Sárið morandi í lirfum 14. júní 2007 18:58
Öldruð kona sem legið hefur rúmföst árum saman var flutt ásamt eiginmanni sínum á spítala fyrir þremur dögum eftir að nágrannar höfðu fundið megna ólykt frá íbúð þeirra. Aðkoman var skelfileg en þau gatu enga björg sér veitt. Konan var með sár á fæti sem var alsett lirfum. Heimildum ber ekki alveg saman um hversu alvarlegt mál þetta er og hvort hægt sé að rekja þetta ástand að einhverju leyti til afkiptaleysis heimahjúkrunar og Félagsþjónustu. Heimildum ber þó saman um að þessi öldruðu hjón hafi verið afar treg til að þiggja þjónustu og því verið nokkuð afskipt. Konan sem er á áttræðisaldri hefur verið rúmföst árum saman en eiginmaður hennar sem er nokkuð eldri hefur getað sinnt henni - eða þar til hann veikist nú í vor. Það er svo fyrir þremur dögum sem nágrönnum fólksins ofbýður svo ólyktin sem berst úr íbúðinni að kallað er eftir aðstoð og farið þar inn. Aðkoman var skelfileg og hafði fólkið ekki komist til að gera þarfir sínar á klósett svo dæmi sé tekið. Þegar konan var flutt á Landsspítala, háskólasjúkrahús kom í ljós að hún var með sár á fótum og höfðu sárabindin verið á þeim í nokkurn tíma. Undir umbúðunum í sárunum grasseruðu flugnalirfur. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru þessar lirfur ef til vill konunni til happs því þær átu dautt skinn og héldu sárinu hreinu. Í seinni tíð er jafnvel svipaðar lirfur notaðar á sjúkrahúsum til að hreinsa sár. Eftir því sem næst verður komist heilsast þessu fólki ágætlega á sjúkrahúsinu og getur snúið innan tíðar til síns heima það er eftir að búið er að hreinsa íbúð þeirra. Sagan hefur þó orðið starfsfólki í heilbrigðisgeiranum til umhugsunar um hversu algengt er að gamallt fólk sé heimavið í skelfilegum kringumstæðum án þess að þeim sé boðin þjónusta eða hún þegin.
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Fleiri fréttir Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira