Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir Frjálslynda kynda undir kynþáttafordómum Steinunn Valdís Óskarsdóttir einn frambjóðenda í prófkjöri Samfylkingarinnar segir Magnús Þór Hafsteinsson þingmann Frjálslynda, kynda undir ótta fólks við útlendinga. Hún segir að skoðanir þingmannsins séu hrollvekjandi og spyr sig hvort Frjálslyndi flokkurinn ætli að taka upp ískalda þjóðernishyggju til að freista þess að auka fylgi sitt. 5.11.2006 18:30
Maður sem lýst var eftir er fundinn Maðurinn sem lögreglan í Reykjavík lýsti eftir þann þriðja nóvember síðastliðinn, Kristófer Örn Sigurðsson, er fundinn. Hann fannst nú rétt undir kvöld. 5.11.2006 18:17
Vinstri grænir aflýsa kjördæmisþingi vegna veðurs Vinstri grænir ætluðu sér að halda kjördæmisþing í Norðvesturkjördæmi í Dalabúð í Búðardal í dag. Þar átti að taka ákvörðun um hvernig staðið yrði að uppröðun á framboðslista í Vinstri grænna í kjördæminu. Aðeins félagar svæðisfélaganna hafa þar atkvæðisrétt. 5.11.2006 17:47
Steinunni Valdísi hryllir við skoðunum þingmanns Frjálslynda flokksins Steinunn Valdís Óskarsdóttir einn frambjóðenda í prófkjöri Samfylkingarinnar segir Magnús Þór Hafsteinsson þingmann Frjálslynda, kynda undir ótta fólks við útlendinga. Skoðanir þingmannsins séu hrollvekjandi. Hún spyr sig hvort Frjálslyndi flokkurinn ætli að taka upp ískalda þjóðernishyggju til að freista þess að auka fylgi sitt. 5.11.2006 17:04
Ikkemut komið af strandstað Hafsögumönnum og björgunarsveitamönnum í Hafnarfirði tókst að draga grænlenska draugaskipið Ikkemut af strandstað rúmlega þrjú í dag. 5.11.2006 15:26
Talið verður í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi í kvöld Talið verður í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi í dag. Einhver bið verður þó á fyrstu tölum þar sem kjörkassinn frá Vestmannaeyjum kemst ekki í land sökum veðurs. 5.11.2006 15:18
Millilandaflug að fara af stað en óvíst með innanlandsflug Millilandaflug hefur hafist á ný eftir miklar tafir vegna veðurs en athugað verður með innanlandsflug klukkan fimm í dag. 5.11.2006 14:33
Veður á Austurlandi versnar enn Lögreglan á Egilsstöðum skýrði frá því í dag að vegurinn á Möðrudalsöræfum væri lokaður vegna veðurs, sem og leiðin frá Egilsstöðum til Mývatns. Veginum á Sandvíkurheiði, sem liggur milli Vopnafjarðar og Bakkafjarðar, hefur einnig verið lokað. 5.11.2006 13:25
Draga á Ikkemut af strandstað kl. tvö í dag Hafsögumenn og björgunarsveitamenn í Hafnarfirði ætla sér að draga grænlenska draugaskipið Ikkemut af strandstað klukkan tvö í dag. 5.11.2006 13:00
Millilandaflug hefst á ný Millilandaflug á að hefjast á ný klukkan eitt í dag. Þetta kemur fram á vef Keflavíkurflugvallar. 5.11.2006 12:50
Þórunn Sveinbjarnardóttir efst í prófkjöri Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi Breytingar hafa orðið á röð efsta fólks í prófkjöri Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi. Þórunn Sveinbjarnardóttir leiðir nú listann og hefur hlotið 723 atkvæði í 1. sæti, Katrín Júlíusdóttir 1.137 atkvæði í 1.-2. sæti og Gunnar Svavarsson 875 atkvæði í 1.-3. sæti. 4.11.2006 22:34
Gunnar Svavarsson leiðir prófkjör Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi eftir 2. talningu Nýjar tölur um dreifingu atkvæða í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi voru að berast frá formanni kjörstjórnar Halldóri S. Guðmundssyni. Hafa atkvæði fallið þannig að Gunnar Svavarsson hefur hlotið 683 atkvæði í 1. sæti, Katrín Júlíusdóttir 1.137 atkvæði í 1.-2. sæti og Þórunn Sveinbjarnardóttir hefur hlotið 1.258 atkvæði í 1.-3. sæti. 4.11.2006 20:56
