Fleiri
Hálka og ófærð 22.12.2006 14:31 Talsverð seinkun á flugi til Bandaríkjanna Eftirmiðdagsbrottfarir til Bandaríkjanna frestast allar á eftir þar sem Evrópuvélarnar fóru seint út í morgun og koma því seint til Íslands á ný á leið sinni til Bandaríkjanna. Eins og er eru flestar brottfarirnar áætlaðar klukkan 20:30 en það gæti tafist enn frekar þar sem bætir í vind með kvöldinu. 22.12.2006 14:16 Tveir handteknir vegna þjófnaðar Lögreglan í Reykjavík handtók tvo menn á þrítugsaldri í gær sem grunaðir eru um innbrot í miðborginni. Tölvubúnaði var stolið á báðum stöðum en flest annað sem stolið var er komið í leitirnar. 22.12.2006 14:00 Tólf kertabrunar það sem af er desember Tólf kertabrunar hafa verið tilkynntir til tryggingarfélaganna það sem af er desember. Þetta er mun minna en síðustu sex árin en þá hafa að meðaltali verið 44 kertabrunar fyrstu þrjár vikurnar í desember. 22.12.2006 13:27 Hætta á flóðum þverrandi á Norðurlandi Lögreglan metur hættu á flóðum þverrandi á Norðurlandi. Vettvangsathuganir í Eyjafjarðarsveit, Hörgárdal og Svarfaðardal verða þó farnar í dag og jarðfræðingur látinn meta ástandið. 22.12.2006 12:45 Rennslið í Ölfusá náði í gær sexföldu meðalrennsli Flóðið í Ölfusá við Selfoss náði hámarki upp úr klukkan fimm í gær, þegar rennslið náði rösklega sexföldu meðalrennsli árinnar, en síðan hefur sjatnað ört í ánni. 22.12.2006 12:30 Mikil bið eftir flugi Miklar tafir hafa verið á öllu innanlands- og millilandaflugi í dag. Veðurútlit fyrir eftirmiðdaginn er þar að auki ekki gott. Miklar raðir eru nú við innritun í flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli. 22.12.2006 12:09 Alþingi verður að rannsaka hlerunarmál Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að ekkert muni ganga að upplýsa hleranamál fyrr en Alþingi láti þau til sín taka, eins og gert var í Noregi. Ríkissaksóknari felldi í gær niður rannsókn á meintum hlerunum á símum Jóns Baldvins með þeim rökum að ekkert væri fram komið sem styddi fullyrðingar hans um hleranir. 22.12.2006 12:08 Guðmundur Jónsson í Byrginu var kærður í morgun Ólöf Ósk Erlendsdóttir lagði fram kæru í dag á hendur Guðmundi Jónssyni, forstöðumanni Byrgisins. Þrjár konur að auki hafa haft samband við lögreglu vegna tengsla sinna við Guðmund. Ólöf sagði sögu sína í Íslandi í dag í gær. Hún fór í meðferð á Byrginu í apríl 2004 og kveðst hafa hafið náið samband við Guðmund Jónsson forstöðumann 18. nóvember sama ár. Að hennar sögn lauk sambandinu fyrir þremur til fjórum vikum. Í viðtalinu í gær sakaði hún Guðmund um fjársvik og trúnaðarbrest. Hún hefur margvísleg gögn undir höndum sem sanna kynferðislegt samband milli þeirra Guðmundar, þar á meðal myndbönd, myndir, tölvupósta, bréf og ljóð. 22.12.2006 12:06 Menn um borð í flutningaskipinu að kanna ástandið Landhelgisgæslan hefur flutt fjóra starfsmenn Olíudreifingar í flutningaskipið Wilson Muuga, sem strandaði við Hvalsnes í vikunni, en þeir ætla að reyna að undirbúa skipið fyrir olíudælingu þegar hún verður möguleg. 22.12.2006 11:18 För flutningabíla flýtt vegna veðurs Þeir flutningabílar sem áttu að leggja af stað frá Landflutningum-Samskipum á Patreksfjörð, Tálknafjörð og Bíldudal í dag hefur verið flýtt vegna veðurs. Í stað þess að leggja af stað klukkan fjögur í dag fara þeir á hádegi. 22.12.2006 11:01 Viðbúnaðarástandi aflétt í Árnessýslu Almannavarnarnefndir í Árnessýslu hafa aflétt viðbúnaðarástandi í sýslunni vegna flóðahættu. Nefndirnar komu saman til fundar klukkan tíu í morgun. 22.12.2006 10:44 Þakplötur á ferð og flugi um land allt Björgunarsveitir víða um land hafa verið ansi uppteknar í kvöld en veðurofsinn hefur verið mikill. Þakplötur hafa víða tekist á loft sem og fótboltamörk í Vík í Mýrdal. Björgunarsveitin á Akranesi er enn með vakt við höfnina en smábátar hafa losnað upp en þá tókst þó að festa aftur. 21.12.2006 23:32 Ingunn AK komin að landi á ný Landfestar togarans Ingunn AK gáfu sig í óveðrinu í kvöld og rak hann um höfnina um tíma. Rakst hann meðal annars í löndunarkrana hjá fiskimjölsverksmiðjunni og skemmdi hann en dansaði framhjá togaranum Bjarna Ólafssyni AK. 21.12.2006 22:04 Vatnsmagn í Ölfusá minnkar Lögreglan á Selfossi sagði í kvöld að flóðið í Ölfusá væri að minnka samkvæmt mælum í ánni og er búist við því að það taki vatnsmagnið um sólarhring að fara niður fyrir varúðarmörk. Einnig hefur gengið mjög vel að dæla upp úr húsum sem flæddi inn í svæðinu. 21.12.2006 21:44 Öxnadalsheiði lokuð vegna veðurs Lögreglan á Akureyri var rétt í þessu að senda frá sér tilkynningu um að vegurinn á Öxnadalsheiði hefði lokast. Starfsmenn vegagerðarinnar eru að störfum við að aðstoða bíla sem fastir eru en einn flutningabíla er fastur þversum á veginum. 21.12.2006 21:04 Bílslys í Hafnarfirði Árekstur varð á mótum Álftanesvegar og Hafnarfjarðarvegar, eða Engidalnum, um klukkan hálf átta í kvöld. Skemmdust báðir bílar það mikið að þurfti að draga þá af vettvangi. Ökumaður annars bílsins þurfti að fara á slysadeild til skoðunar en enginn meiddist alvarlega í slysinu. 21.12.2006 20:50 Sjá næstu 50 fréttir
Vodafone safnar um þúsund GSM-símum Vodafone áætlar að safna um þúsund GSM-símum í GSM-söfnun sinni en mikill kippur hefur hlaupið í söfnunina síðustu daga fyrir jól. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að nær allir söfnunarstandar séu að fyllast og því ljóst að landsmenn taka vel í þessa nýbreytni. 23.12.2006 15:15
Fimm flugvélar fóru til Akureyrar eftir hádegið Fimm flugvélar frá Flugfélagi Íslands hafa farið eftir hádegið til Akureyrar og því hafa um 250 manns sem beðið hafa eftir flugi þangað komist á áfangastað. Enn bíða þó á annað hundrað manns eftir flugi til Akureyrar og vonast forsvarsmenn fyrirtækisins eftir því að geta komið þeim öllum þangað í dag en veðurútlitið er ágætt. 23.12.2006 14:53
Búið að dæla upp úr tíu kjöllurum á Ísafirði Slökkviliðsmenn og bæjarstarfsmenn á Ísafirði vinna enn að því að dæla vatni upp úr kjöllurum húsa á eyrinni eftir flóð í morgun. Þá fóru saman stórstraumsflóð og hvassviðri með þeim afleiðingum að það flæddi inn í fjölmarga kjallara og götur bæjarins fóru á flot. 23.12.2006 14:42
Enn varað við óveðri á Vestfjörðum Vegagerðin varar enn við óveðri víða á Vestfjörðum og á Ströndum. Vegir eru víðast auðir, þó er hálka á Steingrímsfjarðarheiði og hálkublettir víðar á heiðum og hálsum á Vestfjörðum. Einnig eru hálkublettir á Vatnsskarði, Öxnadalsheiði og Lágheiði. Hrafnseyrarheiði er ófær. 23.12.2006 14:30
