lagði landlækni „Mikilvægt að sjá til þess að það líði ekki yfir neinn“ Gæsluvarðhald framlengt í Dettifoss-málinu Lausatök gagnrýnd í Grindavíkurskýrslu og bankarnir spá vaxtahækkun Ákvarðanir um aðgengi að Grindavík lausar í reipunum Aðstoðuðu tvö skip í vanda á Breiðafirði Gjöld fyrir frístund rokið upp Samþykktu risaframkvæmd og félagslegt húsnæði rétt fyrir kosningar Nýjar áskoranir í öryggismálum: Norðurslóðir og ytri mörk Evrópu Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Þetta er stefna flokkanna í Reykjavík í skipulags- og húsnæðismálum Skjálfti að stærð 3,6 á Mosfellsheiði Ekki mannúðlegt að halda farþegunum um borð Sjá meira