4.996 kusu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi Kosningum í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi er nú lokið. Talið verður á morgun og áætlað er að fyrstu tölur berist um 18:00 á morgun, sunnudag. 4.11.2006 20:17
4151 höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi kl 19. 4151 höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi kl 19. Að sögn Halldórs S. Guðmundssonar formanns kjörstjórnar munu fyrstu tölur berast um kl. 20.30. 1900 félagar í Samfylkingunni kusu í síðusta prófkjöri og telst þetta því mjög góð þátttaka. 4.11.2006 19:44
Ekki mesta hætta á vopnuðum árásum Yfirmaður friðarrannsóknarstofnunarinnar í Stokkhólmi segir að í stað þess að hugsa um hvað geti komið í staðinn fyrir samstarf Íslendinga við Bandaríkjamenn í varnarmálum eigi að leita leiða til að styrkja það. Hún segir öryggisógnir gagnvart Íslandi síður tengdar vopnbeitingu en frekar vera á sviði efnahags- og umhverfismála. 4.11.2006 19:00
Hundvotir hvuttar á Laugaveginum Á annað hundrað hundaeigendur með enn fleiri hunda gengu niður Laugaveginn í Reykjavík í dag. Þetta var í fjórða skipti sem hundaeigendur efna til göngu sem þessarar niður annars forboðinn Laugaveginn. 4.11.2006 18:45
Evrópskt peningasvindl teygir anga sína til Íslands Tveir Íslendingar hafa lent í umfangsmikilli fjársvikastarfsemi á internetinu sem teygir anga sína um alla Evrópu. Þeir sem vísvitandi taka þátt í svikunum eiga yfir höfði sér fangelsi og fjársektir. 4.11.2006 18:30
Framsókn biði afhroð yrði kosið nú Samkvæmt greiningu sem gerð hefur verið fyrir Ríkisútvarpið á þingmannafjölda stjórnmálaflokkanna miðað við nýlega könnun Capacent, verður mikil breyting á fjölda þingmanna einstakra flokka. 4.11.2006 18:30
Kristján L. Möller sigraði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi Kristján L. Möller sigraði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, Einar Már Sigurðarson var í öðru sæti og Lára Stefánsdóttir lenti í því þriðja. 4.11.2006 17:59
Vel á fimmta þúsund kosið í prófkjöri samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi Vel á fimmta þúsund manns voru búnir að kjósa kl. 17 í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. 4.11.2006 17:53
Flokkurinn þarf að kynna sín góðu verk Samúel Örn Erlingsson íþróttafréttamaður fékk langflest atkvæði í annað sætið á lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi í dag. Samúel segir flokkinn þurfa að kynna betur sín góðu verk. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra var sjálfkjörin í forystusætið. 4.11.2006 17:45
Tæplega 2300 kosið í prófkjöri samfylkingarinnar í suðvesturkjördæmi Samkvæmt nýjustu tölum úr prófkjöri samfylkingarinnar í suðvesturkjördæmi höfðu 2289 kosið klukkan fjögur í dag. 4.11.2006 17:04
Tæplega 3000 kosið í prófkjöri Samfylkingar í Suðurkjördæmi Tæplega 3000 manns voru búnir að kjósa kl. 15. í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. 4.11.2006 15:46
KB Banki færir Krabbameinsfélagi Íslands nýtt tæki til greiningar á brjóstakrabbameini Í dag færði KB banki Krabbameinsfélagi Íslands andvirði nýs stafræns röntgenmyndatækis, til leitar að brjóstakrabbameini, að gjöf. Nýrri tækni er ætlað að leysa eldri röntgenmyndabúnað af hólmi og gera forvarnarstarf vegna brjóstakrabbameins kvenna auðveldara og árangursríkara. 4.11.2006 15:42
Tæplega 1900 hafa kosið í prófkjöri Samfylkingar í Suðurkjördæmi Alls voru 1870 búnir að kjósa kl. 13. í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. 4.11.2006 14:33