Á bilinu 600-700 messur og helgistundir yfir hátíðarnar Messur og helgistundir á vegum Þjóðkirkjunnar verða á bilinu 600-700 á landinu nú yfir hátíðarnar og áramótin, eftir því sem segir í tilkynningu frá Biskupsstofu. 23.12.2006 13:45
Spá Íslandsmeti í verslun í dag Jólaverslun nær hámarki í dag enda ekki nema röskur sólarhringur þar til bjöllur hringja inn jólin. Samtök verslunar og þjónustu hafa spáð því að Íslandsmet verði slegið í verslun í dag og áætlar að salan nemi þremur milljörðum króna á Þorláksmessu. 23.12.2006 13:30
Glitský sést í Suður-Þingeyjarýslu Svokallað glitský sást í Suður-Þingeyjarsýslu í morgun, bæði við Mýtvatn og á Húsavík. Glitský eru ský sem eru í fimmtán til tuttugu kílómetra hæð í heiðhvolfinu. Þegar hluti skýja er þunnur og hefur nokkurn veginn einsleita dropastærð getur bognun sólarljóssins gert það að verkum að þau skína með litamynstri regnbogans, og það gerðist í morgun, eins og sjá má. 23.12.2006 13:23
Hundruð kílóa af skötu fara í pottana Dagur skötunnar er í dag og það lyktar vel í Múlakaffi þessa stundina enda hundruð kílóa af skötu sem fer í pottana þar í dag. 23.12.2006 13:15
Reyðfirðingum fækkar um þúsund um jólin Reyðfirðingum fækkar um næstum þúsund manns í dag þegar Pólverjar sem starfa við byggingu álversins í Reyðarfirði fljúga heim til sín í jólafrí. 23.12.2006 13:00
Sjötíu hrossum bjargað í Skagafirði Unnið var að því í dag að bjarga um sjötíu hrossum sem urðu innlyksa vegna flóða í Héraðsvötnum í Skagafirði í gær en þau eru nú í rénun. 23.12.2006 12:39
Útlit fyrir að yfirstýrimaður hafi gert mistök Allt bendir til þess að yfirstýrimaður á flutningaskipinu Wilson Muuga hafi gert mistök sem ollu því að skipið strandaði. Þetta segir Guðmundur Ásgeirsson, fulltrúi eiganda á Íslandi. Sjópróf fóru fram í gær og þar kom fram að yfirstýrimanninum var ekki kunnugt um nýlega bilun í gírókompás. 23.12.2006 12:22
Skipulagi flugumferðar breytt ef skortur verður á flugumferðarstjórum Alþjóðaflugmálastofnunin hefur samþykkt aðgerðasáætlun flugmálastjóra sem gripið verður til ef skortur verður á íslenskum flugumferðarstjórum þann 1. janúar næstkomandi. Fram kemur í yfirlýsingu frá Flugmálastjórn að viðbragðsáætlunin feli í sér breytingu á skipulagi flugumferðar á íslenska flugstjórnarsvæðinu sem mun að mestu leyti fylgja föstum fyrirfram ákveðnum ferlum og flughæðum. 23.12.2006 12:02
Þrjár vélar farnar til Egilsstaða Þrjár flugvélar fóru fyrir hádegi til Egilsstaða og ein vél er farin til Vestmannaeyja. Nokkur fjöldi bíður þess á Reykjavíkurflugvelli að komast ferða sinna áður en jólahátíðin gengur í garð. 23.12.2006 12:00
Flæddi inn í fjölmarga kjallara á eyrinni á Ísafirði Slökkvilið Ísafjarðar hefur staðið í ströngu vegna óveðursins sem gekk yfir Vesturland og Vestfirði í morgun. Stórstraumsflóð var við Ísafjörð í morgun sem ásamt hvassviðri olli því að það flæddi inn í fjölmarga kjallara á eyrinni á Ísafirði. 23.12.2006 11:36
Áttatíu prósent þjóðarinnar jákvæð í garð Íbúðalánasjóðs Tæplega 80 prósent landsmanna eru jákvæð í garð Íbúðalánasjóðs samkvæmt könnun sem Capacent gerði á dögunum. Þar kemur einnig fram að innan við fjögur prósent aðspurðra eru neikvæð í garð sjóðsins. 23.12.2006 11:30