800 greitt atkvæði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvestur kjördæmi 800 manns höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvestur kjördæmi kl. 12 á hádegi, þar af 365 utankjörfundar. 4.11.2006 14:01
Biðlistar eftir hjúkrunarplássum nánast hverfa 2010 Biðlistar eftir hjúkrunarrýmum nánast hverfa þegar þau 174 pláss sem heilbrigðisráðherra kynnti í dag verða tekin í notkun. Biðlistar hafa á undanförnum sex mánuðum styst um 20%. 4.11.2006 12:31
Hjúkrunarfræðingaskortur á næstu árum Um 40% allra starfandi hjúkrunarfræðinga láta af störfum vegna aldurs á næstu 10-15 árum og ef takast á að manna stéttina þarf að fjölga nýnemum í hjúkrunarfræði. Þetta kemur fram í ályktun Hjúkrunarþings sem lauk í gær. 4.11.2006 12:28
Samúel Örn í 2. sæti í Kraganum Samúel Örn Erlingsson íþróttafréttamaður fékk langflest atkvæði í annað sætið á lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi á aukakjördæmisþingi framsóknarfélaganna á Seltjarnarnesi nú fyrir hádegi. Una María Óskarsdóttir verður í þriðja sæti eins og fyrir síðustu kosningar og Gísli Tryggvason í því fjórða. 4.11.2006 12:10
Sjaldgæfur fundur trúarleiðtoga Leiðtogi rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, Christodoulos erkibiskup, ætlar að hitta Benedikt sextánda páfa í Vatikaninu þann 14. desember næstkomandi. Slíkur fundur er fátíður enda hafa löngum verið litlir kærleikar með kirkjunum tveimur. Christodoulos ætlaði fyrir þremur árum að funda með Jóhannesi Páli II sem þá var páfi en þeim fundi var aflýst vegna veikinda páfa. 3.11.2006 23:15
Fjórir létust í rútuslysi við Skövde í Svíþjóð Fjórir létust í hörðum árekstri rútu og rútukálfs í Svalöv, rétt við Skövde í Svíþjóð í kvöld og 13 ára drengur slasaðist. Flughált var á veginum eftir miklar rigningar í dag og frost undir kvöldið. Drengnum er haldið sofandi og gekkst hann undir aðgerð vegna lærbrots. 3.11.2006 22:53
Rússar falla frá kröfum um veiðieftirlitsmenn í togurum Íslenskir togarar í Barentshafi, sem og togarar undir öðrum þjóðum, þurfa ekki að hafa rússneska veiðieftirlitsmenn um borð við veiðar, eins og Rússar höfðu krafist. Fréttavefurinn skip.is greinir frá því að Rússar hafi fallið frá þessari kröfu sinni í viðræðum norsk-rússnesku fiskveiðinefndarinnar í dag. 3.11.2006 22:47
Sækist eftir 3.-4. sæti í forvali VG í Reykjavík og kraga Myndlistarkonan Mireya Samper sækist eftir 3.-4. sæti í forvali VG í Reykjavík og kraga. Hún hefur verið varamaður í stjórn VG í Kópavogi undanfarin 2 ár en er nú nýkjörinn formaður þess félags. 3.11.2006 22:14
Keyrði á og stakk af á móti rauðu ljósi Fólksbíll keyrði á annan á mótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar á áttunda tímanum í kvöld en stakk af frá verknaðinum. Kórónaði hann brotið með því að stinga af gegn rauðu ljósi. Enginn slasaðist en málið er samt sem áður litið alvarlegum augum og er í rannsókn hjá umferðardeild lögreglunnar. Vitni eru beðin um að hafa samband við lögregluna. 3.11.2006 21:54
Sporhundur fann bílaþjóf inni í loftræstistokki Sporhundur lögreglunnar í Reykjavík fann bílaþjóf í hnipri inni í loftræstistokki í nýbyggingu í Borgartúni eftir mikinn eltingarleik í kvöld. Maður á þrítugsaldri hafði stolið jeppa í Árbæ í vikunni og notað debetkort sem hann fann í bílnum. Næst fréttist af jeppanum þegar honum var keyrt aftan á leigubíl á Háteigsvegi í kvöld. 3.11.2006 21:41
626 kusu utankjörfundar hjá Samfylkingu í Suðurkjördæmi 626 höfðu kosið í utankjörfundaratkvæðagreiðslu í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi þegar kjörstöðum var lokað klukkan 20 í kvöld. Kjörfundur opnar klukkan níu í fyrramálið og er prófkjörið opið öllum sem kosningabærir eru í kjördæminu, ekki er skylda að vera skráður í flokkinn. 3.11.2006 20:59
Neyðarkall fær góðar viðtökur Neyðarkall björgunarsveita Landsbjargar hefur fengið prýðisgóðar undirtektir á fyrsta degi fjársöfnunarinnar. Í Kringlunni tók fólk vel á móti litla bjargvættinum enda kostar hann bara eitt þúsund krónur, sem renna til góðs málefnis. Landsbjargarmenn telja að þegar hafi selst hátt í 10 þúsund neyðarkallar, sem er rúmur þriðjungur af upplaginu. 3.11.2006 20:45
Oddsskarð opnar á morgun Stefnt er á að opna skíðasvæðið í Oddsskarði á morgun. Stóra lyftan verður opin frá 11:00 til 15:00 ef veður og aðstæður leyfa. Ókeypis verður í lyftuna á morgun í tilefni af því að skíðasvæðið hefur aldrei fyrr opnað jafn snemma vetrar. Veðurspáin lofar góðu fyrir skíðafólk fyrir austan um miðjan dag á morgun. 3.11.2006 20:00
Ganga gegn nauðgunum á miðnætti annað kvöld Jafningjafræðslan stendur fyrir hópgöngu niður Laugaveginn á miðnætti á aðfaranótt sunnudags nk. til að mótmæla nauðgunum og vekja athygli á baráttu samtakanna gegn kynferðislegu ofbeldi. Bifhjólasamtökin Sniglarnir munu einnig slást í för með Jafningjafræðslunni. 3.11.2006 19:55
Maður handtekinn á Akureyri vegna kynferðislegs ofbeldis við 10 ára telpu Lögreglan á Akureyri handtók mann á vinnustað sínum fyrr í vikunni sem hafði beitt tíu ára telpu kynferðislegu ofbeldi. Maðurinn hefur áður komist í kast við lögin. Telpan sagði mömmu sinni fyrir nokkrum dögum að maður hefði ítrekað átt við sig kynferðislega. Lögregla og barnayfirvöld voru samstundis látin vita og hafa fulltrúar Barnahúss rætt við telpuna. 3.11.2006 19:15
Hjálparhella Íslendinga bendluð við peningaþvætti Hjálparhella íslenskra kaupsýslumanna í Danmörku, danski lögmaðurinn Jeff Galmond, og rússneski fjarskiptaráðherrann eru í aðalhlutverki fréttaskýringar Ekstrablaðsins danska í dag um íslensku útrásina. 3.11.2006 18:32
Stefna að álveri í Þorlákshöfn Sveitarfélagið Ölfus hefur veitt vilyrði fyrir lóð undir áltæknigarð og álver vestan við Þorlákshöfn. Orkumagnið sem þetta tvennt krefst er jafnmikið og helmingsframleiðslugeta Kárahnjúkavirkjunar. 3.11.2006 18:30
EGO fær viðurkenningu Orkuseturs fyrir að stuðla að eldsneytissparnaði EGO sjálfsafgreiðslustöðvar hljóta viðurkenningu Orkuseturs fyrir að draga úr eldsneytisnotkun með því að bjóða ökumönnum tölvustýrða mælingu og loftjöfnun á hjólbörðum bifreiða. Orkusetur áætlar að með bættri jöfnun lofts í hjólbörðum mætti spara Íslendingum um 500 milljónir króna á ári og minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda um 12 þúsund tonn. 3.11.2006 18:02
Spá hruni flestra fiskistofna innan 50 ára Hópur erlendra sérfræðinga spáir því að allir fiskistofnar heimsins hrynji innan fimmtíu ára verði ekkert að gert. Þeir segja að nú þegar hafi um 30 prósent nytjastofna hafsins hrunið. Forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar segir enga vá blasa við íslenskum fiskistofnum en auka verði skipulagða fiskveiðistjórnun í heiminum. 3.11.2006 17:55
300 milljón króna niðurskurður til verknáms Þingmenn stjórnarandstöðunnar saka stjórnarmeirihlutann um að svelta iðnnám í landinu með 300 milljón króna niðurskurði í fjárlögum næsta árs. Stjórnarþingmenn segja unnið að leiðréttingu málsins í sátt og segja stjórnarandstöðuna með upphlaup að óþörfu. 3.11.2006 17:50