Ekki hægt að dæla olíu úr flutningaskipinu fyrr en eftir hátíðarnar Ólíklegt er að hægt verði að hefja dælingu úr flutningaskipinu Wilson Muuga, sem strandaði við Hvalsnes, fyrr en eftir hátíðarnar. Könnunarleiðangur sem farinn var í dag leiddi í ljós að olía hefur lekið úr skipinu en hún hefur ekki náð upp í fjöru. Í nótt er spáð vonskuveðri sem kemur til með að reyna mjög á skipið. 22.12.2006 19:12
Alþingi verður að taka á hlerunarmálum Alþingi verður að fara að dæmi Norðmanna og skipa rannsóknarnefnd um hleranir. Þetta segir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, eftir að ríkissaksóknari lýsti því yfir að ekkert væri fram komið sem styddi fullyrðingar hans um hleranir og ekki væri tilefni til að halda rannsókn málsins áfram. Hann segir hlerunarmál föður síns sína að það voru pólitískar njósnir. 22.12.2006 19:11
Fólksfjölgun á Íslandi sú mesta í Evrópu Íbúar á Íslandi eru rétt liðlega 307 þúsund talsins, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Fólksfjölgun var óvenju mikil á árinu, eða 2,6 prósent, og er hún hvergi í Evrópu svo mikil um þessar mundir. Fólki fjölgaði í öllum landshlutum nema á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. 22.12.2006 19:07
Gengi krónunnar og hlutabréf lækkuðu vegna lækkaðs lánshæfismats ríkissjóðs Gengi íslensku krónunnar lækkaði um tæp þrjú prósent í dag og hlutabréf í Kauphöll Íslands lækkuðu um tæp tvö prósent eftir að matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands um leið og það gagnrýndi þensluhvetjandi kosningafjárlög. Geir H. Haarde forsætisráðherra segir þetta rangan dóm yfir fjárlögunum. 22.12.2006 18:48
Aðeins brot af jörðinni fór ekki undir vatn Aðeins brot úr hektara af landi Björnskots á Skeiðum fór ekki undir vatn þegar flóðið í Hvítá stóð sem hæst. Fjöldi heyrúlla eyðilagðist og mun hey fyrir mjólkurkýrnar ekki duga út veturinn. Enn er ófært að Vatnsnesi í Grímsnesi en fært er orðið heim að öðrum bæjum í sýslunni. 22.12.2006 18:45
Þúsundir flugfarþega biðu í dag Þúsundir flugfarþega máttu bíða klukkustundum saman annan daginn í röð, bæði í innanlands- og millilandaflugi. Nokkrir komust þó á leiðarenda í dag eftir langa bið og fréttastofa hitti mann sem hafði beðið í fimm daga eftir að hitta barnabörnin. Engar flugvélar fóru frá Reykjavíkurflugvelli eftir klukkan fimm í dag og spáin er tvísýn fyrir fyrripartinn á morgun. 22.12.2006 18:35
Grunur um að starfsmenn Byrgis hafi getið vistkonum börn Grunur leikur á að fleiri en ein kona í meðferð í Byrginu hafi orðið barnshafandi eftir starfsmenn þar. Kona kærði í dag Guðmund Jónsson forstöðumann fyrir kynferðisbrot. Þrjár að auki hafa haft samband við lögreglu vegna tengsla sinna við Guðmund. Formaður Samfylkingarinnar vill opinbera rannsókn á starfsemi Byrgisins. 22.12.2006 18:30
Ofsaveður og sumstaðar fárviðri Afar slæmt veðurútlit er fyrir Vesturland og Vestfirði í nótt og norðanvert landið fyrir hádegi á morgun, gangi spár eftir. Eru horfur á að vindhviður á þessu svæðum geti farið um og yfir 50 m/s og að jafnaðarvindhraði verði á bilinu 23-33 m/s á þegar veðrið verður verst. 22.12.2006 17:48
Olíuleki talinn í lágmarki Könnun á aðstæðum við strandstað Wilson Muuga sýna að ef skipið stendur af sér komandi veður er líklegt að það verði lengi á sama stað þar sem straumur fer minnkandi. Olíuleki er í lágmarki en ekki verður hægt að mæla hann nákvæmlega fyrr en veður batnar. 22.12.2006 17:25
Davíð Oddsson er ekki hress yfir matinu Gengi krónunnar lækkaði um 2,72 prósent og gengi hlutabréfa í Kauphöll Íslands lækkaði talsvert eftir að matsfyrirtækið Standard & Poor's greindi frá því í dag að það hefði lækkað lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands. Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, segist ekki hress yfir matinu og að menn hefðu gjarnan viljað vera lausir við það. Moody´s matsfyrirtækið staðfestir hinsvegar gildandi mat sitt á lánshæfi ríkissjóðs. 22.12.2006 16:54
Fimmtíu ár frá komu fyrstu flóttamannanna Fimmtíu ár eru á aðfangadag liðin frá því að flóttamönnum var fyrst veitt hæli á Íslandi. Þá komu flóttamenn frá Ungverjalandi sem flúið höfðu til Austurríkis undan innrás Sovétmanna. Alls hafa íslensk stjórnvöld boðið 531 flóttamanni vernd hér landi í samvinnu við Flóttamannastofnun, Rauða kross Íslands og sveitarfélög í landinu. 22.12.2006 15:51
Dró eiginkonu sína á hárinu eftir hótelgangi Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á eiginkonu sína. Maðurinn dró konuna meðal annars á hárinu eftir hótelgangi og stakk höfði hennar ofan í klósettskál 22.12.2006 15:29
Róbert Wessman maður ársins í íslensku atvinnulífi Róbert Wessman, forstjóri Actavis Group, er maður ársins í íslensku atvinnulífi árið 2006 að mati dómnefndar Frjálsrar verslunar. 22.12.2006 14:33
Talsverð seinkun á flugi til Bandaríkjanna Eftirmiðdagsbrottfarir til Bandaríkjanna frestast allar á eftir þar sem Evrópuvélarnar fóru seint út í morgun og koma því seint til Íslands á ný á leið sinni til Bandaríkjanna. Eins og er eru flestar brottfarirnar áætlaðar klukkan 20:30 en það gæti tafist enn frekar þar sem bætir í vind með kvöldinu. 22.12.2006 14:16
Tveir handteknir vegna þjófnaðar Lögreglan í Reykjavík handtók tvo menn á þrítugsaldri í gær sem grunaðir eru um innbrot í miðborginni. Tölvubúnaði var stolið á báðum stöðum en flest annað sem stolið var er komið í leitirnar. 22.12.2006 14:00
Tólf kertabrunar það sem af er desember Tólf kertabrunar hafa verið tilkynntir til tryggingarfélaganna það sem af er desember. Þetta er mun minna en síðustu sex árin en þá hafa að meðaltali verið 44 kertabrunar fyrstu þrjár vikurnar í desember. 22.12.2006 13:27
Hætta á flóðum þverrandi á Norðurlandi Lögreglan metur hættu á flóðum þverrandi á Norðurlandi. Vettvangsathuganir í Eyjafjarðarsveit, Hörgárdal og Svarfaðardal verða þó farnar í dag og jarðfræðingur látinn meta ástandið. 22.12.2006 12:45
Rennslið í Ölfusá náði í gær sexföldu meðalrennsli Flóðið í Ölfusá við Selfoss náði hámarki upp úr klukkan fimm í gær, þegar rennslið náði rösklega sexföldu meðalrennsli árinnar, en síðan hefur sjatnað ört í ánni. 22.12.2006 12:30
Mikil bið eftir flugi Miklar tafir hafa verið á öllu innanlands- og millilandaflugi í dag. Veðurútlit fyrir eftirmiðdaginn er þar að auki ekki gott. Miklar raðir eru nú við innritun í flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli. 22.12.2006 12:09
Alþingi verður að rannsaka hlerunarmál Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að ekkert muni ganga að upplýsa hleranamál fyrr en Alþingi láti þau til sín taka, eins og gert var í Noregi. Ríkissaksóknari felldi í gær niður rannsókn á meintum hlerunum á símum Jóns Baldvins með þeim rökum að ekkert væri fram komið sem styddi fullyrðingar hans um hleranir. 22.12.2006 12:08
Guðmundur Jónsson í Byrginu var kærður í morgun Ólöf Ósk Erlendsdóttir lagði fram kæru í dag á hendur Guðmundi Jónssyni, forstöðumanni Byrgisins. Þrjár konur að auki hafa haft samband við lögreglu vegna tengsla sinna við Guðmund. Ólöf sagði sögu sína í Íslandi í dag í gær. Hún fór í meðferð á Byrginu í apríl 2004 og kveðst hafa hafið náið samband við Guðmund Jónsson forstöðumann 18. nóvember sama ár. Að hennar sögn lauk sambandinu fyrir þremur til fjórum vikum. Í viðtalinu í gær sakaði hún Guðmund um fjársvik og trúnaðarbrest. Hún hefur margvísleg gögn undir höndum sem sanna kynferðislegt samband milli þeirra Guðmundar, þar á meðal myndbönd, myndir, tölvupósta, bréf og ljóð. 22.12.2006 12:06
Menn um borð í flutningaskipinu að kanna ástandið Landhelgisgæslan hefur flutt fjóra starfsmenn Olíudreifingar í flutningaskipið Wilson Muuga, sem strandaði við Hvalsnes í vikunni, en þeir ætla að reyna að undirbúa skipið fyrir olíudælingu þegar hún verður möguleg. 22.12.2006 11:18
För flutningabíla flýtt vegna veðurs Þeir flutningabílar sem áttu að leggja af stað frá Landflutningum-Samskipum á Patreksfjörð, Tálknafjörð og Bíldudal í dag hefur verið flýtt vegna veðurs. Í stað þess að leggja af stað klukkan fjögur í dag fara þeir á hádegi. 22.12.2006 11:01
Viðbúnaðarástandi aflétt í Árnessýslu Almannavarnarnefndir í Árnessýslu hafa aflétt viðbúnaðarástandi í sýslunni vegna flóðahættu. Nefndirnar komu saman til fundar klukkan tíu í morgun. 22.12.2006 10:44
Þakplötur á ferð og flugi um land allt Björgunarsveitir víða um land hafa verið ansi uppteknar í kvöld en veðurofsinn hefur verið mikill. Þakplötur hafa víða tekist á loft sem og fótboltamörk í Vík í Mýrdal. Björgunarsveitin á Akranesi er enn með vakt við höfnina en smábátar hafa losnað upp en þá tókst þó að festa aftur. 21.12.2006 23:32
Ingunn AK komin að landi á ný Landfestar togarans Ingunn AK gáfu sig í óveðrinu í kvöld og rak hann um höfnina um tíma. Rakst hann meðal annars í löndunarkrana hjá fiskimjölsverksmiðjunni og skemmdi hann en dansaði framhjá togaranum Bjarna Ólafssyni AK. 21.12.2006 22:04
Vatnsmagn í Ölfusá minnkar Lögreglan á Selfossi sagði í kvöld að flóðið í Ölfusá væri að minnka samkvæmt mælum í ánni og er búist við því að það taki vatnsmagnið um sólarhring að fara niður fyrir varúðarmörk. Einnig hefur gengið mjög vel að dæla upp úr húsum sem flæddi inn í svæðinu. 21.12.2006 21:44
Öxnadalsheiði lokuð vegna veðurs Lögreglan á Akureyri var rétt í þessu að senda frá sér tilkynningu um að vegurinn á Öxnadalsheiði hefði lokast. Starfsmenn vegagerðarinnar eru að störfum við að aðstoða bíla sem fastir eru en einn flutningabíla er fastur þversum á veginum. 21.12.2006 21:04
Bílslys í Hafnarfirði Árekstur varð á mótum Álftanesvegar og Hafnarfjarðarvegar, eða Engidalnum, um klukkan hálf átta í kvöld. Skemmdust báðir bílar það mikið að þurfti að draga þá af vettvangi. Ökumaður annars bílsins þurfti að fara á slysadeild til skoðunar en enginn meiddist alvarlega í slysinu. 21.12.2006 20:50